Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 2
„Hreiðar var mjög búllí“
n Í yfirheyrslugögnum sérstaks saksókn-
ara yfir Halldóri Bjarkari Lúðvígs-
syni, fyrrverandi starfsmanni
fyrirtækjasviðs Kaupþings,
þann 21. október 2009 ræðir
hann meðal annars samskipti
sín við Ólaf Ólafsson vegna Al
Thani-málsins, lánveitinga og
kaupa sjeiksins á liðlega 5 prósenta hlut
í bankanum skömmu fyrir bankahrun-
ið. DV birti hluta yfirheyrslunnar yfir
Halldóri Bjarkari á mánudaginn. Fram
kemur að Al Thani fékk um 13 milljarða
króna lánaða inn í félag sem ber nafnið
Serval. Upphæðin var síðan lánuð áfram
í Choice og loks Q-Finance Iceland sem
eignaðist hlutinn í Kaupþingi. Halldór
segir Hreiðar Má hafa verið „mjög búllí“
og að Ólafur Ólafsson hafi farið með
sjeiknum að veiða villt dýr í Afríku.
gnarrenburg
n Súrrealísk stemning ríkti
á pöllum Ráðhúss Reykja-
víkur á þriðjudag
þegar fyrsti fund-
ur nýrrar borg-
arstjórnar var
settur. Fólk fjöl-
mennti á áhorf-
endapallana og sumir létu
í sér heyra. Þar var beðið
í ofvæni eftir því að Besti
flokkurinn og Samfylking-
in kynntu stefnuskrá sína.
Jón Gnarr uppskar mikið
lófaklapp þegar ljóst var að hann hafði verið kjörinn borgarstjóri Reykjavíkur
með níu atkvæðum. Hann sló síðan á létta strengi í opnunarræðu sinni við
góðar undirtektir áhorfenda. Hanna Birna Kristjánsdóttir, fráfarandi borgar-
stjóri, sem hafði skömmu áður hlotið einróma stuðning sem forseti borgar-
stjórnar, varð hvað eftir annað að minna fólk á reglur um fundarsköp þegar
það lét í sér heyra.
bjargaði mömmu
og litlu systur
n Íris Jóhannsdóttir ljósmynd-
ari þakkar sex ára dóttur sinni
lífsbjörgina eftir að kviknaði í
á heimili þeirra. Stelpan unga,
Eva Marín Einarsdóttir, brást
hárrétt við og bjargaði móður
sinni og nýfæddri systur frá voða. Það
var á föstudaginn fyrir viku sem Íris
sofnaði eftir bjóstagjöf með 5 daga gam-
alli dóttur sinni en á sama tíma gleymdi
hún potti á eldavélinni þar sem hún var
að sjóða mjólkurpela. Það kviknaði í og
reykskynjari heimilisins var batteríslaus
þannig að Íris varð ekki vör við neitt er
hún svaf inni í svefnherbergi. Eva Marín
hafði verið að leika sér úti í garði og fyrir
tilviljun skrapp hún inn til sín að skila
leikföngum áður en hún ætlaði út á róluvöll. „Hún kom inn og sá þá allt í
reyk. Þá lagðist hún bara samstundis niður og skreið inn í svefnherbergi og
vakti mig þar. Hún öskraði: „Eldur, eldur, 112, 112,“ og skreið svo fram á gang
að vekja nágranna okkar,“ segir Íris við DV.
2
3
1
Hannes
tengdur
Panama
MÁNUDAGUR og ÞRIÐJUDAGUR 14. – 15. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 67. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
yfirheyrslA sAksóknArA vegnA kAupþings:
„HreIÐar
Var mJÖg
BÚLLÍ“
n HALLDÓR BJARKAR, STARFSMAÐUR
KAUPÞINGS, YFIRHEYRÐUR
n ÓLAFUR ÓLAFSSoN REYNDI AÐ
LoSA AL THANI UNDAN ÁBYRGÐUM
n ,,SJEIKINN vAR AÐ PANIKERA“
n AL THANI oG ÓLAFUR vEIÐI-
FéLAGAR í AFRíKU
n ,,50 MILLJÓNIR í vASANN, SKo“
n SKATTURINN SKoÐAR
TöLvUPÓSTA FRéTTIR
SKULDUGASTIR
ALLRA Á íSLANDI
hm2010
n AFDRIFARíK MISTöK MARKMANNA
ÞJóÐVerJar
geggJaÐIr
SKULDUG SvAvA í
STÓRFRAMKvæMDUM
n „HEFÐUM ALDREI FARIÐ úT í ÞETTA í DAG“
dV BIrt
Ir
yfIrHe
yrsLur
KastLJós-
stJarna
BrotIn
á BáÐum
n ÞvoÐI SAMT
BíLINN
FÓLK
BrotIÐ gegn
farÞegum
snyrtIaKademÍan
Í KennItÖLuHoPPI
iceland express:
FRéTTIR
NEYTENDUR
miðvikudagur og fimmtudagur 16. – 17. JÚNÍ 2010 dagblaðið vísir 68. tbl.
100. árg. – verð kr. 395
Eva Marín, 6 ára, bjargaði MöMMu og nýfæddri SYSTur:
n mammaN var SOfaNdi mEð fimm daga dÓttur
n „ELdur, ELdur, 112, 112!“ n „HÚN gErði aLLt rÉtt, HÁgrÁtaNdi“ n fÉkk frÆðSLu Á LEikSkÓLaNum
450 kr.
MUNUr
n vELdu rÉtta
bENSíNStöð
NEytENdur
n Hvað brEytiSt mEð JÓNi gNarr?
GNArrENBUrG
frÉttir
HOMMAr
MEGA EkkI
GEFA BLÓÐ
20 RÁÐ
TIL AÐ LIFA
LENGUR
katríN
Situr Á
SÁtt um
vatNið
frÉttir
Námskeið í súlufimi:yfirmENN fÁ
miLLJarða
afSkrifaða
„DÓTTIr MÍN
Er HETJA“
m
YN
d
r
Ó
be
rt
r
eY
N
is
sO
N
STÚLkUr
SENDAr Í
ÓVISSUFErÐ
Á GOLDFINGEr
n ENduðu kLÆddar SEm PLaybOy-kaNíNur
frÉttir
frÉttir
2 miðvikudagur 16. júní 2010 fréttir
Súrrealísk stemning ríkti á pöllum
Ráðhúss Reykjavíkur í gær þegar
fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar
var settur. Fólk fjölmennti á áhorf-
endapallana og sumir létu í sér
heyra. Þar var beðið í ofvæni eftir
því að Besti flokkurinn og Samfylk-
ingin kynntu stefnuskrá sína.
Jón Gnarr uppskar mikið lófa-
klapp þegar ljóst var að hann hafði
verið kjörinn borgarstjóri Reykja-
víkur með níu atkvæðum. Hann
sló síðan á létta strengi í opnun-
arræðu sinni við góðar viðtökur
áhorfenda. Hanna Birna Kristjáns-
dóttir, fráfarandi borgarstjóri sem
hafði skömmu áður hlotið einróma
stuðning sem forseti borgarstjórn-
ar, varð endurtekið að minna fólk á
reglur um fundarsköp þegar það lét
í sér heyra.
Besti flokkurinn
standi undir nafni
Jón Gnarr byrjaði á því að þakka fyr-
ir það traust sem íbúar Reykjavíkur
hefðu sýnt Besta flokknum. Hann
fullyrti að Besti flokkurinn stæði
undir nafni, annars hefði hann ver-
ið kallaður versti flokkurinn eða
vondi flokkurinn. Hann sagðist
ekki hafa munað hvers vegna hann
hefði stofnað flokkinn eða hvern-
ig hann hefði komið til, en hann
hefði verið það merkilegasta sem
hann hefði búið til fyrir utan börn-
in hans. Jón rifjaði upp þegar hann
vildi vera trúður í Sirkus Billy Smart
þegar hann var lítill. Kennari hans
sagði að hann kæmist ekki langt
áfram á gríninu einu saman. Hann
hefði nú sýnt fram á annað.
Jón lagði áherslu á að fólk hefði
ekki áhyggjur af því sem koma
skyldi þrátt fyrir að Besti flokkurinn
starfaði eftir mjög óhefðbundnum
leiðum. „Áhyggjur eru gagnslausar,
þær hafa aldrei leyst nein vanda-
mál,“ sagði hann og minnti á að sá
sem gæfi græddi meira en sá sem
þæði. Jón vísaði í þessu sambandi
til sögusviðs Kardimommubæjar-
ins og sagði allt verða betra ef all-
ir myndu heilsa hver öðrum með
bros á vör.
Ísbjörninn var grín
Jón lagði áherslu á að hann fengi
að vera stjórnarformaður í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum í
Reykjavík og rataði sú stefna inn
í samstarfsyfirlýsingu Samfylk-
ingar og Besta flokksins. Í kosn-
ingabaráttunni talaði hann mik-
ið um málefni garðsins þar sem
eitt af kosningamálum hans var
að koma ísbirni í húsdýragarðinn.
Jón var spurður út í hvort von væri
á ísbirninum í húsdýragarðinn á
blaðamannafundi í Ráðhúsinu.
Hann svaraði að bragði að hann
hefði þurft að útskýra oft og mörg-
um sinnum að ísbjörninn hefði
verið grín en hann kæmi þó von-
andi í garðinn.
Stuðningsmaður Besta
flokksins í Orkuveituna
Á fundinum á þriðjudag var kos-
ið í ráð og nefndir á vegum borg-
arinnar. Þar vöktu nokkrir fulltrú-
ar sérstaka athygli. Gunnar Lárus
Hjálmarsson, Dr. Gunni, var óvænt
kjörinn stjórnarformaður Strætós
bs., Hjálmar Sveinsson, vara-
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
stjórnarformaður Faxaflóahafna,
og þá sætti kannski mestu tíðind-
um að Haraldur Flosi Tryggvason
var valinn stjórnarformaður Orku-
veitu Reykjavíkur.
Haraldur Flosi var ekki á fram-
boðslista Besta flokksins en var yfir-
lýstur stuðningsmaður hans. Hann
er framkvæmdastjóri lögfræði- og
eignasviðs eignaleigufyrirtækisins
Lýsingar. Haraldur var einnig fram-
kvæmdastjóri Viðskiptablaðsins,
en það fór í þrot árið 2008. Haraldur
útskrifaðist úr lögfræði frá Háskóla
Íslands árið 1999, meistaranámi í
Evrópu- og samanburðarlögfræði
frá Oxford-háskóla á Englandi árið
2003 og úr MBA-námi frá Oxford
Brooks-háskóla árið 2004. Í samtali
við DV segist Haraldur bjartsýnn á
reksturinn og að hann hafi þar gott
fólk með sér.
Engir hagsmunaárekstrar
Samkvæmt heimildum DV liggja
leiðir Haraldar og margra úr röð-
um Besta flokksins saman en hann
kom að störfum flokksins á seinni
stigum. Rætt hafi verið um að fá
sterkt fólk inn sem fulltrúar flokks-
ins treystu. Haraldur hafi þótt hafa
sérfræðiþekkingu sem gæti nýst í
starfi hjá Orkuveitunni. Alltaf hafi
staðið til að fá utanaðkomandi
mann að starfsemi Orkuveitunn-
ar. Það var ekki talið að störf hans
fyrir Lýsingu og hjá Orkuveitunni
myndu skarast. Lýsing væri sér-
hæft fjármálafyrirtæki og með ólíka
starfsemi.
BORGIN HANS JÓNS GNARR
Jón Gnarr tók á þriðjudag við borgarstjóralyklunum af Hönnu
Birnu Kristjánsdóttur. Mikil stemning var á pöllum Ráðhússins
þegar fyrsti fundur nýrrar borgarstjórnar var haldinn og sam-
starfssamningur meirihlutans var kynntur. Það kom á óvart
þegar Haraldur Flosi Tryggvason, framkvæmdastjóri hjá Lýs-
ingu, var kjörinn stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og
Dr. Gunni stjórnarformaður Strætós bs.
Áhyggjur eru gagnslausar.RóBERT HlynuR BalDuRSSOn
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
n Fjölga á beinum atkvæðagreiðslum um
mikilvæg mál og setja skýrari ramma um
framkvæmd þeirra með auknu samráði
við íbúa. Stjórnsýslan endurskipulögð og
siðareglur borgarstjórnar endurskoðaðar.
n Þátttaka innflytjenda í stefnumótun
borgarinnar aukin og studd. Þróun
kynbundins launamunar hjá borginni
verði könnuð og útrýmt að fullu. Mörkuð
stefna um jafnréttisfræðslu.
n Bílaumferð á tilteknum svæðum
takmörkuð í tilraunaskyni. Útþensla
borgarinnar stöðvuð og lagt áherslu á
þéttingu byggðar.
n Viðræður við samtök í atvinnulífi og
fulltrúum fyrirtækja þar sem staða,
styrkleiki og sóknarfæri Reykjavíkur-
borgar verði skilgreind. Ýmis konar
stuðningur við ferðaþjónustu. Þróunar
og nýsköpunarfélag Reykjavíkurborgar í
atvinnumálum endurreist.
n Mörkuð barna- og fjölskyldustefna og
menningarstefna fyrir skóla og frístunda-
heimili með samstarfi við listamenn og
menningarstofnanir. Foreldrar geti komið
fram skoðunum þeirra á skóla barna
þeirra til skila í rafrænum skoðanakönn-
unum. Hugað verði að byggingu nýs
sérskóla með sameiningu Öskjuhlíðar- og
Safamýrarskóla.
n Íbúum, hópum og félagasamtökum
boðið að sjá um umhirðu grænna
svæða í sumar. Framkvæmdaáætlun
borgarinnar tekin til endurskoðunar þar
sem er stefnt að því að tvöfalda viðhald
á fasteignum borgarinnar árin 2011
til 2012. Áætlun um endurnýjun eldri
hverfa. Efling mannlífs- og borgarmynd-
ar í Efra-Breiðholti.
n Leyfisveitingar við stofnun fyrirtækja
einfaldaðar sem og breytingar á
íbúðarhúsnæði. Tryggja á notkun á auðu
húsnæði.
n Orkuvæðing í samgöngum og rafvæð-
ing þeirra. Annar hver bíll verði innan
áratugar knúinn innlendri, vistvænni
orku. Borgin endurnýi bílaflota hennar
og byggi hann á raf- og metanknúnum
bílum.
n Nýtt svæðisskipulag mótað sem nái
frá Reykjanesi í vestri, Árborgarsvæðisins
í austri og Borgarness í norðri. Þar verði
mótuð sameiginleg sýn á umhverfis-,
atvinnu og húsnæðismál á öllu svæðinu.
Hugað verði sérstaklega að sameiginleg-
um borgarrýmum, eins og Hlemmi og
Ingólfstorgi. Færri mislæg gatnamót og
fleiri einlæg gatnamót.
n Hjólandi og gangandi vegfarendur
njóti forgangs í umferðinni. Dregið úr
umferðarhættu, svifryki og hávaða-
mengun. Auka á ferðatíðni og leiðakerfi
Strætós þar sem hann á að ganga alla
daga ársins.
n Staðsetning flugvallarins í Vatnsmýri
endurskoðuð og kannaður möguleikinn
á lestarsamgöngum milli svæðisins og
Keflavíkur.
n Tekið á vanda útigangsfólks. Saman-
lögð fjárhags- og húsnæðisaðstoð nái
lágtekjumörkum Hagstofunnar, 160
þúsund krónum á mánuði. Fjárhagsað-
stoð verði engu að síður ekki langtímaúr-
ræði. Samstarf við Vinnumálastofnun um
úrbætur á málum þeirra sem eru utan
vinnumarkaðar.
n Íbúar í húsnæði borgarinnar hafi
tækifæri til þess að eignast búseturétt.
n Opnað fyrir viðræður um hvers kyns
sameiningu og samvinnu sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu. Embætti Umboðs-
manns borgarbúa sett á fót. Hann skal
leiðbeina íbúum í samskiptum þeirra við
stofnanir borgarinnar.
n Flutningur húsa úr Árbæjarsafni á
upprunalega staði eða í Hljómskálagarð-
inn verði kannaður.
n Unnin verði áætlun um efnahags- og
fjármálastjórn borgarinnar. Styrkveitingar
borgarinnar endurskoðaðar og farið yfir
forsendur styrkja og samstarfssamninga.
Þeir sem njóti styrkja verði með opið
bókhald.
n Eigendastefna skilgreind fyrir fyrirtæki
og byggðasamlög borgarinnar. Tryggt
verði að stefna borgarinnar nái fram að
ganga í samræmi við eignarhlut hennar í
þessum einingum.
þetta ætla þau að gera
óttarr Proppé Nýr borgarfulltrúi Besta
flokksins gengur upp tröppur Ráðhússins.
MynD HÖRÐuR SVEInSSOn
Á borgarstjórnarfundi Jón Gnarr var kjörinn borg-
arstjóri Reykjavíkur á fundi borgarstjórnar í gær. Við
hlið hans er Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylking-
arinnar. Hann var kjörinn formaður borgarráðs.
MynD HÖRÐuR SVEInSSOn
fréttir 16. júní 2010 miðviku
dagur 3
jón með milljón á mánuði
Jón Gnarr, borgarstjóri
Milljón krónur á mánuði.
Einar Örn Benediktsson
713 þúsund krónur.
Óttarr Proppé
541 þúsund krónur.
Karl Sigurðsson
551 þúsund krónur.
Eva Einarsdóttir
440 þúsund krónur.
Elsa H. Yeoman
541 þúsund krónur.
Oddný Sturludóttr
642 þúsund krónur.
Björk Vilhelmsdóttir
622 þúsund krónur.
Dagur B. Eggertsson
702 þúsund krónur.
Júlíus Vífill Ingvarsson
632 þúsund krónur.
Kjartan Magnússon
440 þúsund krónur.
Hanna Birna Kristjánsd.
743 þúsund krónur.
Þorbjörg Helga Vigfúsd.
521 þúsund krónur.
Sóley Tómasdóttir
642 þúsund krónur.
Gísli Marteinn Baldurss.
440 þúsund krónur.
aðrir fulltrÚar
Páll Hjaltason
Varaborgarfulltrúi
besta flokksins
419 þús. krónur.
Haraldur Flosi
Tryggvason
stjórnarforMaður
orkuVeitunnar
225 þús. krónur.
Dr. Gunni
stjórnarforMaður
strætós bs
109 þús. krónur.
Hjálmar Sveinsson
stjórnarforMaður
faxaflóahafna
162 þús. krónur.
ráð og nefndir borgarinnar
BOrGarráð
Dagur B. Eggertsson, formaður
óttarr Proppé
elsa hrafnhildur Yeoman
oddný sturludóttir
hanna birna kristjánsdóttir
júlíus Vífill ingvarsson
sóley tómasdóttir
ÍÞrÓTTa- OG
TÓMSTunDaráð
Diljá ámundardóttir, formaður
eva einarsdóttir
eva baldursdóttir
hilmar sigurðsson
kjartan Magnússon
geir sveinsson
björn gíslason
MannréTTInDaráð
Marta Guðjónsdóttir, formaður
björn gíslason
salvör gissurardóttir
Zakaria elias anbari
falasteen abu libdeh
felix bergsson
jóhann björnsson
MEnnInGar- OG
FErðaMálaráð
Einar Örn Benediktsson, formaður
harpa elísa Þórsdóttir
eva baldursdóttir
stefán benediktsson
Þorbjörg helga Vigfúsdóttir
Áslaug María friðriksdóttir
Davíð stefánsson
MEnnTaráð
Oddný Sturludóttir, formaður
eva einarsdóttir
óttarr Proppé
stefán benediktsson
kjartan Magnússon
Þorbjörg helga Vigfúsdóttir
líf Magneudóttir
SKIPulaGSráð
Páll Hjaltason, formaður
elsa hrafnhildur Yeoman
hjálmar sveinsson
sverrir bollason
júlíus Vífill ingvarsson
gísli Marteinn baldursson
geir sveinsson
uMHVErFIS- OG
SaMGÖnGuráð
Karl Sigurðsson, formaður
hjördís sjafnar ingimundardóttir
hjálmar sveinsson
kristín soffía jónsdóttir
gísli Marteinn baldursson
hildur sverrisdóttir
Þorleifur gunnlaugsson
VElFErðarráð
Björk Vilhelmsdóttir, formaður
Margrét kristín blöndal
Ágúst Már garðarsson
bjarni karlsson
Áslaug María friðriksdóttir
jórunn frímansdóttir
Þorleifur gunnlaugsson
FaxaFlÓaHaFnIr
Hjálmar Sveinsson, formaður
björn blöndal
björk Vilhelmsdóttir
júlíus Vífill ingvarsson
Þorbjörg helga Vigfúsdóttir
OrKuVEITa rEYKJaVÍKur
Haraldur Flosi Tryggvason, formaður
helga jónsdóttir, varaformaður
aðalsteinn leifsson
kjartan Magnússon
sóley tómasdóttir
SOrPa BS
einar Örn benediktsson*
STræTÓ BS
Gunnar lárus Hjálmarsson, formaður*
* SITJa auK FullTrúa annarra SVEITarFélaGa Í STJÓrnuM FélaGanna.
á skrifstofu borgarstjóra Málverkið að
baki jóns gnarrs málaði louisa Matthíasdótt-
ir. Á blaðamannafundi í ráðhúsi reykjavíkur
sagði jón að verkið hafi verið valið fyrir hann.
MYnD HÖrður SVEInSSOn
2 föstudagur 18. júní 2010 fréttir
Þessar fréttir bar hæst í vikunni
þetta helst Fram undan er stórt súlufimimót og er það haldið á vegum Xforms sem býður upp á kennslu í súlufimi. Á meðal styrkt-
araðila mótsins eru verslunin Adam og Eva og Ásgeir Davíðsson.
hitt málið
GEIRI STYRKIR
SÚLUFIMIMÓT
Verslunin Adam og Eva, sem sel-
ur meðal annars undirföt og kynlífs-
leikföng, og Ásgeir Davíðsson, oftast
nefndur Geiri Goldfinger, eru á með-
al styrktaraðila á stóru keppnismóti í
svokallaðri súlufimi. Mótið er skipu-
lagt af eigendum Xforms sem nýver-
ið buðu súluformsiðkendum sínum í
óvissuferð til styrktaraðilanna.
Óvissuferðin var farin um síðustu
helgi þar sem stúlkurnar sem stunda
súlufimina fóru fyrst í keilu og borð-
uðu saman. Þá var litið við í Adam og
Evu og svo kíkt í heimsókn til Geira.
Iðkendurnir eru frá 16 ára og upp úr.
Um kvöldið fóru súlufimistúlkurn-
ar síðan í samkvæmi þar sem þær
klæddu sig upp sem Playboy-kanínur.
Lokað á meðan
DV flutti fréttir af óvissuferðinni í vik-
unni og Þorvaldur Steinþórsson, eig-
andi Adams og Evu, brást við frétt-
unum með þeim hætti að heimsókn
stúlknanna hafi ekkert haft með klám
eða kynlíf að gera. „Ég vil taka fram
að heimsókn þeirra fólst í kynningu
á korselettum og kjólum. Við seljum
kynlífsvarning og undirföt. Ég ætla
ekki að svara fyrir Goldfinger-heim-
sóknina að öðru leyti en kannski var
ástæðan sú að staðurinn hefur súlu
og þar var brugðið á leik. Staðurinn
var lokaður fyrir öðrum á meðan,“
sagði Þorvaldur í athugasemdakerfi
dv.is.
Inga Dungal, annar af eigend-
um Xforms, fullyrðir að ekkert ólög-
legt hafi farið fram í óvissuferðinni
því þar hafi stelpurnar aðeins verið
að skemmta sér saman. Hún vísaði
einnig til þess að staðurinn hafi verið
lokaður á meðan heimsókninni stóð
og engir viðskiptavinir til staðar. Und-
ir það tók Geiri, eigandi Goldfinger, í
samtali við DV: „Þær vildu bara fá að
kíkja upp eftir, ég sagði að ég vildi ekki
hafa þær á vinnutíma, því þegar dans-
arar eru í vinnunni hjá mér er staður-
inn lokaður fyrir konum. Þær vilja
sem minnst af Goldfinger vita. Ég hef
þekkt þessar stelpur í einhver ár og
hef strítt þeim og spurt af hverju þær
koma ekki á súluna hjá mér, en þær
segja að það sé ekki inni í myndinni.“
Sirkus en ekki stripp
„Það sem við höfum gert sam-
an í sumar er að fara á Miklatún
á fimmtudögum í brennókeppni
eða skotbolta,“ segir Guðrún Lára
Sveinbjörnsdóttir, súlufimikennari
í Heilsu akademíunni sem er ósátt
við dagskrá nýlegrar óvissuferðar
Xforms. Guðrúnu Láru finnst sú dag-
skrá ekki passa við þá ímynd sem
hún hefur reynt að skapa í kringum
íþróttina. „Við stundum pole fitness
sem íþrótt og höfum verið með það
að markmiði að gera hana að viður-
kenndri íþrótt. Hjá okkur eru um 50
stelpur að æfa og strákar hafa einn-
ig komið til okkar í þeim tilgangi að
gera erfiðar samsetningar í loftinu á
súlum líkt og gert er í sirkusum, segir
Guðrún Lára.
„Einnig erum við með fjöl-
breyttar dansrútínur sem tengjast
ekki hefðbundnum súludansi. Mér
finnst afar leiðinlegt hvernig um-
fjöllun um súlufimi er að verða. Við
tilheyrum ekki þessu nýstofnaða
félagi og tökum ekki þátt í keppn-
inni í haust.“
trauSti hafSteinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Ég hef þekkt þessar stelpur í
einhver ár og hef strítt
þeim og spurt af hverju
þær koma ekki á súluna
hjá mér, en þær segja að
það sé ekki inni í mynd-
inni.
Ásgeir Davíðsson Styrkir súlufimimót þótt
stelpurnar vilji ekkert af Goldfinger vita.
ekki stripp Talsmenn súlufimi hafa lagt
áherslu á að íþróttin tengist ekki strippi.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Fæst í apótekum
Rodalon®
-utanhúss
Eyðir bakteríum,
sveppagróðri
og mosa
• Fyrir sólpallinn
• Garðhúsgögnin
• Sumarbústaðinn
• Húsbílinn
• Tjaldvagninn
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is