Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Qupperneq 48

Dagblaðið Vísir - DV - 29.05.2009, Qupperneq 48
„Okkur langaði fyrst og fremst að fylla eitt af þessum auðu húsum á Lauga- veginum og við tókum þá ákvörðun að opna „secondhand“-búð, “ segir Gígja Ísis Guðjónsdóttir, verslunar- stjóri Nostalgíu sem var opnuð með pompi og pragt á miðvikudaginn síð- astliðinn. Gígja er einn eigenda ásamt Urði Hákonardóttur söngkonu. „Okkur fannst til- valið að opna þessa verslun núna því það eru allir að kaupa „secondhand“ þessa dagana, bæði vegna þess að það er töluvert ódýr- ara og það er skemmtilegra að nýta gamlar flík- ur heldur en að kaupa nýjar.“ Nostalgía er þó ekki einungis fata- verslun heldur líka nytjaverslun. „Við erum með vel valin búsáhöld frá 1970 eins og til dæmis hamborgara- og safapressu sem eru rosalega skemmtilegar, en við erum einnig með alls kyns styttur og frá- bæra nytjahluti sem finn- ast ekki í öllum „vintage“- búðum,“ segir Gígja sem meðfram því að reka verslunina stundar nám við Listaháskóla Íslands í fatahönnun. Urður Há- konardóttir söngkona er einnig einn eigenda verslunarinnar Hún er fullviss um að svona búð á Laugaveg- inum eigi eftir að ganga vel þrátt fyrir bágt efna- hagsástand. „Það er mikill túrismi í gangi um þessar mundir og eins og ég sagði áðan langaði okkur að glæða miðbæinn lífi og við vonum að Nostalgía verði hérna á Laugaveginum, ekki bara í fortíðar- þránni heldur í framtíðinni líka,“ seg- ir hún hlæjandi. Föstudagur 29. maí 200948 Lífsstíll Þröngar gallabuxur valda doða Æ fleiri konur hafa kvartað undan nokkurs konar doðatilfinningu á lærunum undanfarin ár og sýna rannsóknir að þröngar gallabuxur séu vald- urinn. Þröngar gallabuxur hafa viss áhrif á taugakerfið sem lýsir sér í þessum undarlega doða sem ungar og heilbrigðar konur eiga ekki að finna fyrir. En konur þurfa ekki að örvænta því víðar galla- buxur hafa aldrei verið heitari. skelltu þér á einar þægilegar galla- buxur í sumar og passaðu að bretta upp á skálmarnar. Fátt er rómantískara en falleg rós og því umlykur rósin nýjustu snyrti- línuna frá MAC. Litirnir eru draum- kenndir og sækir MAC innblástur að þessu sinni í þetta fallega blóm sem skáld líkt og Shakespeare hafa ort um. Rómantíska línan fæst í öllum verslunum MAC. Ný lína frá MAC: rómantík í loftinu umsjón: Hanna Eiríksdóttir, hanna@dv.is lacroix í kreppu kreppan virðist einnig hafa áhrif í tískuheiminum, en franski tískurisinn Christian Lacroix sótti um greiðslustöðvun í síðustu viku. tískuhúsið hefur verið starfrækt síðan 1987 en eigendur þess eru vongóðir um að fyrirtækið og merkið haldi áfram í núverandi mynd og að litlar breytingar verði þar á. Æðstu menn innan Lacroix segja að það ætti að koma í ljós innan fárra vikna. tískuhúsið var keypt af bandarísku fyrirtæki árið 2005 en sögur segja að svissneskt fyrirtæki hafi sýnt tískuhúsinu áhuga. Skreyttar handtöSkur nauðsynlegt er að eiga hina fullkomnu handtösku því hún er ekki síður mikilvæg en eyrnalokkarn- ir eða hálsmenin. í sumar er algjört möst að næla sér í litla, skreytta handtösku með það í huga að taskan þarf ekki að vera frá Louis Vuitton. ný eða notuð. Það skiptir ekki máli en hin fullkomna hliðartaska má vera litrík, skreytt perlum eða dýramynstri eða í indíánastíl. allt er leyfilegt þetta sumarið. toppurinn er að taskan sé nógu lítil svo að hægt sé að halda á henni í hendinni. Scarlett andlit mango Leikkonan scarlett johansson verður andlit tískukeðjunnar mango fyrir haust/vetur auglýsingaherferð hennar. „Hún er hin fullkomna kona fyrir mango, hún er sjálfstæð og það er mikill stórborgarbragur yfir henni,“ segir talsmaður fyrirtækisins. scarlett mun hafa nóg fyrir stafni næstu mánuði en það var tilkynnt í mars að leikkonan íturvaxna yrði talskona og ímynd moet & Chandon- kampavínsins. auglýsingaherferðin verður mynduð af mario sorrenti í Los angeles. Ný „secondhand“-fatabúð og nytjaverslun var opnuð á Laugaveginum fyrr í vikunni: glæða mið- b rgina lífi Mikil gleði ríkti við opnun búðarinnar. Urður og Gígja Voru ánægðar með útkomuna. Hermannabuxur Fyrir karlmenn. Kinnalitur ungdómsins takið eftir rósamynstrinu í kinnalitnum. Rómantískur Varalitur fyrir sumarið. Sumarlegur augn- skuggi frá maC. Pigment draumkenndur augnskuggi. Jómfrúarkoss seiðandi gloss. Kimono Föl- bleikur kimono.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.