Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 54
S
íðla árs 2008 sagði Páll Magnús-
son útvarpsstjóri upp fjölda starfs-
manna hjá Ríkissjónvarpinu. Einn
þeirra var Hilda Jana Gísladóttir
sem starfaði sem fréttamaður á Akureyri.
Þegar henni var sagt upp tók hún fréttun-
um af mikilli yfirvegun, þær komu henni
ekki á óvart og hún sagðist vel hafa vit-
að af niðurskurðinum. Hildu Jönu fellur
ekki vel að sitja lengi aðgerðalaus og því
greip hún fegin tækifærið þegar henni
bauðst styrkur frá Vinnumálastofnun til
að halda áfram dagskrárgerð. Hún segir
að án styrksins hefði sjónvarpsstöðin N4
ekki náð því að blómstra eins og hún gerir
í dag. „Styrkir sem þessir voru okkur öll-
um nauðsynlegir.“
Hilda Jana þáði styrkinn aðeins í
nokkra mánuði. „Ég þáði styrk frá Vinnu-
málastofnun seint á árinu 2008 og í byrj-
un árs 2009 og hóf þá störf hjá N4,“ stað-
festir Hilda Jana. „Ég gat ekki hugsað mér
að sitja atvinnulaus heima en N4 stóð illa
og því þurfti að blása lífi í reksturinn og
styðja með öllum ráðum. Þessi stuðning-
ur gerði það að verkum að þetta krúttlega
ævintýri varð að veruleika.“
Hilda Jana stýrir þættinum Að norð-
an sem er frumsýndur alla virka daga og
að auki heldur hún utan um Föstudags-
þáttinn þar sem hún fær til sín góða gesti
í spjall og ræðir um það sem hæst ber í
fréttum.
„Gat ekki setið
atvinnulaus heima“
Hilda Jana Gísladóttir á N4:
54 | Fólkið 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
Einn á Íslandi
Liðsmenn uppistandshópsins
Mið-Íslands hverfa hver á fætur öðrum
til útlanda um þessar mundir. Halldór
Halldórsson, betur þekktur sem Dóri
DNA, flutti til Þýskalands í haust í
skiptinám frá Listaháskóla Íslands, Ari
Eldjárn sleikir núna sólina á Kanaríeyj-
um og Bergur Ebbi undirbýr tveggja
vikna brúðkaupsferðalag til Ástralíu.
Aðeins einn liðsmaður uppistands-
hópsins, Jóhann Alfreð Kristinsson, er
ekki staddur í útlöndum, eftir því sem
DV kemst næst.
Vildi hafa sleppt
Ungfrú Ísland
Ragnhildur Steinunn vildi óska sér að hún
hefði sleppt því að taka þátt í keppninni
Ungfrú Ísland á sínum tíma. „Auðvitað vildi
ég óska þess núna að ég hefði sleppt því
en það þýðir ekki að sjá eftir einhverju sem
er búið og gert,“ segir hún í viðtali í nýjasta
tímariti Monitors sem kom út á fimmtu-
daginn. Hún segir að hún myndi aldrei leyfa
dóttur sinni að taka þátt í keppninni, keppn-
in sé barn síns tíma. „Ég get ekki horft á
keppnina núna, ég fæ svo mikinn kjánahroll.
Keppnin hefur breyst með árunum og ég
fékk sjokk þegar ég sá stelpurnar í síðustu
keppni vera á kynþokkafullum undirfötum
á sviðinu. Mér fannst nógu slæmt að við
þurftum að koma fram í sundfatnaði.“
Þeir keyptu
víst
íbúð
Hlín Einars:
H
lín Einarsdóttir ritstjóri
Bleikt.is ver viðtal sitt
við trúðana Frank Hvam
og Casper Christensen
í ritstjórnarpistli sínum frá því á
fimmtudag. Í viðtalinu kom fram
að þeir Frank og Casper hefðu fest
kaup á íbúð hér á landi meðan á
stuttri heimsókn þeirra hingað til
lands stóð. Hún lýsir aðstæðunum
sem viðtalið var tekið í og segir hún
meðal annars: „Inni á troðfullum
stað innan um brjálaða aðdáendur
sem vildu ná myndum af sér með
dönsku spéfuglunum spurði ég
hinnar klassísku spurningar í gam-
ansömum tón: „How do you like
Iceland?““ Hún segir að það hafi
verið í svari við þeirri spurningu
að Casper hafi upplýst hana um að
þeir félagar hefðu keypt íbúð. Var
viðtalið tekið á skemmtistað í mið-
borginni.
Eftir að viðtalið birtist fór Frétta-
blaðið á stúfana og var niðurstaða
þess blaðs að ekkert væri hæft í
þeim fréttum að trúðarnir hefðu
fest kaup á íbúð hér á landi. Hlín
segist þó standa við fyrri frétt sína
en viðurkennir að hún hafi ekki
farið bestu leiðina að þeim félög-
um. „Ég fékk hins vegar þær upp-
lýsingar í dag (fimmtudag) að ekki
væri alls kostar vel séð að tekin
væru viðtöl við kvikmyndaleikara
með þessum hætti,“ segir hún. „Öll
slík samskipti eigi að fara í gegnum
umboðsmenn og blaðafulltrúa og
þessi yfirlýsing hafi því eflaust verið
ótímabær af þeirra hálfu eða
að kenna megi einhverjum
misskilningi um.“
Hún segir að þegar
hún hugsi til baka sé
þetta eins og að lenda í
styttri útgáfu af þætti
af Klovn.
Eins og í Klovn Hlín segir að
lífsreynslan hafi verið eins og
að lenda í stuttum Klovn-þætti.
n Stendur við viðtalið n Ekki vel
séð viðtalstækni n Samskiptin
eiga að fara í gegnum blaðafulltrúa
n Eins og að lenda í Klovn-þætti!
Casper og Frank Hlín
viðurkennir að hafa ekki
farið bestu leiðina að
þeim félögum.
Blómstrar á Akureyri Hilda Jana
er mikilvirk dagskrárgerðarkona á
Akureyri og getur þakkað stuðningi
Vinnumálastofnunar fyrir það.