Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 25
„Mér finnst það allt í lagi.“
Kolbrún ÓsK ÓmarsdÓttir
fraMreiðsluMaður
„Það er algjör óþarfi að banna þetta.“
Fríður ÓsK KjartansdÓttir
neMi
„Ég er sammála því.“
Kristín jÓnsdÓttir
verslunarkona
„Ég skil ekki af hverju þeir voru að
banna þetta.“
Óli Hjörtur ÓlaFsson
neMi við kvikMyndafraMleiðslu
„Það er fáranlegt, út í hött. fólk ætti að
fá að gera það sem það vill.“
ívar örn rÓbertsson
athafnaMaður
Hvað finnst þér um bann við nektardansi?
alda lÓa leiFsdÓttir
er einn skipuleggjenda söluátaksins
Gefðu boltann sem fram fer þessa
dagana að frumkvæði samtakanna
sóley og félagar. seldir eru forláta
tauboltar og fer ágóðinn í fjármögnun
byggingar húss fyrir munaðarlaus
börn í afríkuríkinu tógó.
Salan jókSt með
poSunum
„Mikið eigum við vont,“ hugsaði ég
þegar ég las fréttir þess efnis að Ól-
afur Örn Nielsen, sem er formaður
ungra sjálfstæðismanna, hefði flutt
þrumandi ræðu þess efnis að hon-
um hefði verið kennt það frá blautu
barnsbeini að níðast á kommúnist-
um. Já, mikið eigum við vont með-
an unga fólkið í Sjálfstæðisflokkn-
um er læst inni í hugarfari kalda
stríðsins. Ég hélt nefnilega í fávisku
minni að sá hroðatími væri lið-
inn og enginn saknaði hans nema
kannski Björn Bjarnason.
terminator Xd
Ólafur þessi Nielsen er svolítið
sérstakur að því leyti að hann er
fullkomið afsprengi Sjálfstæðis-
flokksins. Hann er súper-sjálfstæð-
ismaðurinn. Lokaútgáfan. Hann
er uppfærða útgáfan af Termina-
tor. Terminator XD. Fyrri útgáfur af
hálfmennunum rústuðu íslenska
samfélaginu með þvílíkum bravúr
að mér er sagt af virtum hagfræði-
kennurum að ekki sé ólíklegt að
sérkafli verði tileinkaður Íslandi
í öllum alvöru hagfræðibókum
framtíðarinnar. Þökk sé Sjálfstæðis-
flokknum og heimsslitastefnu hans
í efnahagsmálum. Termínatorarnir
voru heilaþvegnir jakkalakkar og
ilmandi af Scorpion frá Hugo Boss.
Það fór fyrir þeim eins og yfirfullu
kakkalakkabúi. Þegar þeir voru
búnir að éta upp allt í kringum sig,
þá átu þeir búið, drottninguna og
enduðu á því að éta hver annan.
scum - scum - scum!
En Ólafur Örn Nielsen var fullgerð-
ur þegar heimsslitin höfðu dunið
yfir. Terminator XD. Forritaður til
þess að græða peninga fyrir hlut-
hafa Sjálfstæðisflokksins og til þess
að „níðast á kommúnistum“. Ekki
veit ég hvar Ólafur Nielsen ætlar að
finna kommúnista. Ég þekki bara
einn. Sá heitir Vésteinn og er með
mér í Vantrú. Toppmaður. Spurn-
ing hvort Ólafur Nielsen og vin-
ir hans mæti smjörgreiddir í lakk-
skóm fyrir utan heimili Vésteins og
þylji eins og í leiðslu: „Scum, scum,
scum, go back where you came
from.“ - Hver veit?
Kjarninn sjálfur
Í alvöru talað þá eigum við sem
þjóð mjög vont. Unga stjórnmála-
fólkið okkar er ekkert í stjórnmál-
um til þess að gera samfélagið
betra og fegurra. Það er í stjórnmál-
um út af öðrum og verri ástæðum
en fyrst og fremst fyrir sjálft sig. Og
það er þetta með „sjálft sig“ sem er
akkúrat kjarninn í Sjálfstæðisstefn-
unni. Hinn innsti þráður Sjálfstæð-
isstefnunnar er einmitt „maður
sjálfur“ og hvernig best sé að breyta
samfélaginu fyrir „mann sjálfan“.
Það er því ekkert undarlegt að upp-
færða útgáfan af Termínator-hálf-
mennunum úr Valhöll þyki það
næsta eðlileg tilhugsun að níðast á
kommúnistum jafnvel þótt þeir séu
fáséðir eins og sakir standa.
andfélagslegt félag
Það sem greinir Sjálfstæðisflokkinn
frá öðrum stjórnmálaflokkum er af-
staðan til samfélagsins. Venjulegir
stjórnmálaflokkar vilja breyta sam-
félaginu til hins betra, fegra það og
gera vistlegra fyrir alla. Sjálfstæðis-
flokkurinn hins vegar vill gera þetta
nákvæmlega sama en fyrir sjálfan
sig. Þannig að segja má að helsta
einkenni Sjálfstæðisflokksins sé
hið andfélagslega element í hon-
um. Sem er eignlega sprenghlægi-
legt því að þversögnin sem felst í
andfélagslegum stjórnmálaflokki
er beinlínis hrópandi.
Keypti embættið
Þó að sumt við þennan Ólaf Örn
Niel sen sé óneitanlega spélegt þá
er ekkert fyndið við það að hugsa
eins og 10 ár fram í tímann. Þá
verður þessi Nielsen að öllum lík-
indum komin á Alþingi og byrjaður
að leggja drög að næsta efnahags-
hruni með belgingi um „frelsið“.
Siðferði þessara jakkalakka er á
þeim stað að flestu vel meinandi
fólki býður við því. Sem dæmi um
ofanritað þá keypti þessi Nielsen
sér embættið sem hann skipar hjá
ungum sjálfstæðismönnum og
taldi sig bara nokkuð drjúgan eftir
það. Eftirminnilegar vídeómyndir
náðust af því þegar einn fylgisveina
Nielsens sveiflar búnti af mútufé
og greiðir fyrir mútuþegana. Mútu-
þegarnir voru fólk sem var keypt
til þess að „gera hallarbyltingu“ í
einhverjum kosningum á Ísafirði.
Þetta þykir ósköp eðlilegt meðal
sjálfstæðra og í fullkomum sam-
hljómi við kjörorð hrunsins. „Það
sem ekki er beinlínis bannað, er í
góðu lagi og fullkomlega eðlilegt.“
Mikið eigum við vont
myndin
Hver er konan?
„alda lóa.“
Hver er fyrsta minning þín úr æsku?
„Þegar ég var að labba í gegnum hrísl-
urnar hjá ömmu og afa á Bústaðavegi.
Í minningunni var það eins og labba í
gegnum rússneskan birkiskóg.“
Áttu þér einhverja fyrirmynd?
„desmond tutu.“
Hver er uppáhaldsbókin þín?
„Birtíngur eftir voltaire. hún er bara svo
klassísk og með svo klassískum húmor.“
Hvað hafið þið hjá sóleyju og
félögum selt marga bolta síðustu
daga?
„Það hefur verið alveg rjúkandi sala.
Gengur rosalega vel. við fórum hægt af
stað af því að framan af var svo erfitt að
fá posa.“
Hvers vegna seljið þið boltana?
„við erum að byggja hús yfir 75
munaðarlaus börn í tógó. Bygging þess
kostar fimmtán milljónir króna og við
ætlum að selja tíu þúsund bolta. Þá erum
við komnar með fimmtán milljónir því
boltinn kostar 1500 krónur stykkið.“
Hvers vegna styrkið þið munaðar-
laus börn í tógó en ekki í einhverju
öðru landi?
„af því að það vantar nauðsynlega þetta
hús, og af að því við kynntumst victo,
afríkönsku nunnunni sem sér um þessi
börn. hún er algjörlega frábær.“
Fylgistu með Hm í suður-afríku?
„Ja, svona með öðru auganu.“
með hvaða liði heldurðu?
„Ég held með argentínu.“
Hver er leið íslands út úr kreppunni?
„að gefa boltann, eins og segir í slagorði
boltasölunnar.“
maður dagsins
dómstóll götunnar
kjallari
föstudagur 2. júlí 2010 umræða 25
„Ekki veit ég hvar
Ólafur Nielsen ætlar
að finna kommúnista.
Ég þekki bara einn.
Sá heitir Vésteinn og
er með mér í Vantrú.
Toppmaður.“
teitur atlason
nemi skrifar
í rigningunni tónleikagestir á iceland inspires létu rigninguna í miðbæ reykjavíkur á fimmtudagskvöldið ekki á sig fá. eins og sjá má komu regnhlífar að góðum notum. mynd sigtryggur ari