Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.2010, Blaðsíða 55
föstudagur 2. júlí 2010 55
Dómararnir hafa verið mikið í umræðunni á HM en stór mistök þeirra hafa haft áhrif á nokkra leiki.
Fjórir dómarar, þar af tveir af þeim allra bestu, voru sendir heim. Við reifum hér mistök fjórmenning-
anna og kynnum aðra fjóra sem koma sterklega til greina til að dæma sjálfan úrslitaleikinn.
sendir heim
Dómarar
roberto rosetti - Ítalía
Aldur: 42 ára
Á FIFA-lista síðan 2002
Einn allra besti dómari heims sem
dæmdi úrslitaleikinn á EM fyrir tveimur
árum. Hann var má segja flaggaður út
úr keppninni, það er að aðstoðardóm-
ari hans gerði herfileg mistök. Hann
lét mark Carlosar Tevez standa gegn
Mexíkó í 16 liða úrslitunum þrátt fyrir
að Tevez væri kolrangstæður. Hann
var það rangstæður að Rosetti hefði
auðveldlega getið gripið í taumana
sjálfur. Rosetti er mikill Ítali og faðmar
og kyssir aðstoðarmenn sína grimmt
fyrir og eftir leiki. Það hefur þó enginn
fengið faðmlag þegar hann heyrði að
hann væri sendur heim með skít og
skömm.
SENDIr HEIm
Jorge Larrionda
- Úrúgvæ
Aldur: 42 ára
Á FIFA-lista síðan 1998
Það var auðvitað ekkert annað
hægt en að senda Larrionda heim
eftir markið sem aldrei varð í
viðureign Englands og Þýska-
lands. Boltinn hjá Frank Lampard
var það langt inni að Larrionda
hefði auðveldlega getað dæmt
markið sjálfur. Brottreksturinn
er mikið áfall fyrir Larrionda
sem er af mörgum talinn besti
dómari heims. Hann hafði átt
frábæra keppni fram að þessum
mistökum og hefði án nokkurs
vafa komið til greina til að dæma
úrslitaleikinn.
stephane Lannoy
- frakkland
Aldur: 41 árs
Á FIFA-lista síðan 2006
Stundum missa menn einfaldlega
tök á leiknum. Það gerði Frakkinn
Stephane Lannoy svo sannarlega í
riðlakeppninni þegar hann flautaði
leik Brasilíu og Fílabeinsstrandarinn-
ar. Allt ætlaði upp úr að sjóða í end-
ann þegar hann gaf Kaka glórulaust
rautt spjald þegar einn leikmaður
Fílabeinsstrandarinanr hljóp á hann
viljandi og greip um höfuð sér. Það
sem meira er sást á upptökum að
Lannoy sá aldrei hvað gerðist. Því
var ekki annað hægt að gera en að
senda Frakkann heim sem stóð sig
vægast sagt illa á mótinu.
Koman Coulibaly
- malí
Aldur: 39 ára
Á FIFA-lista síðan 1999
Koman Coulibaly er einn af þeim
dómurum sem hefði aldrei átt að
dæma á HM, slakur frá fyrstu mínútu
til þeirrar síðustu. Hann var sendur
heim eftir að hafa dæmt löglegt
mark af Bandaríkjunum í leik þeirra
gegn Slóvenum. Aukaspyrna barst
þá inn á teiginn undir lok leiks og
ríghéldu fjórir Slóvenar í Bandaríkja-
menn og hefði með ströngum dómi
verið hægt að velja sér mann til að
dæma víti á. Bandaríkin skoruðu eftir
aukaspyrnuna en Coulibaly ákvað
að dæma á Bandaríkjamenn. Og fyrir
það auk heilt yfir daprar frammistöðu
á HM var hann sendur heim.
GÆTU FarIÐ aLLa LEIÐ
howard Webb - england
Aldur: 38 ára
Á FIFA-lista síðan 2005
Þennan mann þekkja Íslendingar vel úr
ensku úrvalsdeildinni. Uppgangur Howards
Webb hefur verið hraður undanfarin ár og
er hann talinn einn albesti dómari heims.
Mistök línuvarðar hans urðu til þess að
þeir urðu sendir heim af EM 2008 en nú er
annað uppi á teningnum. Webb dæmdi
úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrsta
skiptið í maí og svo gæti auðveldlega farið
að hann dæmi úrslitaleikinn ár, sérstaklega
þar sem England er farið heim. Sérstaklega
eru yfirmenn dómaramála hrifnir af fyrsta
aðstoðardómara hans sem er talinn sá besti
í heimi í dag.
ravshan irmatov - Úsbekistan
Aldur: 32 ára
Á FIFA-lista síðan 2003
Það kom mikið á óvart þegar þessi ungi Úsbeki dæmdi opnunarleikinn á mótinu. Hann hefur dæmt
þrjá leiki til þessa, alla fullkomlega, og er að sanna sig sem einn allra besti dómari heims. Hann dæmdi
úrslitaleik heimsmeistaramóts félagsliða fyrir tveimur árum og hefur verið valinn besti dómari Asíu tvö
undanfarin ár. Verði miðað eingöngu við frammistöðu á mótinu á Irmatov meira en góðan möguleika
á að fá úrslitaleikinn. Hann hefur þó aldurinn á móti sér því afar sjaldgæft er að svo ungur maður dæmi
úrslitaleik HM. Hann var til dæmist yngsti maðurinn til að dæma opnunarleikinn síðan 1934.
héctor Baldassi - argentína
Aldur: 44 ára
Á FIFA-lista síðan 2000
Baldassi hefur verið einn allra besti dómarinn á mótinu
og varla stigið feilspor. Hann er margreyndur og alveg að
komast á aldur í dómgæslunni en þetta verður hans síð-
asta heimsmeistarakeppni. Það eina sem gæti verið í vegi
hans er að Argentínumaður dæmdi síðasta úrslitaleik á
HM. Auðvitað ætti það ekki að skipta máli en eins og með
staðsetningar á mótinu sjálfu verðu að skipta verkefnum
sanngjarnt á milli manna. Baldassi á úrslitaleikinn þó svo
sannarlega skilið miðað við frammistöðuna til þessa.
frank de Bleeckere - Belgía
Aldur: 44 ára
Á FIFA-lista síðan 1998
Belginn Frank De Bleeckere hefur verið besti
dómarinn á mótinu til þessa og átti mikinn mögu-
leika á úrslitaleiknum. Hann er þó líklega kominn
aftast í röðina af fjórmenningunum sem taldir
eru hér upp eftir flautukonsertinn í leik Japan og
Paragvæ í 16 liða úrslitum. Þar stöðvaði hann leik-
inn allt of mikið en síðan er bara spurning hvort
dómaranefndin túlki þetta sem „einn af þessum
leikjum“ eða hvort hann hefði getað gert betur.
Bleeckere hefur verið fastagestur í stórleikjum
Meistaradeildarinnar og er ásamt Webb eina von
Evrópu í dómaramálum á HM.