Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Qupperneq 48
48 föstudagur 18. júní 2010 útlit
-looklet.com og couturious.com-
Ótrúlega skemmtilegar síður sem
bjóða upp á ótal möguleika við að raða
saman ýmsum dressum. Þú getur valið
mismunandi módel og svo valið föt á
þau. Hægt er að velja alls konar falleg
nærföt, kjóla, sokka, skó og aukahluti
sem maður svo raðar saman til að ná
hinu fullkomna útliti. Maður getur
gleymt sér tímunum saman inni á
þessum skemmtilegu síðum.
Nakti apinn var lengi vel ein vinsælasta búð landsins og setti sterkan svip á
miðbæinn. Þess vegna urðu
margir vonsviknir þegar búð-
in hætti starfsemi sinni fyrir
um það bil tveimur mánuð-
um. Það fólk getur tekið gleði
sína á ný því eigandi Nakta
apans, Sara María Júlíus-
dóttir, hefur opnað nýja búð
að Laugavegi 12. Búðin er í
anda Nakta apans en þó með
breyttum áherslum. „Full-
orðni apinn“ eins og
Sara orðar það.
Breyttar forsendur
Sara segist hafa þurft
smátíma til að hugsa
um hvað hún vildi
gera. Nú komi hún til
baka með breyttum
áherslum. Hún á búð-
ina ásamt Lindu og
Össuri sem eiga einn-
ig Ellefuna og húð-
flúrstofuna Reykjavík
Ink. Þau sjá um rekst-
urinn og Sara fær að
njóta sín í hönnuninni.
„Þetta er náttúrulega
algjör draumur. Nú hef
ég tíma til að gera það sem ég hef gaman af og
geri best. Það var svo mikið að gera í Nakta ap-
anum og ég sá um allt og var alltaf að elta á mér
skottið. Ég vildi vera að prenta og gera það sem
ég elska. Það er mjög mikil vinna og krefjandi
sem er mjög gaman. Börnin mín og fjölskylda
hafa liðið mjög mikið fyrir það hvað það var mik-
ið að gera hjá mér. Ég eignaðist síðan kærasta
sem opnaði augu mín fyrir því að lífið væri ekki
bara blóð, sviti og tár. Þannig að ég ákvað að loka
en var búin að gefa það út að ég myndi vilja opna
aftur ef það væri með góðu fólki. Ég fékk því tvo
góða mánuði til að finna út hvað ég vildi gera,“
segir Sara sem er ánægð með að vera komin aft-
ur í bransann.
Skínandi demantar
Sara segir þó breyttar áherslur vera í búðinni
núna. Hún sé til dæmis komin með barna-
fatalínu og rúmfatalínu. „Barnafatalínan heitir
„Shiny diamonds“ eða skínandi demantar eftir
börnunum mínum. Þegar ég var búin að tann-
bursta þau á kvöldin þá sagði ég alltaf við þau:
„Skínandi demantar.“ Ég mátti ekki sleppa því að
segja þetta. Ég gef alltaf ætlað að gera barnafata-
línu og vildi tengja hana við börnin mín,“ seg-
ir Sara og bætir við að þau séu bara rétt að byrja
að hanna línuna. „Þau eru náttúrulega spes og
sérstök og það er bara allt í lagi því þetta er ekki
fjöldaframleiðsla,“ segir hún.
Fötin eru skemmtileg í skærum litum og með
flottum smáatriðum. Óhætt er að fullyrða að erf-
itt sé að finna glaðlegri barnafatalínu.
Rúmfatalína
Önnur nýjung í hönnun Söru er rúmfatalína. „Ég
hef alltaf haft áhuga á að gera svona heimilislínu.
Ég vann í Má Mí Mó þar sem ég var að gera mik-
ið af púðum, koddum og dóti en það var aldrei
pláss fyrir það í Nakta apanum. Ég festist dálítið í
götufatnaði, bolum og hettupeysum. Það var svo
rosalega vinsælt að ég átti erfitt með að brjótast út
úr því. Ég eiginlega varð að loka í smá tíma til að
losna undan því þannig séð.“ Hún segist núna ætla
að gera það sem henni finnst mest spennandi. „Nú
ætla ég bara að reyna að vera með blöndu af öllu,
sængurverum, koddaverum, silkináttsloppum og
síðan ætla ég að gera inniskó líka.“ Rúmfötin sem
Sara gerir eru með alls konar áprentuðu mynstri
og hægt er að sérpanta hjá henni eftir smekk hvers
og eins.
Íslensk hönnun
Nakti apinn var þekktur fyrir að vera vettvang-
ur fyrir unga hönnuði til að selja hönnun sína.
Sara segir enga breytingu verða á því í Forynju.
„Mér finnst gaman að hafa aðra hönnun með
en vil helst ekki að hún sé ekki seld annars stað-
ar.“ Hönnuðir sem selja í búðinni núna eru meðal
annars Thelma design, Go with Jan, Robo knit, og
Áróra. „Síðan detta örugglega fleiri hönnuðir inn á
næstunni.“ Sara er aðalhönnuður Forynju en nýt-
ur dyggrar aðstoðar starfsmanna sinna. „Við hönn-
um mikið saman, við finnum út hvað okkur finnst
flott og vinnum þetta í sameiningu.“
Opnunarpartí
Formlegt opnunarpartí verður í búðinni á laug-
ardaginn til að fagna opnun búðarinnar. „Það
verður tónlist, húllumhæ og léttar veitingar,“ seg-
ir Sara. Partíið byrjar upp úr þrjú og stendur fram
eftir degi.
Forynja opnaði á Laugaveginum í vikunni. Búðin er á besta stað í bænum, á Lauga-
vegi 12. Forynja býður upp á dömu- og herraföt, barnaföt og rúmfatalínu og aukahluti
frá ýmsum hönnuðum. Aðalhönnuður Forynju og einn af eigendunum er Sara María
Júlíusdóttir sem rak Nakta apann um nokkurra ára skeið.
Forynja opnuð á
Laugaveginum Ökklasokkar við hælaskó
umsjón viktoría hermannsdóttir
Um þessar
mundir sér
maður oft
aðal tísku-
dömur
bæjarins
röltandi um
bæinn í
ökklasokkum
við hælaskó.
Þetta er
skemmtileg og
þægileg tíska.
Sérstaklega ef
maður er að
ganga hælaskó
til. Svo er þetta
líka einstak-
lega flott.
Sokkarnir geta
verið í öllum
litum og flott
er að hafa þá
munstraða.
Blúndur koma
líka vel út. Þetta
er líka skemmtilegt því það er hægt
að gefa gömlum skóm nýtt líf með
skemmtilegu pari af sokkum. Því
fylgir líka töluvert minni kostnaður
heldur en að kaupa sér nýtt par af
skóm.
dúkkulísuleikir
fyrir fullorðna!
Skór á
spottprís
Um helgina er tilboð á skóm í
Spúútnik. Öll stígvél eru á 5.000
krónur og allir hælaskór á 2.000
krónur. Um að gera að kíkja á gleðina
og fjörið í Spúútnik og næla sér í
ódýra og flotta skó í leiðinni.
M
yn
d
iR
h
ö
Rð
u
R
Sv
ei
n
SS
O
n