Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Side 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Side 19
Borgartúni 37 Kaupangi, Akureyri www.netverslun.is ThinkPad Edge 15,6” AMD liPur og yfirvEguð Tilboðsverð 159.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 lenovo g555 MEirA fyrir PEninginn Tilboðsverð 129.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 Kíktu á úrvalið á netverslun.is NINJADAGUR NÝHERJA Laugardaginn 14. ágúst frá klukkan 11-15 Þú gætir unnið glæsilega T hinkPad X100e fartölvu frá Nýherja Bláu Ninjurnar verða á staðnum Borgartúni 37 Kaupangi, Akureyri www.netverslun.is ThinkPad Edge 15,6” AMD liPur og yfirvEguð Tilboðsverð 159.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 lenovo g555 MEirA fyrir PEninginn Tilboðsverð 129.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 Kíktu á úrvalið á netverslun.is NINJADAGUR NÝHERJA Laugardaginn 14. ágúst frá klukkan 11-15 Þú gætir unnið glæsilega T hinkPad X100e fartölvu frá Nýherja Bláu Ni jurnar verða á staðnum Borgartúni 37 Kaupangi, Akureyri www.netverslun.is ThinkPad Edge 15,6” AMD liPur og yfirvEguð Tilboðsverð 159.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 lenovo g555 MEirA fyrir PEninginn Tilboðsverð 129.900 kr.. 15,6" 15,6" skjár 320GB 3 Kíktu á úrvalið á netverslun.is NINJADAGUR NÝHERJA Laugardaginn 14. ágúst frá klukkan 11-15 Þú gætir unnið glæsilega T hinkPad X100e fartölvu frá Nýherja Bláu Ninjurnar verða á staðnum föstudagur 20. ágúst 2010 fréttir 19 „Söknuður minn Er Svo mikill“ Handtekinn vegna ástar á unnustunni n Karlmaður á þrítugsaldri var í haldi lögreglunnar aðfaranótt þriðju- dags vegna gruns um að hann tengdist morðinu á Hannesi Þór. Hinn grunaði, sem var æskuvinur unnustu Hannesar, varð landsfrægur í fyrra og vakti mikla athygli í fjölmiðlum þegar ástarjátningar hans til konu birtust á YouTube. Stúlkan sem ástarjátning hans beindist að mun hafa verið unnusta hins myrta. Grunsemdir lögreglu sneru að því að um ástríðuglæp hefði verið að ræða. Daginn eftir var viðkomandi sleppt og ákveðið að krefjast ekki gæsluvarðhalds yfir honum. „Það var full ástæða til að handtaka hann og rannsaka málið betur. Gögn gáfu alveg tilefni til þess og þess vegna var það gert,“ sagði Friðrik Smári Björgvinsson yfirlögregluþjónn í samtali við DV. Spurður um rannsókn á hugsanlegri aðild mannsins við málið segir hann einfaldlega: „Ég gef ekkert upp um það.“ „engan veginn tengdur“ n Á þriðjudagskvöld var annar karlmaður á þrítugsaldri kallað- ur til yfirheyrslu hjá lögreglu en viðkomandi einstaklingur hafði einnig tengsl við unnustu Hann- esar. Í kjölfarið ákvað lögregla að halda honum næturlangt vegna grunsemda um aðild að morðinu og að það væri þá ástríðuglæpur. Í samtali við DV staðfestir við- komandi, sem ekki vill láta nafns síns getið, að vera í hópi grunaðra vegna tengsla sinna við unnustu Hannesar. Hann staðfestir að hafa eitt sinn verið í sambandi með henni. „Það er mjög langt síðan. Ég er engan veginn tengdur þessu morði. Ég átti að tengjast þessu máli og er einn grunaðra. Ég var yfir- heyrður og gisti hjá lögreglunni. Nú eru þeir að sleppa mér og ég er að bíða eftir skónum mínum,“ sagði hinn grunaði, sem er af erlendu bergi brotinn, þegar DV náði tali af honum er verið var að sleppa hon- um um hádegisbil á miðvikudag. gríðarlegur söknuður n „Hannes var traustasti vinur sem nokkurn tímann er hægt að hugsa sér. Í mínum huga var hann einstaklingur sem hefði ekki átt svona lagað skilið. Ég sakna gríðarlega góðs vinar,“ segir Óðinn Rafnsson, æskuvinur Hannesar Þórs. Óðinn segist einfaldlega ekki skilja örlög æskuvinar síns. „Hann vildi gera allt fyrir alla sem voru í kringum hann. Hann var algjör ljúflingur og toppstrákur í alla staði. Það var aldrei nema gott eitt sem frá honum kom. Ég skil ekki svona því þetta er svo hrottalegt. Þetta kom gríðarlega flatt upp á mig enda höfum við verið vinir nánast frá fæðingu. Ég er mjög reiður að svona geti átt sér stað, hér á Íslandi og í svona litlu þjóðfélagi. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir alla. Ég er bara orð- laus yfir þessu og veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga.“ Hláturmilt ljúfmenni n Í samtali við Pressuna sagði Eyþór Eðvarðsson, náinn vinur Hann- esar, það vera óskiljanlegt að einhver hafi viljað vinna Hannesi vini hans mein. Að hans sögn töluðu þeir vinirnir saman kvöldið fyrir morðið. „Að fá fregnir af slíkum hörmungaratburði sem þessum er reynsla sem ég óska engum. Þær tilfinningar sem maður upplifir eru ólýsanlegar. Hvernig kaldrifjaður morðingi getur í skjóli nætur veist svona að slíkum dreng sem Hannes var, er algjörlega óskiljanlegt,“ segir Eyþór. „Hann var ljúfmenni, vildi öllum vel, hjálpsamur og sanngjarn. Hannes fór ekki í manngreinarálit. Fyrir honum voru allir jafnir. Hann var hláturmildur og fór í gegnum hlutina með jafnaðargeði og æðru- leysi. Hannes heitinn var kominn af mjög samheldinni fjölskyldu og greinilegt að hann ólst upp við ástríki og tileinkaði sér traust gagnvart náunganum. Mér er fyrirmunað að skilja hvernig fjölskyldu hans líður nú og hvernig hún mun komast í gegnum þessa raun,“ segir Eyþór. Kristín Helgadóttir las upp yfirlýsingu systkina Hannesar Þórs í kvöldfréttum Stöðvar 2. n „Ég vil byrja á því að þakka íslensku þjóðinni fyrir hönd fjöl- skyldunar fyrir allan þann samhug sem hún hefur sýn okkur við andlát bróðurs okkar Hannesar. En í skjóli þessara hörmulegra atburða viljum við biðja þjóðina um að um að hjálpa okkur að leysa þetta mál. Öll þau smáatriði sem einhver kann að vita um, alveg sama hve smávægileg sem þau eru, að biðja um að hafa samband við lögreglu strax. Ég bið þjóðina um allt það sem þau kunna að vita til að leysa þetta hörmulega mál og enn og aftur vil ég þakka þann samhug sem við höfum fundið fyrir í hjörtum okkar við fráfall Hannesar. Takk fyrir.“ biðja þjóðina um aðstoð mynd Stöð 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.