Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Page 24
Villa Jóhönnu
n Jóhönnu Sigurðardóttur varð á í
messunni þegar hún sagði í þjóðhá-
tíðarræðu að Jón Sigurðsson hefði
fæðst á Hrafns-
eyri við Dýra-
fjörð. Þeir sem
betur þekkja til
vita að Hrafnseyri
er við Arnarfjörð.
Fjölmiðlar voru
vitanlega snöggir
til og greindu há-
tíðlega frá þessari
villu Jóhönnu.
Einhverjir gerðu góðlátlegt grín að
forsætisráðherranum á meðan hægri-
mennirnir á AMX sáu sér leik á borði
og lýstu því yfir að villan bæri vott um
alvarlegan menntunarskort Jóhönnu
og sögðu að óhæfni hennar hefði
lengi blasað við. Öll skólabörn vissu
hvar Jón hefði fæðst.
Á eftir larsson kem-
ur arnaldur
n Stieg Larsson-æði gengur nú yfir
Bandaríkin. Afleiðingarnar gætu
snert íslenska höfunda. Larsson, sem
lést árið 2004, skilur eftir sig skarð
á markaðnum.
Samkvæmt um-
fjöllun New York
Times í vikunni
eru bandarísk-
ir útgefendur á
höttunum eftir
fleiri skandinav-
ískum glæpa-
sagnahöfundum
til að fylgja eftir þríleik Larssons um
Lisbet Salander og félaga. Arnaldur
Indriðason er nefndur sem líklegur
kandídat af íslenskum höfundum,
en bók hans, Harðskafi, hefur verið
markaðssett sérstaklega fyrir áhang-
endur Larssons.
sérValin Yrsa
n Yrsa Sigurðardóttir hefur nú þeg-
ar notið góðs af Larsson-æðinu í
Bandaríkjunum.
Sögur henn-
ar voru á meðal
rúmlega tut-
tugu norrænna
glæpasagna sem
starfsfólk Powell’s
Books í borginni
Portland í Oregon
ákvað að stilla
sérstaklega fram. Ástæðan var enn og
aftur taumlaus áhugi viðskiptavina á
Stieg Larsson.
Vandar sig betur
n Ólafur Ragnar Grímsson sæmdi tólf
Íslendinga heiðursmerki hinnar ís-
lensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn
á Bessastöðum á þjóðhátíðardaginn.
Forsetinn hefur
verið harðlega
gagnrýndur fyrir
að næla fálkaorð-
unni í marga af
helstu gerendum
íslenska efna-
hagshrunsins,
þeirra á meðal
hinn eftirlýsta
Sigurð Einarsson. Að þessu sinni
voru viðskiptajöfrar þó hvergi nærri,
því meðal þeirra sem fengu fálkaorð-
una í ár voru söngkona, húsmóðir,
leikstjóri, skipstjóri og fyrrverandi
formaður kvenfélags. Ólafur Ragnar
virðist staðráðinn í því að vanda betur
valið á fálkaorðuhöfum.
Jón Gnarr líkti flokknum sínum við Múmínpabba þegar hann tók sæti borgarstjóra á þriðjudaginn. Ástæðan var að ekki allir skildu
Múmínpabba eða Besta flokkinn, en
allir vissu að hann væri góður. „Allir
vita að hann er ekki vondur þótt hann
sé stundum svolítið ringlaður. Hann
passar líka alltaf að hafa gott fólk í
kringum sig,“ útskýrði hann.
Stjórnmálamenn hafa ekki ver-ið gjarnir á að vitna í teikni-myndir og ævintýri. Helst hafa þeir sagt að keisarinn sé
ekki í fötum, til að hæðast að öðrum
stjórnmálamönnum. Líkingin við
Múmínpabba er athyglisverð. Hann
var ævintýragjarn en festi svo ráð sitt
og settist að í Múmíndalnum. Eitt af
mottóum Múmínpabba er að hann
geti lagað allt, svo lengi sem hann gefi
sér tíma til þess. Góður er hann vissu-
lega, en það er hins vegar óljóst hvort
hann getur bjargað okkur frá Morran-
um, ógnvaldi Múmíndals. Allt sem
Morrinn snertir frýs. Hann er eins og
kreppan.
Ólíkt Jóni Gnarr er Múmín-pabbi ekki með einkabíl-stjóra. Hann er hófsamur og nægjusamur og þarf
ekki milljón á mánuði. Ekki seilist
hann heldur eftir völdum. Helst
vill hann bara vera fjölskyldufaðir.
Hann hefur engin ítök í Orkuveit-
unni og er í raun ekki í aðstöðu til
að valda neinum skaða. Múmín-
pabbi setur Snorkstelpuna ekki yfir
leikskólaráð og Hemúlinn ekki yfir
skipulagsráð.
Til er saga sem lýsir í smáat-riðum því sem gerist í kjölfar byltingar, líkt og þeirrar sem varð í Reykjavík. Hún heitir
Animal Farm eftir George Orwell, eða
Dýrabær á íslensku. Sagan segir frá
dýrum á bóndabæ sem tóku völdin
af mönnunum. Svínin sem stjórnuðu
byltingunni voru jöfn öllum hinum
dýrunum. Öll voru þau vinir. Með
tímanum byrjuðu svínin hins vegar
að ganga upprétt á tveimur fótum og
klæða sig í mannaföt. Á endanum
breyttust svínin í menn og ákváðu að
sameinast mönnunum um að arð-
ræna hin dýrin. Alveg eins og borgar-
ar Borgarahreyfingarinnar breyttust í
stjórnmálamenn á þremur mánuð-
um og byrjuðu að svíkja loforð og
plotta hver gegn öðrum.
MÚMÍNGNARR
Sending frá Jóni Gnarr
Frumregla Besta flokks Jóns Gnarr virð-ist vera að gera lífið skemmtilegra. Því kemur varla á óvart að eitt fyrsta verk-efni flokksins hafi verið að gefa ung-
lingum undir 18 ára frítt í sund. Á sama tíma
er borgin að sligast undan skuldum og erfiðum
efnahagsaðstæðum sem ekki sér fyrir endann
á.
Útgjöld sem leiða ekki til útreiknanlegs
ágóða, líkt og fríar sundferðir fyrir börn, eru
skipulega vanmetin í skipulagningu sameig-
inlegra útgjalda. Sundferðir valda vellíðan,
tryggja ákveðið hreinlæti, bæta heilsu og auka
myndun D-vítamíns í líkamanum. Þetta hefur
góð áhrif á huga og líkama barna. Skortur á sól-
arljósi getur leitt til þunglyndis, sem aftur get-
ur haft neikvæð margfeldisáhrif á líf og framtíð
einstaklinga.
Ókeypis sundferðir auka líkurnar á að efna-
lítil börn öðlist allt þetta, sem þau eiga svo erf-
itt með að öðlast með öðrum hætti. Börn sem
geta ekki borgað fyrir sundferðir eru þau börn
sem helst þurfa á áhrifum sunds að halda. Ein
ókeypis sundferð getur opnað huga hins leit-
andi og ómótaða barns fyrir heilnæmri íþrótt.
Þessi aðgerð gæti til lengri tíma bætt heilsu og
námsárangur, lækkað glæpatíðni, aukið ham-
ingju, minnkað fíkniefnaneyslu og margt fleira
óútreiknanlegt.
Orsakasamhengið er flókið og margfeldis-
áhrifin magnast með tímanum, sérstaklega þar
sem um börn er að ræða. Sama gildir til dæmis
um leikskólamáltíðir. Spurningin er: Hverju er
fórnað í staðinn? Jón Gnarr eyðir 12 til 14 millj-
ónum í sundferðir barna. Ólafur F. Magnússon
og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson eyddu tæplega
600 milljónum króna í að koma í veg fyrir bygg-
ingu hótels, sem hefði dregið úr áhrifum nítj-
ándu aldarinnar á götumynd Laugavegsins.
Íhaldssemi var takmark Vilhjálms og Ólafs.
Samfylkingin og Vinstri-grænir segjast stefna
að jöfnuði. Besti flokkurinn setur markið á
skemmtun eða gleði. Skemmtun veldur ham-
ingju, í það minnsta til skamms tíma. Hamingj-
an er yfirleitt talin vera tilgangur lífsins. Þess
vegna er alls ekki galin stjórnspeki að stefna
að skemmtun eða gleði. Hins vegar stefna all-
ir flokkar að hamingjunni. Stjórnmálin snúast
ekki síst um hver eigi að fá hamingjuna.
Stóra spurningin í kosningabaráttunni var
hvort hækka ætti útsvar, hækka gjaldskrár eða
skera niður í útgjöldum borgarinnar. Allir virt-
ust sammála um að fjárhagsstaða borgarinnar
væri of slæm. Svar Jóns og Dags B. Eggertssonar
er þvert á móti að eyða meira, meðal annars í at-
vinnuuppbyggingu. „Þetta verður að einhverju
leyti tilflutningur á framtíðartekjum. Þannig
að við útilokum ekki að taka lán fyrir hluta af
þessum framkvæmdum,“ útskýrði Dagur.
Lán eru útreiknanleg. Þau þarf að borga
síðar að viðbættum vöxtum. Lán og vextir eru
stærsta vandamál íslenska þjóðarbúsins.
Í góðærinu sem olli hruninu var uppi skýr
krafa um jákvæðni og bjartsýni á framtíðina,
líkt og nú. Aukin skuldasöfnun var yfirleitt álit-
in góð vegna framlegðarinnar af lántökunum,
en framlegðin reyndist misskilningur. Núna á
líka að taka lán til að reyna að stækka kökuna.
Svar Jóns og Dags virðist komið. Borgarbúar
nútímans fá hamingjuna. Borgarbúar framtíð-
arinnar borga og við erum bjartsýn á að þeim
gangi betur en okkur.
JóN TRAusTi ReyNissoN RiTsTJóRi skRifAR. Svar Jóns og Dags virðist komið. Borgarbúar nútímans fá hamingjuna.
24 föstudagur 18. júní 2010 umræða
sandkorn
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
framkvæmdaStjóri:
Bogi örn emilsson
ritStjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
fréttaStjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
dv á netinu: Dv.IS
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: Árvakur.
Dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
leiðari
svarthöfði
„Áhyggjur eru gagnslausar.“
n Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, um það
að fólk hafi áhyggjur af óvissunni í kringum
Besta flokkinn og störf hans. Hann segir engan
vanda hafa verið leystan með áhyggjum.
Kærleikurinn sé svarið. - DV
„Ég er búinn að mynda
mikinn innri metnað fyrir
strætó í gegnum tíðina.“
n Dr. Gunni sem var kosinn stjórnarformaður
Strætós BS. Nú er óvíst hvort hann megi gegna
starfinu en hann segist þekkja stætó út og inn.
Sérstaklega þar sem hann tók ekki bílpróf fyrr
en hann var 38 ára. - DV
„Ísland, ef það gengur ekki
þá Brasilía.“
n Einar Örn Benediktsson, borgarfulltrúi
Besta flokksins, aðspurður hvaða lið muni sigra
á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku sem nú
stendur yfir. - DV
„Fólk á ekki að þurfa að gefa
upp kynhneigð sína til þess
að gefa blóð.“
n Einar Þór Jónsson, lýðheilsufræðingur og
framkvæmdastjóri HIV-Ísland, um löggjöfina
sem segir að samkynhneigðir megi ekki gefa
blóð í Blóðbankanum. - DV
„Fyrir stóru bankana er
þetta ákveðið áfall en langt
innan þolmarka þeirra.“
n Gylfi Magnússon, efnahags- og
viðskiptaráðherra, um niðurstöðu Hæstaréttar
um gengistryggð lán. Hann segir áfallið mest
fyrir bílalánafyrirtækin. - Vísir
bókstaflega
Besta boltabullið
Maður einsog ég; sem er svo bjartsýnn
og jákvæður að hann þarf yfirleitt að
leita lengi ef í hugann á að koma eitt-
hvað neikvætt, neyðist annað veifið til
þess að upplifa leiðindi, en þá samt
sem áður á skemmtilegum nótum. Og
núna er sko engin gúrkutíð í þeim efn-
um, því nú má finna svo mikið af upp-
byggilegum leiðindum í tilgerðarlegu
bulli um fótbolta, að það hálfa væri
helmingi meira en nóg. Snyrtilegir
menn eru kallaðir sparkspekingar og
þeir láta frá sér fara setningar einsog:
-Honum langar ... uuuuu ... klárlega ...
héddna ... að skora héddna og ef hann
skorar fleirri börk þá héddna vinnur
liðið hans ... héddna í hálleik. Héddna
klárlega.
Menn lýsa leik með því að geta
þess hvað sá heitir sem er með bolt-
ann, í það og það skiptið, og hvað sá
heitir sem við boltanum tekur. Svo
er tíundaður kunningsskapur leik-
manna og þess getið í hvaða félagi
þeir iðka íþrótt sína. Hið uppskrúfaða
bull er svo brjálað að maður hallast
jafnvel að því að framsóknarmenn í
eldhúsdagsumræðum jaðri við það
að státa af meðalgreind. Jafnvel Færi-
bandið hans Bubba verður áheyrilegt.
Og það er engu líkara en varnarræða
Gunnars í Krossinum, þegar hann
reyndi að sannfæra heiminn um stór-
kostleg áhrif stólpípunnar hennar
Jónínu Ben, verði gáfuleg.
Og öllu þessu bulli er sturtað yfir
okkur í nafni þeirrar göfugu íþróttar
sem fótboltinn er. Já, lífið er dásam-
legt. Og við eigum svo marga spek-
inga.
Ekki kann ég nein fullkomin ráð til
að bæta hér um betur. Gæti þó kom-
ið með ýmsar ábendingar til „spark-
spekinga“ um áherslur í málfari og
orðavali. Þ.e.a.s. ef mönnum þykir
einhver akkur í því að draga úr þeirri
guðdómlegu heimsku sem í boði er.
Mér dettur t.d. í hug að brúka mætti
hið ágæta orð „böllur“ annað slag-
ið. Hér er á ferðinni orð sem merk-
ir knöttur eða bolti. Notkun þessa
orðs gæti jafnvel farið vel í setning-
um einsog: -Hann rekur böllinn milli
fóta varnarmanni og Maradona fylg-
ist með.
Nei, kannski er bara betra að leyfa
orðafátæktinni að njóta sín og gleðjast
yfir því að heyra „héddna“ sem ann-
að hvert orð í lýsingum á því sem aug-
ljóst er. Allt þetta yndislega fólk sem
deilir áhuga á hinni göfugu íþrótt gef-
ur lífinu lit með tafsi, tuði, rugli, bulli,
orðhengilshætti, þágufallssýki og yfir-
leitt allri þeirri dásemd sem gerir þjóð
okkar ríka.
Landsmenn hafa heimsku kynnst
því HM er á sveimi
og hér í boltabulli finnst
besta þjóð í heimi.
kRIStJán hREInSSon
skáld skrifar
„Hann rekur böll-
inn milli fóta varn-
armanni og Mara-
dona fylgist með.“
skáldið skrifar