Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Síða 2
Nýi félagsmálaráðherrann, Árni Páll Árnason, olli
Fjölskylduhjálp Íslands miklum vonbrigðum þegar hann snið-
gekk fólk sem seldi barmmerki til styrktar Fjölskylduhjálpinni
á Austurvelli. Pétur Sigurgunnarsson segir að Árni Páll hafi
sagst þurfa að fara á fund og ekki hafa tíma til að kaupa merkið.
„Þær stóðu þarna sem lamaðar gömlu konurnar og áttu ekki orð
yfir þessa framkomu,“ segir Pétur.
Föstudagur 29. maí 20092 Fréttir
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Ólafsmál aftur í brennidepli
Karl Sigurbjörnsson biskup er í
nokkrum vanda eftir að konurn-
ar þrjár sem ásökuðu Ólaf Skúla-
son um kynferðislega áreitni og
tilraun til nauðgunar sögðu fyr-
irgefningarbeiðni hans ekki duga
til að ljúka málinu. Karl kom að því sem
prestur árið 1996 að reyna að ná sáttum
milli kirkjunnar og kvennanna en þær
voru ekki alls kostar sáttar við þá aðkomu
hans. „Kannski liggur núverandi biskup
á bæn út af sínum þætti í því opinbera
máli sem fór í gang fyrir 13 árum,“ sagði
Stefanía Þorgrímsdóttir, ein kvennanna, í
viðtali við DV. Nú liggur fyrir að konurnar
vilja að meira verði gert og verður kirkjan nú að svara kröfum þeirra.
barinn og
bundinn
„Það er ekki gaman að vera skilinn eftir
í blóði sínu aleinn og geta enga björg sér
veitt,“ segir Garðar Ólafsson, úrsmiður á
áttræðisaldri, sem varð fyrir hrottafenginni
árás tveggja innbrotsþjófa á heimili sínu
við Barðaströnd á Seltjarnarnesi á mánu-
dagskvöldið. Þegar Garðar kom heim til sín
um áttaleytið og hafði tekið öryggiskerfið
af heyrði hann umgang á efri hæð hússins.
Hann var þá kýldur hnefa- höggi í andlitið og bundinn á höndum og
fótum með breiðu límbandi. Þrír menn voru handteknir vegna málsins,
tveir sem frömdu innbrotið og einn vitorðsmaður þeirra.
hnykla
vöðvana
Ótti manna við kjarnorkustyrj-
öld jókst á nýjan leik eftir að norður-kór-
esk stjórnvöld létu sprengja kjarnorku-
sprengju neðanjarðar. Norður-Kórea á á
hættu enn frekari einangrun á alþjóða-
vettvangi eftir tilraun með kjarnorku-
sprengju, jafnöfluga þeirri sem lagði
Hiroshima í rúst. Innan við tveir mánuðir
eru liðnir síðan stjórnvöld í Norður-Kóreu
stóðu fyrir tilraunaskotum á langdræg-
um skotflaugum. Norður-Kóreumenn fullyrtu þá að um hefði verið
að ræða burðarflaugar fyrir fjarskiptagervihnetti. Norður-Kóreumenn
lýstu sig einnig óbundna af vopnahléssamkomulaginu sem batt enda
á vopnuð átök Kóreustríðsins 1953.
2
1 dv.isF r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ðþriðjudagur 26. maí 2009 dagblaðið vísir 79. tbl. – 99. árg. – verð kr. 347
Sparnaður
brunninn
allur upp
SviðSljóS
neytendur
aðkoma karls sigurbjörnssonar að ólafsmálinu:
vill ekkert
af jordan vita
réðu pabbann og
eiginmanninn
fólk
mikael
verður
Slátrað
toppar
davíð
í launum
fréttir
Hrafn
aftur
orðinn
pabbi fólk
Hart deilt á
bæjarStjóra og
formann bæjar-
ráðS í veStmannaeyjum
Huldufólk í
HúSi auðmannSinSfréttir
BISKUP
Í BOBBA
preStar íHuga
Stöðu biSkupS
Sigrún pálína
vill uppreiSn æru
ein konan átelur
biSkup fyrir HanS
þátt í málinu
„preStar léku
tveimur Skjöldum“
fréttir
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
miðvikudagur 27. maí 20094
Fréttir
Garðar Ólafsson
„Feginn að haFa
sloppið liFandi“
„Það er ekki gaman að vera skilinn
eftir í blóði sínu aleinn og geta enga
björg sér veitt,“ segir Garðar Ólafsson,
úrsmiður á áttræðisaldri, sem varð
fyrir hrottafenginni árás tveggja inn-
brotsþjófa á heimili sínu við Barða-
strönd á Seltjarnarnesi á mánudags-
kvöldið. Þegar Garðar kom heim til
sín um áttaleytið og hafði tekið ör-
yggiskerfið af, heyrði hann umgang á
efri hæð hússins. Hann var þá kýld-
ur hnefahöggi í andlitið og bundinn
á höndum og fótum með breiðu lím-
bandi.
Feginn að hafa sloppið lifandi
„Þeir réðust bara á mig. Þeir hafa
kannski búist við að enginn væri
heima. Síðan er ég bara sleginn í
gólfið, gleraugun mín brotin og ég
bundinn á höndum og fótum,“ segir
Garðar.
„Þeir virðast hafa komið við öllu
búnir því þeir voru með teip í tösk-
unni. En mér tókst að losa mig úr
þessu,“ segir Garðar. Mennirnir
skildu hann eftir bundinn á hönd-
um og fótum í íbúðinni og tók það
hann 20 mínútur að losa sig. Hann
sagði í samtali við DV í gær að hann
sé sleginn eftir atvikið enda sérlega
fólskuleg árás. „Maður er bara feginn
að hafa sloppið lifandi,“ segir Garðar
og segir að aðalatriðið sé að þjófarn-
ir finnist.
Önnur árásin á stuttum tíma
Sams konar árás var gerð í endað-
an apríl síðastliðinn þegar rosk-
in hjón urðu fyrir miklu áfalli þegar
tveir hettuklæddir menn réðust inn
á heimili þeirra á Arnarnesi, ógn-
uðu þeim með hnífum og létu greip-
ar sópa um húsið. Árásarmennirnir
héldu hjónunum í gíslingu í tæpan
hálftíma á meðan og hótuðu þeim
með orðum. Tveir karlar og ein kona
voru handtekin og játuðu aðild að
málinu. Karlarnir eru á þrítugsaldri.
Lögreglan sagði eftir þá árás að hún
sé litin mjög alvarlegum augum og
að minnst tuttugu ár séu síðan við-
líka árás hafi átt sér stað hér á landi.
Ganga lausir
Þegar atvikið átti sér stað var Garð-
ar einn heima. Eftir að hann hafði
verið bundinn birtist annar maður
í íbúðinni og saman tóku þeir um
60 armbandsúr, þar af tvö ný, um
það bil 70 til 90 armbandskeðj-
ur og 4 karlmannsgullhringa.
Eftir að Garðar náði að
losa sig hringdi hann
á lögregluna og var
hann fluttur á slysa-
deild til aðhlynning-
ar, meiddur í andliti
eftir höggið. Talið er að
mennirnir hafi brotið
sér leið inn um glugga á
annarri hæð hússins baka
til. Þegar blaðið fór í prentun
voru mennirnir enn ófundnir. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu eru þeir
báðir íslenskir, annar um tvítugt,
um það bil 178 sentímetrar á hæð,
með brún augu, grannur og gæti
einnig verið mjög sólbrúnn. Mjög
óljós lýsing er á hinum manninum.
Garðar taldi sig muna að kallað var
milli mannanna
nafnið
Marri,
eða
eitthvað álíka. Lögreglan biðlar til
fólks sem varð vart við óeðlilegar
mannaferðir á og við Barðaströnd
á Seltjarnarnesi fyrir og eftir klukk-
an 20 á mánudagskvöld eða þá sem
geta gefið upplýsingar um hverjir
kunna að hafa verið þarna að verki,
að hafa samband við lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu í síma 444
1100.
Barðaströnd mennirnir bundu
garðar og skildu hann eftir. Það
tók hann 20 mínútur að losa sig
„Þeir virðast hafa kom-
ið við öllu búnir því þeir
voru með teip í tösk-
unni.“
siGurður mikael
oG Boði loGason
blaðamenn skrifa
mikael@dv.is og bodi@dv.is
Áhöfn varðskipsins brugðið
„Þetta kom okkur í opna skjöldu,“
segir Poul Erik Larsen, skipherra á
danska varðskipinu Hvidbjørnen
eða Hvítabirninum. Það var um
klukkan hálf níu á mánudagskvöld-
ið sem danskur sjóliði var handtek-
inn þar sem hann hafði brotist inn
í Kaupþing banka við Austurstræti.
Maðurinn, sem er 21 árs, braut sér
leið inn í útibúið og hafði náð tals-
verðu magni af skiptimynt þegar
lögreglu bar að garði. Maðurinn fór
mikinn inni í bankanum og var mjög
æstur en veitti þó ekki mótspyrnu við
handtöku. Á leiðinni upp á lögreglu-
stöð lenti sjóliðinn í hjartastoppi en
lögreglumaður sem var hjá honum í
bílnum brást snögglega við og beitti
hjartahnoði sem tókst. Talið er lík-
legt að hann hafi verið undir mikl-
um áhrifum örvandi efna sem hafi
stuðlað að hjartastoppinu.
Poul Erik sagði í samtali við blaða-
mann DV í gær að áhöfnin hefði ekki
þekkt manninn vel. „Ég talaði við
áhöfnina í morgun og það voru all-
ir mjög hissa á þessu, okkur grunaði
ekkert.“ Hann segist ekki geta svarað
því hvar maðurinn hafi fengið meint
örvandi efni. Eins og fyrr segir er
áhöfninni mjög brugðið eftir þetta
atvik en Poul telur það þó ekki hafa
áhrif á starf flotans.
Maðurinn var yfirheyrður í gær
af lögreglunni í Reykjavík en mun
eftir það fara aftur um borð í skipið
og halda sína leið. Ómar Smári Ár-
mannsson hjá auðgunarbrotadeild
lögreglunnar í Reyjavík segist ekki
vita hvert framhald málsins verð-
ur þegar maðurinn verður kominn
um borð í skipið en býst við því að
danski sjóherinn beiti hann miklu
strangari viðurlögum en lögreglan
hér á landi. Hann gat ekki staðfest
hvort maðurinn hafi verið á örvandi
efnum, það muni koma í ljós síðar.
Skipið mun leggjast aftur að höfn
eftir þrjár og hálfa viku í Danmörku
þar sem nýir sjóliðar munu stíga um
borð.
bodi@dv.is
skipherrann á Hvítabirninum
Poul Erik Larsen segist ekki hafa
þekkt manninn vel og ekki búist
við að hann fremdi svona innbrot.
Heiða HelGaDÓTTir
nemar þurfi ekki
ábyrgðarmenn
Katrín Jakobsdóttir mennta-
málaráðherra hefur kynnt í ríkis-
stjórn áform um að afnema með
lögum kröfu um ábyrgðarmann
á námslánum frá Lánasjóði ís-
lenskra námsmanna.
Þetta kom fram í máli Jó-
hönnu Sigurðardóttur forsætis-
ráðherra á fundi með blaða- og
fréttamönnum eftir ríkisstjórn-
arfund í gær.
Í stað ábyrgðar verða lán
veitt gegn sjálfskuldarábyrgð
lántakanda.
Málið verður lagt fyrir vor-
þingið.
sparisjóðir hverfi
til fyrri hátta
Sparisjóðir fá að starfa með
hefðbundnu sniði og verða
áfram í eign stofnfjáreigenda
samkvæmt frumvarpi um starf-
semi sparisjóða sem Gylfi Magn-
ússon viðskiptaráðherra ætlar
að leggja fram á þingi. Gylfi segir
að hugmyndin með rammalög-
um um starfsemi sparisjóðanna
sé að hverfa aftur til uppruna-
legra gilda þar sem sparisjóð-
ir voru nátengdir heimabyggð
og sinntu þjónustu í nánd
við heimamenn og fyrirtæki í
heimabyggð.
„Það er gert ráð fyrir að þeir
verði allir stofnfjársparisjóðir
en þó munu sparisjóðir sem nú
þegar hafa breyst í hlutafélög fá
að starfa áfram sem hlutafélög
og nota orðið sparisjóður áfram
í heiti sínu,“ segir Gylfi.
Nemar vilja fá
frítt í strætó
Yfir 4.000 manns hafa skráð
sig í hóp á samskiptasíðunni
Facebook sem vill að náms-
menn fái frítt í strætó skóla-
árið 2009-2010. Það er Stúd-
entaráð Háskóla Íslands sem
fer fyrir síðunni. Stúdentaráð
telur óeðlilegt að stúdentum
sé mismunað vegna lögheim-
ilis eða þjóðaruppruna.
Ráðið krefst þess að jafnt
gangi yfir alla og að allir stúd-
entar fái frítt í strætó, óháð
lögheimili eða þjóðarupp-
runa.
Ráðið telur að með gjald-
frjálsum almenningssam-
göngum megi minnka um-
ferð einkabíla í borginni,
stuðla að umhverfisvernd og
auknum sparnaði fyrir stúd-
enta.
Fimm bílar lentu
í árekstri
Kallað var eftir sjúkraflutninga-
mönnum þegar bíll valt á afrein
sem liggur af Vesturlandsvegi,
rétt ofan Ártúnsbrekku, upp á
Höfðabakka. Bíllinn var einn af
fimm sem lentu í árekstri á af-
reininni, þrír bílar urðu harðast
úti en tveir lentu í jaðri árekst-
ursins ef svo má segja. Hins veg-
ar var um minniháttar meiðsl að
ræða að sögn lögreglumanns á
vettvangi.
Bíllinn lá á hvolfi á annarri
akrein afreinarinnar og lokaðist
fyrir umferð um tíma.
leitar brotamanna Lögreglan
hóf leit að innbrotsþjófunum.
garðari heyrðist að annar þeirra
væri kallaður marri.
3
þriðjudagur 26. maí 200912
Fréttir
Berlusconi
„fórnar“ sér
Í viðtali við CNN sagði Sil-
vio Berlusconi að hann hefði
aldrei gerst sekur um smekk-
laus ummæli og að hann kynni
ekki við starf sitt þessa dagana.
Berlusconi skellti skuldinni á
dagblöð og sagði að öll smekk-
laus ummæli sem honum hafa
verið eignuð væru uppspuni
dagblaða.
Í viðtalinu sagði Berlusconi
einnig að honum fyndist starf
sitt vera íþyngjandi: „Ennþá
skynja ég fórn í öllu sem geri.
Fullkomlega. Ég vildi frekar
gera það sem ég gerði áður eða
eitthvað annað núna,“ sagði
Berlusconi.
Samband hans við unga snót
frá Napólí hefur verið vatn á
myllu fjölmiðla á Ítalíu og stefnt
hjónabandi hans í voða.
Sortuæxli sækir á
Yfir 10.000 manns fá á hverju ári
banvænustu tegund húðkrabba
á Bretlandi vegna óhóflegrar
notkunar sólbekkja og sólbaða á
sólarströnd.
Tilfellum illkynja sortuæxla
fjölgaði um 650 á einu ári á Bret-
landi vegna brúnkuæðis bæði
heima fyrir og erlendis, sam-
kvæmt tölum frá krabbameins-
stöð landsins. Nemur fjölgunin
6,5 prósentum.
Nýjustu tölur eru síðan 2006,
en þá voru greind 10.410 til-
felli og gera sérfræðingar ráð
fyrir að sú tala eigi eftir að fara
yfir 15.500 árið 2024. Illkynja
sortuæxli verði þar með fjórða
algengasta krabbamein beggja
kynja.
Ríkir sofa frekar
naktir
Könnun sem Sentio Research
Danmark gerði fyrir fréttastof-
una Newspaq leiddi í ljós að því
ríkari sem þú ert því meiri líkur
eru á að þú sofir nakinn.
Að meðaltali sofa þrett-
án prósent Dana án klæða, en
þéni viðkomandi undir 200.000
dönskum krónum á ári, um 4,8
milljónum íslenskra króna, er
líklegra að hann sofi í nærfatn-
aði eða stuttermabol.
Af þeim lægst launuðu sofa
aðeins um fimm prósent nak-
in, en næstum einn af hverjum
fimm af þeim auðugustu, sem
þéna yfir 700.000 danskar krón-
ur á ári, um 16,7 milljónir ís-
lenskra króna, sefur spjaralaus.
Rannsóknin leiddi ennfrem-
ur í ljós að karlmenn eru í meiri-
hluta þeirra sem sofa naktir því
tvöfalt fleiri karlmenn en kven-
menn sofa án klæða.
Ókeypis próf reyndist rándýrt
Réttað verður í máli varðandi Vís-
indakirkjuna í Frakklandi, en hún
hefur verið ákærð um svindl. Málið
er tilkomið vegna kvartana konu sem
segist hafa sætt þrýstingi af hálfu kirkj-
unnar til að greiða háar fjárhæðir eftir
að henni var boðið upp á ókeypis per-
sónuleikapróf.
Frönsk stjórnvöld líta á Vísinda-
kirkjuna sem sértrúarsöfnuð og verð-
ur þetta í fyrsta skipti sem réttað er yfir
kirkjunni í svikamáli þar í landi. Fyrri
dómsmál hafa tengst einstökum með-
limum Vísindakirkjunnar.
Að sögn konunnar sem lagði fram
kvörtunina komu meðlimir kirkjunn-
ar að máli við hana í París og buðu
henni upp á ókeypis persónuleika-
próf, en þegar upp var staðið hafði
hún eytt öllu sparifé sínu í bækur,
lyf og rafrænan mæli, svonefndan e-
mæli, sem er hluti af búnaði Vísinda-
kirkjunnar.
Lögfræðingar Vísindakirkjunnar
hafa lýst yfir að þeir muni berjast gegn
ákærunum og neita að beitt hafi verið
andlegum þrýstingi af nokkru tagi.
Lögfræðingar konunnar munu á
hinn bóginn bera við að kirkjan reyni
kerfisbundið að afla fjár með andleg-
um þrýstingi og með vísindalega vafa-
sömum „lækningum“.
Vísindakirkjan á mismikið upp á
pallborðið hjá ríkisstjórnum Evr-
ópu og á síðasta ári var úrskurðað í
Þýskalandi að hún væri í andstöðu við
stjórnarskrána.
Spænskur dómstóll hefur hins
vegar úrskurðað að Vísindakirkjan á
Spáni skuli endurheimta sæti sitt á
lista landsins yfir opinberlega viður-
kennd trúarbrögð. Verslun Vísindakirkjunnar í París Vísindatrú er talin sértrú í Frakklandi.
Roðinn í auStRi
Norður-Kórea á á hættu enn frekari
einangrun á alþjóðavettvangi eftir
yfirlýsingar stjórnvalda þess efnis að
tilraun með kjarnorkusprengju, jafn-
öfluga þeirri sem lagði Hiroshima í
rúst, hafi tekist fullkomlega.
Innan við tveir mánuðir eru liðn-
ir síðan stjórnvöld í Norður-Kóreu
reittu Bandaríkjamenn og banda-
menn þeirra til reiði með tilrauna-
skotum á langdrægum skotflaugum.
Norður-Kóreumenn fullyrtu þá að
um hefði verið að ræða burðarflaug-
ar fyrir fjarskiptagervihnetti.
Á þeim tíma beittu Rússar og Kín-
verjar neitunarvaldi hjá öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna gegn refsi-
aðgerðum gegn Norður-Kóreu, en
næsta öruggt má telja að kröfur um
aðgerðir gegn landinu munu verða
háværar nú, enda um mun alvarlegra
mál að ræða.
Lengra á veg komnir en Íranar
Þar til fyrir um hálfu ári ályktuðu er-
lendar ríkisstjórnir að þrátt fyrir að
Norður-Kórea hefði yfir sex til tólf
kjarnaoddum að ráða skorti Norð-
ur-Kóreumenn getu til að gera þá
þannig úr garði að hægt væri að festa
þá á skotflaug.
Síðustu mánuði hafa þó ver-
ið teikn á lofti um að Norður-Kórea
væri komin í hóp fullgildra kjarn-
orkuvelda, með getu til að þurrka
út heilu borgirnar í Japan og Suður-
Kóreu.
Þessi nýja staða hefur verið und-
irstrikuð af fjölda ályktana sem sér-
fræðingar frá Alþjóðlegu kjarn-
orkumálastofnuninni hafa sent
varnarmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna. Talið er að Norður-Kóreu
sé ekkert að vanbúnaði til að út-
búa miðlungsdræg flugskeyti með
kjarnaoddum.
Sé sú raunin er Norður-Kórea
lengra á veg komin en Íran í kapp-
hlaupinu að því marki að geta gert
kjarnorkuárás. Að auki breytist til
muna jafnvægið á milli stórs, en fá-
tæklega búins, hers Norður-Kóreu og
Suður-Kóreu, sem nýtur stuðnings
Bandaríkjanna.
Snéru baki við samkomulagi
Stjórnvöld Norður-Kóreu vöruðu við
annarri kjarnorkuvopnatilraun eftir
að Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu
tilraunir Norður-Kóreumanna með
skotflaugarnar þann 5. apríl. Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu þá einnig
að herða refsiaðgerðir gegn Norður-
Kóreu sem ákveðnar voru árið 2006 í
kjölfar kjarnorkutilraunar landsins.
Þegar Sameinuðu þjóðirnar neit-
uðu að biðjast afsökunar á að hafa
fordæmt aðgerðir Norður-Kóreu í
apríl ráku þarlend stjórnvöld alþjóð-
lega eftirlitsmenn úr landi og hótuðu
að taka upp þráðinn þar sem frá var
horfið með kjarnakljúfinn í Yongbyon
og snéru baki við samningaviðræð-
um þar að lútandi. Norður-Kóreu-
menn samþykktu árið 2007 að hefja
niðurrif áðurnefnds kjarnakljúfs.
Þessi tilraun Norður-Kóreu hef-
ur aukið ótta um að þar á bæ nálgist
menn getu til að útbúa langdræg-
ar skotflaugar með kjarnaoddum,
sem fræðilega væri hægt að skjóta til
Havaí og Alaska.
Áhyggjuefni allra þjóða
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að Barack Obama, forseti
Bandaríkjanna, lítur málið alvarleg-
um augum og hann sagði að tilraun
Norður-Kóreu væri áhyggjuefni fyrir
allar þjóðir. „Norður-Kórea storkar
með beinum og gáleysislegum hætti
alþjóðasamfélaginu,“ sagði Obama.
Í yfirlýsingunni sagði hann að fram-
ferði Norður-Kóreu yki á spennuna í
norðausturhluta Asíu og græfi undan
stöðugleika.
Kínverjar, helsta bandalagsþjóð
Norður-Kóreu, hvöttu nágranna
sína til að forðast aðgerðir sem aukið
gætu á spennu á svæðinu og hvöttu
Norðir-Kóreumenn til að snúa aftur
að samningaborðinu. Stjórnvöld í
Kína sögðust vera „staðfastlega and-
víg“ tilraun Norður-Kóreu.
Japanir sögðust mundu leita nýrr-
ar ályktunar þar sem tilraun Norður-
Kóreu yrði fordæmd, en Japanir telja
sig vera ofarlega á lista Norður-Kóreu
yfir hugsanleg skotmörk.
Auk kjarnorkutilraunarinnar í gær
skutu Norður-Kóreumenn þremur
skammdrægum skotflaugum í til-
raunaskyni.
„Norður-Kórea storkar
með beinum og gáleys-
islegum hætti alþjóða-
samfélaginu,“ sagði
Obama.
KoLbeinn þorSteinSSon
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
október 2006 – Norður-Kórea framkvæmir kjarnorkutilraun neðanjarðarFebrúar 2007 – Norður-Kórea samþykkir að loka helsta kjarnakljúfi sínum í skiptum fyrir eldsneyti
Júní 2007 – Norður-Kórea lokar helsta kjarnakljúfi sínum í YongbyonJúní 2008 – Norður-Kórea gefur loks út yfirlýsingu um stöðu sína í kjarnorkumál-um
október 2008 – Bandaríkin fjarlægja Norður-Kóreu af lista yfir þjóðir sem styðja hryðjuverk
Desember 2008 – Norður-Kórea hægir á ferli við að kasta fyrir róða kjarnorku-áætlun sinni í kjölfar ákvörðunar Bandaríkjanna um að fresta aðstoð í orkumálumJanúar 2009 – Norður-Kórea lýsir því yfir að allt stjórnmála- og hernaðar-samkomulag við Suður-Kóreu sé fallið úr gildi og sakar nágrannaþjóðina um „fjandsamleg áform“.
Apríl 2009 – Norður-Kórea framkvæmir eldflaugaskot og fullyrðir að um sé að ræða burðarflaug fyrir samskiptagervihnött
Maí 2009 – Norður-Kórea endurtekur leikinn frá 2006
Hersýning í norður-Kóreu
Her landsins er fjölmennur en
fátæklega búinn.
Skotflaugar í norður-Kóreu,
ódagsett Tilraunaskot fóru fram
sama dag og kjarnorkutilraunin var
framkvæmd.
„Þetta var alveg ótrúlegt, þær stóðu
þarna sem lamaðar gömlu konurn-
ar og áttu ekki orð yfir þessa fram-
komu. Svona mál eru á könnu fé-
lagsmálaráðherrans og það hefði
örugglega tekið hann hálfa mínútu
að koma, kaupa af okkur merki og
óska okkur góðs gengis,“ segir Pétur
Sigurgunnarsson, sem hefur hrint af
stað sölu um allt land á barmmerkj-
um og rennur allur ágóði af sölunni
til Fjölskylduhjálpar Íslands.
Pétur hafði ásamt hópi fólks frá
Fjölskylduhjálpinni óskað þess að
alþingismenn kæmu út á Austur-
völl og yrðu þeir fyrstu sem keyptu
barmmerkin. Aðeins 3 af 63 þing-
mönnum sáu sér fært að mæta, en
steininn tók úr að mati Péturs þeg-
ar Árni Páll Árnason félagsmálaráð-
herra kom gangandi eftir Austur-
velli.
„Ég sá Árna Pál og ákvað að grípa
tækifærið og kalla á hann. Ég sagði
honum hvert tilefnið væri og hvort
hann hefði ekki séð tölvupóstinn frá
mér. Hann svaraði á þá leið að það
gæti verið en hann myndi það ekki.
Svo spurði ég hann hvort hann vildi
ekki koma og kaupa merki. Þá sagð-
ist hann ekkert mega vera að því,
hann væri orðinn svo seinn á fund.
Svo rauk hann inni í Alþingishúsið
og hvarf svo skömmu síðar inn í ráð-
herrabílinn sinn,“ segir Pétur.
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálparinnar, segir
að konurnar sem stóðu á Austurvelli
þennan dag hafi verið afskaplega
vonsviknar. „Sumar konurnar þarna
eru komnar á níræðisaldur, þær
eru miður sín yfir þessu, að hluti af
stjórnmálastéttinni sé kominn í óra-
fjarlægð frá almenningi. Þær ætl-
uðu varla að trúa þessu. Það lofar
nú ekki góðu þegar félagsmálaráð-
herra sýnir fólkinu í þessu landi og
þeim sem komu illa undan hruninu
svona litla virðingu. Maður er svolít-
ið hissa á að hann hafi valist til þess-
ara starfa.“
Ekki náðist í Árna Pál Árnason
við vinnslu fréttarinnar.
valgeir@dv.is
HLJÓPST UNDAN
MERKJUM
Árni Páll Árnason „sumar konurnar þarna eru komnar á níræðisaldur, þær eru miður sín yfir þessu, að hluti af stjórnmálastétt-
inni sé kominn í órafjarlægð frá almenningi,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir. mynd RóbeRt ReyniSSon
„Þá sagðist hann ekki mega
vera að því, hann væri orðinn
of seinn á fund.“