Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Qupperneq 44
NafN og aldur?
„Íris Stefanía Skúladóttir a.k.a. IRIS the VIRUS. 24
ára.“
atviNNa?
„Leikhúseigandi og frílansari.“
Hjúskaparstaða?
„Næstum gift... svo gott sem allavega.“
fjöldi barNa?
„Eitt stk“
Hefur þú átt gæludýr?
„Já. Skjaldbakan mín, Darwin, er nýdáin 34 ára göm-
ul.“
Hvaða tóNleika fórst þú á síðast?
„Ég fór á tónleika með norsku hljómsveitinni
Mc.knekk á mest „retro“-stað Björgvinjar“
Hefur þú komist í kast við lögiN?
„Kannski... vil samt ekki gefa það upp því það er
mögulega enn verið að leita að mér.“
Hver er uppáHaldsflíkiN þíN og af Hverju?
„Sebrahestspelsinn minn sem fyrrverandi eiginmaður
minn gaf mér í 5 ára brúðkaupsgjöf.“
Hefur þú farið í megruN?
„Ég er alltaf í megrun... en í minni megrun má samt
borða hamborgara og nammi og mikið af ís.“
Hefur þú tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Já.“
trúir þú á framHaldslíf?
„Nei, en ég trúi á framhaldsmyndir.“
Hvaða lag skammast þú þíN mest fyrir að Hafa
Haldið upp á?
„Eitthvað glatað lag með Creed.“
Hvaða lag kveikir í þér?
„Shawty Wanna Thug.“
til Hvers Hlakkar þú NúNa?
„Að sýna aukasýningar á MARIO BROS.“
Hvaða myNd getur þú Horft á aftur og aftur?
(afHverju?)
„Eternal sunshine of the spotless mind af því að mað-
ur er alltaf að fatta eitthvað nýtt í henni.“
afrek vikuNNar?
„Frumsýna MARIO BROS án áfalla.“
Hefur þú látið spá fyrir þér?
„Held ekki... eða jú, í bolla einu sinni.“
spilar þú á Hljóðfæri?
„Já, ég spila á nánast öll hljóðfæri.“
viltu að íslaNd gaNgi í evrópusambaNdið?
„Vil og vil ekki... það hefur sína kosti og galla...
nenni ekki alveg að fara útí það hér.“
Hvað er mikilvægast í lífiNu?
„Að lifa í sátt og samlyndi við fjölskyldu, vini og
náttúru.“
Hvaða ísleNska ráðamaNN muNdir þú vilja
Hella fullaN og fara á trúNó með?
„Vá! Þetta er einum of góð spurning...þarf að hugsa
mig aðeins um.“
Hvaða fræga eiNstakliNg myNdir þú Helst
vilja Hitta og af Hverju?
„Heath Ledger þegar hann var enn á lífi. Af því að
hann er fyrsta ástin mín. Þegar ég sá hann fyrst í 10
things I hate about you var ekki aftur snúið og hann
hefur verið hluti af lífi mínu síðan þá.“
Hefur þú ort ljóð?
„Já, nokkur og unnið verðlaun meira að segja.“
Nýlegt prakkarastrik?
„Ég er of góð fyrir prakkarastrik. Það eina sem ég
geri er að vera frekar leiðinleg við fólk í kringum
mig og uppnefna dóttur mína.“
Hvaða fræga eiNstakliNg líkist þú mest?
„Samuel L. Jackson.“
ertu með eiNHverja leyNda Hæfileika?
„Ég hef ekki verið dugleg við að leyna hæfileikum
mínum. Ég er of athyglissjúk fyrir það.“
á að leyfa öNNur vímuefNi eN áfeNgi?
„Nei takk.“
Hver er uppáHaldsstaðuriNN þiNN?
„Rúmið mitt og leikhúsið Norðurpóllinn.“
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður eN þú
ferð að sofa?
„Vil eiginlega ekki segja það.“
Hver er leið íslaNds út úr kreppuNNi?
„Að hugsa eins og fólk sem á ekkert. Bjarga sér
með því sem maður hefur og gera gott úr því sem
við eigum núna. Við á Norðurpólnum, til dæm-
is, byggðum upp heilt leikhús fyrir sama og engan
pening en fullt af ástríðu og erum núna, eftir dálítið
mikið púl, með glæsilegt leikhús í fullri notkun...
maður þarf ekki alltaf að hafa rándýr glerlistaverk
í andyrinu til að meika það. Mjög sniðugt líka að
eyða ekki pening sem maður á ekki... það er mitt
mottó.“
Íris Stefanía Skúladóttir leikstýrir sýningunni Mario Bros,
sem sýnd hefur verið á sviðslistahátíðinni artFart. Íris er
mögulega á flótta undan lögreglunni, er í frjálslegri megrun
og svo gott sem gift.
taliN líkjast
samuel l. jacksoN
44 hin hliðin 20. ágúst 2010 föstudagur
m
yn
d
ir
r
ó
b
er
t
re
yn
iS
So
n
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
TVÆR KONUR
2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR
Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur.
Hentar öllum, stöðvar sykurinn
áður en hann verður að fitu.
STÖÐVIÐ SYKUR
OG KOLVETNI
NÝJUNG! BRENNIÐ FITU
30 Days
120 töflur ásamt
samnefndu
kremi vinnur á
appelsínuhúð.
30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm
(60 eða 150)töflur gegn kviðfitu
gefur 35% meiri virkni.
Valin
heils
uvara
ársin
s
2008
&
B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s
LAGERSALA
www.xena.is
Mikið af
fínum skóm í
leikfiminano1 - st. 28-35 verð kr. 3995.-
no2 - st. 41-47 verð kr. 7995.-
no3 - st. 36-41 verð kr. 7495.-
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16