Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 10
10 föstudagur 18. júní 2010 fréttir
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur,
líkir umræðu um hugsanlega hags-
munaárekstra nýs stjórnarformanns
Orkuveitu Reykjavíkur, vegna tengsla
hans við Lýsingu, við leit að Nelson
Mandela, fyrrverandi forseta Suð-
ur-Afríku og baráttumanni fyrir rétt-
indum blökkumanna. Allir leiti að
einhverjum sem hafi vit á hlutunum
og hafi eitthvað með þá að gera. Sá
einstaklingur komi svífandi niður af
himninum, líkt og Nelson Mandela.
Jón segir þann einstakling hins veg-
ar vandfundinn. Ísland sé lítið, fólk
tengist hvert öðru og eigi sína fortíð.
„Þetta er raunveruleikinn sem unnið
er eftir,“ segir Jón.
Ný stjórn Orkuveitunnar
Á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórn-
ar Reykjavíkur, sem haldinn var í
vikunni, voru nýir fulltrúar skipað-
ir í stjórn Orkuveitunnar. Þar var
Haraldur Flosi Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri lögfræði- og eigna-
sviðs eignaleigufyrirtækisins Lýsing-
ar, kjörinn stjórnarformaður. Auk
hans voru þar Helga Jónsdóttir, frá-
farandi bæjarstýra í Fjarðabyggð, og
Aðalsteinn Leifsson, lektor við Há-
skólann í Reykjavík, kjörin í stjórn
fyrirtækisins.
Jón segist vera sannfærður um að
Haraldur sé réttur maður til að taka
stjórnarformennsku Orkuveitunnar
að sér. Jón segist treysta Haraldi og
að hann hefði ekki getað fundið betri
mann til þess að koma að rekstri fyr-
irtækisins. Undir þetta tekur Dagur
B. Eggertsson, formaður borgarráðs.
„Haraldur kemur inn í Lýsingu fyr-
ir ráðgjafarstörf sín við endurskipu-
lagningu fyrirtækja í erfiðri stöðu.
Hans og annarra bíður gríðarlega
mikið verkefni inni í Orkuveitunni.
Við vildum fá gott fagfólk með breiða
þekkingu og reynslu að starfi hennar.
Helga Jónsdóttir hefur stjórnsýslu-
lega reynslu og var stjórnarformaður
Landsvirkjunar. Aðalsteinn Leifsson
er reyndur í alþjóðlegri samninga-
gerð,“ segir Dagur sem segir nýju
stjórnarmennina hafa verið valda
með það að sjónarmiði að verkefnið
næði ákveðinni festu.
Jón og Dagur vilja að leitað verði
allra leiða til að hagræða í rekstri
Orkuveitunnar áður en gjaldskrár
verði hækkaðar. Aðspurður hvort
hann eigi við að beita þurfi niður-
skurðarhnífnum í rekstri hennar,
segir Dagur það blasa við. Skulda-
vandi Orkuveitunnar verður trúlega
erfiðasta verkefnið sem ný stjórn fyr-
irtækisins þarf að taka á. Talið er að
skuldir þess nemi nú um 220 millj-
örðum króna og hafa þær fjórfaldast
á fjórum árum. Eins og DV greindi frá
9. júní festi Orkuveitan kaup á Benz-
jeppa fyrir fjármálastjóra fyrirtæk-
isins fyrir mánuði fyrir sjö milljónir
króna. Skömmu eftir borgarstjórnar-
kosningarnar í lok maí var síðan til-
kynnt að hækka þyrfti smásöluverð
á rafmagni um 27 prósent á næstu
fimm árum og heitt vatn um 37 pró-
sent. Um 2,5 milljarða króna tap var á
rekstri Orkuveitunnar í fyrra.
Velferð njóti forgangs
Í samstarfsyfirlýsingu Besta flokksins
og Samfylkingar er lagt til að velferð
og þjónusta njóti forgangs við ráð-
stöfun fjármuna borgarinnar. Sigrún
Elsa Smáradóttir, fyrrverandi borg-
arfulltrúi Samfylkingarinnar, hef-
ur hins vegar sagt að borgin þurfi
að leggja til hliðar um átta til tólf
milljarða króna vegna skuldavanda
Orkuveitunnar. Borgin beri ábyrgð á
skuldum Orkuveitunnar.
Dagur segir að ný aðgerðaáætl-
un í fjármálum borgarinnar muni
líta dagsins ljós fyrir áramót. Hún
muni taka við af áætlun fyrri borgar-
stjórnar um aðhald í rekstri sveitarfé-
lagsins. Í fyrra varð um 1,6 milljarða
króna tap á rekstri borgarinnar. Tap-
ið mátti mestmegnis rekja til fyrir-
tækja í hennar eigu. Reykjavíkurborg
er stærsti vinnustaður landsins með
um átta þúsund starfsmenn.
Útiloka ekki
gjaldskrárhækkanir
Þegar Dagur er spurður hvort til
greina komi að endurskoða launa-
kjör starfsmanna borgarinnar segir
hann mjög marga samninga lausa
hjá þeim í haust. Fara verði yfir
hvernig tekið verði á þeim málum.
Þegar Dagur og Jón voru spurð-
ir hvort til greina kæmi að hækka
útsvar eða gjaldskrár til að taka á
rekstri borgarinnar, sló þögn á þá tvo
um stund þar til Dagur svaraði: „Við
stefnum ekki að því að hækka útsvar.
Það er ekki hluti af málefnasamn-
ingnum og við viljum stilla gjald-
skrám í hóf. Það kom í ljós eftir kosn-
ingar að hjá Orkuveitu Reykjavíkur er
uppsöfnuð gjaldskrárhækkunarþörf.
Það er ekkert gamanmál að leggja
álögur á borgarbúa en þetta þarf að
nálgast af raunsæi.“ Hann segir nýja
meirihlutann þurfa að ná heildar-
mynd af rekstri borgarinnar áður en
stórar ákvarðanir verði teknar.
Líkur hafa verið leiddar að því
að kostnaður vegna þeirra aðgerða
sem lagðar eru fram í samstarfsyfir-
lýsingu meirihlutans geti numið átta
milljörðum króna. Dagur telur þá
tölu ekki vera nálægt lagi. Hann hef-
ur sagt að borgin þurfi hugsanlega
að taka lán til að standa við einhver
þeirra mála sem lögð eru fram í sam-
starfssamningnum. „Þessi meirihluti
er mjög varfærinn í fjármálum. Við
viljum byrja á okkur sjálfum, fækka
nefndum, minnka kostnað þar og
endurskipuleggja stjórnsýsluna. En
við tökum þessi skref af varfærni og
notum næsta hálfa árið til að gera
áætlun í fjármálum, ekki aðeins til
næsta árs, heldur fimm til tíu ára,“
segir Dagur.
Ný stjórn Orkuveitu Reykjavíkur þarf að kljást við 220 milljarða króna skuldahala. Dagur B. Eggertsson,
formaður borgarráðs, segir blasa við að skera verði niður í rekstri Orkuveitunnar. Jón Gnarr borgarstjóri
treystir Haraldi Flosa Tryggvasyni, nýjum stjórnarformanni, fyrir verkinu. Hann lýsir umræðu um óheppi-
leg tengsl Haraldar við Lýsingu við leit að Nelson Mandela.
Haraldur Flosi
Tryggvason,
stjórnarformaður
Lauk embættisprófi frá lagadeild Há-
skóla Íslands árið 1999. Lauk meistara-
gráðu í Evrópu- og samanburðarlög-
fræði árið 2003 og MBA-námi frá Oxford
Brooks-háskóla ári síðar.
Haraldur er núverandi framkvæmdastjóri lögfræði- og eign-
asviðs eignaleigufélagsins Lýsingar. Hann var framkvæmda-
stjóri félagsins Framtíðarsýnar sem gaf út Viðskiptablaðið þar
til það fór í þrot árið 2008. Þá stýrði Haraldur Johannessen, nú-
verandi ritstjóri Morgunblaðsins, Viðskiptablaðinu. Haraldur
telst vera Evrópusinni og er skráður í samtökin Sammála.
Helga Jónsdóttir,
varaformaður
Er fráfarandi bæjarstjóri Fjarðabyggð-
ar. Er ekki ókunnug rekstri íslenskra
orkufyrirtækja, því hún gegndi stjórn-
arformennsku hjá Landsvirkjun frá ár-
inu 1995 til ársins 1997, fyrst kvenna.
Auk þess er Helga fyrrverandi borgar-
ritari. Þar að auki hefur hún verið skrif-
stofustjóri í forsætisráðuneytinu og aðstoðarmaður Steingríms
Hermannssonar forsætisráðherra. Helga hefur einnig setið
sem fulltrúi Íslands í stjórn Alþjóðabankans í Washington.
Helga er lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Auk þess nam
hún þjóðhagfræði við IMF Institute í Washington og hagsögu
við London School of Economics.
Aðalsteinn Leifsson,
stjórnarmaður
Lektor við viðskiptadeild Háskólans í
Reykjavík. Er með meistarapróf í Evr-
ópufræðum frá London School of
Economics and Political Science og
MBA-próf frá Heriot Watt University –
Edinburgh Business School. Þar áður
lauk hann BA-gráðu í stjórnmála- og
fjölmiðlafræði frá Háskóla Íslands.
Aðalsteinn er vel kunnugur alþjóðlegri samningagerð.
Hann starfaði á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins,
hjá fjármálaskrifstofu fríverslunarsamtakanna EFTA og sendi-
nefnd framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gagnvart Ís-
landi og Noregi.
Þau setjast í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur
RóBERT HlyNuR BalDuRssON
blaðamaður skrifar: rhb@dv.is
Þetta er raun-veruleikinn sem
unnið er eftir.
Fyrsti fundur borgarráðs
Nýkjörnir fulltrúar borgar-
ráðs héldu sinn fyrsta fund
í fyrradag. Þar voru fyrstu
verk nýs meirihluta rædd.
Þar á meðal var ákveðið að
gefa börnum frítt í sund í
sundlaugum borgarinnar
frá og með 19. júní og út
sumarið.
NELSON MANDELA
EKKI Í ORKUVEITUNA