Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Síða 32
32 viðtal 2. júlí 2010 föstudagur
Beinn í baki og ákveðinn í fasi geng-ur Guðmundur Týr Þórarinsson inn á höfuðstöðvar DV. Hann er svart-klæddur frá toppi til táar, í svörtum
gallabuxum, svörtum stuttermabol og svört-
um leður jakka með sitt síða hár og síma sem
hringir stöðugt og blastar rokklagi í hvert
skipti. Mummi í Götusmiðjunni er mættur á
svæðið og hann er allt annað en kátur. Mark-
miðið er að verja mannorðið en honum þykir
að sér vegið og segist hafa verið svikinn af vini
sínum til fimmtán ára og Braga Guðbrands-
syni. Götusmiðjan er dáin og gjaldþrot vofir
yfir. Hann fylgir blaðamanni inn í viðtalsher-
bergið, með svart kaffi í bolla og hlammar sér í
rauða sófann. Þar hallar hann sér aftur.
„Ég hef oft átt betri daga. Það er rosalega
erfitt að þurfa að berjast fyrir mannorði sínu
í fjölmiðlum. Verjast manni sem rær undir,
splittar, rannsakar málið, manípúlerar og
sprengir í loft upp til að geta rift samningi. Og
hann er að taka mig af lífi líka. Hann fer all-
an hringinn, þessi maður.“ Mummi á þar við
Braga Guðbrandsson, forstjóra Barnavernd-
arstofu, en Götusmiðjunni, meðferðarheim-
ili sem Mummi rak í tólf ár, var lokað á dög-
unum meðal annars vegna ásakana á hendur
Mumma sem var sakaður um að hafa haldið
leynifund með börnunum og hótað þeim lík-
amsmeiðingum ef þau segðu frá því sem þar
fór fram. Eins var hann sakaður um mikla
fjarveru, skort á handleiðslu, óvænt og óeðli-
leg afskipti af Götusmiðjunni, einelti gagnvart
starfsmönnum, fjármálaóreiðu og fleira. Það
gerði svo útslagið þegar hann átti að hafa rekið
einn starfsmanninn fyrirvaralaust fyrir að hafa
talað við Barnaverndarstofu.
Kerfi í vörn
„Ég læt ekkert knésetja mig svo auðveldlega.
Veistu hve margir hafa reynt að knésetja mig
og Götusmiðjuna? Bragi er bara einn af mörg-
um. Valdníðslan er víða í kerfinu og félags-
þjónustan í ýmsum sveitarfélögum hefur bor-
ið út óhróður um okkur. Kerfið hefur alltaf
viljað losna við mig því ég er krítískur á kerfið,
sem er mölbrotið. Þannig að kerfið fer að verja
sig. Braga hefur alltaf verið illa við mig af því að
ég er hávær. Hann sagði orðrétt við mig einu
sinni að ef ég héldi ekki kjafti tæki hann af mér
leyfið. Þá mátti ég ekki tala við fjölmiðla.
Árið 1999 reyndu sálfræðingar þetta líka.
Ég er að fara í gegnum þetta í annað sinn þó
að árásirnar hafi ekki verið eins svakalegar þá.
Þeir vildu breyta meðferðinni og ég sagði nei.
Ég hef oft lent í þessu áður, fagfólki sem veit allt
best. Oft eru þetta ungir krakkar sem eru ný-
komnir með háskólagráðu en eru með brjóst-
vit á við brauðrist. Þau hafa menntunina en
skortir reynsluna. Ég hef oft lent í besserviss-
erum sem hafa háskólapróf en hafa aldrei séð
drukkinn ungling á ævinni og hvað þá unnið
með sig.“
„örin minna mig á“
Sjálfur er hann gamalt götubarn sem var inn
í og út úr meðferðum hægri, vinstri. „Ég bjó á
götunni og hef upplifað allt sem þessir krakkar
hafa upplifað. Ég tala sama tungumál og þau.
Af hverju heldur þú að ég hafi farið af stað með
þetta batterí? Ég vildi óska þess að það hefði
verið til Götusmiðja þegar ég var að væflast um
á götunni 15 ára gamall.
Ég varð ekki edrú fyrr en ég stóð frammi fyr-
ir því vali að svipta mig annaðhvort lífi eða gefa
enn einni meðferðinni séns. Eftir að mér lenti
saman við mann sem var mér mjög nákominn.
Við vorum í amfetamínvímu og börðum hvor
annan í klessu. Við vorum ekkert mjög heiðar-
legir og auðvitað ruku menn saman. Slagsmál
voru algeng en þetta var mjög ljótt og hann
var illa farinn eftir mig. Þegar ég hitti þennan
elsku dreng sé ég alltaf örin á enninu á hon-
um sem minna mig á það sem gerðist. Og ég
elska þennan dreng út af lífinu.“ Mummi kallar
hann elsku dreng en þetta var fullorðinn mað-
ur, ekki barn.
Ljótar SmS-Sendingar
Miðað við fjölmiðlaumfjöllun um atburðina í
Götusmiðjunni mætti halda að Mummi væri
fallinn. „Ef ég væri svona vondur gæi, heldur
þú að það væri ekki meira komið fram eftir 18
ár? Eða er ég allt í einu dottinn í það og farinn
að haga mér einkennilega? Kommon.“ Hann
hallar sér að blaðamanni og lokkur úr hári hans
fellur niður á andlitið og fyrir augun. Ósjálfrátt
hristir hann hausinn og lokkinn frá andlitinu á
meðan hann talar: „Ég var að frétta að ég væri
dottinn í það og það væri verið að taka af mér
barnið. Ég tek það ekki nærri mér. Ég er alltaf
að heyra svona sögur. Að ég sé fallinn og jafnvel
farinn að selja amfetamín, aftur. Það færi ekki
fram hjá neinum ef ég dytti í það og ég sæti sko
ekki hér ef ég dytti í það. Ég get lofað þér því. Ég
er búinn að vera edrú í 18 ár og ég hélt upp á
afmælisdaginn í síðasta mánuði.
Moldvörpurnar koma upp núna. Þessar
týpur sem búa enn hjá mömmu sinni 38 ára
gamlar og blogga um allt sem gerist,“ hann
hlær kaldhæðnislega. „Ljótleikinn verður svo
mikill. Ég fæ SMS þar sem ég er kallaður aum-
ingi, viðbjóður, vesalingur og alls konar. Allt-
af frá nafnlausum einstaklingum sem senda
skilaboðin á netinu.“
Hótað á fundi
Honum er mikið niðri fyrir þegar hann lýs-
ir fundi með Braga sem hann sat ásamt lög-
fræðingi sínum, bókhaldara Götusmiðjunn-
ar og lögfræðingi Barnaverndarstofu. „Hann
hallaði sér aftur í sætinu og sagði: „Mummi,
ég kem þér út með góðu eða illu.“ Ég sá fram-
an í hann og vissi að hann væri búinn að taka
ákvörðun. Ég veit alveg hvað Bragi getur gert.
Hann er búinn að koma níu öðrum forstjórum
frá með sama hætti. Ég vissi að hann myndi
taka mig niður líka. Ég var tilbúinn til að ræða
það hvort það væri kominn tími á mig á með-
an ég hélt að það ætti að reka Götusmiðjuna
áfram. Ég sagði ókei, ég skal stíga til baka en
ég ætla ekki að fara skuldugur út úr þessu og
Götusmiðjan lifir. Ég hélt að það yrði lend-
ingin, að það kæmi bara nýr forstöðumaður
þarna inn.
Það er bara froða ef Bragi segist hafa stutt
mig. Bragi styður engan nema sjálfan sig.
Það sem hann segir í pontu og það sem hann
segir við mig í sígó er tvennt ólíkt. Ég heimta
opinbera rannsókn á hans störfum.“ Hann
segir að forstöðumenn hafi hrökklast frá Tind-
um, Jökuldal, Laugalandi og Háholti og tvisvar
frá Hvítárbakka eftir álíka aðfarir. Og að Árbót
og Bergi hafi verið lokað í síðustu viku með
svipuðu inngripi og í Götusmiðjunni.
afSKipti af Starfinu
Tíu starfsmenn Götusmiðjunnar skrifuðu
undir og sendu Barnaverndarstofu bréf þar
sem kvartað var undan starfsháttum Mumma.
Á meðal þess sem hann var ásakaður um voru
óvænt og óeðlileg afskipti af starfseminni.
„Auðvitað skipti ég mér af. Götusmiðjan er
ekki eitthvað sem ég bjó til á götunni. Götu-
smiðjan er meðferðarheimili sem er rekið
samkvæmt ákveðnum meðferðarfræðum og
byggir á ákveðinni nálgun við einstaklinga.
Mitt hlutverk hefur alltaf verið að berjast við
kerfið og vernda mitt módel. Ég rak Götu-
smiðjuna eins og ég taldi að best væri að gera
það.“
Þá segist hann hafa fylgst með starfinu út
auðvitað varð ég hræddur
mummi í Götusmiðjunni lýsir atburðarás síðustu daga. Hann segir að vinur
sinn til fimmtán ára hafi svikið sig og Bragi guðbrandsson hafi hótað sér og
skoðar nú réttarstöðu sína. Hann ræðir við ingibjörgu dögg Kjartansdóttur
um valið sem hann stóð frammi fyrir þegar hann ætlaði annaðhvort að svipta
sig lífi eða fara í meðferð, hjónabandið sem brast, hjartaáfallið sem hann fékk í
afmælisveislunni sinni á Hótel Borg og gjaldþrotið sem allt stefnir í.
Ég fæ SMS þar sem ég er kallaður aum-
ingi, viðbjóður, vesalingur
og alls konar.