Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 25
H va, bara hálft maraþon? Hvers vegna ekki heilt?“ spurði einn vinur minn ann- an sem ákvað að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Það þarf vart að taka það fram að sá sem sat í sófanum og gagnrýndi hinn fyrir hálfkák ætlaði sér ekki að hlaupa yf- irhöfuð. Einhver útgáfa af þessum sam- ræðum á sér stað á hverjum degi víðs vegar um land. Ekki má gera neitt án þess að gera það alla leið. Það er ann- aðhvort allt eða ekkert, með þeim af- leiðingum að oft er ekkert gert, nema þá að það sé gert í algeru óðagoti. Bláedrú eða blindfullur Þetta sést best á því hvernig Íslend- ingar skemmta sér. Aldrei er hægt að fara út og fá sér einn-tvo bjóra, ávallt skal annaðhvort hellt í sig stanslaust til klukkan sex um morguninn eða þá sitja bara heima. Líklega hefur þetta einnig áhrif á hvernig Íslendingar starfa. Unnið er í miklum törnum myrkranna á milli og allt gert á síð- ustu stundu, reyndar með miklum dugnaði, en síðan setið í hálfgerðu aðgerðarleysi þess á milli. Þetta allt eða ekkert hugarfar sást líklega með hvað skelfilegustum hætti í útrásinni. Það var ekki nóg að reka fyrirtæki með ágætis hagnaði, það þurfti að kaupa upp allt með þeim afleiðing- um að allt fór síðan á hausinn. Danski gamanleikarinn Frank Hvam úr Klovn sagði nýlega að Ís- lendingar væru svalari en Danir. Lík- lega er þetta á margan hátt rétt. Töff- araskapurinn drýpur af okkur. Við vinnum meira, drekkum meira, sof- um jafnvel meira hjá en flestar aðr- ar þjóðir. Því miður er afraksturinn af þessu ekki alltaf jafn heppilegur. Í Skandinavíu stimpla menn sig út klukkan fjögur alla daga, vinna jafnt og þétt í stað þess að vera í stöðugri samkeppni við næsta mann um að setja ný viðverumet og lenda sjaldn- ast í tímahraki á síðustu mínútu. Danir drekka reyndar allra þjóða mest, en þó sjaldnast jafn mikið í einu og hér tíðkast. Því er það svo að þeir sem sjást slagandi fullir á Strik- inu eru oftar en ekki Grænlending- ar, Færeyingar eða Íslendingar. Það er lítið töff að skipuleggja vinnu sína fram í tímann eða drekka í hófi. En það er ef til vill skynsamlegra þegar allt kemur til alls. Að drekka í hófi og tala saman Allt eða ekkert sést líka á íslenskri umræðuhefð. Lítil hefð er fyrir mála- miðlunum í íslenskum stjórnmálum. Menn fá annaðhvort sínu framgengt alla leið, eða þeir telja sig hafa tapað. Málamiðlanir eru lítið töff, og því enn síður að tapa. Stundum er þessu stillt upp sem heilagri vandlætingu, eins og hjá vinstri armi Vinstri grænna, stundum er það nakin valdabarátta sem skín í gegn. En niðurstaðan er í báðum tilfellum sú sama, þar sem allt eða ekkert gildir er vonlaust fyrir fólk að starfa saman. Samkvæmt frétt DV hefur sál- fræðingur við Michigan-háskóla í Bandaríkjunum reiknað það út að 17. janúar sé versti dagur ársins. Það er sá dagur þegar flestir gefast upp á áramótaheitum sínum. Lík- lega á þetta ekki síst við um Íslend- inga. Vafalaust hafa margir ákveð- ið um áramótin að hætta að reykja, drekka, éta óhollan mat eða hvað sem það kann að vera. Hætta öllu, allt eða ekkert. Rúmum tveimur vikum síðar gefast menn svo upp á öllu saman og fara aftur í gamla far- ið. Hvernig væri bara að gera það að áramótaheiti að vera hófsamari hvað flest varðar? Það er kannski ekkert sérstaklega töff, en árið verð- ur örugglega betra fyrir vikið. Umræða | 25Helgarblað 14. janúar 2011 Bloggarar verða brjálaðir Guðmundur Gunnarsson verður kynnir Söngvakeppni Sjónvarpsins 2011 sem hefst á laugardag en hann stjórnaði þættinum Ferð til fjár. Hver er maðurinn? „Guðmundur Gunnarsson, Bolvíkingur með meiru. Fjölmiðlafræðingur og starfsmaður hjá Ríkissjónvarpinu. Hvernig leggst söngvakeppnin í þig? „Bara vel. Furðulega lítið taugaóstyrkur. Hef ekki ennþá vaknað upp í köldum svita, en það er aldrei að vita hvort það gerist aðfaranótt laugardagsins.“ Ertu búinn að hlusta á öll lögin? „Ég er búinn að hlusta á langflest lögin.“ Eru þau góð? „Ég má ekki tjá mig um það. Það er ekki mitt hlutverk að dæma um það. Nú er ég bara að tala eins og stjórnmálamaður. Við erum síðasta fólkið sem má gera upp á milli.“ Ertu nógu skemmtilegur til að vera kynnir? „Það verður bara að koma í ljós.“ Verða bloggarar brjálaðir út í þig? „Já, alveg örugglega. Ég geng út frá því að fólk muni hafa sterkar skoðanir á mér eins og öðrum sem hafa tekið þetta verkefni að sér. En það er líka kannski bara hluti af sjarmanum.“ Er Ragnhildur Steinunn erfið í samstarfi? „Alls ekki. Við höfum unnið saman í nokkrar vikur í aðdragandum. Ef einhver heldur að það séu stjörnustælar í Raghildi Steinunni þá veður sá hinn sami í villu og svíma.“ Uppáhalds Eurovision-lag? „Lífið er lag með hljómsveitinni Módel. Þegar lagið kom út var ég bara barn. Þetta var ótrúlegur stjörnufans saman kominn og ég skildi ekkert af hverju Eiríkur Hauks og félagar fóru ekki út. Svo bara Bolvíkingurinn Edda Borg Ólafsdóttir á hljómborðinu og mér bar skylda til að halda með þeim. Mér fannst einnig Silvía Nótt og Til hamingju Ísland sirkusinn tímabær ádeila á það hvernig keppnin var að verða. Mér finnst eins og keppnin hafi breyst til hins betra og meira gert út á sérkenni þjóða eftir það. Ertu fjármálalæs? „Já, ég myndi segja það eftir að hafa unnið með starfsmönnum stofnunar um fjármálalæsi að þessum þáttum. En það hefur skort upp á það fyrir nokkrum árum, en það er nýtilkomið læsi.“ „Já, ég held það.“ Jóhanna María Jóhannesdóttir 36 ára, þjónustufulltrúi „Já, alveg hiklaust.“ Konráð Árni Vilhjálmsson 26 ára, grafískur hönnuður „Ég get ekki annað séð en að þetta sé réttlætanlegt.“ Jónína Jónsdóttir 58 ára, endurskoðandi „Já.“ Stefán Elínbergsson 49 ára, öryggisvörður „Ég er samþykkur því ef það fer ekkert úr böndunum.“ Brynjólfur Björnsson 68 ára, verslunarmaður Maður dagsins Á að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi? Fyrirtaka í máli níumenninganna Ragnar Aðalsteinsson lögfræðingur, þrír dómverðir og Gunnar V. Andrésson, ljósmyndari Fréttablaðsins, biðu fullir eftirvænt- ingar í dágóða stund eftir níumenningunum eða stuðningsmönnum þeirra, en enginn kom. Mynd SigtRyggUR ARi JóHAnnSSon Myndin Mestu töffarar í heimi Dómstóll götunnar Kjallari Valur gunnarsson„Þetta allt eða ekkert hugarfar sást líklega með hvað skelfilegustum hætti í útrásinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.