Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Síða 11
Fréttir | 11Helgarblað 1.–3. apríl 2011
„Ég er að verða bilaður á þessu, ég
veit bara ekki hvert ég á að snúa
mér,“ segir verktakinn Sveinn T.
Guðmundsson. Sveinn gerði samn-
inga við Lýsingu árin 2006 og 2007
um fjármögnun á jarðýtu, gröfu og
tengivagni fyrir 24 milljónir króna.
Þrátt fyrir að hafa greitt um 17 millj-
ónir króna í afborganir af lánun-
um, til sumarsins 2009, segir Lýsing
hann skulda 34 milljónir króna. „Ég
skil ekki hvernig þeir fá þetta út. Þeir
virðast ekki taka mark á því sem ég
hef borgað þeim,“ segir Sveinn sem
hefur verið án atvinnu meira og
minna í tvö ár. Hann sér nú fram á að
missa tækin og upplifir sig vanmátt-
ugan gegn Lýsingu.
Atvinnulaus en skuldugur
Samkvæmt greiðsluyfirliti hafði
Sveinn greitt Lýsingu rétt liðlega 17
milljónir króna þegar hann hætti
að eiga fyrir afborgunum. Þá hafði
gengi íslensku krónunnar gagnvart
erlendu gjaldmiðlunum evru, doll-
ara, jeni og franka veikst svo mjög
að hann réð ekki lengur við afborg-
anir auk þess sem skortur á verkefn-
um hafði þau áhrif að hann gat ekki
borgað. Sveinn segist nú meira og
minna hafa verið án atvinnu í hart-
nær tvö ár, eða síðan hann hætti að
geta greitt af lánunum.
Sveinn er afar ósáttur við að þrátt
fyrir að hafa greitt nær helming þeirr-
ar upphæðar sem hann fékk að láni
hafi höfuðstóllinn hækkað um 40
prósent frá því hann tók lánin. Hann
hefur staðið í stappi við Lýsingu, sem
hann segir hafa beitt sig órétti, frá
því skömmu eftir að hann hætti að
greiða af tækjunum. Hann neitaði að
afhenda vörslusviptingarmönnum
á vegum Lýsingar tækin nema gegn
dómsúrskurði. Sá úrskurður liggur
nú fyrir og Sveinn bíður þess að tæk-
in verði tekin af honum.
Skuldar mikið þrátt fyrir
ólögmæti
Eins og kunnugt er féllu dómar í
fyrra þar sem svokölluð myntkörful-
án voru dæmd ólögleg. Lýsing telur
hins vegar að samningurinn sem fyr-
irtækið gerði við Svein, svokallaður
fjármögnunarleigusamningur, falli
ekki undir dóma Hæstaréttar frá því í
júní og september í fyrra. Þess vegna
hafi Lýsing ekki endurreiknað samn-
ingana eins og þá sem klárlega féllu
undir dóma Hæstaréttar.
Vegna þess að Sveinn telur sig
órétti beittan, meðal annars vegna
óvissunnar um lögmæti samning-
anna, lagði Lýsing fram útreikning
miðað við að þeir væru ógildir. Þar
var hvorki tekið tillit til virðisauka-
skatts á leigugreiðslur, dráttarvaxta,
innheimtukostnaðar né opinberra
gjalda sem fallið hafa á Svein vegna
vanskila. Niðurstaða þeirra útreikn-
inga sýnir að þrátt fyrir að leigu-
samningarnir væru dæmdir ógildir
á sama hátt og aðrir gengistryggðir
samningar, gæti Lýsing krafist þess
að fá tækin í sínar hendur. Hann
myndi skulda 18 milljónir, sam-
kvæmt úreikningum lögmanna Lýs-
ingar.
Himinn og haf á milli
Spurður um þessa útreikninga segir
Sveinn að vissulega væri hann ekki í
óskastöðu þó að samningarnir yrðu
dæmdir ógildir. Hann segir hins veg-
ar að himinn og haf sé á milli þess
að skulda 34 milljónir króna og 8 til
10, eins og honum reiknist sjálfum
til að hann myndi skulda miðað við
þær greiðslur sem hann hafi innt af
hendi. Hann gæti mögulega fengið
lán hjá viðskiptabanka sínum, gegn
100 prósenta veði í tækjunum, og
greitt niður 10 milljónir en það sé
vonlaust ef milljónirnar eru 34. „Ég
veit bara ekki hvert ég get snúið mér
með þessa útreikninga,“ segir hann
en á honum má heyra að staðan er
honum þungbær. „Mér finnst þetta
svo mikið óréttlæti. Ég fór í þrefalda
hjáveituaðgerð í fyrra eða hitteðfyrra
og var svo heppinn að vera með líf-
og sjúkdómatryggingu. Ég fékk bæt-
ur en greiddi þrjár eða fjórar milljón-
ir af þeim í afborganir af tækjunum,“
segir Sveinn og bætir við að hann
hafi ekki lengur ráð á lögmanni til
að tryggja rétt sinn. Hann geti því illa
varist gegn aðila eins og Lýsingu.
Alltaf unnið á vélum
Sveinn segir lífið án atvinnu erfitt.
Honum hafi þó tekist að finna eitt og
eitt verkefni sem hann hefur hlaupið
í dag og dag. Það hrökkvi skammt.
Spurður hvað taki við þegar tæki
verða farin segir hann einfaldlega:
„Ekkert.“ Eftir svolitla stund bætir
hann við að þau hjónin reyni nú að
lifa á örorkubótum konunnar. Hann
segist enga menntun hafa. „Ég hef
unnið á jarðýtu eða á vélum frá því
ég var 16 ára gamall. Ég hef unnið
sem verktaki undanfarin ár og get
þess vegna ekki einu sinni skráð mig
atvinnulausan.“ Auk þess geti hann
heilsunnar vegna ekki unnið erfiðis-
vinnu og því sé ekki margt í stöðunni.
Sveinn er afar reiður stjórnvöld-
um fyrir sofandahátt og verkefna-
þurrð í vegagerð og fyrir að hafa
ekki greitt úr lagalegri óvissu geng-
istryggðra fjármögnunarsamninga
á borð við þá sem hann gerði við
Lýsingu. „Þetta kemur rosalega illa
við marga sem ég þekki úr þessum
geira.“
n Sveinn T. Guðmundsson ýtumaður missir tækin vegna gengishruns og vanskila n Fékk sjúkra-
bætur vegna hjartaaðgerðar en notaði þær í afborganir n Hjónin lifa á örorkubótum hennar„Ég fékk bætur en
greiddi þrjár eða
fjórar milljónir af þeim í
afborganir af tækjunum.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Sjúkrabæturnar
fóru í vinnuvélarnar
Missir ýtuna og lífs-
viðurværið Sveinn á ekki
rétt á atvinnuleysisbótum,
hann hefur enga menntun
og segist við slæma heilsu.
Mynd RóbeRT ReyniSSon