Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Síða 25
FÖSTUDAGUR 16. júlí 2010 FRÉTTIR 25
Indland tekur upp
merki fyrir rúpíu
Indversk stjórnvöld hafa tek-
ið í notkun sérstakt merki fyrir
gjaldmið-
il landsins,
indversku
rúpíuna. Rú-
pían er að-
eins fimmti
gjaldmið-
ill heims
sem tákn-
að er með
myndrænu
merki, en
allir þekkja
merkin sem notuð eru fyrir banda-
ríkjadalinn, breska pundið, evruna
og japanska jenið. Indverjar segja
að upptaka merkisins sé táknræn
fyrir aukinn efnahagsmátt landsins í
heiminum.
Samkeppni var haldin um merk-
ið nýja og bárust Seðlabanka Ind-
lands þrjú þúsund tillögur. Eftir að
valnefnd, sem seðlabankastjórinn,
listamenn og hönnuðir skipuðu,
voru fimm merki tilnefnd. Sigurveg-
arinn var meistaraprófsneminn D.
Udaya Kumar, sem fékk um 600 þús-
und íslenskar krónur fyrir.
Lenti í klóm CIA
Shahram Amiri, íranski vísinda-
maðurinn, sem stjórnvöld í Íran
saka bandarísku leyniþjónustuna
um að hafa rænt, var ákaft fagnað
þegar hann kom heim til Tehran
á fimmtudaginn. Amiri segir að
bandarískir leyniþjónustumenn hafi
klófest hann þegar hann var staddur
í pílagrímsferð í Sádi-Arabíu. „Þeir
sprautuðu mig með svefnlyfjum og
fluttu mig til Bandaríkjanna með
herflugvél. Ég var beittur líkamlegu
og andlegu ofbeldi í yfirheyrslum hjá
CIA,“ segir hann. Bandarísk stjórn-
völd vísa þessu á bug.
Argentína leyfir
hjónabönd sam-
kynhneigðra
Argentína varð á fimmtudag fyrsta
land Suður-Ameríku til að leyfa
hjónabönd samkynhneigðra. Efri
deild argentínska þingsins sam-
þykkti það á fimmtudag. 33 atkvæði
studdu lagabreytinguna, 27 voru á
móti og þrír nýttu ekki atkvæðisrétt
sinn. Cristina Fernández de Kirc-
hner forseti var stödd í opinberri
heimsókn í Kína en sagði í fjölmiðl-
um að lagabreytingin hefði „jákvæð
áhrif á baráttuna fyrir réttlæti minni-
hlutahópa“. Málið olli deilum í Arg-
entínu og söfnuðust stuðningsmenn
andstæðra fylkinga saman fyrir utan
þinghúsið í Buenos Aires.
Púertóríkanski söngvarinn Ricky
Martin fagnaði lagabreytingunni.
„Þetta er stórkostlegt skref hjá stór-
kostlegri þjóð. Takk Argentína fyrir
að vera fordómalaust og upplýst
land. Til hamingju,“ segir söngvar-
inn ástsæli.
Ríki Suður-Ameríku hafa á síðustu
árum sýnt aukinn samstarfsvilja og
stofnuðu Samband Suður-Amer-
íkuþjóða (UNASUR) árið 2008 sem
er vísir að efnahags- og stjórnmála-
bandalagi í ætt við Evrópusamband-
ið.
Stofnsáttmáli UNASUR var undir-
ritaður í maí árið 2008 í Brasilíuborg,
höfuðborg Brasilíu. Samkvæmt hon-
um verða höfuðstöðvar sambands-
ins í Quito í Ekvador, Suður-Amer-
íkuþingið verður í Cochabamba í
Bólivíu og seðlabanki sambandsins
Banki suðursins, verður í Caracas í
Venesúela.
Stofnun ríkjabandalagsins kem-
ur í kjölfar vinstribylgju sem hófst í
Suður-Ameríku upp úr aldamótum.
Hægriflokkar hafa víðast hvar misst
völdin vegna þeirra efnahagslegu
og félagslegu vandamála sem stefna
nýfrjálshyggjunnar þykir hafa vald-
ið í álfunni og forsetar vinstra meg-
in í stjórnmálalífinu víðast hvar verið
þjóðkjörnir í staðinn.
Þessir þjóðhöfðingjar eru ólík-
ir sín á milli, en hafa þá sameigin-
legu stefnu að vilja minnka forræði
Bandaríkjanna, draga úr alþjóða-
væðingu og mikilvægi alþjóðastofn-
ana á borð við AGS í löndum sínum
til þess að öðlast efnahagslegt sjálf-
stæði og stuðla að félagslegri velferð
á meðal þegnanna.
Bandalag tólf landa
Bandalagið ber nafnið Samband
Suður-Ameríkuþjóða og ber opin-
berlega þann titil á fjórum tungu-
málum, spænsku, portúgölsku, hol-
lensku og ensku.
Aðildarlöndin eru tólf: Argent-
ína, Bólivía, Chile, Ekvador, Kólumb-
ía, Paragvæ, Perú, Úrúgvæ, Venes-
úela (opinbert tungumál spænska),
Brasilía (opinbert tungumál portú-
galska), Súrínam (hollenska) og
Gvæana (enska). Eina land álfunnar
sem stendur utan sambandsins er
Franska-Gvæana, sem er meðlimur
í Evrópusambandinu, en ríkið hef-
ur enn ekki öðlast sjálfstæði frá ný-
lenduherrum sínum Frökkum.
Samtals telja íbúar innan vé-
banda sambandsins um 387 millj-
ónir manna. Landflæmið er gífurlegt
og um fjórfalt stærra en það sem Evr-
ópusambandið hefur yfir að ráða.
Verður að veruleika 2019
Sambandið er, sem áður segir, byggt
á líkani Evrópusambandsins, en er
enn í mótun og á byrjunarstigi. Þjóð-
höfðingjarnir sem skrifuðu und-
ir stofnsáttmálann lýstu því yfir að
þeir vildu stofna samband í líkingu
við ESB með sameiginlegum gjald-
miðli, þingi og vegabréfaeftirliti, svo
eitthvað sé nefnt. Rætt hefur verið
um að fullskapað ríkjabandalag, sem
samsvarar ESB, gæti orðið að veru-
leika árið 2019.
Afnema tolla og stofna banka
Helstu markmið sambandsins eru
að skapa opið markaðssvæði. Tollar
verða afnumdir kerfisbundið til árs-
ins 2014.
Forsetar stofnlandanna sjö (Arg-
entínu, Bólivíu, Brasilíu, Ekva dor,
Paragvæ, Venesúela og Úrúgvæ)
stofnuðu sameiginlegan banka árið
2007. Honum verður breytt í stóra
bankastofnun sem mun fjárfesta í
þróunarverkefnum í álfunni og lána
fé til landa. Bankanum er ætlað að
stuðla að jöfnuði í Suður-Ameríku.
Í framtíðinni á bankinn að verða
seðlabanki fyrir nýjan sameiginlegan
gjaldmiðil landanna.
Í framtíðinni eiga allir íbúar Suð-
ur-Ameríku að geta ferðast og flust á
milli landanna án vandkvæða.
Samningar hafa ekki tekist um að
taka höndum saman í varnarmálum.
Brasilía og Venesúela hafa lagt til að
sambandið stofni hernaðarbandalag
í ætt við NATO. Kólumbía var á móti
því í fyrstu en síðan hafa þjóðirnar
skipað rannsóknarnefndir til að at-
huga málið.
Að lokum má nefna sáttmála
þjóðanna um byggingu hraðbrauta í
álfunni sem á í framtíðinni að tengja
öll lönd álfunnar saman.
Samband Suður-Ameríkuþjóða er nýstofnað ríkjabandalag allra landa álfunnar. Það
er hannað með Evrópusambandið í huga. Höfuðstöðvar sambandsins verða í Quito,
höfuðborg Ekvador. Löndin vilja með sambandinu öðlast efnahagslegt sjálfstæði og
stuðla að félagslegri velferð á meðal þegnanna.
SUÐUR-AMERÍKA SAMEINAST
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Gaman að vera saman Suður-amerískirþjóðarleiðtogarviðundirritunstofnsáttmálans.
Stofnuðu banka Hérsjástvaldamestumenn
Suður-Ameríkuþegarundirritaðirvorusamningar
umsameiginleganbankaálfunnar.
Aðalritari NestorKirchner,fyrrverandi
forsetiArgentínu,eraðalritariSambands
Suður-Ameríkuþjóða.
Samtals telja íbúar innan vébanda sambandsins um 387 milljónir manna.
Franska-
Gvæana
Úrúgvæ
Argentína
Brasilía
Perú
Ekvador
Chile
Venesúela Gvæana
Súrínam
Bólivía
Paragvæ
n Aðildarríki
n Evrópusambandið