Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Qupperneq 52
52 úttekt 2. júlí 2010 föstudagur
Ný hjúskap-
arlög tóku
gildi þann
27. júní á
alþjóðlegum
mannrétt-
indabar-
áttudegi
samkyn-
hneigðra
en með
lögunum er
Ísland kom-
ið á fremsta
bekk í bar-
áttunni fyrir
réttindum
samkyn-
hneigðra.
DV heyrði
í nokkrum
samkyn-
hneigðum
pörum sem
öllum líst
vel á nýju
lögin og
ætla sum
hver að nota
tækifærið
og ganga
upp að altar-
inu.
indiana@dv.is
Mannréttindi fyrir alla
Knattspyrnukonurnar Ólína Viðarsdóttir og Edda Garð-
arsdóttir búa í Svíþjóð. Ólína segir Íslendinga komna
mun lengra á veg í málefnum samkynhneigðra en Svíar
og Ameríkanar.
Vonandi giftum
við okkur
„Þetta er alveg frábært og gerir það enn
frekar að verkum að það er dýrmætt að
geta kallað sig Íslending,“ segir Ólína
Viðarsdóttir knattspyrnukona en hún
og sambýliskona hennar, Edda Garð-
arsdóttir sem einnig er knattspyrnu-
kona, búa saman í Svíþjóð. Ólína seg-
ir Íslendinga koma mun lengra á veg
en Svíar í málefnum samkynhneigðra.
„Þegar maður býr í öðru landi finnur
maður hvað við höfum það gott heima.
Við bjuggum líka í Bandaríkjunum og
Íslendingar eru komnir miklu lengra
en Ameríkanarnir.“
Ólína og Edda kynntust í gegnum
fótboltann og hafa verið saman í átta
ár. Aðspurð hvort þær séu á leiðinni
upp að altarinu segir Ólína það ekki
á dagskránni í nánustu framtíð. „Við
erum trúlofaðar og vonandi giftum
við okkur einn daginn og þá förum
við heim til Íslands og nýtum okkur
þessi réttindi,“ segir hún og bætir við
að þær hafi ekki gert upp hug sinn um
það hvort um kirkjubrúðkaup verði að
ræða. „Við erum í rauninni ekki búnar
að ræða um smáatriðin, eins og hvort
við giftum okkur í kirkju, enda skiptir
það okkur ekki svo miklu máli. En ég
veit að það er stórt atriði fyrir marga
aðra svo þetta er mikilvægt skref.“
Ólína og Edda eru báðar í íslenska
landsliðinu og því fyrirmyndir krakka
og unglinga. „Það er alltaf erfitt að
stíga þetta skref, að koma út úr skápn-
um, og þora að standa og sýna hver
maður er. Þess vegna er mikilvægt að
við sem knattspyrnukonur séum sýni-
legar fyrir unga krakka svo þeir sjái
að samkynhneigðir eru bara ósköp
venjulegt fólk eins og allir aðrir,“ segir
hún að lokum.
Trúlofaðar Ólína og Edda eru búnar að vera saman í átta ár og gera sér
grein fyrir því að þær eru börnum og unglingum mikilvæg fyrirmynd.
Hörður Torfason horfir glaður til baka en segir að það hefði
verið erfitt að vita að það tæki 40 ár að fá almenn mannréttindi.
Ekki á leið upp
að altarinu
„Þessi lög eru okkur öllum til sóma,
svo einfalt er það. Þetta gefur manni
von um að baráttan skili sér þótt það
taki tíma,“ segir Hörður Torfason,
söngvasmiður og mannréttindabar-
áttumaður, um nýju hjúskaparlögin.
„Þegar ég byrjaði mína baráttu upp
úr 1970 trúði ég að þetta væri hægt,
öðruvísi hefði ég ekki farið af stað. Í
dag horfi ég glaður til baka, að hafa
byrjað svona snemma í þessari bar-
áttu, en á sínum tíma hefði verið erf-
itt að vita að það tæki 40 ár.“
Hörður og sambýlismaður hans
hafa búið saman í á annan ára-
tug en aðspurður segir Hörður þá
ekki á leiðinni upp að altarinu. „Við
erum í staðfestri sambúð og það tel
ég nægja. Við þurfum ekki að gifta
okkur fyrir einum eða neinum guði
enda erum við frekar siðfræðilega
og heimspekilega þenkjandi en trú-
arlega. Fyrir mig snýst hjónabandið
fyrst og fremst um fjárhagslegt ör-
yggi og það höfum við haft í mörg
ár,“ segir hann og bætir við að það
öryggi hafi gjörbreytt þeirra lífi. „Við
höfðum búið saman í mörg ár áður
en við létum staðfesta sambúð okk-
ar og fundum báðir hvað líf okkar
breyttist til hins betra við að finna
þetta öryggi. Ég viðurkenni að ég
rækta mína trú en þarf ekki að vera
í trúfélagi til þess. Nú vil ég bara
halda áfram og berjast fyrir aðskiln-
aði ríkis og kirkju. Það verður að ger-
ast og mun takast einn daginn.“
Baráttumaður Hörður og maki
hans Massimo hafa búið saman
í á annan áratug og ætla að láta
staðfesta sambúð nægja.
„Þessi lög skipta sköpum fyrir fjöl-
skyldu eins og okkar og samfélagið í
heild sinni,“ segir Kristín Þórisdóttir,
betur þekkt sem Kidda rokk. Kidda og
kona hennar, Ína Björk Hannesdóttir,
hafa verið í staðfestri sambúð í sjö ár
og eiga saman tvö börn auk þess sem
Ína á barn úr fyrra sambandi. „Það
var mjög stórt skref þegar okkur var
heimilað að ganga í staðfesta sambúð
en með þessum nýju lögum höfum
við fengum full mannréttindi. Nú eig-
um við að geta ættleitt, eignast börn
og gift okkur í kirkju eða hjá fógeta og
erum komin með sömu mannréttindi
og aðrir og það skiptir öllu máli í bar-
áttu gegn fordómum. Núna megum
við giftast og bara þau orð hafa áhrif á
allt kerfið. Á öllum umsóknum hefur
t.d. hingað til staðið „nafn móður“ og
„nafn föður“ en hefur nú verði breytt
í „foreldri 1“ og „foreldri 2“.“
Kidda segir Íslendinga víðsýnni
í þessum málum en margar aðrar
þjóðir. „Íslendingar eru gott fólk sem
vill hafa mannréttindi í lagi, annars
hefði þetta aldrei gengið í gegn. Við
þurfum að passa að sofna ekki á verð-
inum og megum ekki gleyma heild-
arsögunni og hvernig við komumst
á þennan stað. Það hefur margt gerst
á stuttum tíma og það eru ekki nema
40 ár síðan Hörður Torfason var grýtt-
ur fyrir að koma út úr skápnum. Páll
Óskar er líka frábær fyrirmynd sem
tók slaginn fyrir okkur sem komu á
eftir og ef það væri ekki fyrir fólk eins
og þá og hugsjónapólitíkusa, líkt og
Guðrúnu Ögmundsdóttur, værum
við ekki komin svona langt. Samfé-
lagið allt nýtur góðs af, sama hvort
við erum gay eða straight, það er gott
að lifa í þannig samfélagi að þú getir
komið hreint fram og sagt hvernig þér
líður án þess að vera dæmdur fyrir.“
Kidda og Ína hafa verið saman
Kristín Þórisdóttir og Ína Björk Hannesdóttir eiga þrjú
börn og hafa verið í staðfestri sambúð í sjö ár.
Aldrei að vita nema
ég biðji hennar