Dagblaðið Vísir - DV - 24.04.2009, Síða 50
föstudagur 24. apríl 200950 Sakamál
SySturnar Sem myrtu Vændi, eiturlyf, þjófnaðir og fátækt
einkenndu vettvang alræmdustu raðmorða í sögu Egyptalands, morða sem
skóku landið við upphaf þriðja áratugar síðustu aldar. fórnarlömbin voru öll
konur og morðingjarnir voru tvær systur sem nutu stundum aðstoðar eigin-
manna sinna eða annarra.
Morðin voru framin í al-labban, hverfi þar sem fátækt ríkti og glæpir voru algeng-
ir. Þegar lögreglan lauk rannsókn sinni höfðu fundist lík sautján kvenna.
lesið um systurnar sem myrtu í næsta helgarblaði dV.
Líkin í aLdingörðunum
Ekki var allt sem sýndist hjá Juan Corona, verktaka sem réð farandverkamenn til ávaxtatínslu í aldingörð-
um ávaxtabænda í Yuba í Kaliforníu. Hann var ímynd karlmennskunnar, kvæntur og tveggja barna faðir.
En innra með honum bærðust hvatir sem kostuðu fjölda karlmanna lífið.
Juan Corona kom til Yuba í Kali-
forníu á sjötta áratug síðustu ald-
ar, ólöglega frá Mexíkó. Feril sinn á
bandarískri grundu hóf hann sem
farandverkamaður, en síðar komst
hann ofar í þjóðfélagsstigann og
gerðist verktaki og réð farandverka-
menn til ávaxtatínslu á búgörðum
bænda á svæðinu, og greiddi þeim
lágmarkslaun.
Corona hafði verið greindur
með geðklofa árið 1956 og var lagð-
ur inn á stofnun. Eftir að hafa fengið
raflost 23 sinnum var hann útskrif-
aður sem heilbrigður. En því fór
sennilega fjarri að hann gengi heill
til skógar andlega. Þrátt fyrir að vera
ímynd karlmennskunnar út á við
og vera kvæntur tveggja barna fað-
ir var Corona samkynhneigt rándýr
og haldinn sjúklegum kvalalosta.
Öllum fórnarlömbum hans hafði
verið misþyrmt kynferðislega áður
en þau voru myrt. Þess ber að geta
að bróðir Juans átti einnig við geð-
ræn vandamál að stríða.
Hægt um vik fyrir Corona
Sem verktaka var hægt um vik
fyrir Corona að finna sér fórnar-
lömb. Flestir þeirra sem hann réð
til ávaxtatínslu voru í eldri kantin-
um, áfengissjúkir utangarðsmenn
sem fáir myndu sakna. Í maí 1971
hófst Corona handa við að finna
sér fórnarlömb úr röðum farand-
verkamannanna, en ekki er ólíklegt
að hann hafi stundað að nauðga
karlmönnum löngu fyrr, en þar
sem flest fórnarlamba hans hafa
að öllum líkindum verið úr neðstu
stigum þjóðfélagsins er hæpið að
lögreglan hafi fengið upplýsingar
um hátterni hans.
Nítjánda maí 1971 var Goro
Kagehiro, japansk-bandarískur
ávaxtabóndi, á rölti í perugarði sín-
um skammt frá Yuba og rakst þá á
nýgrafna holu, um tveggja metra
langa og meters djúpa. Um kvöldið
rak forvitnin hann að holunni á ný
og þá sá hann að búið var að fylla
hana. Kagehiro grunaði að einhver
hefði grafið rusl á landareign hans
og hafði samband við lögregluna.
Það sem holan hafði að geyma
var lík hvíts Bandaríkjamanns,
Kenneths Whitacre. Whitacre, sem
var flakkari, hafði verið misþyrmt
kynferðislega og hann síðan stung-
inn til bana. Á höfði hans var ga-
pandi sár eftir sveðju og í vösum
hans fundust klámmyndir sem
skírskotuðu til samkynhneigðar.
Eitt morð á 40 mínútna fresti
Fjórum dögum síðar rákust verka-
menn á býli Jacks Sullivan á land-
svæði þar sem jarðvegurinn virt-
ist afar siginn. Við nánari athugun
fannst lík 67 ára flækings, Charles
Fleming. En áður en búið var að
bera kennsl á það lík fannst önnur
gröf, og enn önnur. Svæðið var eins
og fjöldagrafreitur.
Öll voru líkin af hvítum karl-
mönnum, nema tvö, og greinilegt
að um var að ræða manneskjur
sem enginn myndi sakna; miðaldra
og eldri karlmenn, áfengissjúklinga
og flækinga.
Öll fórnarlömbin höfðu verið
stungin og voru höfuð þeirra illa
leikin eftir sveðju og hafði eitt þeirra
verið skotið. Djúpt stungusár var á
bringu allra fórnarlamba og tveir
skurðir sem mynduðu kross höfðu
verið ristir á hnakka þeirra. Líkin
voru á bakinu, hendurnar teygðar
upp fyrir höfuð og skyrtan dregin
yfir andlit þeirra. Á sumum voru
buxurnar dregnar niður.
Öll höfðu fórnarlömbin verið
drepin á sex vikna tímabili, að með-
altali eitt morð á fjörutíu mínútna
fresti. Í sumum grafanna fundust
pappírar með nafni Juans Corona.
Kenningar geðlækna
Juan Corona var handtekinn og
ákærður fyrir morð. Hann lýsti yfir
sakleysi sínu og lögfræðingar hans
reyndu að koma sök á bróður hans,
en þar var við ramman reip að draga
vegna sönnunargagna gegn Cor-
ona. Á heimili hans fundust tveir
blóðugir hnífar, sveðja, skamm-
byssa og blóði storkinn fatnaður. Til
að fullkomna þetta safn sönnunar-
gagna fannst listi með nöfnum sjö
fórnarlambanna ásamt dagsetn-
ingu morðanna á þeim.
Geðlæknar upphugsuðu ótal
kenningar um Corona. Einn þeirra
hélt því fram að morðin væru árs-
tíðatengd; að þegar lengra liði á
vorið og ávextirnir þroskuðust yk-
ist blóðþorsti Corona og hann yrði
að myrða daglega til að svala þeim
þorsta.
Sennilegri skýring er sú að þegar
hlýnaði í veðri og uppskerutíminn
nálgaðist hafi mögulegum fórnar-
lömbum fjölgað í formi flækinga
og farandverkamanna. Juan Cor-
ona nægði einfaldlega að stoppa
trukk sinn úti í vegarkanti og velja
úr hópi þeirra manna sem myndu
grípa hvaða tækifæri sem gæfist til
að þéna smá pening.
Sektardómur og áfrýjun
Kviðdómur í máli Juans Corona
komst að niðurstöðu um sekt hans
eftir 45 klukkustunda umræður og
átti það við um öll 25 morðin. Í jan-
úar 1973 fékk hann tuttugu og fimm
lífstíðardóma sem skyldu afplánast
hver á eftir öðrum, án möguleika á
reynslulausn.
Árið 1978 var dómnum áfrýj-
að á þeim grundvelli að verjanda
hans hefði bæði láðst að geta þess
að Juan Corona hafði greinst með
geðklofa og að bera við geðsýki. Ný
réttarhöld hófust og árið 1982 var
fyrri úrskurður staðfestur.
uMsjón: kolbEinn ÞorstEinsson, kolbeinn@dv.is
STEYPUSÖGUN
KJARNABORUN
MÚRBROT
l
l
l
Djúpt stungusár var
á bringu allra fórnar-
lamba og tveir skurðir
sem mynduðu kross
höfðu verið ristir á
hnakka þeirra.
Brosið víðs fjarri
Corona mun aldrei
losna úr fangelsi.
Juan Corona glaðbeittur
með vonda samvisku.