Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Síða 30
30 | Viðtal 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
S
kyndilega rann það upp fyrir
mér að þetta gæti farið að kom-
ast á það stig að ekki yrði aftur
snúið,“ segir athafnamaður-
inn Einar Bárðarson um ástæðu þess
að hann ákvað að breyta um lífsstíl
og taka sig á fyrir framan alþjóð. Það
var vinur Einars sem kom að máli við
hann um áramótin og ýtti við honum.
Einar fékk þá handboltahetjuna og
silfurdrenginn Loga Geirsson með sér
í lið og vinna þeir nú hörðum höndum
að því að losa Einar við aukakílóin.
Síðastliðinn föstudag var Einar
gestur í þætti Audda og Sveppa en þar
var gert mikið grín að holdafari hans.
Þátturinn vakti gríðarlega hörð við-
brögð og sá Einar eftir því að hafa leyft
þessu að viðgangast. Hann þurfti með-
al annars að útskýra fyrir dóttur sinni
að hann væri ekki að fá hjartaáfall eins
og ýjað hafði verið að í þættinum. Ein-
ar segist hafa lært undanfarið hversu
vandasamt það geti verið að tvinna
saman föðurhlutverkið og að vera í
sviðsljósinu.
Einar er flestum landsmönnum
góðkunnur en þessi hugmyndaríki
maður hefur verið áberandi í íslensku
tónlistarlífi undanfarinn áratug. Hann
gengur undir viðurnefninu umboðs-
maður Íslands en það eru ekki allir
sem vita að það var sjálfur Helgi Björns
sem kom Einari út í þann bransa. Þeg-
ar Einar var á hátindi ferilsins, stadd-
ur á Bresku tónlistarverðlaununum,
tók hann hins vegar ákvörðun um að
kúpla sig út og snúa sér að fjölskyld-
unni.
Ekki afturkvæmt
„Um áramótin síðustu sagði við mig
manneskja sem ég ber mikla virðingu
fyrir og þykir mjög vænt um að ég
þyrfti að gera eitthvað í þessu. Áður en
þetta yrði komið á það stig að það yrði
ekki aftur snúið,“ heldur Einar áfram
um þá hugarfarsbreytingu sem varð
til þess að hann ákvað að skipta um
lífsstíl. „Það var svolítið spark í rass-
inn fyrir mig þegar ég fór að hugsa út
í þetta þannig að ég væri hugsanlega
að fara yfir einhverja línu og að ég ætti
ekki afturkvæmt ef ég gerði það. Ég
þyrfti að taka mig á og ég ákvað því að
gera þetta bara með stæl.“
Einar hefur tekið sér ótalmargt
fyrir hendur um ævina og hefur það
flest tekist mjög vel. Honum þótti
hins vegar leiðinlegt að ná ekki ár-
angri á þessu sviði. „Það er leiðinlegt
að hafa ráðist í öll þau verkefni sem
maður hefur verið í og tekist ágætlega
en alltaf mistekist með skrokkinn, að
koma sér í form.“
Hættuleg hegðun
Átak Einars hefur ekki gengið átaka-
laust fyrir sig en líkt og fyrr sagði vakti
það mikil og hörð viðbrögð þegar
hann var gestur í þætti Auðuns Blön-
dal og Sverris Þórs Sverrissonar á
Stöð 2 á föstudaginn fyrir viku. Þóttu
þeir félagar fara yfir strikið með því að
gera ítrekað grín að holdafari Einars.
„Ég var í raun aldrei reiður þeim
Audda og Sveppa. Þetta var á mína
ábyrgð og ég varð reiður sjálfum mér.
Ég fór ekki fram á afsökunarbeiðni en
þeir báðust afsökunar í kjölfar um-
talsins og mér þótti vænt um það.
Ég vissi í hvaða þátt ég var að
fara og ég hefði alveg mátt vita að
þetta færi í þennan farveg. Ég hefði
átt að leggja einhverjar línur eins og
menn gera oft áður en menn fara
í svona þætti. Það sem við þurfum
öll að hugsa um, sem erum í þess-
um bransa, er að gæta þess hvað við
erum að gera og hvort skemmtun-
in sem við bjóðum upp á sé nokkuð
fordæmisgefandi á rangan hátt eða
særandi. Í því geta allir lent, ekki bara
Auddi og Sveppi. Þó vissulega dansi
þeir glannalega á línunni oftar en
margir aðrir.“
Einar segist hafa gert athugasemd-
ir við þáttinn á Facebook-síðu sinni til
að vekja athygli á þessu og koma í veg
fyrir að krakkarnir misskildu þessa
hegðun. „Það voru krakkarnir sem ég
var að hugsa um þegar ég skrifaði á
Facebook-síðuna hjá mér. Krakkarnir
sem horfa bara á okkur sniðugu karl-
ana í sjónvarpinu sem haga sér þann-
ig að það sé í fínu lagi að kalla fólk of-
fitusjúklinga og fituhlunka.“
Strítt í skóla
Sjálfur segist Einar aldrei hafa orðið
fyrir einelti í æsku en að hann hafi þó
kynnst stríðni eins og flestir krakkar.
„Mér var strítt í skóla en aldrei þannig
að það væri hægt að flokka það und-
ir einelti.“ Aðspurður hvort hann hafi
sjálfur tekið þátt í einelti svarar Einar:
„Ég minnist þess ekki að hafa verið
leiðandi í einelti en eru ekki allir sem
láta það viðgangast í kringum sig sekir
um vanrækslu?
Það voru krakkar í mínum árgangi
sem lentu í einelti og maður hefði
aldrei átt að láta það gerast. Maður
fattar það bara ekki fyrr en maður er
orðinn eldri. En ég held að þá, eins og
í dag, þori krakkar ekki að grípa inn í
af ótta við að kalla eineltið yfir sig.“
Pabbi ekki að deyja
Eitt af því sem fékk Einar til að átta sig
á því hversu langt yfir strikið grínið í
þættinum fór var þegar dóttir hans
hélt að hann væri að fá hjartaáfall.
„Þegar ég sat þarna og horfði með
þeim á þetta hélt dóttir mín að ég
væri eitthvað veikur. Þau höfðu ekki
vaknað við þessi læti, hvort sem mað-
ur trúir því eða ekki því lætin voru svo
mikil. En þegar það var verið að tala
um hjartaáfall greip hún það á lofti
og það tók mig allt kvöldið að vinda
ofan af því. Þá fattaði ég líka í hverju
ég hefði verið að taka þátt og hefði
kannski ekki verið eins reiður út í
sjálfan mig ef ég hefði ekki þurft að út-
skýra þetta fyrir krökkunum.“
Einar hefur lengi verið í sviðsljós-
inu en það var bara nýverið sem hann
áttaði sig á því hvaða áhrif það gæti
haft á föðurhlutverkið. „Ég er búinn
að vera í sviðsljósinu, ef svo má segja,
í kannski tíu ár. Oft ræður maður við
flæðið en stundum ekki. Allt í einu
er maður kominn í þær aðstæður að
eiga börn sem eru farin að skynja um-
hverfið og sjá pabba í sjónvarpinu. Og
það er ekki fyrr en á síðustu vikum að
ég er farinn að átta mig almennilega á
því. Eins og til dæmis þetta með dótt-
ur mína. Ég áttaði mig ekki á því fyrr
en eftir á að ég hefði aldrei átt að leyfa
þeim að horfa á þetta. Maður er, eins
og ég segi, að venjast því að fleiri en
bara fjölskyldan sjái pabbann.“
Vakti umræðu
Einar segir að engin illindi séu milli
hans og Audda og Sveppa. „Alls ekki,
við höldum bara áfram að vera vinir.
Fyrirgefningin er nú einn mikilvæg-
asti parturinn í því að lífið gangi sinn
gang. Þeir komu í heimsókn til mín í
vikunni og heilsuðu upp á mig og á
endanum held ég að það komi bara
góðir hlutir út úr þessu öllu saman.
Þeir ætla að taka á eineltismálum í
Einar Bárðarson óttaðist að hann væri að tapa
baráttunni við aukakílóin og ákvað að skipta um lífs-
stíl eftir að góður vinur ýtti við honum. Einar var gestur
í þætti Audda og Sveppa fyrir viku og vakti framkoma
þáttarstjórnendanna hörð viðbrögð. Einar segist þeim
ekki reiður heldur hafi hann viljað koma í veg fyrir að
börn teldu þetta æskilega hegðun. Sjálfum var Einari
strítt í skóla þó það hafi aldrei flokkast undir einelti.
Umboðsmaður Íslands ræddi við Ásgeir Jónsson
um breyttan lífsstíl, einelti, tónlistarbransann og
galtóma einkaþotu Gorbatsjovs.
Óttaðist
að eiga
ekki
aftur-
kv mt
„Ég væri hugsan-
lega að fara yfir
einhverja línu og að ég
ætti ekki afturkvæmt ef
ég gerði það.