Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Síða 33
Föstudagur 29. maí 2009 33Helgarblað
Anna Hlín Sekulic vakti mikla eftirtekt í Idol-stjörnuleit þrátt fyrir að sigra ekki í keppninni.
Hin hálfserbneska Anna Hlín settist niður með blaðamanni DV og ræddi Idolið, hjónabandið og
hvernig hún fann föður sinn og fjölskyldu hans á samskiptasíðunni Facebook.
„Þetta var svolítið sjokk að tapa
keppninni því ég var komin svo ná-
lægt endamarkinu,“ segir Anna Hlín
Sekulic, ung og efnileg söngkona sem
vakti mikla athylgi í Idol-stjörnuleit
sem lauk nýverið á Stöð 2. Hún sigraði
þó ekki í keppninni, lenti í öðru sæti.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur Anna
Hlín upplifað ótrúlega hluti. Hún gekk
í heilagt hjónaband fyrir fjórum árum
og hefur ferðast víða þrátt fyrir ungan
aldur. Sígaunaeðlið er sterkt í henni og
henni finnst fátt skemmtilegra en að
ferðast um, skoða, upplifa og syngja.
Í dag hefur hefur hún þó fest ræt-
ur á Íslandi. Eftir þátttöku sína í Idol-
inu þráir hún ekkert heitara en að slá
í gegn og leyfa öðrum að njóta tónlist-
arinnar sem hún elskar svo heitt.
Ættleidd 17 ára
Anna Hlín er fædd í Reykjavík en
uppalin í Mosfellsbæ af móður sinni
Theódóru og Stefáni, stúpföður sín-
um. „Stefán stúpfaðir minn tók sam-
an við mömmu áður en ég fæddist og
þau byrjuðu saman þegar mamma var
ófrísk að mér, “ útskýrir Anna sem ber
þó eftirnafn blóðföður síns, Zivadíns
Sekulic, sem hún kynntist fyrir aðens
einu og hálfu ári. Hann er serbneskur.
„Stefán er pabbi minn. Hann ól
mig upp,“ bendir Anna Hlín á. Sem lít-
ið barn vissi Anna Hlín þó alltaf hver
hennar saga var. „Mamma var mjög
dugleg að minna mig á að ég ætti
blóðföður einhvers staðar úti í heimi
og það var ekkert feimnismál,“ segir
Anna sem pældi lítið í uppruna sínum
fyrr en hún komst á unglingsárin.
„Þá fór ég í nokkurs konar konar
uppreisn og það varð mikið mál hjá
mér hvort eftirnafnið ég ætti að nota,
hvort ég ætti að halda í Sekulic eða
breyta því í Stefánsdóttir,“ viðurkennir
Anna Hlín.
„Ég veit að það skipti föður minn
litlu máli en ég átti erfitt með þetta og
mér leið eins og að ég væri að særa
einhvern með því að skipta eða ekki
skipta um nafn.“ Þegar Anna Hlín var
17 ára var sú ákvörðun tekin að stjúp-
faðir hennar myndi ættleiða hana.
„Þetta var gert svo að ég myndi vera
jafnvíg systkinum mínum en ég hélt
serbneska eftirnafninu,“ segir Anna
sem er elst þriggja systkina.
Söng fyrir dýrin
Heimili Önnu Hlínar var umvafið tón-
list þegar hún var barn. Faðir henn-
ar Stefán er bassasöngvari og hefur
sungið með hinum ýmsu karlakórum.
Hann var duglegur að taka Önnu Hlín
með sér á kóræfingar.
„Annars hef ég verið syngjandi síð-
an ég man eftir mér og þetta austur-
evrópska í mér kemur snemma í ljós,“
útskýrir Anna sem elskaði að klæða
sig upp í slæður, skartgripi og hælaskó
ömmu sinnar. Síðan valsaði hún um,
syngjandi og dansandi fyrir foreldra,
ömmu og afa. „Ég söng meira að segja
fyrir dýrin þegar ég var upp í sveit og
tók upp skrúfjárn eða hárbursta, hvað
sem ég komst í, og notaði sem míkra-
fón,“ rifjar hún upp og skellir upp úr.
Hún lagði þó aldrei stund á söng-
nám né hljóðfæraleik. „Ég þóttist læra
á píanó en entist bara í eitt sumar.
Píanóið heillar mig þó mikið og ég hef
gaman af því að glamra á það. Ég spila
bara eftir eyranu.“
Í New York með engan samastað
Anna Hlín vissi að hún vildi syngja
og í barnaskóla tók hún þátt í ýmsum
hæfileikakeppnum. „Fyrsta keppn-
in sem ég tók þátt í fyrir alvöru var
Söngvakeppni félagsmiðstöðva og ég
vann hana með laginu Can´t Take My
Eyes Of You. Það kom mér verulega á
óvart því ég var svo nýbyrjuð að syngja
fyrir framan áhorfendur.“
Anna Hlín tók einng þátt í söngva-
keppni framhaldsskólanna fyrir hönd
Iðnskólans í Reykjavík. En eftir stutta
dvöl í menntaskóla var söngurinn
settur í biðstöðu. „Ég var ekki viss
hvað ég vildi gera þannig að ég hætti
í skóla og byrjaði að vinna til þess að
safna mér peningum. Mig langaði út
að skoða heiminn.“
Hún tók að sér hinar ýmsu vinnur
og það var á skyndibitastaðnum Kent-
ucky sem útþráin kallaði á hana. „Ég
tók öll launin mín fyrirfram, keypti
mér miða og hélt til New York,“ segir
hún glottandi og kom allri fjölskyld-
unni sinni að óvörum því Anna flýtti
ferðinni um tvær vikur.
„Ég hringdi í mömmu mína sem
algjörlega fríkaði út en ég bað hana
kurteislega um númerið hjá frænku
okkar sem bjó úti á þeim tíma.“ Anna
Hlín kom þó aftur heim sex vikum
seinna og fór þá að sinna tónlistinni
af alvöru.
Bónorð í gegnum símann
Anna dembdi sér í tónlistina en hana
hafði ekki órað fyrir því sem á eftir
kom. Hún kynntist tilvonandi eigin-
manni sínum, Darrell A. Lewis, tón-
listarmanni og upptökustjóra sem
vann náið með listamanninum Max-
imum sem hafði tekið Önnu undir
sinn verndarvæng. „Það opnaðist fyr-
ir mér nýr heimur að fá að skrifa með
einhverjum tónlist og fullvinna efnið
út í ystu æsar,“ segir hún spennt.
En Anna Hlín var ekki einungis að
kynnast tónlistinni á nýjan hátt held-
ur einnig ástinni. „Við vorum einungis
vinir til að byrja með en það var allt-
af hrifning alveg strax frá fyrstu kynn-
um,“ rifjar Anna Hlín upp brosandi.
Anthony, eins og hann er oftast
kallaður, ólst upp í New York en á ættir
sínar að rekja úr Karíbahafinu, nánar
tiltekið Grenada. Anthony hefur ver-
ið með annan fótinn á Íslandi í tæp 11
ár, en hann kom fyrst til Íslands af ein-
skærum áhuga á landi og þjóð.
Á sama tíma og
Anna Hlín og Anth-
ony felldu saman
hugi flutti hann
til Svíþjóðar um
stund. „Á þess-
um tíma töluðum
við saman í síma
á hverjum ein-
asta degi. Síðan
einn daginn fékk
ég bónorð í gegn-
um símann, “ seg-
ir hún skælbros-
andi.
„Það kom svo-
lítið flatt upp á
mig. Ég heyrði að honum var alvara en
ég gerði samt smávegis grín að hon-
um því þetta var ekkert rosalega róm-
antískt,“ segir Anna Hlín hlæjandi.
Hún viðurkennir þó að hafa kom-
ið sjálfri sér á óvart með því að svara
Anthony játandi því sem barn hafði
Anna Hlín ákveðið að giftast aldrei.
„Ég veit eiginlega ekki af hverju. Mig
langaði að vera frjáls, eiga munaðar-
leysingjahæli og vera umvafin dýr-
um, en svo breyttist þetta allt þegar
ég kynntist Anthony, lífið snerist við á
góðan hátt.“
Sígaunalíf á Spáni
Nokkru seinna ákváðu þau þó að
ganga í heilagt hjónaband og Anth-
ony bað hana um að giftast sér aftur,
í þetta sinn horfði hann í augu hennar
og hélt um hönd hennar.
„Við sátum heima, vorum að glápa
á imbann og hann spurði mig hvort
ég væri tilbúin að taka þetta skref. Við
vissum bæði að þetta væri rétti tíminn
og við skelltum okkur út í óvissuna.“
Anna Hlín og Anthony giftu sig
hjá borgardómara í New York 2005
og héldu síðan til Spánar þar sem þau
dvöldu í tæp tvö ár. Þau ferðuðust um
landið endilangt, Anna Hlín söng með
hljómsveit og þau nutu lífsins.
Anna Hlín segir ævintýraþrána
og tónlistina tengja þau og þau virð-
ast samrýnd. Það fer ekki á milli mála
og hún tekur það fram að Anthony
sé hennar helsti stuðningsmaður og
gagnrýnandi í tónlistinni.
Fjörið rétt að byrja
Þau vinna saman og deila ástríðu
sinni á tónlist og Anthony segir Önnu
vera sísemjandi. „Ég er tilbúin með
efni á að minnsta kosti þrjár plötur,“
segir hún og hlær. Hún finnur sig best
í R&B-tónlistinni en sú tegund af tón-
list hefur aldrei náð að festa rætur hér
á landi. „Síðan er ég byrjuð að semja
á íslensku. Það hefur verið stórt skref
fyrir mig.“
Í nokkur ár hefur Anna nælt sér í
fjölmörg verkefni tengd tónlistinni og
var hún óhrædd að prófa nýja hluti.
Hún hefur sungið með öllum helstu
hip-hop tónlistarmönnum Íslands
sem og poppurum á borð við Eyjólf
Kristjánsson og hún virðist óhrædd
við að prófa sig áfram. Þess vegna
ákvað Anna að skrá sig í Idol-stjörnu-
leit.
„Alveg síðan Idolið byrjaði hafa
ættingjar hvatt mig til þess að taka
þátt í þessari keppni, en ég ákvað að
bíða aðeins með það og sjá hvernig
keppnin þróaðist og ef ég á að vera al-
veg hreinskilin hafði ég ekki mikla trú
á þessari keppni.“
Anna Hlín tók sinn tíma. Hún vildi
finna innra með sér hvert hún stefndi.
„Ég skráði mig í Idolið alveg á síðustu
stundu. Ég gat ekki ákveðið mig hvort
þetta væri rétta skrefið fyrir mig en ég
henti mér út í djúpu laugina eins og
vanalega og miðað við útkomuna held
ég að það hafi ekki verið svo vitlaus
hugmynd.“ Hún segir þátttöku sína í
Idolinu hafa verið lærdómsríka fyrst
og fremst og verulega taugastrekkj-
andi. „En það sem stendur upp úr var
að fá að kynnast öllu fólkinu sem kom
að keppninni og þá sérstaklega Krist-
jönu þjálfara,“ segir Anna Hlín og bæt-
ir við: „Hún kenndi mér að halda aftur
af mér og sýndi mér að ég þarf ekki að
skreyta lögin í hvert einasta skipti sem
ég kem fram.“
Sjálfri leið Önnu Hlín best á svið-
inu þegar hún tók Björgvins Halldórs-
sonar slagarann Ég skal syngja fyrir
þig. „Það var ótrúleg upplifun. Ég fékk
að vera í minni eigin dragt með hatt.
Mér leið svo vel á sviðinu og þegar ég
tók eftir því að fólk stóð upp í viðlag-
inu og klappaði með gat ég ekki hætt
að brosa. Ég var svo ánægð að ég gat
varla klárað lagið,“ segir Anna Hlín
brosandi.
Margir töldu Önnu Hlín sigur-
stranglegasta í keppninni þetta árið
og dómararnir virtust ávallt mjög
hrifnir af framkomu hennar því kom
það mörgum á óvænt er hún laut í
lægra haldi fyrir Hröfnu Hönnu Elísu
Herbertsdóttur.
Eftirsjáin er þó engin. „Ég er mjög
sátt samt með útkomuna því ég fór í
þessa keppni með það hugarfar að
koma mér á framfæri og því markmiði
hefur verið náð. Mig langar að þakka
öllum þeim sem stóðu með mér fyrir
stuðninginn og trúna. Þetta er rétt að
byrja,“ segir hún.
Fann pabba á Facebook
Glöggir áhorfendur Idolsins tóku eft-
ir því að í einum af þáttunum talaði
Anna stuttlega um hvernig hún hefði
fundið blóðföður sinn á samskipta-
síðunni Facebook. Leitin á sér langan
aðdraganda og hikar Anna Hlín ekki
við að segja hversu mikið hún elskar
Facebook fyrir þá einu ástæðu að hún
hefur eignast aragrúa af ættingjum og
tvo eldri bræður.
Pabbi hennar, Zivadín Sekulic,
kom til landsins í byrjun níunda ára-
tugarins frá Serbíu, en hann flúði
heimaland sitt til þess að losna und-
an herskyldu þar í landi. „Samkvæmt
mínum útreikningum dvaldi hann
ekki lengi hérna á Íslandi, en pabbi
var rekinn úr landi áður en ég fæddist
sökum þess að hann var að vinna hér
ólöglega,“ útskýrir Anna Hlín.
Og Ziko sneri ekki aftur fyrr en
fimm árum seinna. En sambandið
var lítið sem ekkert þá. Móðir Önnu
Hlínar hafði ekkert heyrt í honum í öll
þessi ár og reiðin var mikil. Árin liðu
og Anna Hlín var lítið að velta því fyr-
ir sér hvar í heiminum pabbi hennar
væri. Hún segir þó mömmu sína hafa
reynt að hafa upp á honum nokkrum
sinnum en án árangurs.
„Einn daginn ákvað ég að setja eft-
irnafnið mitt í leitarfídusinn á Fac-
ebook fyrir forvitni sakir og ég fékk
óteljandi niðurstöður,“ segir Anna sem
hafði ekki annað val en að „adda“ öll-
um sem mögulega kæmu til greina.
Hún sagði sögu sína og hægt og
rólega og náði Anna að útiloka alla
nema einn karlmann frá Serbíu. Sá
maður bauðst til þess að hjálpa Önnu
Hlín við leitina. „Hann sagðist eiga
vin í lögreglunni sem gæti örugglega
haft upp á pabba mínum. Hann bað
um allar helstu upplýsingar og sagð-
ist ætla að hafa samband við mig strax
daginn eftir sem hann síðan gerði.“
Þessi viðkunnanlegi maður gaf
Önnu Hlín símanúmer og bað hana
að prufa hvort um réttan aðila væri
að ræða. „Og viti menn, þetta var rétt
rúmer og pabbi var alveg jafnhissa
að heyra í mér og ég í honum. Allar
spurningarnar sem mig hafði lang-
að að spyrja hann í öll þessu ár fuku
út um gluggann og við byrjuðum að
ræða veðrið,“ segir hún hlæjandi.
Anna Hlín og blóðfaðir hennar
hafa þó ekki haldið miklu sambandi
síðan þá. Hún hefur þó í kjölfarið á
símtalinu við föður sinn kynnst fleiri
ættingjum sem hafa verið duglegir
að senda henni myndir af fjölskyld-
unni. Hún hefur einnig verið dugleg
að halda sambandi við bræður sína
tvo. Hún lítur þó ekki öðrum augum
á uppeldisföður sinn sem tók hana að
sér og ól hana upp sem sína eigin.
Hvað framtíðina varðar er Anna
Hlín spennt og hefði hún ekkert á
móti því að ferðast til Serbíu og skoða
heimaslóðir Sekulic-fjölskyldunnar.
„Mig langar að kynnast pabba mínum
og sjá hann, sjá fjölskylduna mína og
bræður. Ég fékk flugmiða vegna þátt-
töku minnar í Idolinu, kannski nota ég
hann til þess að heimsækja pabba.“
hanna@dv.is
„Á þessum tíma töluð-
um við saman í síma á
hverjum einasta degi.
Síðan einn daginn fékk
ég bónorð í gegnum
símann.“
Gifti sig ung anna Hlín giftist
anthony fyrir fjórum árum hjá
borgardómara í New York.
mYNd HeiðA HelGAdóttir
Stelpuslagur anna
Hlín tapaði í Idolinu
fyrir Hröfnu Hönnu.
Var hikandi með
þátttöku sína í
Idolinu en sér þó
ekki eftir því núna.