Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Page 17

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Page 17
BUÐU ÞINGMÖNNUM Á FUND UNDIR FÖLSKU FLAGGI ríkisborgararétt, einhvern veginn, af því að þeir ætluðu að koma með pening hingað til lands,“ segir þing- maðurinn. Svo virðist því, út frá því sem Álf- heiður segir og því sem umræddur þingmaður segir, að allsherjarnefnd hafi verið boðið á umræddan fund á fölskum forsendum því umræðu- efni fundarins átti ekki að snúast um veitingu á ríkisborgararétti til erlendra auðmanna. Skattahagræði ástæða Svo virðist sem fjárhagslegar ástæð- ur eins og skattahagræði og fleira í þeim dúr sé helsta ástæðan fyr- ir umsókn auðmannanna um ís- lenskan ríkisborgararétt en á bak við umsókn þeirra er bandarískur lögfræðingur sem heitir David Le- sperance. Lögfræðingurinn sérhæf- ir sig í því að veita auðmönnum ráð- gjöf á sviði skattamála. David þessi tók þátt í kynningarfundinum með allsherjar nefnd í gegnum fjarfunda- búnað samkvæmt heimildum DV. Ekki hefur komið fram í þessari um- ræðu af hverju auðmennirnir vilja fá íslenskt ríkisfang en telja verð- ur líklegt að fjárhagslegar ástæður, eins og til dæmis skattahagræði, séu meðal þessara ástæðna þó ekki sé hægt að fullyrða neitt um það. Aðrir íslenskir samstarfsmann auðmannanna, auk Northern Lights Energy, er lögfræðistofan Nordik - Legal Services. Einn af lögmönnun- um á þeirri stofu, Einar Páll Tamimi, sendi Róbert Marshall, formanni allsherjarnefndar Alþingis, bréf í febrúar þar sem hann ýtti á eftir því að umsóknin yrði tekin fyrir. Þetta er bréfið sem Álfheiður fékk í hendur á þriðjudaginn. Þó er það ekki svo að allir nefndarmenn hafi fengið um- rætt bréf í hendur, til að mynda hafði Birgir Ármannsson ekki séð umrætt bréf frá Einari Páli þegar DV ræddi við hann á fimmtudaginn. Auðmennirnir sendu inn um- sóknina í fyrra og vildu fá ríkisborg- ararétt í desember en ekkert varð af því vegna andstöðu innanríkisráðu- neytisins, samkvæmt bréfi Einars Páls. Innanríkisráðuneytið undir- strikaði þessa andstöðu sína með yfirlýsingu sem ráðuneytið sendi frá sér á fimmtudag þar sem fram kom að það væri andsnúið sölu á ríkis- borgararétti. Málið ekki tekið alvarlega Samkvæmt því sem DV kemst næst tóku flestir meðlimir allsherjar- nefndar hugmyndinni ekki mjög al- varlega og hefur, eins og áður segir, umsókn þeirra ekki verið tekin fyrir. Afar ólíklegt verður því að teljast að allsherjarnefnd muni samþykkja umsókn auðmannanna samkvæmt heimildum DV líkt og frásögn eins nefndarmanna af fundinum með Northern Lights Energy ber merki. „Ég held að enginn líti á þetta sem mikla alvöru,“ segir einn nefndar- maðurinn. Álfheiður segir aðspurð að henni þyki þetta mál vera „með ólíkindum“. „Mér finnst þetta með ólíkindum. Ég held ekki að það eigi að setja verðmiða á íslenskt ríkis- fang. Ef það á að gera það, hvar eiga mörkin þá að liggja? Er það við 520 milljónir eða 522 milljónir sem við eigum að miða þegar við metum hvort einhver eigi að fá ríkisborgara- rétt? Eiga þá bara sumir að borga og aðrir ekki og hver á að ákveða það? Á að vera afsláttur fyrir aldraða og börn?... Ég hef allan varann á þessu og mun aldrei styðja það að veittur verði einhver hópafsláttur af lögum um íslenskt ríkisfang vegna þess að menn séu svo ríkir,“ segir Álfheiður. Valgerður Bjarnadóttir segir sömu- leiðis að henni finnist málið vera mjög dularfullt. „Ég get nú ekki sagt að ég sé hlynnt þessu. En ég veit svo sem afskaplega lítið um þetta annað en það sem ég hef lesið í fjölmiðlum. Mér finnst þetta mjög dularfullt og ég get ekki ímyndað mér að ég sjái nokk- urn tímann einhverja glætu í því að fara að selja íslenskan ríkisborgara- rétt,“ segir Valgerður. Hún fékk sömu- leiðis boð á fundinn en vissi ekkert að umræðuefnið ætti að snúast um rík- isborgararétt. „Það var einhver kynn- ingarfundur en ég vissi ekki að hann ætti að fjalla um einhvern ríkisborg- ararétt. Mér fannst þetta bara eitthvað svo skrítið að eitthvert einkafyrirtæki væri að boða allsherjar- og iðnaðar- nefnd á einhvern fund úti í bæ. Þann- ig að ég hugsaði bara: Ég get ekkert mætt,“ segir hún. Róbert Marshall virðist því vera nokkuð sér á parti í allsherjarnefnd í skoðunum sínum á hugmyndinni enda bendir málfutningur hans í Kastljósi á miðvikudag, og yfirlýsing sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gær, til þess að hans sé móttækilegri fyrir hugmyndinni en aðrir nefndar- menn sem blása hana út af borðinu. Taka málið fyrir eftir helgi Álfheiður segir að hún hafi farið þess á leit við Róbert Marshall þegar hún sá bréfið frá Einari Páli Tamimi að allsherjarnefnd ræddi um umsókn auðmannanna en ákveðið var að bíða með að taka málið fyrir þar til í næstu viku – þá eru nefndardagar á Alþingi. „Það var niðurstaða for- manns að óþarfi væri að blása til aukafundar um málið. Ég féllst á þetta sjónarmið. Við verðum auðvi- tað að ræða um þetta í kjölfar þess- arar umræðu,“ segir hún. Niðurstaða allsherjarnefndar um málið mun því væntanlega liggja fyr- ir innan örfárra daga. Miðað við af- stöðu nefndarmanna og harða and- stöðu þeirra ráðherra og annarra sem hafa tjáð sig um málið er líkleg- ast að hugmynd auðmannanna og samstarfsmanna þeirra verði drepin í fæðingu. Fréttir | 17Helgarblað 1.–3. apríl 2011 Geimfarinn sem vill hjálpa auðmönnum að fá ríkisfang Þeir Gísli Gíslason lögmaður, Sig- hvatur Lárusson og Sturla sonur hans hjá Northern Light Energy hafa kom- ið að ýmsum rekstri í gegnum tíðina. Gísli er einna þekktastur fyrir að- komu sína að Pizza 67. Þremenning- arnir komu þó líka allir að fasteigna- sölunni Remax. Lögmaðurinn Einar Páll Tamimi er líka tengdur félaginu. Hann situr í stjórn fjárfestingarsjóðs- ins Nestar sem David Lesperence fer fyrir. Er fjárfestingarsjóðurinn skráð- ur með aðsetur að Suðurlandsbraut 18 á lögmannsstofunni Nordik – Leg- al Services þar sem Einar Páll starfar og er jafnframt meðeigandi. Gísli var sérleyfishafi Remax á Íslandi á árunum 2002 til 2005 og Remax í Danmörku á árunum 2005 til 2007. Hann komst líka í fréttirn- ar árið 2007 þegar hann fór í mál við athafnamanninn Gísla Reynisson. Gísli Gíslason hafði haft aðkomu að því að selja nafna sínum D‘Angla- terre hótelið í Kaupmannahöfn en líkt og ártalið 2007 gefur til kynna stóð íslenska útrásin þá sem hæst. Gísli var nýlega í fréttum í DV þar sem greint var frá því að hann yrði á meðal fyrstu geimfaranna til að fara út í geiminn á vegum flugfélagsins Virgin. Á ferðin að kosta Gísla litlar 23 milljónir króna. Gísli hefur sömu- leiðis komist í slúðurpressuna fyrir að aka um með einkanúmerið 2007 og fyrir að búa í húsi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar á Laufásveginum. Eins og sést í töflu með fréttinni tengist Gísli ansi mörgum eignar- haldsfélögum. Samkvæmt hluta- félagaskrá tengist hann alls 27 fé- lögum en í töflunni eru einungis birt nöfn þeirra félaga sem hafa aðsetur að Lækjargötu 4 í Reykjavík. Engar tekjur 2009 Þremenningarnir hjá Northern Lights Energy hafa verið nokkuð í fréttum vegna kynningar á rafbíla- væðingu á Íslandi eftir hrun. Þeg- ar Northern Lights Energy er flett upp í hlutafélagaskrá kemur fram að það hafi tapað um 15 milljón- um króna árið 2009. Átti það ein- ungis eftir um fimm milljónir króna af hlutafé sínu sem var 20 milljónir. Stærsti hluti tapsins er hefðbundinn rekstrarkostnaður en engar tekjur eru skráðar á fyrirtækið árið 2009. Nafni félagsins hefur hins vegar ver- ið breytt í Even hf. í hlutafélagaskrá. Lék Benjamín dúfu Feðgarnir Sighvatur Lárusson og Sturla Sighvatsson voru eigendur að Remax Búa fasteignasölunni á ár- unum 2003 til 2008. Þeir hafa síðan átt ýmis félög saman eins og eignar- haldsfélagið Akurholt og félagið H54. Sturla er einna þekktastur fyrir að hafa leikið Emil í Kattholti á yngri árum í Þjóðleikhúsinu auk þess sem hann lék Benjamín dúfu í samnefndri kvikmynd. Í viðtali við Morgunblaðið árið 2009 sagðist Sturla stoltur af því að vera alnafni Sturlu Sighvatssonar. Það vekur einnig athygli að Sighvat- ur, faðir Sturlu, er skráður til heimilis að bænum Hvammi á Hellu. Eins og kom fram í viðtali við hann í Kastljósi hefur hann ekki lokið prófi í viðskiptalögfræði frá Háskól- anum á Bifröst. Hann var þó við nám í þrjú ár en ákvað að fresta því til þess að hefja störf hjá íslenska leikjafram- leiðandanum CCP. Vann hann við að selja og markaðssetja Eve Online- leikinn í Bandaríkjunum og Evrópu frá 2003 til 2005 en snéri sér síðan að rekstri Remax með föður sínum. Lögmaðurinn var launahæstur hjá Glitni 2008 Lögmaðurinn Einar Páll Tamimi hef- ur síðan aðstoðað þremenningana hjá Northern Lights Energy. Einar Páll var framkvæmdastjóri lögfræði- og regluvörslusviðs Glitnis fyrir hrun. Hann var launahæsti starfsmaður Glitnis árið 2008 með rúmlega 250 milljónir króna í laun það árið, eða um 21 milljón króna á mánuði. Hann fékk auk þess 440 milljóna króna kúlu lán hjá Glitni. Bæði í eigin nafni og til eignarhaldsfélagsins Tamimi. Eftir hrun sat Einar Páll í stjórn Fjöl- greiðslumiðlunar fyrir hönd Fjáreng- is, eins þeirra félaga sem halda utan um eignir Íslandsbanka. Í dag starfar hann hjá lögmannsstofunni Nordik – Legal Services auk þess að vera einn eiganda stofunnar. Eins og áður var nefnt er Nestar Fjárfestingarsjóður Davids Lesperence skráður með að- setur hjá lögmannsstofunni Nordik – Legal Services. Þar starfa nú einnig þeir Hjörleifiur Kvaran, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, og Bernhard Bogason, fyrrverandi for- stöðumaður lögfræðisviðs FL Group. „Gísli hefur sömu- leiðis komist í slúðurpressuna fyrir að aka um með einkanúm- erið 2007. Á bak við auðmannahópinn Gísli Gíslason og fyrir- tæki á hans vegum, Northern Lights Energy, hefur unnið að því að kynna umsókn auðmannanna tíu um ríkis- borgararétt fyrir íslenskum yfirvöldum. Umsóknin hefur þó ekki verið tekin fyrir formlega í allsherjarnefnd. n Þremenningarnir í Norðurljósafélaginu eiga sér skraut- lega fortíð n Vilja rafbílavæða Ísland n Gísli Gíslason ekur um með einkanúmerið 2007 n Framkvæmdastjórinn lék Benjamín dúfu n Auðgaðist á sölu lúxushótels 10 eignarhaldsfélög tengd Gísla Gíslasyni: Heiti Heimilisfang Sta ða Ásgarður heimili guðanna ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarmaður Bakkabaldur ehf. Lækjargötu 4 Varamaður EVEN hf. Lækjargötu 4 Stjórnarformaður EVEN Rafbílar ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarmaður Miðnætursól ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarmaður Northern Lights Energy ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarformaður Samband til framtíðar ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarmaður Skyndibílar ehf. Lækjargötu 4 Stjórnarmaður Villingur Production ehf. Lækjargötu 4 Meðstjórnandi Volcanic Batteries ehf. Lækjargötu 4 Meðstjórnandi Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is „Síðan setti ég upp súran svip þegar ég heyrði lokaerindið. Ekki hlynntar hugmyndinni Álfheið- ur Ingadóttir og Valgerður Bjarnadóttir eru ekki hlynntar hugmyndinni að veita auðmönnunum ríkisborgararétt. n Aaron Robert Thane Ritchie (Thane Ritchie) n Rodney Chadwick Muse n Patrick Charles Egan n David Joseph Steinberg n Christopher Bailey Madison n Calvin Wilson n Alexei Viktorovich Maslov n Peter Kadas n Patrick Holland n Sandra Jean Houston Vilja ríkisborgararétt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.