Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 34
byrjaði þetta. Ástandið batnaði ekki eftir að ég
stoppaði hann ákveðið af á starfsmannafundi.
Ég get verið hrár og talað hátt en ég geri aldrei
lítið úr fólki. En hann setti mig í heita sætið og
glotti á mig á starfsmannafundi þegar hann hélt
því fram að ég gæti borgað hærri laun. Hann var
alltaf að biðja um meiri pening, meiri pening,“
Mummi breytir röddinni þannig að hún verð-
ur svolítið kvenlegri: „Hann talar svona, svolítið
gay-ish. En þegar ég var farinn að verja allt bók-
haldið á starfsmannafundi sagði ég: „Hey, time
out. Gerðu það bara upp við þig hvort þú ætlar
að vinna hér eða ekki. Þetta er láglaunastarf.“ Ég
hafði ekki efni á því að borga hærri laun. Þetta er
eineltið. Guð minn góður!“ segir hann hæðnis-
lega. „Og það að ég skammaði hann fyrir afglöp
í starfi. Þá varð starfsfólkið vitni að því þegar við
hnakkrifumst. Enda búnir að vera vinir í 15 ár.“
Hjartaáfall á Hótel Borg
Auk þess sem Mummi var sakaður um að leggja
starfsmenn í einelti var kvartað undan því að
hann væri lítið á staðnum. Hann segir að ákveð-
inn tvískinnungur felist í þessu. „Hvernig á ég að
geta lagt fólk í einelti þegar ég er aldrei á staðn-
um? Getur þú teiknað þetta upp fyrir mig?
Annars er það ekki rétt að ég sé lítið þarna.
Ég er einstæður faðir og bý á staðnum. Ekki fer
ég að skilja barnið mitt eftir þarna. Ég læt mig
ekki hverfa. En ég breytti stjórnunarháttum fyr-
ir tveimur árum þegar ég fékk hjartaáfall. Sam-
kvæmt læknisráði steig ég aðeins til hliðar en
var í stöðugu sambandi við dagskrárstjóra, fjár-
málastjóra og vaktstjóra. Ég vann í gegnum þau.
Ein af þeim sem skrifuðu undir bréfið var vakt-
stjóri. Í bréfinu segir að það hafi ekki verið nein
stjórnun á staðnum. Hún skrifaði undir það að
hún væri ekki stjórnandi. Samt var hún enn að
vinna á Götusmiðjunni. Skrýtið að þetta fólk
hætti ekki fyrst ég er geðsjúklingur.
En mitt starf snerist um að halda utan um
staðinn. Ég var ekki meðferðaraðili lengur held-
ur rekstraraðili. Hér áður fyrr var ég allt í öllu og
það endaði með hjartaáfalli. Ég var hættur að
sofa og næra mig og var orðinn yfirskrúfaður.
Líkaminn gaf sig á fimmtugsafmælinu mínu og
ég fékk hjartaáfall í veislunni á Hótel Borg. Auð-
vitað varð ég hræddur og í kjölfarið umpólaði ég
lífinu mínu. Ég varð að koma mér út úr áreitinu.
Þess vegna fór ég að vinna minna inni á heim-
ilinu en meira við eldhúsborðið heima hjá mér.
Þar var áreitið minna. En ég bjó í vinnunni og
var alltaf á vaktinni. Fyrir tveimur dögum slökkti
ég á símanum í fyrsta skipti í mörg ár.“
„Þetta særir mig“
„Ég er að verða 52 ára. Ég er búinn að fá hjarta-
áfall og missa hjónaband út úr þessu. Ég lagði
allt að veði.“ Þau Marsibil stofnuðu Götusmiðj-
una saman og unnu kauplaust fyrstu árin en
lifðu á því að kaupa og selja íbúðir. Þau fluttu
níu sinnum á tíu árum af því að þau höfðu aldrei
efni á því að eiga íbúðirnar. „Við vorum í eilífðar-
trekant með Götusmiðjunni. Við sátum á rúm-
stokknum daginn fyrir mánaðamót og veltum
því fyrir okkur hvernig við ættum að borga laun.
Þetta var lélegasta viðskiptahugmynd í heimi og
aldrei hugsuð sem slík.
Þess vegna sárnar mér þegar fólk er tilbúið til
að gleypa við því að það sé eitthvað annað á bak
við þetta en það að ég sé gamalt götubarn. Það
er svo skrýtið með Íslendinga að þeir vilja aldrei
trúa því að einhver geri eitthvað af heilindum.
Þjóðarsálin er svo krumpuð. Það er það sem
meiðir mig. Öll þessi ár, öll þessi mannslíf, allt
sem ég hef gert. Allt í einu skiptir það engu máli
því það er búið að búa til einhverjar hugmyndir
um annarlegar hvatir á bak við þetta. Þetta sær-
ir mig.“
Síminn hringir enn á ný og Mummi slekkur á
honum. Hann hallar sér fram á borðið og horf-
ir ofan í kaffibollann. „Ég er búinn að sitja und-
ir því í mörg ár að ég sé á spena, ég sé á háum
launum og stórum jeppa. Jeppinn minn er tíu
ára gamall og var keyptur á uppboði fyrir rúmu
ári á 400.000 krónur. Ég er skráður í 150% starfs-
hlutfall og vinn nánast allan sólarhringinn alla
daga vikunnar. Ég fæ 400.000 krónur á mánuði
fyrir 100% vinnu og rétt rúmlega 600.000 krón-
ur fyrir 150% vinnu. Fyrir þessa upphæð bý ég
á staðnum, held utan um starfsemina, sé um
fjáröflun, skrifa upp á persónuábyrgðir upp á
tugi milljóna til að halda staðnum gangandi, er
ábyrgur fyrir 15 starsfmönnum og 15-20 ung-
mennum. Finndu einhvern sem er til í sama díl.“
stefnir í gjaldÞrot
Fyrstu árin var Götusmiðjan rekin án reglu-
legra fjárframlaga frá ríkinu. Þá safnaði Mummi
skuldum hér og þar. Fyrir nokkrum árum fékk
hann bankann til þess að taka yfir þessar litlu
skuldir gegn persónulegri ábyrgð Mumma. Lán-
ið hljóðar upp á 22 milljónir. „Ég er á leið í per-
sónulegt gjaldþrot. Fyrstu ár Götusmiðjunnar
vildi enginn koma nálægt henni og starfsem-
in var rekin á yfirdrætti og lánum. Við skulduð-
um tugmilljónir þegar ríkið fór loksins að styðja
okkur. Eftir tvö ár fengum við fjórar milljónir,
það næsta 12 og í fyrra 98 milljónir. Ég byggði
Götusmiðjuna upp í þetta. Finnst þér líklegt að
ég ætli allt í einu núna að traðka á því sem ég hef
eytt tólf árum í að byggja upp? En Götusmiðjan
er búin. Hún verður aldrei endurfædd. Ef það
er einhver áhugi fyrir því að endurfæða Götu-
smiðjuna kem ég ekki nálægt því, allavega ekki
á meðan Bragi Guðbrandsson situr enn í sín-
um stól. Hann tekur meðferðarheimili af lífi eftir
geðþótta.
Ég fór í tveggja vikna frí til Bandaríkjanna. Á
frípunktum,“ hann leggur svo mikla áherslu á
frípunktana að hann beygir sig ofan í diktafón-
inn þegar hann nefnir þá. „Þegar ég kom heim
fór ég á námskeið hjá Barnaverndarstofu þar
sem Bragi kallaði á mig. Þá var hann búinn að
fá bréfið, að eigin undirlagi, því hann réri und-
ir þessu öllu hvort sem hann vill viðurkenna
það eða ekki, elsku kallinn. Það væri fróðlegt að
skoða símreikninga hans og Götusmiðjunnar,
því hann var í beinu sambandi við mitt starfs-
fólk. Eru það ekki óeðlileg afskipti?“
skoðar réttarstöðuna
Á meðan Mummi var í fríi var hætt að senda
börn á Götusmiðjuna. „Hann ætlaði að koma
mér út úr þessu. Hann var byrjaður að undirbúa
lokunina og það gengu á milli lögfræðinga hug-
myndir um það hvernig hægt væri að gera þetta
þannig að ég kæmist frá þessu án þess að vera á
kafi í skuldum. Ég gerði kröfu um það og nokk-
urra mánaða laun svo ég gæti komið mér af stað
í nýju starfi.
Fyrst þetta fór svona ætla ég að fara á fullt í
það að hreinsa mannorð mitt. Ef ráðuneytið
finnur ekki lausn á þessu máli má gera ráð fyrir
því að ég sendi stefnur hægri, vinstri á þá sem
hlut eiga að máli. Þetta var gróf aðför að heim-
ilinu og mér persónulega. Ég mun leita réttar
míns með ráðum og dáð og er að skoða réttar-
stöðu mína. Núna er fólk orðið hrætt og tilbúið
til að tala. Ef þetta fólk yrði kallað til yfirheyrslu í
réttarsal yrði enginn vinur neins.
En ég er þreyttur. Ég er þreyttur á því að vera
tekinn af embættismanni og fleygt á milli veggja.
Og ég er þreyttur á því að vera réttlaus í umræð-
unni. Í dag var enn ein jarðarförin frá Braga sem
boðaði foreldra barnanna á fund án þess að mér
væri gefinn kostur á því að skýra mitt mál. Þetta
er fáránlegt. Hann hlutast til um atburðarásina
frá a-ö.“
lætur ekki stöðva sig
Eins og gefur að skilja er þetta erfiður tími fyr-
ir Mumma. Hann er búinn að redda sér íbúð
í borginni og ætlar að flytja í lok vikunnar.
Koma sér burt frá Götusmiðjunni. „Mér líður
ömurlega. Ég var svikinn. Það hlaut að koma
að því. Börnin mín voru hjá mér um helgina.
Þetta var ekki góð helgi fyrir þau. Þau átta sig
ekki alveg á því sem er að gerast. Ég þurfti að
útskýra margt fyrir þeim. Ég er úthrópaður í
fjölmiðlum og það meiðir þau. Þau voru líka
hrædd og spurðu hvað yrði svo, hvar ég fengi
vinnu og hvernig við ættum að lifa. En ég þarf
bara að lifa þessa viku af. Ég flyt á föstudag-
inn. Og á laugardagsmorgun þegar ég vakna
innan um pappakassana í leiguíbúð í borg-
inni veit ég að uppbyggingarstarfið er að hefj-
ast.
Ég er kvikmyndagerðarmaður að mennt
og starfaði við það hér áður fyrr. Ætli ég verði
ekki bara blankur kvikmyndagerðarmaður
aftur? Þessi saga er ágætishandrit að heim-
ildarmynd. Ef ég enda sem kvikmyndagerðar-
maður mun ég fjalla um utangarðsbörnin og
kerfið. Ég verð mjög gagnrýninn. Nema hvað
ég verð bara með myndavél í þetta skiptið. Ég
læt ekki stoppa mig.“
ingibjorg@dv.is
Ég tala tungumálið þeirra. Lögmálið á
götunni er að ef þú ferð
í lögguna og skvílar ertu
dauðadæmdur.
34 viðtal 2. júlí 2010 föstudagur
m
yn
d
H
ö
rð
u
r
sv
ei
n
ss
o
n