Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Blaðsíða 54
Fýlupúkarnirsem fóru í verkfall
54 sport umsjón: sigurður mikael jónsson mikael@dv.is 20. ágúst 2010 föstudagur
FRÍTT Í STRÆTÓ Á
MENNINGARNÓTT
Fleiri ferðir og aukin þjónusta.
Nánari upplýsingar á strætó.is
Reykjavíkurborg býður
strætó.is
Í ljósi nýlegra tíðinda þess efnis að bæði Charles
N‘Zogbia, leikmaður Wigan athletic, og Hatem
Ben Arfa, leikmaður frakklandsmeistara Mars-
eille, hafi ákveðið að fara í verkfall til að þvinga
fram félagsskipti ákvað dV að taka saman fræg
dæmi um aðra fýlupúka sem talið hafa grasið
grænna hinum megin við girðinguna og beitt
þvingunum til að komast þangað.
Pascal Chimbonda Var fenginn fyrir lítinn pening til
Wigan árið 2005 og sló strax í gegn. aðeins hálfu ári síðar bauð Wigan
honum nýjan fjögurra ára samning sem hann þáði vissulega með þökkum.
Nokkrum mínútum eftir lokaleik liðsins á tímabilinu fór hann fram á að vera
seldur frá félaginu. Það sauð á Paul Jewell, stjóra liðsins, sem var reiðubú-
inn að láta Chimbonda rotna í varaliðinu út samningstímann. tottenham
bauð þó að lokum 4,5 milljónir punda í frakkann sem varð að ósk sinni og
fékk að fara.
Darren Bent Það var alltaf
vitað að Bent yrði seldur frá tottenham
í fyrra eftir að liðið hafði greitt morð
fjár fyrir hann og fengið lítið frá honum
í staðinn. Harry redknapp sagði eigin-
konu sína geta gert betur en Bent fyrir
framan markið. Bent ákvað þó að hjálpa
stjórnendum liðsins með söluna og ákvað
að fara á twitter: „Hættu þessu kjaftæði
Levy. Vil ég fara til Hull? NEI. Vil ég fara
til stoke? NEI. Vil ég fara til sunderland?
JÁ!“ Bent varð að ósk sinni og blómstraði.
Robinho Brasilíumaðurinn varð hundfúll þegar það spurðist út að real Madrid ætlaði sér
að nota hann sem skiptimynt upp í Cristiano ronaldo fyrir tveimur árum. Hann hélt sinn eigin blaða-
mannafund á meðan real lék upphafsleik tímabilsins 2008/2009 þar sem hann sagðist bara vilja fara til
Chelsea. Þegar Chelsea birti ótímabæra mynd af robinho með Chelsea-treyju reiddust yfirmenn real
og ákváðu að selja hann á síðustu stundu til Manchester City. Þar vill robinho heldur ekki vera.
Joleon Lescott
Breyttist úr meðal mnni
neðri deildar í landsliðs-
mann hjá Englandi á tíma
sínum hjá Everton. Orðspor
hans jókst og milljarðalið
Manchester City vildi fá
hann. david Moyes hafði
engan áhuga á að selja hann
og sagði Lescott ekki vera
að fara eitt eða neitt. Lescott
var ekki alveg sammála. Eft-
ir að Everton hafnaði tilboði
City fór Lescott á fjóra fundi
með Moyes þar sem hann
krafðist þess að fá að fara.
Loks gerði hann óskir sínar
opinberar. Hann fékk á sig
sex mörk í lokaleiknum
sínum og var seldur til City
á 24 milljónir punda í fyrra.