Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Page 46
NAFN OG ALDUR?
„Jón Örn Loðmfjörð, 26 ára.“
ATVINNA?
„Góð hugmynd.“
HJÚSKAPARSTAÐA?
„Nei.“
FJÖLDI BARNA?
„Engin.“
HEFUR ÞÚ ÁTT GÆLUDÝR?
„Já, já, ég átti kött. Móðir mín heldur því enn fram
að hann hafi fengið gott heimili í einhverri sveit
sem ég þekki ekki.“
HVAÐA TÓNLEIKA FÓRST ÞÚ Á SÍÐAST?
„Veit það ekki. Ég rambaði inn á einhvern bar um
daginn og hrópaði „Spilið eitthvað íslenskt!“ og
gekk út aftur.“
HEFUR ÞÚ KOMIST Í KAST VIÐ LÖGIN?
„Á gamals aldri var ég handtekinn fyrir að standa
á milli lögreglumanns og ungs manns sem kastaði
klósettpappír inná borgarráðsfund. Ég kynntist
sálfræðitaktík íslensku lögreglunnar þar sem henni
tókst að fá mig til að játa aðild að þessum hryðju-
verk. Ég sver þó í dag að ég er saklaus, þennan klós-
ettpapír hafði ég aldrei séð áður.“
HVER ER UPPÁHALDSFLÍKIN ÞÍN OG AF HVERJU?
„Búrkan mín. Hún minnir mig á uppruna minn.“
HEFUR ÞÚ FARIÐ Í MEGRUN?
„Er alltaf í megrun – misáhrifamikilli þó.“
HEFUR ÞÚ TEKIÐ ÞÁTT Í SKIPULÖGÐUM MÓTMÆL-
UM?
„Mér skilst á öllum að ég sé frekar óskipulagður, svo
líklega ekki.“
TRÚIR ÞÚ Á FRAMHALDSLÍF?
„Mér finnst það alveg frekar spennandi konsept að
minnsta kosti. En nei, samt ekki.“
NÝLEGT PRAKKARASTRIK?
„Ég braust nýlega inn á Facebook-síðu blaðamanns
og lét hann lofa bókina mína.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLINGI LÍKIST ÞÚ MEST?
„Mér hefur alltaf verið líkt við Davíð Oddsson og
Jesú. Ég held það sé ekki ósanngjarn samanburður.“
ERTU MEÐ EINHVERJA LEYNDA HÆFILEIKA?
„Ég á það til að birtast á forsíðum dagblaða án þess
að hafa komið nálægt atburðinum. Stundum held
ég að ljósmyndarar og blaðamenn hafi messíasar-
komplexa fyrir mína hönd.“
Á AÐ LEYFA ÖNNUR VÍMUEFNI EN ÁFENGI?
„Á að halda partíunum gangandi?“
HVER ER UPPÁHALDSSTAÐURINN ÞINN?
„Lítill bar með einu borði og einum útikamar ein-
hvers staðar í Bytom í Póllandi.“
HVAÐA LAG SKAMMAST ÞÚ ÞÍN MEST FYRIR AÐ
HAFA HALDIÐ UPP Á?
„Íslenska þjóðsönginn þegar ég var í skátunum.
Það er tímabil sem ég ræði ekki.“
HVAÐA LAG KVEIKIR Í ÞÉR?
„Eitthvað sem kemur mér á óvart. Aftur og aftur.
Mismunandi hvað það er.“
TIL HVERS HLAKKAR ÞÚ NÚNA?
„Að geta kannski einn daginn sagt sannleikann -
stoltur.“
HVAÐA MYND GETUR ÞÚ HORFT Á AFTUR OG AFT-
UR?
„Ég get ekki horft á kvikmyndir. Ég verð órólegur
eða sofna.“
HEFUR ÞÚ LÁTIÐ SPÁ FYRIR ÞÉR?
„Reglulega í kaffibolla af frænkum mínum. Einu
sinni af Þórhalli miðli, hann sagði mér að stóra ást-
in væri nær en mig grunaði. Ég gekk út skelkaður
og hef ekki þorað að nálgast þann mann aftur.“
SPILAR ÞÚ Á HLJÓÐFÆRI?
„Já, já. En ég kann ekkert.“
VILTU AÐ ÍSLAND GANGI Í EVRÓPUSAMBANDIÐ?
„Alveg sama. Ég er hvorki þjóðernissinni né hald-
inn einhverjum rómantískum hugmyndum um
Evrópu.“
HVAÐ ER MIKILVÆGAST Í LÍFINU?
„Náttúruauðlindir, hagvöxtur og velferð.“
HVAÐA ÍSLENSKA RÁÐAMANN MYNDIR ÞÚ VILJA
HELLA FULLAN OG FARA Á TRÚNÓ MEÐ?
„Ég er til í að tala við alla. Ég er meira „picky“ á
hverja ég fer í sleik við.“
HVAÐA FRÆGA EINSTAKLING MYNDIR ÞÚ HELST
VILJA HITTA OG AF HVERJU?
„Steinar Braga. Ég heillast af brosinu hans.“
HVAÐ ER ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ GERIR ÁÐUR EN ÞÚ
FERÐ AÐ SOFA?
„Ég hef vanið mig á að sofna útfrá því sem ég er að
gera hverju sinni. Svo það getur verið hvað sem er.
Verst þykir mér þó að sofna þegar ég er að reykja.
Ég vakna svo skelkaður daginn eftir og svo ánægður
með að vera á lífi.“
HVER ER LEIÐ ÍSLANDS ÚT ÚR KREPPUNNI?
„Meiri umræða, fleiri spurningar í þessum dúr og
Latibær.“
Jón Örn Loðmfjörð sendi nýverið frá sér ljóðabókina
Gengismunur sem byggð er á skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis. Hann kynntist sálfræðitaktík lögreglunnar þegar
hann játaði saklaus aðild að klósettpappírskasti og hræðist
mest að sofna reykjandi.
GEKK ÚT AF
MIÐILSFUNDI
46 HIN HLIÐIN 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
OXYTARM
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Allir dásama OXYTARM
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
DETOX
30days&
Betri apótekin og Maður lifandi www.sologheilsa.is.
Losnið við hættulega kviðfitu og
komið maganum í lag með því að
nota náttúrulyfin Oxytarm og
30 days saman -120 töflu skammtur -
KOMDU Í ÁSKRIFT!
512 70 00
dv.is/askrift