Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Síða 52
52 SPORT UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON tomas@dv.is 16. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
„Ekki svo slæmt hjá ökumanni
númer tvö,“ sagði Ástralinn Mark
Webber kaldhæðinn í talstöðina
þegar liðstjóri Red Bull, Christi-
an Horner, óskaði honum til ham-
ingju með að hafa unnið á Silver-
stone. Webber vann ekki bara
Silverstone-kappaksturinn um
síðustu helgi, hann rústaði hon-
um. Hann hóf leik annar á ráslínu
á eftir liðsfélaga sínum, Sebasti-
an Vettel, sem var með framvæng
undir bílnum sem Webber átti
að vera með. Við litla hrifningu
Ástralans var ný gerð framvængs
sem hann átti að vera með sett-
ur undir bíl Vettels því hann hafði
skemmt sinn í tímatökum. Webber
var mjög ósáttur með hvernig var
komið fram við hann en nú hafa
málin verið leyst hjá liðinu.
Forystusauðurinn hefur
forgang
Fyrir keppnina í Bretlandi síðasta
sunnudag var Sebastian Vettel í
öðru sæti í stigakeppni ökumanna
og Webber í því fjórða. „Auðvit-
að skil ég að lið sem er í barátt-
unni um sigur á öllum vígstöðvum
verði á einhverjum tímapunkti að
hugsa betur um þann ökumann
sem er ofar í stigakeppninni þeg-
ar það er bara til nóg af hlutum til
að þjóna einum bíl. Þetta var út-
skýrt fyrir okkur í verksmiðjunni í
vikunni þar sem við hreinsuðum
loftið. Það er nú alveg klárt mál að
sá ökumaður sem er með fleiri stig
fær forgang komi þessi óvenjulega
staða upp aftur,“ segir Webber sem
var þó ekki svona rólegur um síð-
ustu helgi.
„Málin voru ekki útskýrð fyrir
okkur fyrr en svo seint á laugar-
dagskvöldinu. Þess vegna tók ég
pirringinn minn með mér inn í
keppnina því ég, eins og allir aðrir
ökumenn á brautinni, vildi vinna
kappaksturinn. Sebastian fékk
framvænginn og þannig er það
bara,“ segir hann.
Engin fýla
Ástralinn geðþekki hefur gert það
öllum ljóst að þetta leiðindaatvik
hefur ekki skaðað samband hans
við liðstjóra Red Bull, Christian
Horner, né liðsfélaga sinn, Sebasti-
an Vettel. Allir eru þeir ákveðnir
í að standa sig vel um aðra helgi
þegar Þýskalands-kappaksturinn
fer fram en Red Bull-menn þurfa
nauðsynlega góð úrslit til að koma
sér nær McLaren-mönnum.
„Ég og Christian Horner höfum
þekkt hvorn annan í mörg ár. Við
erum vinir og á milli okkar ríkir
gagnkvæm virðing. Það samband
helst alveg sama hvað við segj-
um og gerum á keppnisdegi. Við
gerum mikið saman, við skoðum
til dæmis mikið GP3-liðið okkar
og reynum að finna þar unga og
efnilega ökumenn. Red Bull hefur
framleitt handa okkur frábæran bíl
og gert það á tiltölulega skömmum
tíma,“ segir Webber.
„Það eru meira en fimm hundr-
uð mann sem vinna í Red Bull-
verksmiðjunni í Milton Keynes og
ég veit að hver einn og einasti af
þeim tekur hæðir og lægðir okkar
Sebastians inn á sig yfir allt tíma-
bilið. Stuðningurinn sem við tveir
fáum er ótrúlegur og eftir sigurinn
minn síðast hélt Christian veglegt
partí til að þakka öllum fyrir vinn-
una þar sem tímabilið er nú hálfn-
að,“ segir Webber sem mærir liðs-
félaga sinn, Sebastian Vettel.
„Ég veit að ég er með frábæran
ökumann sem liðsfélaga og þannig
vil ég hafa það. Við deilum upplýs-
ingum á milli okkar og hjálpumst
að til að verða betri. Ég og Vettel
erum ekki óvinir, við erum bara
tveir ökumenn sem ætla sér sigur
og reynum að gera það sem er best
fyrir okkur og liðið. Það er afskap-
lega einfalt mál,“ segir Mark Webb-
er.
Allt varð vitlaust í herbúðum Red Bull-liðsins í Formúlu 1 um síðustu helgi vegna framvængs. Einn slíkur
var tekinn undan bíl Marks Webber og settur undir bíl Sebastians Vettel við litla hrifningu þess fyrrnefnda.
Webber vann keppnina á Silverstone og lét menn heyra það en nú hafa málin verið útkljáð.
FRAMVÆNGS-
DEILUNNI LOKIÐ
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
STIGAKEPPNI ÖKUMANNA
ÖKUMAÐUR STIG
1. Lewis Hamilton, McLaren 145
2. Jenson Button, McLaren 133
3. Mark Webber, Red Bull 128
4. Sebastian Vettel, Red Bull 121
5. Fernando Alonso, Ferrari 96
6. Nico Rosberg, Mercedes 89
7. Robert Kubica, Renault 83
8. Felipe Massa, Ferrari 67
9. M. Schumacher, Mercedes 36
10. Adrian Sutil, Force India 35
STIGAKEPPNI BÍLASMIÐA
LIÐ STIG
1. McLaren 278
2. Red Bull 249
3. Ferrari 163
4. Mercedes 125
5. Renault 89
6. Force India 47
7. Williams 31
8. Sauber 16
9. Toro Rosso 12
10. Hispania 0
11. Lotus 0
12. Virgin 0
STAÐAN
Snilld Webber var annar á ráslínu en tók
fram úr Vettel í fyrstu beygju og stakk svo af.
Númer eitt Sebastian Vettel lætur fólk vita að hann var fremstur á ráspól.
Sáttur og sæll Webber
var heldur betur kátur
með að landa sigri á
Silver stone eftir allt
ruglið með framvæng-
inn.