Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Blaðsíða 38
106 ÁRA Á FIMMTUDAG
38 ÆTTFRÆÐI UMSJÓN: KJARTAN GUNNAR KJARTANSSON kjartan@dv.is 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Ívar Daníelsson
FYRRV. LYFSALI Í REYKJAVÍK
Ívar fæddist í Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi í MR 1939, var í lyfja-
verknámi í Lyfjabúðinni Iðunni
1939-42, lauk Exam.pharm. námi
í Lyfjafræðingaskóla Íslands 1942,
var í lyfjafræðinámi í Philadelp-
hia College of Pharmacy and Sci-
ence 1942-44, lauk doktorsprófi í
lyfjaefnafræði í Purdue University
í Lafayette í Indiana í Bandaríkjun-
um 1947 og stundaði framhalds-
nám í Bandaríkjunum á vegum
Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar
(WHO) um 7 mánaða skeið, 1956-
57. Ívar var aðalkennari í Lyfja-
fræðingaskóla Íslands 1948-57,
eftirlitsmaður lyfjabúða 1948-68,
dósent í lyfjafræði lyfsala við HÍ
frá 1957 og stofnandi og fyrsti lyf-
sali Borgarapóteks í Reykjavík frá
1968-95.
Ívar var ráðunautur Trygginga-
stofnunar ríkisins um lyfsölumál
1948-50 og í lyfjanefnd Trygginga-
stofnunarinnar 1951-68. Hann
var varamaður fyrir Íslands hönd
í norrænu lyfjaskrárnefndinni
1959-68 og í lyfjaskrárnefnd Ís-
lands frá stofnun hennar 1963-68.
Ívar var formaður efnaverk-
fræðideildar Verkfræðingafélags
Íslands 1968-69, sat í stjórn Ap-
ótekarafélags Íslands 1968-69 og
1970-73, var formaður þess 1975-
76 og sat í stjórn Apótekarafélags
Reykjavíkur 1969-74.
Fjölskylda
Ívar kvæntist 7.8. 1948 Þorbjörgu
Bjarnar Tryggvadóttur, f. 25.9.
1922, d. 14.11. 2007, húsmóður.
Foreldrar Þorbjargar voru Tryggvi
Þórhallsson forsætisráðherra og
k.h., Anna Klemenzdóttir hús-
móðir. Ívar og Þorbjörg skildu.
Börn þeirra: Tryggvi, f. 13.1.
1949, d. 24.6. 1979, lyfjafræð-
ingur; Guðrún Ína, f. 31.3. 1950,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
í Reykjavík, gift Kristni Valdimars-
syni skólastjóra og eiga þau þrjár
dætur; Anna Guðrún, f. 26.8. 1959,
hagfræðingur og bankamaður.
Ívar kvæntist 12.9. 1972 ann-
arri konu sinni, Natalie Joy Kamm
Wolf, f. 30.1.1924, húsmóður. For-
eldrar Natalie: Rudolph Kamm, öl-
gerðareigandi, og k.h., Josephine,
f. Schaffer. Ívar og Natalie skildu.
Ívar kvæntist 10.11. 1979 þriðju
konu sinni, Kristínu Árnadóttur,
f. 12.12. 1939, húsmóður. Foreldr-
ar Kristínar: Árni Þórarinsson, b.
á Ormarsstöðum í Fellum, og k.h.,
Sólveig Eiríka Sigfúsdóttir. Ívar og
Kristín skildu. Kjörforeldrar Ívars:
Daníel Halldórsson, f. 17.10. 1891,
d. 3.7. 1940, kaupmaður í Reykja-
vík, og k.h., Guðrún Ágústa Guð-
laugsdóttir, f. 5.6. 1892, d. 12.1.
1948, húsmóðir.
Foreldrar Ívars: Guðmundur
Eiríksson, kaupmaður í Reykjavík,
og k.h., Leopoldine Halldórsdóttir,
systir Daníels, kjörföður Ívars.
Ætt
Guðmundur var bróðir Sigríðar,
hjúkrunarkonu og formanns Fé-
lags íslenskra hjúkrunarkvenna
um árabil, móður Vigdísar Finn-
bogadóttur. Guðmundur var son-
ur Eiríks, trésmiðs í Reykjavík,
bróður Einars, b. í Miðdal, föður
Guðmundar frá Miðdal myndlist-
armanns, föður Errós, Ara Trausta
jarðfræðings og Egils arkitekts.
Dóttir Einars var Sigríður, móð-
ir Jónínu Margrétar Guðnadótt-
ur sagnfræðings og Bergs Guðna-
sonar lögfræðings, föður Guðna,
fyrrv. knattspyrnumanns. Önnur
dóttir Einars var Karólina, móðir
Hlédísar Guðmundsdóttur læknis.
Þriðja dóttir Einars var Inga, móð-
ir Þuríðar Sigurðardóttur söng-
konu. Systir Eiríks var Guðbjörg,
móðir Gríms Norðdahls á Úlfars-
felli, og Haraldar Norðdahls, föð-
ur Skúla Norðdahls arkitekts. Ei-
ríkur var sonur Guðmundar, b. í
Miðdal, bróður Margrétar, lang-
ömmu Ólafs Kr. Magnússonar
ljósmyndara, og Gunnars, föður
Magnúsar forstjóra. Guðmund-
ur var sonur Einars, b. á Álfsstöð-
um á Skeiðum, bróður Guðmund-
ar ríka, b. í Miðdal og Haukadal,
föður Jóns, ættföður Setbergsætt-
ar. Einar var sonur Gísla, b. á Álfs-
stöðum Helgasonar, bróður Ing-
veldar, móður Ófeigs Vigfússonar
ríka á Fjalli. Móðir Guðmundar í
Miðdal var Margrét Hafliðadótt-
ir. Móðir Eiríks Guðmundsson-
ar, Vigdís, var systir Helgu, lang-
ömmu Jóns Eiríkssonar, oddvita
í Vorsabæ á Skeiðum. Vigdís var
dóttir Eiríks, b. í Vorsabæ Hafliða-
sonar, bróður Elínar, langömmu
Gunnars Guðmannssonar, fyrrv.
forstjóra Laugardalshallarinnar,
Sigurgeirs Guðmannssonar, fyrrv.
framkvæmdastjóra ÍBR, og Krist-
bjargar, móður Sigurðar Sigur-
jónssonar leikara. Elín var einn-
ig langamma Gunnlaugs, föður
Jóns Steinars hæstaréttardómara.
Þá var Elín langamma Ísleifs Jóns-
sonar verkfræðings og amma Óla-
far, ömmu Guðrúnar Helgadóttur
rithöfundar. Elín var einnig móð-
ir Hafliða, afa Sigurliða Kristjáns-
sonar kaupmanns. Önnur syst-
ir Eiríks í Vorsabæ var Ingveldur,
amma Gísla Gunnarssonar, fyrrv.
pr. í Glaumbæ, og langamma Vil-
hjálms, föður Manfreðs Vilhjálms-
sonar arkitekts. Bróðir Eiríks var
Þorsteinn, langafi Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur söngstjóra.
Móðir Guðmundar kaupmanns
var Vilborg, systir Guðna á Keld-
um, langafa Björns Vignis Sigurp-
álssonar, fyrrv. blaðamanns. Vil-
borg var dóttir Guðna, b. á Keldum
í Mosfellssveit, bróður Þorvarð-
ar, langafa Margrétar Sigurðar-
dóttur, móður Bjargar Sveinsdótt-
ur myndlistarmanns. Guðni var
sonur Guðna, b. í Saurbæ í Ölfusi,
bróður Sigríðar, langömmu Hall-
dórs Laxness og Guðna Jónsson-
ar prófessors, föður prófessoranna
Bjarna og Jóns. Guðni var sonur
Gísla, b. í Reykjakoti í Ölfusi, bróð-
ur Guðmundar, afa Ólafs, afa Þór-
halls Vilmundarsonar prófessors
og langafa Ólafs Ólafssonar, fyrrv.
landlæknis og listfræðinganna
Gunnars Kvarans og Ólafs Kvar-
ans.
Annar bróðir Gísla var Jón,
langafi Konráðs, langafa Júlíusar
Hafstein sendiherra. Systir Gísla
var Ingveldur, langamma Valgerð-
ar, ömmu Guðmundar H. Garð-
arssonar, fyrrv. alþm., og Vals Vals-
sonar
bankastjóra. Gísli var sonur
Guðna, ættföður Reykjakotsættar
Jónssonar.
Leopoldine var dóttir Hall-
dórs, hæstaréttardómara í Rvík,
Daníelssonar, prófasts á Hólm-
um í Reyðarfirði Halldórsson-
ar, prófasts á Melstað Ámunda-
sonar, smiðs og málara í
Syðra-Langholti Jónssonar. Móðir
Halldórs Daníelssonar var Jakob-
ína Magnúsdóttir Thorarensens,
b. á Stóra-Eyrarlandi Stefáns-
sonar, amtmanns á Möðruvöll-
um Þórarinssonar, sýslumanns á
Möðruvöllum Jónssonar, ættföður
Thorarensensættar.
Móðir Leopoldine var Anna
Halldórsdóttir, yfirkennara Frið-
rikssonar, yfirkennara í Reykja-
vík Halldórssonar, bróður Ólínu,
langömmu Snæbjarnar Jónasson-
ar, fyrrv. vegamálastjóra. Halldór
var sonur Friðriks, verslunarstjóra
á Eyri í Skutulsfirði Eyjólfsson-
ar, pr. á Eyri Kolbeinssonar, pr. og
skálds í Miðdal Þorsteinssonar.
Móðir Halldórs var Sigríður Ól-
afsdóttir, b. á Stakkanesi, bróður
Hjalta Thorbergs, ættföður Thor-
bergsættar, afa Bergs Thorbergs
landshöfðingja. Ólafur var sonur
Þorbergs pr. á Eyri Einarssonar,
föður Guðrúnar, móður Marret-
he Hölter, ættmóður Knudsenætt-
ar. Móðir Þorbergs var Guðrún
Hjaltadóttir, prófasts og málara í
Vatnsfirði Þorsteinssonar.
90 ÁRA Á SUNNUDAG
Margrét fæddist á Núpsstað í Vest-
ur-Skaftafellssýslu og ólst þar upp.
Fjölskylda
Margrét giftist 20.9. 1930 Samú-
el Kristjánssyni, f. 8.10. 1899, d.
1965, sjómanni. Hann var sonur
Kristjáns Péturssonar, sjómanns í
Grunnavík og á Ísafirði, og Stefan-
íu Stefánsdóttur húsfreyju.
Börn Margrétar og Samúels:
Hanna Þ. Samúelsdóttir, f. 22.3.
1932, d. 21.4. 2010, húsmóðir, var
búsett í Borgarnesi, var gift Hauki
Gíslasyni sem einnig er látinn
en hún átti fjögur börn með fyrri
manni sínum, Hreggviði Guðgeirs-
syni; Jón Valur Samúelsson, f. 21.8.
1933, búsettur í Kópavogi, kvænt-
ur Lovísu Gunnarsdóttur og eiga
þau þrjá syni; Elsa Samúelsdóttir,
f. 23.11. 1935, búsett í Garðabæ og
á hún þrjú börn með fyrrv. manni
sínum, Hreini Árnasyni; Auður
Helga Samúelsdóttir, f. 20.12. 1941,
d. 15.1. 1993, var búsett í Hafn-
arfirði, var gift Sverri Lúthers og
eignuðust þau sex börn; Margrét
Samúelsdóttir, f. 11.3. 1944, búsett
í Kópavogi, gift Sveini Sveinleifs-
syni og eignuðust þau þrjá syni en
tveir þeirra eru á lífi.
Systkini Margrétar: Dagbjört
Hannesdóttir, f. 29.10. 1905, nú lát-
in, var búsett á Bíldudal; Eyjólfur
Hannesson, f. 21.6. 1907, nú látinn,
var búsettur á Núpsstað; Filippus
Hannesson, f. 2.12. 1909, nú látinn,
var búsettur á Núpsstað; Margrét
Hannesdóttir, f. 23.12. 1910, nú lát-
in, var búsett á Keldunúpi á Síðu
og síðan á Kirkjubæjarklaustri; Jón
Hannesson, f. 14.11. 1913, búsettur
í Svíþjóð; Málfríður Hannesdóttir,
f. 17.12. 1914, nú látin, var búsett
í Reykjavík; Sigrún Hannesdóttir,
f. 7.1. 1920, d. 1.6. 1982, var búsett
á Húsavík; Jóna A. Hannesdóttir, f.
30.3. 1923, búsett í Reykjavík; Ág-
ústa Þ. Hannesdóttir, f. 4.8. 1930,
búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Margrétar voru
Hannes Jónsson, f. 13.1. 1880, d.
29.8. 1968, bóndi og landpóstur á
Núpsstað í Vestur-Skaftafellssýslu,
og k.h., Þóranna Þórarinsdóttir, f.
14.5. 1886, d. 8.9. 1972, húsfreyja.
Ætt
Hannes var sonur Jóns Jónsson-
ar, b. á Núpsstað og Valgerður
Einarsdóttir. Hálfsystir Hannesar,
samfeðra, var Ásta, amma Davíðs
Oddssonar Morgunblaðsritstjóra.
Þóranna var dóttir Þórarins
Ólafssonar, sem drukknaði í sjó-
mennsku frá Eyrarbakka.
Margrét Hannesdóttir
HÚSMÓÐIR Í REYKJAVÍK
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Jón fæddist á Hvammstanga en
ólst upp á Böðvarshólum í Vest-
ur-Hópi. Hann var í Vestur-Hóps-
skóla og síðan í Laugabakkaskóla,
stundaði nám við Iðnskólann í
Reykjavík og VMA en stundar nú
nám við Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra.
Jón ólst upp við öll almenn
sveitastörf á Böðvarshólum og hef-
ur stundað ýmis sumarstörf á veg-
um Hvammstangabæjar.
Jón hefur sinnt ýmiss konar
sjálfboðavinnu á vegum Seeds Ice-
land.
Fjölskylda
Hálfsystkini Jóns, sammæðra, eru
Þorbjörg Helga Konráðsdóttir, f.
9.2. 1983, húsmóðir á Akureyri; Ing-
veldur Ása Konráðsdóttir, f. 22.3.
1985, háskólanemi, búsett að Böðv-
arshólum; Daníel Óli Konráðsson,
f. 26.3. 1990, framhaldsskólanemi,
búsettur á Böðvarshólum.
Foreldrar Jóns eru Jón Heiðar
Magnússon, f. 4.10. 1956, verka-
maður á Selfossi, og Jónína Ragna
Sigurbjörnsdóttir, f. 2.12. 1959,
bóndi og húsfreyja að Böðvarshól-
um.
Stjúpfaðir Jóns er Konráð Pét-
ur Jónsson, f. 8.10. 1958, bóndi að
Böðvarshólum.
Jón Frímann Jónsson
RITHÖFUNDUR Á HVAMMSTANGA
30 ÁRA Á FÖSTUDAG
Arnar fæddist í Hannover í Þýska-
landi en ólst upp í Reykjavik. Hann
var í Foldaskóla, lauk stúdents-
prófi frá MS 2000, stundaði nám
við Flugskóla Íslands, lauk þaðan
einkaflugmannsprófi og síðan at-
vinnuflugmannsprófi áríð 2001.
Þá stundar hann nú nám í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands.
Arnar starfaði í Álverinu í
Straumsvík með námi, var flugum-
sjónarmaður hjá Bláflugi 2004 en
hóf störf sem flugmaður hjá Ice-
landairj 2005 og hefur starfað þar
síðan.
Fjölskylda
Kona Arnars er Ingibjörg Sigurðar-
dóttir, f. 3.6. 1981, lyfjafræðingur.
Dætur Arnars og Ingibjargar
eru Anna Sigríður Arnarsdóttir, f.
25.11. 2003; Helena Björk Arnars-
dóttir, f. 25.11. 2003; Rakel Vilma
Arnarsdóttir, f. 6.7. 2008.
Systir Arnars er Vala Ragna Ing-
ólfsdóttir, f. 27.11. 1977, arkitekt.
Foreldrar Arnars eru Ingólfur
Hrafnkell Ingólfsson, f. 8.1. 1950,
fjármálaráðgjafi í Reykjavík, og
Bardel Schmid, f. 29.11. 1951, fé-
lagsráðgjafi í Reykjavík.
Arnar Benjamín
Ingólfsson
FLUGMAÐUR Í REYKJAVÍK