Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Qupperneq 53
FÖSTUDAGUR 16. júlí 2010 SPORT 53
Bandaríkjaferðir
knattspyrnustjarna
Franski landsliðsmaðurinn Thierry Henry samdi í vikunni við bandaríska MLS-liðið New York Red Bulls.
Henry er þó ekki fyrsta stjarnan sem ákveður að reyna fyrir sér í Ameríkunni eins og sést hér.
WALTER
ZENGA
ÍTALÍU
Tímabil í MLS: 2 (1997 - 1999). Leikir: 47 (0 mörk).
Lið: New England Revolution.
n Einn allra besti markvörður sögunnar, Ítalinn
Walter Zenga, fór 39 ára gamall í tvö ár í MLS-
deildina. Hann lék með New England Revolution
og tók svo við liðinu sem þjálfari eftir að ferlinum
lauk. Koma Zenga var mikill hvalreki fyrir deildina
en hann átti magnað met frá HM á Ítalíu árið 1990
þar sem hann hélt hreinu í 518 mínútur. Met sem
Svisslendingar slógu í Suður-Afríku.
LOTHAR
MATTHÄUS
ÞÝSKALANDI
Tímabil í MLS: 1 (2000). Leikir: 16 (0 mörk).
Lið: New York/New Jersey MetroStars.
n Það verður seint sagt að Matthäus hafi átt sín
bestu ár í MLS-deildinni en koma þessa fyrrum
besta leikmanns heims gerði mikið fyrir deildina.
Matthäus lék aðeins 16 leiki með New York/New
Jersey MetroStars sem heitir New York Red Bulls í
dag, einmitt liðið sem Thierry Henry var að semja
við. Leikirnir 16 sem Matthäus lék í MLS-deildinni
voru hans síðustu á ferlinum enda var hann 39 ára
þegar hann samdi við liðið.
ROBERTO
DONADONI
ÍTALÍU
Tímabil í MLS: 1 (1996 - 1997). Leikir: 49 (6 mörk).
Lið: New York/New Jersey MetroStars.
n Ítalinn Roberto Donadoni fór tiltölulega
snemma til Bandaríkjanna eða aðeins 33 ára
gamall. Fyrir hafði hann verið lykilmaður í einu
sigursælasta liði sögunnar, AC Milan, á árunum
1986-1996. Donadoni gerði ágæta hluti í New York
en fór eftir eitt tímabil aftur heim til Mílanó. Hann
endaði síðan ferilinn hjá Al-Ittihad í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Hann var nýlega rekinn
sem þjálfari Napoli.
DENILSON
BRASILÍU
Tímabil í MLS: 1 (2007). Leikir: 11 (2 mörk).
Lið: FC Dallas.
n Aðeins 21 árs gamall var Denilson orðinn dýrasti
leikmaður heims þegar Real Betis keypti hann á
metfé. Eins og allir knattspyrnuunnendur vita varð
ekkert úr þessu mikla efni sem hefur reikað um á
milli liða síðustu árin. Hann lék ellefu leiki með FC
Dallas í MLS-deildinni og skoraði tvö mörk. Helst
verður hans þó minnst í Dallas sem Brassans sem
aldrei gaf boltann.
CARLOS
VALDERRAMA
KÓLUMBÍU
Tímabil í MLS: 6 (1996 - 2002). Leikir: 175 (14
mörk). Lið: Tampa Bay Mutiny, Miami Fusion og
Colorado Rapids.
n Kólumbíumaðurinn hárprúði var mættur 35 ára
gamall í MLS-deildina og stóð sig afar vel. Hann
lék með þremur liðum í deildinni og skilaði fínu
starfi hjá þeim öllum. Hann hljóp aldrei á vellinum
þegar hann var kominn til Bandaríkjanna enda
orðinn gamall og lúinn. Hann kunni þó fótbolta
og dældi lúxussendingum á félaga sína út um
allan völl. Hann á einmitt ennþá metið yfir flestar
stoðsendingar í deildinni.
YOURI
DJORKAEFF
FRAKKLANDI
Tímabil í MLS: 2 (2005 - 2006). Leikir: 45 (12
mörk). Lið: New York/New Jersey MetroStars.
n „Snákurinn“ eins og Djorkaeff var ávallt kallaður
endaði eins og margar aðrar stjörnur feril sinn í
New York en Metrostars voru ávallt duglegir við að
landa stórum nöfnum eins og sést á þessum lista.
Djorkaeff var ein af þeim tilraunum sem heppn-
aðist. Hann lék 45 leiki fyrir félagið á tveimur
árum og skoraði í þeim tólf mörk. Djorkaeff fékk
MVP-verðlaunin hjá liðinu fyrir síðara árið sitt áður
en meiðsli neyddu hann til að hætta.
HRISTO
STOICHKOV
BÚLGARÍU
Tímabil í MLS: 3 (2000 - 2003). Leikir: 72 (22
mörk). Lið: Chicago Fire og DC United.
n Búlgarinn magnaði endaði feril sinn í Bandaríkj-
unum, nánar til tekið í Chicago og Washington.
Hann er auðvitað einn af þeim bestu sem spilað
hefur leikinn og leiddi Búlgaríu meðal annars til
fjórða sætis á HM í Bandaríkjunum árið 1994. Sto-
ichkov gerði fína hluti í MLS-deildinni og verður
aldrei sakaður um að hafa ekki klárað verkefni sín
af heilum hug. Í seinni tíð hefur Stoichkov meðal
annars þjálfað búlgarska landsliðið.
DAVID
BECKHAM
ENGLANDI
Tímabil í MLS: 3 (2007 - ?). Leikir: 41 (7 mörk).
Lið: Los Angeles Galaxy.
n Nýjasta og án efa skærasta ofurstjarnan sem
fengin var í MLS-deildina er auðvitað sjálfur David
Beckham. Einn síns liðs tókst honum að rífa upp
áhuga á fótbolta í Bandaríkjunum en þó kannski
ekki jafnmikið og hann vildi sjálfur. Hann hefur
síðustu tvö árin verið lánaður til AC Milan sem
hefur fallið í grýttan jarðveg hjá stuðningsmönn-
um Galaxy.