Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 10

Uppeldi og menntun - 01.07.2015, Side 10
UPPELDI OG MENNTUN/ICELANDIC JOURNAL OF EDUCATION 24(2) 201510 VEGFERÐ TIL FULLORÐINSALDURS regnhlífarhugtakinu „transition to adulthood“; hér verður notað íslenska hugtakið vegferð til fullorðinsaldurs. Nefndar breytingar hafa orðið með ólíkum hætti meðal ólíkra þjóða og athuganir á þeim hafa byggst á ólíkum hefðum ólíkra landa. Í ritum sem birt eru á alþjóðlegum vettvangi er mjög misjafnt til hvaða hefða er vísað þannig að ekki hefur skapast nein almennt viðurkennd afmörkun alþjóðlegrar umræðu. Vegferðarhugtakið var upphaflega mótað innan ungmennafræða til að skýra breytta för ungmenna úr skóla og í vinnu (Roberts, 1968) en smám saman fóru rannsakendur að tengja þá för við fleiri þætti, svo sem aldur við fyrstu kynlífsreynslu, fyrstu sambúð og fyrstu barneign, eðli og vægi jafningjatengsla, kyngervi og samfélagslega þátttöku (Bynner, Chisholm og Furlong, 1997). Við þróun þessara fræða tóku rannsakendur snemma að efast um að fólk almennt, og einkum þó ungmenni, færi í beinu línulegu ferli frá einu æviskeiði til annars. Skilin milli skeiða hafi orðið óljós og æ fleiri taki þau í „vitlausri röð“ eða fari á einhverju tímabili eins og jójó-kefli frá einu skeiði til annars – stofni kannski heimili ung, en flytji síðan aftur heim til foreldra, eða komi sér fyrir á vinnumarkaði en fari síðan í nám aftur o.s.frv. (du Bois-Reymond, 1998). Til að geta lýst síbreytilegu samspili ólíkra þátta í breytilegu lífshlaupi ungmenna í samfélagi sem breytist hratt þarf sífellt að grípa til nýrra hugtaka og nýrra skilgreininga á eldri hugtökum, og þættir úr eldri nálgunum hafa oft verið endurvaktir. Vegferðarhugtakið hefur þó enst vel sem afmarkandi regnhlífarhugtak. Á Íslandi hafa töluverðar ungmennarannsóknir verið gerðar, einkum undanfarinn aldarfjórðung. Í flestum þeirra eru mjög afmörkuð atriði skoðuð, og sum þeirra tengjast spurningum um vegferð, en þær hafa ekki verið settar í samhengi við breiðari rannsóknarhefðir vegferðar. Hér verður reynt að kynna og ræða ýmsa helstu strauma á sviði vegferðarrannsókna en efnið er margflókið, og ekki hægt að benda á ótvíræða kenningaskóla. Því ber að líta á greinina sem tilraun höfundar til að draga upp heildstæða mynd. Í samantekt og umræðu verður leitast við að draga fram þær hefðir sem hafa haft mest áhrif, en einnig er bent á minna þekkt skrif sem greinarhöfundur telur hafa mikið fram að færa. Við könnun sína á umfjöllun hins alþjóðlega vísindasamfélags um þetta efni hefur greinarhöfundur ekki fundið grein eða bók þar sem finna má jafn breitt yfirlit yfir vegferðarrannsóknir og í þessari grein. Greinin hefst á stuttum kafla um ungmennarannsóknir almennt, fram á níunda áratug 20. aldar, með áherslu á kenningar og rannsóknarhefðir sem síðan hafa þróast áfram í vegferðarrannsóknum. Þá verður sjónarhornið þrengt og því beint að þróun vegferðarrannsókna á síðustu 50 árum. Í sérstökum kafla verður loks sérstaða Íslands og mikilvæg rannsóknarverkefni í ljósi vegferðarkenninga íhuguð, og að lokum dregnar nokkrar ályktanir. ÖLD UNGMENNA – RANNSÓKNIR Á FRÁVIKUM, MENNINGU OG VEGFERÐ UNGMENNA Á 20. ÖLD Langt fram eftir 20. öld voru rannsóknir á börnum og ungmennum að mestu gerðar innan vébanda uppeldisfræði, sálfræði og félagsfræði og einkum leitast við að greina eðlilegan, normatífan þroska og helstu frávik frá honum. Á síðustu áratugum hefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.