Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 41
Fókus | 41Helgarblað 14. janúar 2011 Hvað er að gerast? n Rokland í bíó Rokland er komið í bíó. Myndin er hárbeitt svört kómedía eftir samnefndri skáldsögu Hallgríms Helgasonar um hinn andfélagslega hugsjónamann Böðvar Steingrímsson sem leikarinn Ólafur Darri Ólafsson leikur. Elma Lísa Gunnarsdóttir leikur á móti Ólafi Darra og Stefán Hallur Hallsson fer með eitt burðarhlutverka. 14 jan Föstudagur 15 jan Laugardagur n Hipphopp-veisla á Broadway Á Broadway verður allsherjar hipphopp-veisla á laugardaginn. Haldin verður beatbox-keppni og eftir að sigurvegarinn hefur verið kynntur fer tvöfaldur sigurvegari bresku beatbox-keppn- innar á svið auk annarra góðra. Þá koma fram 12 vel geymd leyndarmál í íslenska rappheiminum og hipphopp-munkar munu messa. Breikdans- arinn Natasha gefur svo stemninguna með breakdansi og hipphoppi í anda New York. n Salonhljómsveitin í Salnum með Diddú Salonhljómsveit Sigurðar Ingva Snorra- sonar flytur Vínartónlist og aðra sígilda tónlist í léttari kantinum í Salnum, meðal annars vinsæl dægurlög. Sigrún Eðvaldsdóttir flytur verk og einsöngvari verður Sigrún Hjálmtýsdóttir, betur þekkt sem Diddú. n Agent Fresco, Rökkurró o.fl. á Sódómu Hljómsveitirnar Agent Fresco og Rökkurró troða upp á Sódómu Reykjavík á laugardaginn ásamt Loji og DJ Óla Dóra. Agent Fresco gáfu nýverið út sína fyrstu breiðskífu, A Long Time Listening og eru því í blússandi gír þessa dagana. Rökkurró gaf út plötuna Í annan heim fyrir hálfu ári og hefur verið að spila erlendis þar sem hljómsveitinni hefur verið vel tekið. Loji hefur gert garðinn frægan með Sudden Weather Change en á þessum tónleikum flytur hann sólóefni sitt. Dj Óli Dóri þeytir skífum milli atriða og að tónleikum loknum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22.00 og kostar 1.000 krónur inn . 16 jan Sunnudagur n Alvöru sirkussýning Sirkus Íslands setur upp Sirkus Sóley í Tjarnarbíói, þar sem hann hefur skemmt fjölskyldum við mergjaðar undirtektir áhorfenda og gagnrýnenda. Þetta er þeirra síðasta sýning í vetur svo það er um að gera að missa ekki af lestinni. Miðaverði er stillt í hóf og kostar miði með leikskrá 1.500 krónur. Búast má við krassandi sirkusatriðum, áhættuatriðum og vænum brögðum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. undur og söngvari hljómsveitarinn- ar Hjaltalín og hefur komið fram með henni víða um heim. Hann var eitt þriggja nýrra tón- skálda sem hlutskörpust urðu í sam- keppni tónlistarhátíðarinnar Við Djúpið, Ísafoldar kammersveitar og Rásar 1 og nýverið naut leikhúsið góðs af hæfileikum hans en hann samdi tónlist við uppfærslu Borgarleikhúss- ins á Ofviðrinu. Högni segir reynsluna úr leikhús- inu mikla og lærdómsríka. „Ég var full bráður á mér í byrjun og veit nú bet- ur að í leikhúsinu gerast góðir hlut- ir hægt og rólega. Ég byrjaði á því að semja mikið efni, vann mikið út frá gömlu efni, lokaði mig af og fannst ég hafa tónlist sem ég gat stoltur kynnt leikstjóranum. Þann daginn var Vyt- autas leikmyndahönnuður einmitt að setja upp leikmyndina og um leið og ég sá hana áttaði ég mig á því að tónlistin sem ég hafði eytt svo mikilli orku í að semja átti ekki við þá stemn- ingu sem hann var að skapa á sviðinu þannig að það þurfti að kasta henni í burtu.“ Hér er best að búa Högni hefur fengið mörg kostaboð um að búa annars staðar en aldrei leitt hugann að því af alvöru. „Að sjálf- sögðu, einn helsti kosturinn við að búa hér á Íslandi er hversu auðvelt aðgengi er að næsta hæfileikamanni. Stundum er ég spurður afhverju ég búi ekki í París eða Berlín af því tón- listarsenan þar sé svo góð, þá hugsa ég alltaf um þetta og svara því að það sé enn betra að vera hér til þess að semja góða tónlist. Hér er svo auðvelt að gera góða hluti með góðu fólki og það má eyða orkunni í að semja tónlistina frekar en að skipuleggja með hverjum og hvernig.“ Högni er samt enginn heimalingur og haldinn mikilli útþrá og þegar blaða- maður talar við hann er hann á leið- inni til Costa Rica þar sem hann ætl- ar í siglingu með félögum sínum. Einn félaganna ætlar sér að sigla bátnum og Högni segist hvergi smeykur. „Þetta verður örugglega mikið ævintýri sem verður saga að segja frá seinna meir.“ Eilíf hringrás Högni semur mikið af tónlist utan dægurtónlistar. Hann hefur sam- ið óhefðbundið verk fyrir Sinfóníu- hljómsveit Íslands og verk fyrir dóm- kirkjuorganistann Kára Þormar auk þess sem ýmislegt er framundan. Eru fyrir honum mörk þarna á milli? „Það eru ekki mörk á milli, frekar er þessa hringrás sem er alltaf að breyt- ast. Allir geirar tónlistar eru nauðsyn- legir þessari hringrás og hver geiri nærist á öðrum. Þannig skapar dæg- urtónlistin tekjur sem nærir óhefð- bundna nútímatónlist eða það sem margir vilja kalla æðri listir. Að sama skapi eru tengslin sterk úr dægur- menningu í klassík og æðri listgreinar. Dægurmenningin sækir skerpu sína í framúrstefnuna og öfugt. Þess vegna er grátlegt að horfa upp á opinbera aðila og fólk í landinu vera að fussa yfir stuðningi ríkisins til listgreinar. Öll dægurmenning, menning sem flestir neyta, er fædd af undarlegri, áhættusamari listaðgerðum bæði hugmyndalega og tæknilega og þess vegna eru þeir í fremstu víglínu. Auð- vitað á samfélagið að styðja þannig sköpun sem þorir að taka afstöðu og áhættu. Án þess væri samfélagið veru- lega snautt.“ Samvinna Högni segist vilja halda áfram á þeirri braut að semja meira af óhefðbundnu efni þótt hann haldi áfram að semja fyrir Hjaltalín af krafti. „Það er alltaf mikil samvinna okkar á milli í Hjalta- lín þótt að ég og Viktor Orri sjáum mest um að útsetja og semja. Mér finnst best að vinna tónlistina með þeim sem flytja hana og vera í beinum tengslum við flutninginn. Sú aðferð magnaðist enn frekar við vinnuna í leikhúsinu. Þar lærði ég að vinna með flóknu samspili hughrifa. Ef ég reyni að útskýra þetta betur þá vil ég ekki gera of mikið úr mér og mínum hug- hrifum, ég vill frekað að tónlistin sé samvinna þar sem ég kasta inn hug- myndum.“ Listamannslíf Faðir Högna er áhugadjasspíanisti, systir hans, Arndís Hrönn Egilsdótt- ir, er leikkona og bróðir hans, Hrafn- kell Orri Egilsson, spilar á selló með Sinfóníuhljómsveitinni. Annar bróð- ir hans, Andri, er stærðfræðingur og móðir hans starfar sem sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu. Er lista- mannslífið honum í blóð borið og ef svo er, hvernig ? „Nei, það held ég ekki. Þvert á móti, ég held hins vegar að nám í listum og umræða um listir skipti máli. Gróska í listalífinu er engin tilviljun, hana má rekja til þess að for- eldrar gefa börnum sínum tækifæri til þess að þroska hæfileika sína. Ég vildi óska þess að skilningur á mikilvægi þess að leggja rækt við slíkar undir- stöður væri meiri. Við ættum að leggja meiri rækt við menntun á sviði lista. Við vitum svo lítið hvað verður í fram- tíðinni en verðum samt að reyna að spá fyrir um það. Mér finnst líklegt að listir, vísindi og skapandi greinar hafi vinninginn.“ kristjana@dv.is Gróska í listalífinu Níu þúsund manns hafa séð Gauragang: Stefna hærra með Gauragang Íslenska kvikmyndin Gauragang- ur var frumsýnd 26. desember síðastliðinn, en síðan þá hafa níu þúsund manns séð myndina. Hún situr í sjöunda sæti yfir vinsæl- ustu bíómyndirnar í íslenskum kvikmyndahúsum í síðustu viku, en hún er sýnd í Smárabíói, Há- skólabíói og Borgarbíói á Akureyri. Myndin hefur halað inn níu og hálfa milljón í tekjur, samkvæmt upplýsingum frá Senu, sem er dreifingaraðili myndarinnar. „Við viljum sjá hana fara í sautj- án til tuttugu þúsund,“ segir Hlín Jóhannesdóttir, einn framleið- enda myndarinnar, aðspurð um aðsóknina. Hún segir að það sé markmiðið en miðað við árstíma og hvernig jólin fóru sé níu þús- und manns ásættanlegur fjöldi gesta. „Við sættum okkur alveg við þetta en við teljum okkur fara í meira en þetta.“ Gauragangur er önnur kvik- mynd Gunnars Guðmundsson- ar leikstjóra, en hann gerði einnig Astrópíu, sem frumsýnd var árið 2007. Sú mynd sló rækilega í gegn, líkt og stefnir í með Gauragang. Í myndinni þreyta margir ungir leik- arar frumraun sína á hvíta tjald- inu en opnar áheyrnarprufur voru fyrir kvikmyndina á sínum tíma. Auk ungra leikara leika í mynd- inni gamalreyndir íslenskir leikar- ar sem flestir Íslendingar ættu að kannast við. Myndin hlaut ágætar viðtök- ur gagnrýnenda, en hún fékk þrjár stjörnur í DV. Þótti Alexander Briem, sem fer með hlutverk Orms Óðinssonar í myndinni, vinna leik- sigur. „Frumraun hans lofar mjög góðu fyrir framtíðina,“ sagði um Al- exander í dómi DV. adalsteinn@dv.is Níu þúsund Þúsundir manna hafa séð leiksigur Alexanders Briem. Grátlegt Högni þreytist á því að op- inberir aðilar og fólk í landinu fussi yfir stuðningi ríkisins til listgreina. Að pakka niður Högni hef- ur varla tíma fyrir myndatöku og á leiðinni til Costa Rica.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.