Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Síða 13
föstudagur 2. júlí 2010 fréttir 13
ÍSLENSK GÆÐAFRAMLEIÐSLA Í 35 ÁR
NORM-X HF | Auðbrekka 6 | 200 Kópavogur | Sími: 565 8899 | Netfang: normx@normx.is
n Okkar verð betra verð
n Yfir 10.000 ánægðir notendur á Íslandi
n Við bjóðum einnig allar lagnir,
nuddkerfi, lok og ljósabúnað
Ellefu íslenskir blaðamenn frá helstu
fjölmiðlum landsins og bloggarar
dvöldu í fjóra daga í Brussel í lok maí
í boði stækkunarstjórnar Evrópu-
sambandsins. Sá sem hér skrifar fór
fyrir hönd DV.
Blaðamennirnir voru skilgreindir
sem hagsmunaaðilar (e. stakehold-
ers) sem boðið var til þess að kynna
sér starfsemi sambandsins. ESB
borgaði fyrir flug, gistingu og í nokkr-
um tilfellum fyrir mat. Blaðamenn-
irnir heimsóttu byggingar fram-
kvæmdastjórnar, ráðherraráðs og
Evrópuþings ESB. Auk þess var þeim
boðið á fund í sendiráði Íslands í
Brussel þar sem farið var yfir feril að-
ildarumsóknarinnar.
ESB hefur upp á síðkastið boðið
hópum íslenskra hagsmunaaðila til
Brussel. Þeir embættismenn ESB sem
DV ræddi við segja að hinar boðs-
ferðirnar hafi allar verið með mjög
áþekku sniði og blaðamannaferðin.
Fjögurra stjörnu hótel
ESB sendi boð til ritstjórna á fjöl-
miðlum sem síðan völdu blaða-
menn til að fara í ferðina. Flogið var
með Icelandair til Lundúna og það-
an með Brussels Airways til höfuð-
borgar Belgíu.
Við komuna á New Charle-
magne- hótelið, sem er steinsnar frá
höfuðstöðvum ESB, beið „welcome
pack“ á hótelinu, en það var mappa
með bæklingum um stjórnkerfi ESB.
Í möppunni var líka að finna kúlu-
penna og USB-minniskubb, hvort
tveggja merkt stækkunarstjórninni.
Hótelið var fjögurra stjörnu og kost-
ar hver nótt 325 evrur, sem eru um
50 þúsund íslenskar krónur.
Á slóðum Barrosos
Á miðvikudeginum var Berlay-
mont- byggingin heimsótt, en þar
eru höfuðstöðvar framkvæmda-
stjórnar ESB. Þar situr Jose Manuel
Barroso forseti hennar á þrettándu
hæð. Hann hittum við ekki.
Í fundarherbergi var rætt við
embættismenn frá ólíkum sviðum
ESB og blaðamennirnir meðal ann-
ars fræddir um stofnanakerfi sam-
bandsins. Danskur diplómati mætti
á svæðið og sagði okkur frá löngum
starfsferli sínum í utanríkisþjónustu
Danmerkur, framtíð ESB og hvernig
lítil ríki geti haft áhrif í Brussel.
Menn frá fiskveiðistjórninni
ræddu um fiskveiðistefnu ESB. Þeir
sögðu að Íslendingar þyrftu ekki að
hafa áhyggjur af henni. Síðar þenn-
an dag var blaðamönnum boðið á
fund í skrifstofum stækkunarstjórn-
ar ESB. Þar hittum við starfshópinn
sem vinnur að aðildarumsókn Ís-
lands.
Íslenska sendiráðið heimsótt
Á fimmtudeginum var Evrópuþing-
ið heimsótt. Þar ræddi írski þing-
maðurinn Pat Gallagher um fram-
farir sem orðið hafa á Írlandi eftir
inngöngu í ESB og svaraði spurn-
ingum íslensku blaðamannanna.
Sama dag var hópnum boðið á fund
í sendiráði Íslands, sem er í næsta
nágrenni við helstu stofnanir ESB.
Þar ræddi Stefán Haukur Jóhannes-
son, sendiherra og aðalsamninga-
maður Íslands, um tæknileg atriði
umsóknarferlisins. Flogið var heim
snemma morguninn eftir.
Evrópskir blaðamenn komu
hingað
Embættismaður í Brussel, sem DV
ræddi við í gær, sagði að blaða-
mannaferðin hefði verið skipulögð
til að dýpka skilning íslenskra fjöl-
miðlamanna á sambandinu. Hann
nefndi að í síðustu viku hefðu 14
evrópskir blaðamenn komið á veg-
um ESB til Íslands, þar sem þeir
hittu efnahags- og viðskiptaráð-
herra, Jón Gnarr borgarstjóra og fé-
lagasamtök sem ýmist eru með eða
á móti aðild Íslands að ESB. Þeir
hefðu einnig rætt við bændur og
fólk í sjávarútvegi.
Evrópusambandið bauð ellefu íslenskum blaðamönnum til Brussel í lok maí. Tilgangurinn var að dýpka
skilning þeirra á ESB, segir embættismaður í Brussel. Áður hafa fulltrúar bænda, sveitarstjórnarmanna
og atvinnurekenda farið í sams konar ferðir til Brussel. Þá komu evrópskir blaðamenn hingað til lands á
dögunum til að átta sig á áhrifum inngöngu Íslands í ESB.
Íslenskir blaðamenn
Í brussel Í boði esb
hElgi hraFn guðmundsson
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Evrópuþingið Íslenskirblaðamenníleið-
sögnumEvrópuþingiðíBrusselílokmaí.