Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Blaðsíða 36
36 viðtal 20. ágúst 2010 föstudagur
Þetta var óhugnanlegt og ég er þakk-lát lækninum að hafa túlkað einkenn-in rétt,“ segir Íris Björk Árnadóttir feg-urðardrottning sem hefur búið ásamt
fjölskyldu sinni í Danmörku síðustu tvö árin.
Fjölskyldan ætlaði að dvelja í tvö ár í viðbót úti
en ákvað að koma heim eftir að öll fjölskyldan
hafði veikst vegna hættulegs myglusvepps sem
fannst í íbúðinni sem þau leigðu. „Við skild-
um ekki af hverju við vorum alltaf veik og vor-
um inn og út af sjúkrahúsi. Við erum núna öll
að jafna okkur en þetta bitnaði mest á þeim
minnsta. Hann var veikur fyrir en hann fæddist
fyrir tímann með vanþroskað ónæmiskerfi og
þoldi þetta því mun verr en við hin. Sjálf var ég
lögð þrisvar inn á sjúkrahús með það svæsnar
sýkingar að ég þurfti sýklalyf í æð. Þegar upp
komst um sveppinn ákváðum við að drífa okk-
ur heim enda ætluðum við okkur alltaf að snúa
aftur. Þetta átti bara að vera nokkurra ára upp-
lifun,“ segir Íris en eiginmaður hennar, Kristján
Jón Jónatansson, kláraði nám í viðskiptafræði í
Danmörku og ætlar í mastersnám hér heima,
en sjálf fór Íris í sjúkraliðanám og stefnir á að
halda því áfram hér á landi.
AlltAf með beinverki og hitA
Íris Björk og Kristján fá gömlu íbúðina sína í
Grafarvoginum á sunnudaginn en fjölskyldan
hefur þangað til búið inni á foreldrum Írisar.
„Við finnum þvílíkan mun á heilsu okkar síð-
an við komum heim til Íslands. Nú getum við
vakað lengur og erum mun orkumeiri,“ seg-
ir Íris en myglusveppurinn hafði breitt úr sér
á háalofti íbúðarinnar í Danmörku. „Þetta var
ekki gömlu íbúð, bara fimm ára, og við höfðum
verið að anda þessari gró að okkur og vorum
öll komin með astma. Sem betur fer vorum við
bara að leigja þessa íbúð og drifum strax í að
segja leigunni upp og koma okkur heim. Svona
sýkingar eru svo miklar orkusugur, það var ekk-
ert sérstakt að vera alltaf með beinverki og hita.
Eftir á að hyggja tók maður eftir rakalyktinni
þarna inni enda var ekkert eðlilegt að heil fjöl-
skylda yrði svona veik.“
mikil sorg
Íris og Kristján Jón gengu í það heilaga í sum-
ar en þau hafa verið saman í níu ár. „Við höfð-
um stefnt á þetta lengi og ætluðum alltaf að
gifta okkur árið 2007 en þá var ég allt í einu
komin fjóra mánuði á leið svo stóra deginum
var frestað. Í vor tókum við ákvörðun og vorum
ekki lengi að plana og skipuleggja, ekki miðað
við marga. Við höfum upplifað mikla sorg upp
á síðkastið því við misstum fimm manns úr
fjölskyldunni á fimm mánuðum og vildum við
hafa eitthvað jákvætt að stefna að og þrátt fyrir
lítinn tíma heppnaðist þetta ótrúlega vel,“ seg-
ir hún og bætir við að hún hafi meðal annars
misst ömmu sína sem var ein af hennar bestu
vinkonum. „Við vorum að vinna í sorginni á
sama tíma og veikindunum og stundum áttaði
ég mig varla á hvort væri hvað, sorg eða vanlíð-
an vegna veikinda.“
kjóll frá kínA
Íris hafði ákveðnar hugmyndir varðandi brúð-
arkjólinn. Hún hafði ekki áhuga á að leigja sér
kjól en notaði leigurnar til að máta og skoða.
„Svo kom í ljós að svona einfaldur kjóll eins og
mig hafði langað í klæddi mig engan veginn og
ég var miklu meiri gella í alvöru rjómabollu-
kjól. Ég fann mér heildsala í Kína og sendi hon-
um málin og beið svo með öndina í hálsinum
eftir kjólnum sem kom til mín þann 22. júní,
en stóri dagurinn var 10. júlí svo þetta var orðið
tæpt. Ég hafði samt valið mér annan kjól í Dan-
mörku til vara ef þetta myndi klikka en leist
mun betur á þann frá Kína,“ segir Íris og bætir
við að kjóllinn hafi smellpassað eftir að tengda-
mamma hennar lagaði hann að mjöðmum
hennar. „Þetta er alveg einstakur kjóll og þótt
ég segi sjálf frá alveg klikkaður,“ segir hún hlæj-
andi og bætir við að margar konur hafi forvitn-
ast um kjólinn og athugað hvort hann væri fal-
ur. „Ég var allavega ótrúlega ánægð með hann
en nú er spurningin hvað ég á að gera við hann.
Selja eða eiga. Dæturnar hafa sýnt áhuga á að
fá að vera í honum svo maður veit ekki.“
PAbbi veislustjóri
Íris og Kristján Jón eiga saman þrjú börn, Katr-
ínu Emblu, 7 ára, Birtu Maríu Huld, sem verður
sex ára í desember og Árna Dag, sem er nýorð-
inn þriggja ára. „Við erum rík, það má sko alveg
segja það. Þau tóku öll þátt í athöfninni. Stelp-
urnar voru algjörar prinsessur og Árni Dagur
í flottum jakkafötum og gengu öll þrjú á und-
an mér inn í kirkjuna,“ segir Íris en athöfnin
fór fram í Bessastaðakirkju. „Það var grenjandi
rigning þennan dag og myndatakan átti að fara
fram úti við kirkjuna en við vorum rennandi
og runnum til í drullunni. Karlinn er náttúru-
lega viðskiptafræðingur og var fljótur að sjá
það jákvæða við það, enda á rigning á brúð-
kaupsdaginn að tákna hamingju og peninga.
Við enduðum á því að fara í Hellisgerði, bæjar-
garð í Hafnarfirði, þar sem við gátum tyllt okk-
ur undir tré í von um að skýla okkur,“ segir hún
og bætir við að dagurinn hafi verið yndislegur.
„Þessi dagur varð alveg magnaður og það var
pabbi minn sem sá um veislustjórnina en hann
er einn besti vinur okkar Kristjáns. Þeir hafa
unnið mikið saman og hafa spilað saman golf
og körfu í sjö ár. Mörgum fannst undarlegt að
láta pabba í þetta hlutverk en hann stóð sig al-
veg frábærlega svo fólk veltist um af hlátri. Páll
Óskar sá svo um að trylla lýðinn í veislunni en
það var „surprise“ frá eiginmanninum. Hon-
um tókst að halda því leyndu frá mér en mér
hafði verið sagt að Palli hefði verið uppbók-
aður. Mágur minn, sem er þekktur dj, hélt svo
áfram fram á nótt.“
ólýsAnlegA ástfAngin
Nýgiftu hjónin eyddu nóttinni í turninum á
Grand hóteli Reykjavík. „Við höfðum leigt íbúð
því við höfðum í svo mörgu að stússast fyr-
ir brúðkaupið og þangað
kom svo nánasta fjölskylda
og fylgdist með okkur opna
pakkana. Síðan lá leiðin
til Danmerkur til að halda
áfram að pakka niður fyrir
flutningana en við ætlum
að eiga brúðkaupsferðina
inni,“ segir hún og bætir við
að líklega fari þau tvö í helg-
ar- eða vikuferð fyrir jól.
„Annars vorum við í viku
í dekri á Súðavík en Kristj-
án er þaðan og tengda-
mömmu finnst ekki leiðin-
legt að baka og elda ofan í
okkur,“ segir hún brosandi.
Aðspurð segist Íris taka
hjónabandinu alvarlega.
„Þetta er ákveðið sport. Við
erum búin að vera lengi
saman og sú tilfinning að
vera enn jafn ástfangin
og jafnvel enn ástfangnari
af þessum manni, það er
varla hægt að lýsa henni.
Við þekkjum hvort ann-
að svo vel. Það versta við
þetta allt var hvað dagurinn var fljótur að líða
eftir allt þetta plan og eftirvæntingu,“ segir hún
hlæjandi og bætir við að bónorðið hafi komið
í sólarlandaferð á Spáni fyrir sjö árum. „Ég hef
verið að skjóta reglulega á hann síðan að nú
væri ég komin með þrjú börn en væri enn ógift.
Þarna, árið 2003, settum við upp hringana en í
febrúar 2007 bað hann mín aftur en við tölum
um að við höfum verið trúlofuð frá árinu 2003.“
ÚtgjAldAárið miklA
Íris segir frekari barneignir ekki í bígerð en að
það sé aldrei að vita. „Ég er bara 29 ára og því
er nægur tími. Kannski eftir fimm ár. Maður vill
helst að þessi kríli geti notið alls hins besta. Við
erum ennþá ung en ég er sátt við stöðuna eins
og hún er í dag og væri það áfram þótt við eign-
uðumst ekki fleiri börn. Maður þarf að hafa
tíma og eiga peninga til að eignast börn en ef
það væri ekki vandamál væri ég eflaust til í að
drita niður börnum enda hef ég alltaf ver-
ið mikil barnagæla,“ segir hún og bætir við að
hún eigi eflaust eftir að sakna Danmerkur þeg-
ar kemur að málefnum fjölskyldunnar. „Þar
snýst allt um fjölskylduna og vinnudagurinn
ekki nema til tvö, þrjú og ekki þetta lífsgæða-
kapphlaup og stress eins og hér,“ segir hún en
bætir við að á Íslandi sé fjölskyldan og sér í lagi
ömmur og afar sem börnin séu mjög hænd að.
„Auðvitað er smá mál að flytja aftur inn til
foreldranna en sem betur fer eiga þau stórt hús
því við erum stór fjölskylda. Þetta er mikið fjör
en það verður gott að komast í sína eigin íbúð,
sérstaklega eftir þessa erfiðu reynslu þarna
úti. Við ætluðum að fara stækka við okkur en
þetta ár er nú þegar orðið ansi gott útgjaldaár,
með flutningum og brúðkaupi, svo það verð-
ur seinna. Það verður gott að komast í gamla
hverfið okkar þar sem krakkarnir þekkja vini
sína aftur.“ indiana@dv.is
íris björk árnadóttir
fegurðardrottning og
fjölskylda hennar urðu
að flýja leiguíbúð í
Danmörku eftir að hafa
veikst vegna hættulegs
myglusvepps. Íris og
kristján jón eiginmaður
hennar eru flutt til Ís-
lands en þau gengu í það
heilaga í sumar.
Enn ástfangnari
í dag en áður
falleg fjölskylda Börnin þrjú, Katrín Embla, Birta María Huld og Árni Dagur tóku virkan þátt í athöfninni.
íris björk Segir óhugnanlegt þegar öll fjöl-
skyldan hafi veikst aftur og aftur. Sem betur
fer hafi læknir túlkað einkennin rétt og sagt
þeim að líta eftir myglusveppum í íbúðinni.
myndir guðmundur Örn árnAson, fÖrðun elín reynis