Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Blaðsíða 14
14 fréttir 20. ágúst 2010 föstudagur
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
Nýr forstjóri Orkuveitunnar fór fyrir fjárfestingarsjóði Magma, sem hafði það meðal annars á dagskrá sinni
að „skoða fjárfestingar í erlendum orkutæknifyrirtækjum“. Faðir stjórnarformanns Orkuveitunnar sat í
ráðgjafaráði Magma á sama tíma.
ÚR ORKUÚTRÁS
Í ORKUVEITUNA
Helgi Þór Ingason, sem settur hefur
verið forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
tímabundið í stað Hjörleifs Kvarans,
var framkvæmdastjóri fjárfestingar-
sjóðsins Magma sem stofnaður var
15. maí 2001. Í ráðgjafaráði fjárfest-
ingarsjóðsins, auk Halldórs J. Kristj-
ánssonar fyrrverandi Landsbanka-
stjóra og fleiri manna, sat Tryggvi
Sigurbjarnarson, en hann er faðir
Haraldar Flosa Tryggvasonar. Helgi
Þór fær tólf hundruð þúsund í mán-
aðarlaun hjá Orkuveitunni.
Á stjórnarfundi Orkuveitunnar á
þriðjudag lagði Haraldur Flosi fram
þá tillögu að Hjörleifur viki úr starfi.
Hún var samþykkt með þremur at-
kvæðum en þrír sátu hjá.
Haraldur Flosi sagði í samtali við
RÚV af því tilefni að nýja hugsun
þyrfti í Orkuveituna og því þyrfti nýj-
an stjórnanda.
Útrásarhugmyndir
Það voru Landsbankinn og fyrirtæk-
ið 3P fjárhús sem kynntu nýjan lok-
aðan fjárfestingarsjóð í maí 2001.
Fjárfestingarsjóði þessum, var sam-
kvæmt frétt sem birtist í Morgun-
blaðinu í maí 2001 ætlað að fjárfesta í
„sprota- og vaxtarfyrirtækjum á sviði
orkutækni, einkum þeim sem tengj-
ast framleiðslu og dreifingu orku og
þjónustu á því sviði.“ Í greininni er
meðal annars þetta haft eftir Helga
Þór: „Íslendingar þurfa að huga að
því að byggja upp net hagkvæmra
orkufyrirtækja í landinu.“
Haft var eftir forsvarsmönnum
Magma að einungis 15 prósent orku-
linda landsins væru nýtt og að mark-
aðsvæðing orkugeirans væri fram
undan en það myndi skapa tækifæri
fyrir nýja aðila í greininni. Markmið-
ið væri að mynda net fyrirtækja til að
flytja út íslenska þekkingu á orku- og
umhverfistækni. Aðaláherslan átti
að vera á íslenska starfsemi en hug-
myndir um orkuútrás voru einnig
uppi á borðum hjá Magma-mönn-
um, en í umfjölluninni kom fram
að „orkutæknisjóðurinn“ Magma
myndi skoða fjárfestingar í erlend-
um orkutæknifyrirtækjum.
Neitar tengslum við Magma
Energy
Í stjórn rekstrarfélags sjóðsins, Alt-
erna, sat Þorsteinn Ingi Sigfússon,
núverandi forstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands. Þorsteinn er
bróðir Árna Sigfússonar bæjarstjóra
í Reykjanesbæ en Árni var stjórnar-
formaður Hitaveitu Suðurnesja, sem
síðar varð að HS Orku og HS Veit-
um, en HS Orka var í kjölfarið seld
til skúffufyrirtækis í eigu Magma
Energy: Magma Energy Sweden.
Í samtali við fréttavefinn Smug-
una sagðist Þorsteinn Ingi hafa átt
hugmyndina að nafninu Magma, en
hann sagði engin tengsl vera á milli
Magma fjárfestingarsjóðs og Mag-
ma Energy í Kanada. Magma Energy
var stofnað árið 2008. Halldór J.
Kristjánsson, fyrrverandi bankastjóri
Landsbankans, sat í sérstökum ráð-
gjafahópi, svokölluðu ráðgjafaráði
Magma, en hann fluttist til Kanada
í kjölfar efnahagshrunsins. Í ráð-
gjafahópnum sat einnig Tryggvi Sig-
urbjarnarson, faðir Haraldar Flosa
Tryggvasonar stjórnarformanns
Orkuveitu Reykjavíkur.
Kenna nemum hagnýtar
aðferðir
Helgi Þór Ingason, nýskipaður for-
stjóri Orkuveitunnar, er véla- og
iðnaðarverkfræðingur og vann að
rannsóknum og þróunarstarfi hjá
Íslenska járnblendifélaginu á árum
áður. Hann hefur sinnt margvísleg-
um verkefnum, meðal annars í Al, ál-
vinnslu hf. Undanfarin ár hefur hann
starfað sem ráðgjafi og fyrirlesari á
sviðum verkefnastjórnunar, gæða-
stjórnunar, framleiðsluferla og verk-
smiðjuskipulags.
Helgi Þór og Haraldur Flosi
Tryggvason, stjórnarformaður Orku-
veitunnar, voru síðasta vetur báð-
ir kennarar í Verkefnastjórnun í
svokölluðu MPM-námi (Master of
Project Management) við Háskóla
Íslands. Í námskeiðslýsingu segir að
námið eigi að efla fjóra meginfærni-
þætti nemenda; stefnumótunar-
færni, skipulagsfærni, leiðtogafærni
og samskiptafærni. Áherslan er sögð
vera á „að kenna nemendum hag-
nýtar aðferðir og þjálfa þá í notkun
þessara aðferða.“ Hvorki náðist í Har-
ald Flosa né Helga Þór við vinnslu
þessarar fréttar, þrátt fyrir ítrekaðar
tilraunir.
jóN bjarKi MagNÚssoN
blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is
Haraldur
FlosiRéðsam-
kennarasinní
Orkuveituna.
Í útrás IngiÞórvarfram-
kvæmdastjórifjárfesting-
arsjóðsinsMagma.
Hugmyndir um íslenska orku-
útrás voru einnig uppi
á borðum hjá Magma-
mönnum.