Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Side 50
50 föstudagur 18. júní 2010 helgarblað
Ingó og Dóra
Í leit að kynþokkafyllsta knattspyrnumanni og kynþokka-
fyllstu knattspyrnukonu landsins voru karlkyns álitsgjafar
DV nokkuð sammála í vali sínu á nokkrum sykursætum
boltastelpum. Kvenkyns álitsgjafarnir völdu fjöldann allan
af flottum köppum en úrslitin eru kunn. Selfyssingurinn og
popparinn Ingó þykir sveittur sjarmör sem skarar fram úr
þegar kemur að kynþokka og það er hin dísæta Dóra María
Lárusdóttir sem þykir fegurst íslenskra fótboltakvenna.
kynþokkafyllst á vellinum
Ingólfur Þórarinsson - Selfoss
„Kann að syngja og það er stór plús.“
„Selfyssingur og ofboðslega mikill sjarmör. Frábær söngvari og trúbador. Mjög
góð fyrirmynd fyrir börn og unglinga. Það eru ekki allir tónlistarmenn sem
sukka en sú ímynd hefur fylgt sveitaballabransanum um langt skeið.“
„Gæinn er meðetta!“
„Mest sexí þegar hann er í sveittri baráttu á fótboltavellinum. Pottþétt villidýr á
skeiðvellinum.“
„Algjör sjarmör!“
Rúrik Gíslason - OB Óðinsvé
„Flottasti fótboltastrákurinn okkar. Skemmtilegur og heillandi með fallegt
bros.“
„Hávaxinn, hugsar vel um útlitið, vel klæddur, mikill herramaður og rosalega
myndarlegur.“
„Flottur!“
„Kjálkabeinin! Sjarminn lekur af honum. Hann er bara algjör ladykiller.“
Gylfi Þór Sigurðsson - Reading
„Mjög myndarlegur, skemmir ekki fyrir að hann er hávaxinn og væntanlega í
toppformi og svo er velgengni alltaf heillandi. Þrátt fyrir lítinn áhuga á fótbolta
myndi ég sitja heilan leik til þess að horfa á hann.“
„Dularfullur og feiminn sem gerir hann að ótrúlega spennandi og kynþokka-
fullum manni.“
Hermann Hreiðarsson - Portsmouth
„Svo mikið krútt að hann verður að vera með. Sætar tennur, sætt bros og svo er
þetta flón alltaf að fíflast.“
„Það er bara eitthvað við hann. Svo hot!“
Aron Gunnarsson - Coventry
„Hinn fullkomni eginmaður. Fallegur að innan sem utan, duglegur, góður og
geislar af öryggi.“
„Alíslenskur karlmaður, nældi sér líka í svaka skutlu þarna í Bretlandi. Þarf að
segja meira?“
Garðar Gunnlaugsson - Linz
„Úff, hann er maður Ásdísar Ránar. Þarf að segja meira?“
Helgi Sigurðsson
„Sjóðheitur. Ég sá hann í Egilshöll fyrir skemmstu að skottast um í fótbolta og
ég slefaði pínulítið. Kominn með grátt í vanga en ljúfur eigi að síður.“
Matthías Vilhjálmsson - FH
„Einstaklega myndarlegur og virkar eitthvað svo heilbrigður.“
Álitsgjafar:
EMbLa GrétarsDóttIr knattspyrnukona
KrIstrún Ösp barKarDóttIr fyrirsæta
InGunn ELísabEt HrEInsDóttIr dansari
aLExanDra HELGa ívarsDóttIr ungfrú Ísland 2008
raGnHEIður FrIðjónsDóttIr blaðamaður
Dóra María LárusDóttIr knattspyrnukona
InGIbjÖrG EGILsDóttIr fyrirsæta
soFFía svEInsDóttIr veðurfréttakona
FannEy InGvarsDóttIr ungfrú Ísland 2010
KrIstín LEa fyrirsæta
LILja InGIbjarGarDóttIr fyrirsæta
kARlARnIR