Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Síða 26
Undarlega er nú komið fyrir Sjálf-
stæðisflokknum. Og undarleg er
íslenska þjóðin, eða allstór hluti
hennar. Flokkurinn hefur í öllum
meginatriðum stimplað sig úr leik í
stjórnmálaumræðu komandi miss-
era, en á sama tíma segir skoðana-
könnun að einn þriðji hluti þjóðar-
innar lýsi stuðningi við hann.
Með orðunum „stimplað sig úr leik”,
þá á ég auðvitað við þá ályktun lands-
fundar að draga eigi umsókn Íslands
um aðild að ESB til baka. Því það er
næstum sama hversu sannfærður
maður kann að vera um að Ísland
ætti ekki að ganga í ESB, að draga
umsóknina til baka er undir öllum
kringumstæðum sérlega kjánalegt.
Það er aðeins ef menn eru 150 pró-
sent vissir um að Ísland hafi ekk-
ert að gera með að ganga í ESB að
minnsta kosti næstu 30 árin sem
menn ættu að mælast til þess að um-
sóknin verði dregin til baka.
Og hverjir eru eða geta verið svo viss-
ir um að ESB-aðild henti ekki okkur
Íslendingum? Hverjir vilja taka sér
það bessaleyfi að banna okkur að fá
að sjá hverju samningaviðræður um
að ESB kunni að skila okkur?
ÞEIR SEM ERU HRÆDDIR
Jú – það eru þeir sem eru hræddir
um að aðildarviðræður muni leiða
í ljós að fyrir stærstan meirihluta Ís-
lendinga sé ekkert að óttast við inn-
göngu í ESB. En þeir sjálfir – í sínum
litla minnihluta – kunni að missa
spón úr sínum aski.
Og vilja þess vegna skemma um-
sóknina fyrir okkur – kannski ekki
endanlega, en þó er ljóst að ef um-
sóknin yrði dregin til baka á þessum
tímapunkti, þá yrði ekkert farið af
stað næstu 30-40 árin.
Sú klíka sem nú ræður Sjálfstæð-
isflokknum í reynd er tilbúin til að
kosta því til, svo að hún missi ekki
fyrrnefndan spón úr aski sínum.
Þetta er útgerðarauðvaldið, en þó
aðeins hinir þröngsýnustu í þeim
hópi. Þetta er bændaforystan, en þó
aðeins sá hluti hennar sem neitar að
horfast í augu við að reynsla Finna og
Svía af ESB gefur hreint ekki til kynna
að íslenskir bændur hafi mikið að
óttast. Og þetta er valdaklíkan sjálf,
sem er skelfingu lostin yfir þeirri til-
hugsun að fá ekki lengur að hræra í
blóðinu ef við göngum í ESB. Því þótt
ESB-aðild hafi í sjálfu sér ekki mikil
bein áhrif á stjórn landsins, þá mun
aðildin er til lengdar lætur vonandi
hafa í för með sér holl áhrif á stjórn-
kerfið og valdastrúktúrinn í landinu.
Það er þetta fólk sem ræður ferð-
inni í andstöðunni við ESB-aðild Ís-
lendinga. Ég ber fulla virðingu fyrir
áhyggjum margra af því að Íslend-
ingar muni glata fullveldi sínu við
það að ganga í svo umfangsmikil al-
þjóðasamtök sem ESB er, en ég held
að þær áhyggjur séu algjörlega úr
lausu lofti gripnar.
EKKI VOND ÁHRIF Á
FULLVELDIÐ
Fyrir sjálfan mig segi ég að minnsta
kosti: Ég er ekki alveg 100 prósent
sannfærður um að samningavið-
ræður um aðild að ESB muni reyn-
ast okkur fjárhagslega hagkvæmar.
Ég held það en ég veit það ekki, og
ég ætla að bíða með að taka ákvörð-
un um það mál þangað til niðurstaða
samningaviðræðna við ESB liggur
fyrir.
En ég er hins vegar alveg 100 pró-
sent viss um að niðurstaða aðildar-
viðræðna mun EKKI hafa nein vond
áhrif á fullveldi okkar og sjálfstæði.
Það er einfaldlega reynsla annarra
þjóða. Engin þeirra þjóða sem geng-
ið hefur í ESB hefur síðan litið svo á
að hún hafi glatað fullveldi sínu eða
sjálfstæði. Ekki ein einasta þeirra.
Það eru ekki alltaf alls staðar allir
alsælir með Evrópusambandið en
þetta er ekki áhyggjuefni neins stað-
ar.
Afstaða til niðurstaðna samninga-
viðræðna við ESB mun því fyrst og
fremst snúast um blákalda hags-
muni – og það er svo heimskulegt
af Sjálfstæðisflokknum að krefjast
þess nú að umsóknin verði dregin
til baka, áður en við fáum að sjá þá
niðurstöðu, að það er eiginlega með
algjörum ólíkindum að virðuleg-
ur stjórnmálaflokkur skuli haga sér
svona.
Að telja sínu fólki trú um að málið
snúist um fullveldi, þegar það snýst
í raun um hagsmuni – og fjöldinn
á ekki að fá að sjá hvaða hagsmuni
hann gæti haft af aðildinni, af því að
lítill hópur valda- og auðmanna er
sannfærður um að aðild þjóni ekki
SÍNUM hagsmunum.
SORGLEG SJÓN
Og það er til dæmis beinlínis sorg-
leg sjón að sjá Bjarna Benediktsson
formann og Ólöfu Nordal varafor-
mann bíta nú á jaxlinn og reyna að
telja okkur trú um að þeim finnist
bara allt í lagi, og reyndar nauðsyn-
legt, að draga umsóknina til baka.
Því við vitum svo ósköp vel að þau
bæði vita betur. En hafa unnið það til
valdanna í flokknum að gleypa hrá
þessa kjánalegu fyrirskipan lands-
fundarins.
Og það er líka sorglegt að sjá fjöld-
ann allan af ágætlega þenkjandi fólki
í Sjálfstæðisflokknum sitja uppi með
þessa stefnu, eins og hún sé eitthvað
annað en glórulaus. En þetta mun
flokkurinn sitja uppi með lengi enn –
því vandséð hversu fljótt verður hægt
að draga þessa einkennilegu stefnu
til baka.
Sem væri auðvitað það eina rétta.
Goooooooooool! Barrilete cós-mico, ¿de qué planeta vinis-te?“ öskraði úrúgvæski íþrótta-fréttamaðurinn Victor Hugo af
öllum lífs og sálar kröftum, á milli þess sem
hann grét. Þetta var 22. júní 1986 á Azteka-
vellinum í Mexíkóborg. Á íslensku myndu
orð Hugo útleggjast sem „Maaaaaaaaaaark!
Geimflugdreki, frá hvaða plánetu komstu?“
Geimflugdrekinn var enginn annar en Di-
ego Armando Maradona, sem hafði
sólað sig í gegnum ensku vörnina
í átta liða úrslitum HM í Mex-
íkó. Það hefur oft verið kallað
besta mark knattspyrnusögunn-
ar, gjarna kallað mark aldar-
innar. En ég vil líka segja að
öskur íþróttafréttamannsins
Victors Hugo sé besta öskur
knattspyrnusögunnar.
Maradona fékk boltann og hóf sextíu metra hlaup í átt til
enska marksins. Hann
sólaði fimm enska úti-
vallarleikmenn – Hodge,
Beardsley, Reid, Butcher
og Fenwick. Maradona
kláraði með því að sóla
Peter Shilton í markinu og
boltinn steinlá inni.
Enginn gat búist við svo stórkostlegu marki frá Maradona, þrátt fyrir að hann væri besti fótbolta-maður heims. Allir vissu að hann myndi framkalla eitthvað
ótrúlegt, en enginn hefði getað ímyndað sér að sigurmarkið yrði
jafn stjarnfræðilega æðislegt og raun ber vitni. Og að hann skyldi
skora það í þessum leik, á móti Englandi! Argentína og England
höfðu fjórum árum áður barist um Malvínaseyjar (Falklandseyjar)
þar sem 907 hermenn týndu lífi, þar af 649 argentínskir. Reiðin og
hatrið gagnvart Bretum var í hámarki í Argentínu á þessum tíma.
Margir litu á Maradona, sem fæddist í fátækrahverfi, sem hermann
kúgaða fólksins gegn heimsvalda-
stefnu og óréttlæti í heim-
inum.
Þess vegna trylltist Victor Hugo þegar Maradona skoraði markið fræga, því
það var svo margt undir.
Loksins fékk Argentína
uppreisn æru, eftir ömur-
leg niðurlægingarár her-
foringjastjórnar og hins
fráleita stríðs. „Maaaaa-
ark! Guð minn almáttug-
ur, lifi fótboltinn. DIEGO
MARADONA. Ég vil fara
að gráta, afsakið mig. Frá
hvað plánetu komstu... til að rústa Englendingunum
svona... til að öll þjóðin sé sem einn krepptur hnefi, öskrandi fyrir
Argentínu! Argentina 2 - Inglaterra 0... Diegol, Diegol, Diego Arm-
ando Maradona... Þökk sé þér guð, fyrir fótboltann, fyrir Mara-
dona, fyrir þessi tár, fyrir þessa stöðu - Argentína 2 England 0!“
Geimflugdrekinn hafði auðvitað skorað fyrra mark Argentínu líka, með hönd guðs. Öskur íþróttafréttamannsins var ekki mikið síðra þá, það er kannski annað besta öskur knatt-spyrnusögunnar. En þá heyrist Victor Hugo öskra „GOO-
OOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOL,
GOOOOOL, GOOOOOOL“, í hið óendanlega, eins og suðuramer-
ískir fótboltalýsendur eru svo frægir fyrir að gera.
Ég bjó í Buenos Aires í tvö ár og elska því og dýrka argentínska landsliðið. Og núna á laugardaginn keppir Argentína í átta liða úrslitum HM á móti Þýskalandi. Þegar þessi pistill er les-inn hefur leikurinn kannski þegar farið fram. En ég krosslegg
fingur og bið til guðs um að flugdrekinn og strákarnir hans vinni
leikinn til þess að íþróttafréttamaðurinn í Argentínu geti öskrað sig
hásan með jafn stórkostlegri lýsingu og Victor Hugo á Aztekavell-
inum hinn 22. júní 1986 þegar breska heimsveldið var niðurlægt.
Og hver ætti að endurtaka leikinn annar en Lionel Messi, sem hef-
ur skorað eftirlíkingar af bæði „hönd guðs“ og „marki aldarinnar“?
Og ég vona að öskrið verði svona: „LIONEL MESSI. Ég vil fara að
gráta, afsakið mig. Frá hvað plánetu komstu...Þökk sé þér guð, fyrir
fótboltann, fyrir Messi, fyrir þessi tár, fyrir þessa stöðu - Argentína
2 Þýskaland 0!“
Ég hvet lesendur til að horfa á mark Maradona með lýs-ingu Victors Hugo á slóðinni: http://www.youtube.com/watch?v=VQOPDj-5rHs
GEiMfluGdrEki,
frá hvaða plánEtu
koMstu?
helgi hrafn guðmundsson
skrifar
helgarpistill
26 umræða 2. júlí 2010 föstudagur
trésmiðja illuga
Hverjir vilja taka
sér það bessaleyfi
að banna okkur
að fá að sjá hverju
samningaviðræður
um að ESB kunni að
skila okkur?
Illugi Jökulsson trúir því ekki að Bjarni Benediktsson og Ólöf
Nordal séu ánægð með niðurstöðu landsfundar Sjálfstæðisflokks-
ins um að draga umsókn um aðild að ESB til baka.
Ú leik