Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Blaðsíða 23
föstudagur 20. ágúst 2010 viðtal 23
inn við Hamrahlíð. Í fjórða sæti var
frumgreinadeild Keilis, á undan
Verzlunarskólanum. Það er gaman að
geta gefið fólki annað tækifæri. Þetta
er eins og ég segi að vandinn liggur í
framhaldsskólunum. Þeir sinna ekki
þörfum fólks. Enn er til dæmis litið
niður á verktengt nám.“
Veikburða ríkisstjórn
Runólfur er jafnaðarmaður. Hann er
ekki sérlega sáttur við fyrstu ríkisstjórn
vinsti- og jafnaðarmanna á lýðveld-
istímanum. „Ríkisstjórnin hefur vald-
ið skelfilegum vonbrigðum. Í fysta lagi
er hún ekki starfhæf. Ástandið hjá VG
er slíkt að flokkurinn getur ekki stjórn-
að alveg burtséð frá stefnu hans. Rík-
isstjórn sem hefur ekki skýran meiri-
hluta á bak við sig er ekki stjórn sem
getur stýrt landinu við núverandi að-
stæður. Það eina sem heldur lífinu í
henni er hversu vesæl stjórnarand-
staðan er.
Að öðru leyti er þessi ríkisstjórn
ekki góð. Við þurfum framkvæmda-
stjórn. Við þurfum stjórn eins og stjórn
Roosevelts, í heimskreppunni á fjórða
áratugnum, sem beitti sér fyrir New
Deal – stefnu til að sporna gegn at-
vinnuleysi, endurheimta starfskraft
fyrirtækja og vinna að umbótum á fjár-
málakerfinu til að koma í veg fyrir við-
líka kreppur aftur. Við þurfum stjórn
sem kemur hlutunum í verk. Mér eru
Suðurnes enn hugleikin síðan ég vann
að uppbyggingunni á Keflavíkurflug-
velli. Atvinnuleysið er mest á Suður-
nesjum. Í Sandgerði hefur það farið
upp fyrir 20 prósent. Þarna eru þús-
undir í atvinnuleit og ástandið hörmu-
legt. Þarna eru allar hugmyndir um at-
vinnuuppbyggingu settar í bið. Nefna
má álver í Helguvík sem markvisst er
unnið gegn. Gagnaver tefst vegna þess
að óæskilegir menn eru í eigenda-
hópnum. Á Keflavíkurvelli stendur
tómur spítali sem Róbert Wessman og
fleiri vildu nýta, einnig ónotaðar skurð-
stofur á sjúkrahúsinu í Reykjanesbæ.
Slíkt er bannað af ótta við einkarekst-
ur á heilbrigðissviði. Þjónusta við flug-
vélar var verkefni sem kom til greina.
Það var ekki hægt af því að vopnlaus-
ar flugvélar, sem átti að þjóna, gátu
mögulega borið vopn. Þessi verkefni
hefðu leyst allan atvinnuleysisvanda
á Suðurnesjum. Allt er þetta stoppað
af Vinstri-grænum sem virðast leggja
Suðurnesjamenn í einelti. Ég er ekki
að segja að alls staðar eigi að virkja, en
þessi umræða er komin í öngstræti og
verkar eins og dauð hönd á samfélag-
ið.“
Facebook-lýðræði
Runólfur telur sig jafnaðarmann og er
í Samfylkingunni. „Þar er heldur ekki
allt eins og best verður á kosið. Þar
vantar skýra forystu, framkvæmda-
stjórn. Það eru til stjórnmálamenn
sem hafa skoðanir og sýn og fylkja
fólki að baki sér um þessa sýn. Svo eru
hinir sem hlaupa allaf eftir skoðana-
könnunum og almenningsálitinu. Þeir
iðka Facebook- eða Gallup lýðræði. Því
miður eru allt of margir í þessum síðar-
nefnda hópi, bæði meðal stjórnarliða
en ekki síður í stjórnar andstöðunni.
Það eru döpur örlög þessarar þjóðar á
ögurstundu að stjórnmálakerfið skuli
bregðast. Það er það sem er að gerast.
Þess utan er stjórnkerfið eða
stjórnarráðið þungt í vöfum. Mennta-
málaráðuneytið til dæmis er erfitt til
samstarfs. Tökum dæmi. Það að at-
vinnuleysistryggingarsjóður greiði
skólunum fyrir að taka atvinnuleit-
endur í nám er hugmynd sem ég hélt
að allir myndu taka fagnandi. En nei,
því er tekið sem einhverjum Blair-
isma þar sem þá sé farið að greiða með
hverjum nemanda inn í skólana. Ég
hef áhyggjur af skólakerfinu við þessar
aðstæður í höndum VG. Núna þurfum
við sköpun, framtak og sveigjanleika.
Við þurfum að koma sem flestum at-
vinnuleitendum inn í skólana með
einhverjum hætti. Þetta er mikilvæg-
asta samfélagslega verkefni okkar
tíma. Svo höfum við þjóðrembing til
hægri og vinstri. Menn snúast gegn
erlendum fjárfestingum á tímum þeg-
ar þjóðin finnur sárar en nokkru sinni
til þess hversu gagnlegt væri að fá er-
lendar fjárfestingar inn í landið. Aldrei
undanfarna áratugi hefur verið tekið
jafn illa móti erlendu fjármagni,“ segir
Runólfur að endingu. johannh@dv.is
opnast aðrar
Þegar einar dyr lokast
Sú skemmdar-verkastarfsemi
sem hinn vinstrigræni
menntamálaráðherra
virðist ætla að fara í
þar er þjóðhagslega
stórhættuleg.
Bardagamaður „Það kom mér á
óvart þennan hálfa dag sem ég var inni á
skrifstofunni (Ráðgjafarstofu heimilanna), að
frétta að þarna inni voru allir munir að láni frá
bönkunum.“mynd sigtryggur ari