Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 47
Sport | 47Helgarblað 14.–16. janúar 2011
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minnkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
Snyrtisetrið
Heilsuverndarstöðin (norður endi) Barónsstíg 47 101 Reykjavík Sími 533- 3100
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
Munið gjafakortin!
TILBOÐ!
30% afsl. af nr. 1 - Andlits-meðferð
30% afsl. af nr. 1 - Cellulite-meðferð
dagana 25. - 28. janúar
af stökum tímum
Tilboð á náttúrulegri
brúnku
-Spreyklefar
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minnkar þrota og bjúg
Te burt þreytu
Eykur úthreinsun
Snyrti etrið
CELLULITE
meðferð
Árangur sést strax
B tri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Kveðja til þeirra sem eru í baráttunni við
Cellulite (appelsínuhúð)
Munið gjafakortin!
Óbreytt verð!
TILBOÐ!
30 afsl. af nr. 1 - Andlits- eðferð
30% afsl. af nr. 1 - Cellulite-meðferð
dagana 25. - 28. janúar
af stökum tímum
Tilboð á náttúrulegri
brúnku
-Spreyklefar
Sléttari og þéttari húð
Formar fótleggina
Minnkar þrota og bjúg
Tekur burt þreytu
Eykur úthreinsun
CELLU ITE
meðferð
Árangur sést strax
Betri líðan
Persónuleg ráðgjöf
Munið gjafakortin!
Óbreytt verð!
TILBOÐ!
30% afsl. af nr. 1 - Andlits-meðferð
30% afsl. af nr. 1 - Cellulite-meðferð
dagana 25. - 28. janúar
af stökum tímum
Detox reinsun
Stinnari rass og læri
Snyrtisetrið býður sértilboð
á an lits- lyft- meðferðum
sem færir árin til baka
Tilboð á 5
Tíma CelloliTe
meðferð DeTox
„Kóngurinn“ Kenny Dalglish stýrir
sínum fyrsta heimaleik með Liver-
pool á sunnudaginn en liðið tekur
þá á móti Everton, nágrönnum sín-
um úr Bítlaborginni. Dalglish hefur
farið illa af stað með Liverpool-lið-
ið. Hann tapaði bikarleik gegn erki-
fjendunum í Manchester United
daginn eftir að hann tók við Liver-
pool og ekki skánaði það þegar lið-
ið lá gegn smáliði Blackpool í miðri
viku. Tveir aðrir nágrannaslagir fara
fram á sunnudaginn sem er sann-
kallaður ofursunnudagur í enska
boltanum. Birmingham tekur þá á
móti Aston Villa í Miðlandaslagnum
og í norðrinu eigast við Sunderland
og Newcastle. Þá má ekki gleyma
stórleik Tottenham og Manchester
United á White Hart Lane.
Skrýtið lið og spilamennskan
engu skárri
Liverpool-menn voru fljótir að fyr-
irgefa Dalglish bikartapið gegn
Manchester United enda hafði mað-
urinn ekki fengið eina æfingu með
liðinu. Þá var andstæðingurinn einn-
ig efsta lið úrvalsdeildinnar sem hef-
ur ekki tapað leik á heimavelli í allan
vetur. Veitti mikill baráttuandi liðsins
þó stuðningsmönnum þess mikla
von fyrir leikinn gegn Blackpool í
miðri viku. Þar aftur á móti olli Dal-
glish vonbrigðum með vali á byrj-
unarliði sínu og ekki var það skárra
að liðið spilaði hörmulega og tapaði
gegn nýliðunum.
Kóngurinn, eins og Púllarar kalla
hann, getur þó fengið alla til að
gleyma þessum byrjunarörðugleik-
um á sunnudaginn. Liverpool tekur
þá á móti nágrönnunum í Everton en
liðin eru að dúlla sér saman í neðri
hluta deildarinnar. Nóg hefur fjör-
ið verið í leikjum liðanna þegar þau
hafa mæst. Auk marka hafa tækling-
ar flogið og menn fengið rauð spjöld.
Fyrirliðinn, Steven Gerrard, verð-
ur þó ekki með þar sem hann tekur
út annan leik í leikbanni eftir rauða
spjaldið í leik gegn Manchester Unit-
ed. Mun Dalglish ekki skora nein stig
hjá eldheitum aðdáendum sínum
haldi hann Christian Poulsen í byrj-
unarliðinu. Það þarf engan stærð-
fræðing til að reikna út að Daninn
knái er ekki nægilega góður í ensku
úrvalsdeildina.
Stórkostlegur sunnudagur
Auk Bítlaborgarslagsins fara fram
tveir aðrir nágrannaslagir á sunnu-
daginn. Í Miðlöndum Englands etja
kappi Birmingham og Aston Villa,
en skiptir sá leikur ekki miklu máli
því leikir þeirra hafa aldrei náð inn í
þjóðarsál Íslendinga.
Leikir Sunderland og Newcastle
hafa þó ætíð verið fjörugir en þar
fara tvö lið sem hata hvort annað af
lífi og sál.
Helginni lýkur svo með stórleik
Tottenham og Manchester Unit-
ed. Vonast efstu liðin í deildinni svo
sannarlega til þess að Tottenham
geri þeim greiða í toppbaráttunni.
Árangur Manchester United á úti-
velli er alls ekkert sérstakur í ár. Lið-
ið státar þó af einu afreki sem aðr-
ir geta ekki stært sig af. Liðið er enn
tap laust.
Kóngurinn kemur heim
n Kenny Dalglish hefur farið illa af stað
með Liverpool n Fyrsti heimaleikurinn
er nágrannaslagur gegn Everton n Tveir
aðrir nágrannaslagir um helgina
Tómas Þór Þórðarson
blaðamaður skrifar tomas@dv.is
Leikir helgarinnar
Laugardagur 15. janúar
15.00 Chelsea – Blackburn
15.00 Man. City – Úlfarnir
15.00 Stoke – Bolton
15.00 WBA – Blackpool
15.00 Wigan – Fulham
17.30 West Ham – Arsenal
Sunnudagur 16. janúar
12.00 Birmingham – Aston Villa
12.00 Sunderland – Newcastle
14.05 Liverpool – Everton
16.10 Tottenham – Man. Utd
Byrjar illa Kenny Dalglish er nú þegar
búinn að tapa gegn erkifjendunum og
nýliðum Blackpool. mynD REuTERS