Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Blaðsíða 50
Föstudagur 29. maí 200950 Lífsstíll
Inga Elín málar Listakonan góðkunna Inga Elín sem
þekkt er fyrir glæsileg glerlistaverk sín og fleiri fallega muni
sýnir á sér nýja og skemmtilega hlið um þessar mundir því
til stendur að opnar málverkasýningu á laugardaginn í
Listasal mosfellsbæjar klukkan þrjú. sýningin verður opin
alla virka daga frá klukkan tólf til klukkan sjö og á laugar-
dögum frá klukkan tólf til sjö og stendur sýningin til tuttug-
asta og sjöunda júní.
Það er upplagt að taka með sér fyllt-
an lambahrygg í ferðalagið, segir í
glæsilegu tölublaði Gestgjafans að
þessu sinni þar sem þemað er sum-
arið og ferðalög sumarsins. Það má
elda hann heima áður en lagt er af
stað og til dæmis bera hann fram
með kartöflusalati og quinoa-salati.
Það er líka þægilegt að taka hann
með og elda á staðnum ef farið er í
bústað þar sem er ofn, þá er bara að
setja hann í ofninn í 40 mínútur og
borða með kartöflum og uppáhalds-
sósunni. Upplagt að gefa grillaran-
um frí eitt kvöld.
Fyrir 8
1 lambahryggur, úrbeinaður
100 g svínahakk
½ laukur, fínt saxaður
3 msk. fersk steinselja, söxuð
1 tsk. tímían eða annað gott krydd
½ tsk. pipar
1 tsk. salt
½ dl brauðrasp
1 egg
½ dl rjómi (má sleppa)
Quinoa-salat
meðlæti fyrir 6-8
Quinoa er ekki ósvipað kúskúsi eða
bulgur á bragðið. Það er mjög prótín- og
járnríkt. Það er glútenlaust og mjög
auðmelt.
250 g quinoa
200 g frosinn maís
2-3 tómatar, kjarnhreinsaðir og saxaðir
1-2 hnefafylli ferskt spínat
2 msk. sítrónusafi
3-4 msk. olía
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
sjóðið quinoa eftir leiðbeiningum á
umbúðum. Blandið öllu saman og kælið.
Fylltur lambahryggur
umsjón: koLBrún páLína hELgadóttIr, kolbrun@dv.is
á vEFsLóð EnvIronmEntaL
WorkIng group, WWW.EWg.org
sEm Eru óháð samtök í Banda-
ríkjunum sEm vInna mEðaL
annars að rannsóknum á
EIturEFnum í snyrtIvörum,
má FInna skaLa Frá 0-10 sEm
samtökIn haFa sEtt upp yFIr
skaðsEmI snyrtIvara. ÞEtta
ráð ásamt svo mörgum öðr-
um grænum og góðum ráðum
má FInna í BókInnI konur gEta
BrEytt hEImInum mEð nýjum
LíFsstíL EFtIr guðrúnu g.
BErgmann sEm nýLEga kom út.
n veldu náttúruleg snyrtivörumerki
næst þegar þú kaupir snyrtivörur.
n veldu krem og húðvörur frá
íslenskum framleiðendum. Það
er bæði náttúruvænt og sjálfbært
og styður við mikilvæga íslenska
framleiðslu.
n Þvoðu hárið sjaldnar og notaðu
minna magn af sjampói og hárnær-
ingu þegar þú þværð það.
n Burstaðu hárið bæði kvölds og
morgna.
n Lestu innihaldslýsinguna á þeim
snyrtivörum sem þú kaupir
n Farðu inn á www.ewg.org og
kynntu þér hvar á skalanum þær
snyrtivörur eru sem þú notar.
n notaðu snyrtivörurnar þínar upp
til agna og kláraðu gamlar birgðir
áður en þú kaupir nýjar
grÆn
FEgurÐ
Íslendingar kunna allra þjóða best að njóta veðurblíðunnar loksins þegar
hún læt-
ur sjá sig eftir dimma og langa vetur. Nú þegar sólin fer hækkandi og hitin
n með er
tilvalið að njóta lífsins með sínum nánustu og skemmta sér. DV tók saman
nokkrar
skemmtilegar hugmyndir að því sem hægt er að taka sér fyrir hendur á góðu
m degi.
SUMARIÐ ER
TÍMINN..... TIl AÐ lE
IkA og
SkEMMTA SéR!
MorgunMatur í blíðunni
Þegar að vel viðrar sérstaklega um helgar
þegar flestir eru í fríi er um að gera að njóta
morgunverðarins úti undir berum himni. Það
þarf ekki pall eða risa garð til þess. hægt er að
færa borð og stóla út á svalir eða út fyrir hús ef
ekki eru til garðhúsgögn, taka kaffibollann og
morgunmatinn með og njóta hans í blíðunni.
Sund
úrval sundlauga og gæði þeirra eru hvergi
betri en einmitt hér á landi. verið dugleg
að nota laugarnar í sumar, jafnt í blíðunni
sem og í rigningunni. krökkum finnst
ekkert síðra að fara í sund í vondu veðri.
Þó svo að við eigum það til að vera svolítið
vanaföst getur verið gaman að fá sér bíltúr
í önnur hverfi og prófa fleiri laugar.
gönguferð á eSjuna
Esjan er vinsæll staður göngugarpanna. Það
að ganga á Esjuna á fallegum degi getur verið
stórkostlegt. Ef þú hefur ekki farið áður skaltu
gæta þess að vera vel skóaður og fara varlega.
útsýnið er engu líkt og ekki sakar að hafa smá
nesti til að gæða sér á þegar á toppinn er komið.
Veiði
Það þarf ekki að fara langt til að
kasta fyrir fisk. Bjóddu vinum,
börnum eða foreldrum með þér
upp að fallegu vatni og reynið
að veiða á grillið fyrir kvöldið. Ef
börn eru með í för er hægt að
leyfa þeim að dunda sér með háf
og fötu og aðstoða við veiðina.
grill í heiðMörk
heiðmörk getur verið algjör paradís á góðum degi.
margir rómantískir og huggulegir pittir laumast þar víða
sem henta vel til lautarferðar fyrir pör eða fjölskyldusam-
komuna. Ef margir koma saman er fátt skemmtilegra en
að fara í leiki og gleyma því hvað maður er gamall um
stund. á nokkrum stöðum má svo finna fína grillaðstöðu
og því tilvalið að njóta góðs matar úti í náttúrunni.