Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Blaðsíða 14
Föstudagur 29. maí 200914 Fréttir
Víkingahópurinn Rimmugýgur kemur heimsókn og slær upp
búðum við Sögusetrið. Þar gefst gestum tækifæri á að sjá
vinnubrögð að hætti fornmannanna í handverki,
klæðnaði, leik og bardögum.
Dagskráin byrjar kl. 13.00 og stendur til kl. 19.00.
Bardagar verða kl. 14, 16 og 18.
Við hvetjum alla þá sem eiga búninga heima
að taka þá upp og mæta í skrúðanum.
Allir velkomnir!
Víkingarnir koma!
Laugardaginn 30. maí 2009
Sögusetrið Hvolsvelli | The Saga Centre
www.njala.is | njala@njala.is
Sími: 487-8781, 895-9160
„Við fylgjum þeim lögum sem okkur
er skylt. Okkar mannauðsskrifstofa
hefur farið yfir þetta og ráðningin
er innan okkar ramma,“ segir Hulda
Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítal-
ans. Landspítalinn réð í vikunni Einar
Karl Haraldsson til að móta og festa í
sessi nýtt vinnulag á sviði almanna-
tengsla. Einar Karl var áður aðstoð-
armaður Össurar Skarphéðinssonar í
iðnaðarráðuneytinu. Staðan var ekki
auglýst en Einar Karl verður ráðinn til
sex mánaða frá og með 1. september.
Fram að þeim tíma mun hann vinna
verkefni fyrir spítalann sem verktaki.
Þeir lögmenn sem DV ræddi við
töldu að ráðningin stæðist ekki lög.
Samkvæmt reglum um auglýsingar
á lausum störfum er heimilt að ráða
í starf án auglýsingar ef starfið á að
standa í tvo mánuði eða skemur. Það
á ekki við í þessu tilfelli.
Skýtur skökku við
„Mér finnst þetta mjög óheppilegt og
sýnist að þarna hafi verið fljótfærnis-
lega staðið að málum. Miðað við þær
upplýsingar sem ég hef fengið hefði
lögum samkvæmt átt að auglýsa starf-
ið. Ég get ekki séð að undanþágu-
ákvæði í lögum um ráðningu starfs-
manna ríkisins eigi við í þessu tilviki.
Mín niðurstaða er sú að þarna hefði
ótvírætt átt að auglýsa starfið,“ segir
Birgir Ármannsson, lögfræðingur og
alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Spurður um mannaráðningar hjá
spítalanum í því árferði sem nú rík-
ir segir Birgir að það skjóti nokkuð
skökku við. „Á þeim tímum sem nú
eru og fyrirsjáanlegur er niðurskurður
á öllum sviðum ríkisrekstrarins skýtur
það mjög skökku við að það sé verið
að búa til ný störf af þessu tagi. Það er
mjög óeðlilegt miðað við þá þörf sem
er fyrir hendi að skera niður í ríkis-
rekstri,“ segir hann.
Langur aðdragandi
Aukin almannatengsl og meira gegn-
sæi í stjórnun Landspítala var eitt af
sex markmiðum Huldu fyrir árið 2009.
Hún segir að ráðning Einars eigi sér
töluverðan aðdraganda. Hún hafi
byrjað að kanna þessi mál í desember.
Henni hafi verið bent á nokkra aðila
og hafði samband að fyrra bragði við
Einar Karl í mars. Þau hafi ekki þekkst
fyrir þann tíma. „Við erum einungis að
leita okkur hjálpar í stuttan tíma. Ég
var búin að kanna málið bæði hjá ráð-
gjafarfyrirtækjum og öðrum og tel að
þetta sé besta lausnin,“ segir Hulda.
Eitt af verkefnum Einars Karls
þangað til hann tekur við starfinu 1.
september er að þjálfa stjórnendur
spítalans í almannatengslum. Fyrir
það fær hann greitt sem verktaki.
Óskiljanleg athygli
Einar Karl Haraldsson segir ekkert at-
hugavert við tímabundna ráðningu
sína til Landspítalans. Segist ekki skilja
þá athygli sem ráðningin hefur vakið.
Forstjóri Landspítalans hafi ekki vilj-
að fastráða í starfið og ekki viljað leita
til ráðgjafarskrifstofu og því hafi þessi
leið verið farin.
Einar Karl segir að skrifstofa mann-
auðsmála hjá Landspítalanum hafi
sett sig í samband við hann eftir ára-
mót. Hann hafi tjáð Össuri Skarphéð-
inssyni tveimur vikum fyrir kosningar
að hann hygðist ráða sig til Landspít-
alans. Össur hafi ekki verið hrifinn af
því. Hann hafi viljað njóta starfskrafta
Einars áfram. Einar Karl tekur fram að
hann hafi í um tíu ár rekið sitt eigið
fyrirtæki á sviði almannatengsla. Hafi
unnið mikið með stjórnendum og hafi
víðtæka reynslu á þessu sviði. Hann
mun þiggja biðlaun í þrjá mánuði frá
iðnaðarráðuneytinu.
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri Landspítalans, segir ráðninguna á Einari Karli Haraldssyni standast lög.
Einar Karl var áður aðstoðarmaður Össurar Skarphéðinssonar. Birgir Ármannsson, lögfræðingur og al-
þingismaður, telur ráðninguna ekki standast lög og að auglýsa hefði átt starfið.
„Óheppilegt og
fljÓtfærnislegt“
annaS SiGmundSSon
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Óskiljanleg athygli
Einar Karl Haraldsson
segist ekki sjá neitt
athugavert við ráðningu
sína. skilur ekki þá athygli
sem ráðningin hefur vakið.
mynd raKEL ÓSK SiGurðardÓttir
Fylgja lögum Hulda gunnlaugsdóttir,
forstjóri Landspítalans, segir að ráðn-
ingin sé samkvæmt reglum spítalans.