Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 38
Á
rið 1969 fór að bera á því
að konur í Portland og ná-
grenni hurfu og sáust ekki
lífs eftir það. Lík kvenna,
sem báru merki kyrkingar, fund-
ust og var ljóst að hugmyndin hafði
verið að þau myndu aldrei finn-
ast. Síðar átti eftir að koma í ljós að
morðinginn, Jerome Brudos, hafði
í æsku sætt líkamlegu og andlegu
ofbeldi af hálfu móður sinnar og
þegar fram liðu stundir þróaðist
reiði drengsins yfir í ofbeldi sem
beindist gegn konum. Ekki er tal-
ið loku fyrir það skotið að Jerome
Brudos hafi fundi kynferðislega
örvun í því að klæðast undirfatn-
aði og skóm ungra kvenna og hann
jafnvel talið að hann hafi með þeim
hætti reynt að kvengera sig til að
verða þóknanlegur móður sinni,
sem hafði viljað eignast dóttur en
ekki son.
Skóblæti frá fimm ára aldri
Jerry Brudos fæddist í Vestur-Da-
kota árið 1939 og þurfti að búa við
það sem ungur drengur að vera
klæddur stúlknafötum því fyrir átti
móðir hans þrjá drengi og hafði
þráð dóttur. Skóblæti Jerrys kom
í ljós við fimm ára aldur og birtist
meðal annars í tilraunum hans til
að stela skóm kennara sinna í fyrsta
bekk.
Einnig hafði hann mikinn
áhuga á nærfatnaði kvenna og
fullyrti síðar að hann hefði strax á
barnsaldri stolið nærfatnaði ná-
granna sinna. Unglingsárunum
eyddi hann meira og minna í sál-
fræðimeðferð og mislanga vistun
á geðsjúkrahúsum. Á þeim aldri
hóf hann að sitja um ungar konur
sem hann yfirbugaði og flúði síðan
vettvang með skó þeirra í fartesk-
inu.
Nakin við húsverkin
Árið 1961 kvæntist Jerry stúlku
að nafni Ralphene eftir að hún
varð barnshafandi og eignaðist
með henni tvö börn. Settist fjöl-
skyldan að í Salem í Oregon. Jerry
fór þess á leit við eiginkonu sína
að hún sinnti heimilisverkunum
íklædd engu nema háhæluðum
skóm og tók hann af henni ljós-
myndir við þá iðju.
Árið 1968 nægði Jerry ekki leng-
ur að stela undirfatnaði kvenna
og skóm. Þegar þar var komið
sögu kvartaði hann oft og tíðum
yfir höfuðverkjaköstum og fór þá
gjarna í „göngutúra“ þegar kvöld-
aði til að lina kvalirnar – og auka
við safn sitt af skóm og nærfatnaði.
Þá hafði hann komið sér upp að-
stöðu í bílskúrnum þar sem hann
geymdi ránsfeng sinn, og síðar lík
fórnarlamba sinna.
Konu hans var að sjálfsögðu
meinaður aðgangur að helgidómi
hans og þurfti hún að tilkynna
komu sína í bílskúrinn í innanhúss-
kallkerfi heimilisins með góðum
fyrirvara. Segir sagan að Ralphene
hafi nánast verið fangi Jerrys.
Fórnarlömb Jerrys
Hin nítján ára Linda Slawson varð
fyrsta fórnarlamb Jerrys. Linda
hafði lifibrauð af því að ganga hús
í hús og selja alfræðiorðabækur.
Jerry myrti hana í janúar 1968 og
hjó af henni annan fótinn og notaði
sem „módel“ í skósafni sínu.
Fórnarlamb númer tvö, Jan
Whitney, varð fyrir því óláni að bíll
hennar bilaði í nóvember 1968 og
kom Jerry henni til „hjálpar“. Eftir
morðið á Jan misþyrmdi Jerry lík-
inu kynferðislega og hélt því áfram
í nokkra daga í bílskúrnum.
Karen Sprinkler, nítján ára, gerði
þau afdrifaríku og banvænu mistök
að gerast skómódel fyrir Jerry eftir
að þau hittust í bílageymslu stór-
markaðs í mars 1969.
Fjórða fórnarlambið, hin 22 ára
Linda Salee, gerði svipuð mistök
sama ár í verslunarmiðstöð í ná-
grenni heimilis Jerrys.
Óhugnanleg bréfapressa
Það sem upphaflega varð Jerry
Brudos að falli var frásögn vitnis
um riðvaxinn karlmann íklædd-
an kvenmannsfötum, en sönnun-
argögnin voru allt annað en óljós
þegar lögreglan rannsakaði bílskúr
hans. Þar gat að líta „verðlauna-
gripi“ Jerrys, meðal annars afhogg-
inn vinstri fót Lindu Slawson og
afskorin brjóst sem Jerry notaði
sem bréfapressu.
Jerry Brudos játaði á sig morðin
á Lindu Slawson, Jan Whitney, Ka-
ren Sprinkler og Lindu Salee og var
dæmdur til lífstíðarfangelsis.
Í fangelsinu hafði hann í klefa
sínum stafla af skóbæklingum
sem hann pantaði frá hinum ýmsu
framleiðendum og sagði bækling-
ana koma í stað kláms.
Jerry áfrýjaði dómnum ítrekað
en hafði ekki erindi sem erfiði og
lést innan fangelsismúranna árið
2006 úr lifrarkrabbameini.
Lostamorðinginn
38 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
n Jerome Henry Brudos var raðmorðingi í Bandaríkjunum n Lét til
sín taka undir lok sjöunda áratugar síðustu aldar n Hann var þekktur
sem Lostamorðinginn eða Morðinginn með skóblætið
Jerome Brudos Jerry var heltekinn af kvenmannsskóm og -nærfatnaði.
Sérverslun veiðimannsins - Laugaveg 178 - sími 551 6770 - www.vesturrost.is
- ALLAR VEIÐIVÖRUR -
- haglabyssur - rifflar - kaststengur -
- flugustengur - hjól - línur o.fl. -
ÚTSALA 10 -70%
Vesturröst