Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Side 31
Viðtal | 31Helgarblað 1.–3. apríl 2011
næsta þætti og ræða
við sálfræðing. Þetta
vakti umræðu sem er
þörf og maður verður að
taka það jákvæða út úr
þessu.“
Einar segir eineltis-
umræðuna ekki það eina
jákvæða sem geti komið
út úr þessu öllu saman.
Hann vonast til að lífs-
stílsátak sitt hjálpi fólki í
sömu sporum til þess að
taka af skarið. „Ef þetta getur hjálpað
einhverjum öðrum þá er það bara frá-
bært.“
Einar hefur tekist á við ýmislegt
eftir að átakið byrjaði sem hann hafði
ekki gert frá því að hann var ungling-
ur. Fyrir skemmstu gekk hann upp á
Úlfarsfellið og í vikunni hjólaði hann
í vinnuna. Það er hægara sagt en gert
þar sem Einar er búsettur í Reykja-
nesbæ en starfar í Reykjavík. „Þegar
ég lagði af stað í leiðindaveðri hugs-
aði ég bara: Hvað er ég að spá? Ég
vissi ekkert hvað þetta tæki langan
tíma eða hvað ég var að koma mér
út í. En svo bara hafðist þetta og mér
leið alveg ótrúlega vel á eftir. Ég hélt
að ég myndi vera gjörsamlega búinn
á því en adrenalínið og vellíðanin við
að takast á við svona verkefni gefur
manni mikið.“
Ríghélt sér í Helga Björns
Einar er fæddur árið 1972 og hefur
verið í sviðsljósinu lengi líkt og fyrr
sagði. Einar er uppalinn á Selfossi en
það var einmitt þar sem hann steig
sín fyrstu skref í tónlistarbransanum
sem hann hefur starfað við með ein-
um eða öðrum hætti síðan. „Ég var
í uppá tækjasömum vinahópi þegar
ég var barn og unglingur. Við vorum
svolítið í því að koma okkur í vand-
ræði. En þegar við vorum svo komnir
í gaggó tók tónlistin við af því.“
Einar tók virkan þátt í félagslíf-
inu bæði í gagnfræðaskóla og fram-
haldsskóla og áður en langt um leið
var hann farinn að þeyta skífum á
skemmtistöðum bæjarins. „Ég fór svo
að sjá um skemmtanahaldið á Inghóli
sem er staður á Selfossi ekki ósvipað-
ur Sjallanum. Það var svo vorið 1996
sem Helgi Björns hringdi í mig og bað
mig um að vera umboðsmaður fyrir
SSSól.“
Einar hafði þá kynnst Helga þegar
hann hafði bókað SSSól til að spila á
Inghóli en á þessum tíma var hljóm-
sveitin ein sú vinsælasta á landinu.
„Honum höfðu líkað vinnubrögð mín
býst ég við og hann vildi fá mig í þetta.
Mér fannst ég reyndar ekki eiga neitt
erindi í það að vera umboðsmaður
einnar stærstu hljómsveitar lands-
ins á þeim tíma en SSSól og Sálin áttu
bara þennan sveitaballamarkað. Mér
fannst ég vera kominn út á svolítið
hálan ís.“
Einar lét þó ekki tækifærið ganga
sér úr greipum og sló til. „Fake it until
you make it, eins og sagt er. Ég ríghélt
mér bara í Helga Björns þangað til ég
var búinn að ná tökunum á þessu.“
Ertu þá farinn?
Með þessu nýja starfi fór ferill Einars
inn á nýjar brautir eins og hann orðar
það. Þarna var umboðsmaður Íslands
búinn að finna sitt fag. „Fljótlega eft-
ir þetta fór ég reyndar út til Banda-
ríkjanna í nám en þetta opnaði á ým-
iss konar sambönd í þessum bransa.“
Þau sambönd nýtti Einar meðal ann-
ars til þess að koma nokkrum vinum
sínum frá Selfossi á framfæri. Það var
ungt og upprennandi bílskúrsband
sem hét Skítamórall og átti seinna eft-
ir að verða ein vinsælasta hljómsveit
Íslands.
„Skítamórall fékk að spila í pásum
hjá SSSól á böllum og í tvö sumur
ferðuðust strákarnir mikið bæði með
Sálinni og SSSól og spiluðu kaup-
laust í pásum hjá þeim. Ég held að þar
hafi einmitt verið lagður grunnurinn
að velgengni þeirra.“ Vorið 1998 kom
helsti smellur sveitarinnar út, lag-
ið Farinn, en það var einmitt Einar
sem samdi lagið. „Þá sprakk þetta út
hjá þeim. Þessi mikla vinna sem þeir
höfðu lagt á sig skilaði sér og þeim
tókst að skapa sitt eigið „hljóð“ ef svo
má að orði komast. Sem var aðeins
öðruvísi, ekki mikið, en nóg til að slá
í gegn. Þetta var eins og í stjörnufræð-
inni; allt í einu lágu himintunglin rétt
fyrir þeim.“
Einar minnist þess mikla fjaðra-
foks sem varð í kringum sveitina í
kjölfar vinsældanna. „Þeir keyptu
sér allir Volkswagen Golf með einka-
númerunum Skímó 1, 2, 3, 4 og 5 eins
og Ewing-fjölskyldan í Dallas. Við gáf-
um út bók, gerðum heimildarmynd
og hitt og þetta.“ Bílnúmerin frægu
enduðu uppi á vegg á Hard Rock en
meðlimir sveitarinnar neyddust til
að leggja þeim. „Það voru alltaf ein-
hverjir öfundarpésar að reyna að rífa
þau af og rispa bílana.“
Galtóm einkaþota Gorbatsjovs
Á þeim tíma sem Farinn kom út var
Einar úti í Bandaríkjunum í námi
í markaðsfræðum þar sem hann
kynntist meðal annars konunni sinni,
Áslaugu Einarsdóttur. Aðspurður
hvort hann hafi þurft að hafa
mikið fyrir því að vinna hjarta
hennar segir Einar léttur: „Allir
sem hafa séð konuna mína vita
að ég þurfti að hafa mikið fyrir
því að ná í hana. Hún er gull-
falleg kona.“
Einar snéri svo heim árið
1999 og árið 2000 tók hann við
rekstrinum á matsölustaðn-
um sáluga Hard Rock Café.
Síðan þá má segja að Einar
hafi tekið að sér allt milli him-
ins og jarðar. Hann starfaði
um tíma sem markaðsstjóri
Vísis en fljótlega fór hann út
í eigin rekstur í tengslum við
tónlist. Einar hélt fjöldann
allan af tónleikum og flutti
inn heimsfrægar hljómsveitir
í stórum stíl. Hann er maður-
inn á bak við Nylon-ævintýr-
ið, hina umdeildu strákasveit
Lúxor, sendi lag í Eurovisi-
on auk þess sem hann væri
bæði dómari í Idol og X-Fac-
tor.
Einar var þó ekki bara í
tónlistinni og hefur hann tekið upp
á ótrúlegustu hlutum. Árið 2006 flutti
hann til dæmis til landsins Mikhail
Gorbatsjov, fyrrverandi aðalritara
sovéska kommúnistaflokksins og
leiðtoga Sovétríkjanna. Tilgangurinn
var að minnast þess að 20 ár væru lið-
in frá leiðtogafundinum heimsfræga
í Höfða. „Ég man sérstaklega eftir því
að ég var búinn að kaupa undir hann
og fólkið hans einkavél sem átti að
flytja þau til Bandaríkjanna. Vélin sat
á Reykjavíkurflugvelli tilbúin í flugtak
en síðan réð hún ekki við farangurinn
þeirra þannig að ég borgaði held ég
sjö milljónir fyrir einkavél sem flaug
svo tóm til Bandaríkjanna. Gorba-
tsjov og hans fólk fóru svo á Saga
Class með Icelandair og létu bara vel
af fluginu. En meira rugli hef ég held
ég ekki lent í á allri minni tíð í þessum
bransa.“
„That‘s how winning is done“
En Einar var sennilega á hápunkti
ferilsins þegar hann fór í útrás með
íslenskt tónlistarfólk og stofnaði út-
gáfufyrirtækið Believer Music í Bret-
landi. Þar voru það Nylon-stúlkurn-
ar og Garðar Thor Cortes sem voru
flaggskip fyrirtækisins.
„Það var alveg frábær tími og það
gekk ævintýralega vel. Nylon-stelp-
urnar gerðu fína hluti og áttu eitt lag
á breska dansvinsældalistanum og
túruðu með Mcfly og Westlife. Fullt
af litlum sigrum. Þær eru til dæm-
is í mjög litlum hópi íslenskra tón-
listarmanna sem komið hafa fram á
Wembley.“ Einar segir að þrátt fyrir
það hafi hann á endanum þurft að
velja á milli Nylon og Garðars Thors.
„Þegar Garðar var tilnefndur
til Bresku tónlistarverðlaunanna
þurfti ég svolítið að velja. Fókusinn
fór ósjálfrátt meira á Garðar og ég
þurfti að sleppa stelpunum lausum.
En við erum góðir vinir í dag og þær
eru að gera fína hluti núna í Banda-
ríkjunum. Þær eru hjá góðu plötu-
fyrirtæki og fá fullt af flottum tæki-
færum. Þær eru líka búnar að starfa
núna sem atvinnumenn í ein sex ár
og eru bara orðnar mjög góðar. Það
eru þeir sem standa alltaf upp aftur
sem hafa þetta á endanum. „That‘s
how winning is done,“ eins og Rocky
sagði.“
Fjölskyldan eða bransinn
Áramótin 2007–2008 var Einar kom-
inn með alla fjölskylduna út til Bret-
lands og hafði lagt allt undir. „Ég
hafði verið með mjög góða bakhjarla
sem höfðu hjálpað okkur mikið og
þó að það hafi ekki verið komið upp
á yfirborðið úti fann ég alveg að það
var að harðna í ári. Ég vissi að það
yrðu ekki fleiri styrkir og annaðhvort
þyrfti þetta dæmi að fara að ganga af
sjálfu sér eða að þetta væri búið.“
Einar segir að hlutirnir hafi í raun
gengið mjög vel en eins og alltaf í
tónlistarbransanum séu þeir fljót-
ir að breytast. „Dæmið gekk reynd-
ar mjög vel. Við vorum tilnefndir til
Bresku tónlistarverðlaunanna, átt-
um plötu á toppi klassíska listans,
okkur var boðið til Bandaríkjanna
til að tala við Universal, Garðar fór
til Singapúr að syngja og bara allt
í gangi. En ég þurfti samt að taka
ákvörðun. Ætlaði ég að taka slag-
inn áfram og í raun búa í ferðatösku
með Garðari næstu árin eða að segja
þetta gott og snúa mér að fjölskyld-
unni? Hversu mikið öryggi væri það
fyrir fjölskylduna ef ég tæki slag-
inn?“
Það var svo á Bresku tónlistar-
verðlaununum vorið 2008 sem Ein-
ar tók endanlega ákvörðun. „Þegar
við sátum þarna áður en verðlaun-
in voru veitt tók ég ákvörðunina,“ en
Einar hafði þá nýlega komist að því
að hann ætti von á öðru barni og að
móðir hans heima á Íslandi glímdi
við krabbamein. „Ég ákvað að segja
þetta gott. Hvort sem við myndum
vinna eða ekki. Við vorum með fullt
af færu fólki í kringum okkur og það
var kominn tími fyrir mig til að stíga
til hliðar.“
Gott að koma heim
Eftir á að hyggja segir Einar að sú
ákvörðun hafi reynst honum mjög
vel. „Svo kom auðvitað hrunið sem
enginn sá fyrir og þá breyttust allar
forsendur. Bæði ég og Garðar þurft-
um að hugsa öðruvísi.“ Eftir heim-
komuna stofnaði Einar útvarpsstöð-
ina Kanann. „Það hefur verið erfitt
en gefandi verkefni. Það er ekki það
auðveldasta að stofna útvarpsstöð
á Íslandi en það tók mig tæpt ár að
gera þetta að arðbærum rekstri.
Þetta er bara frábær og skemmtileg-
ur vinnustaður sem ég sé fram á að
starfa á næstu tíu árin alla vega. Hér
er frábært fólk með mér sem hefur
mikinn metnað fyrir þessu verkefni
og ég kem stoltur í vinnuna hér dag
eftir dag.“
Eftir að Einar kom heim langaði
hann að skora á sjálfan sig á þeim
sviðum þar sem hann hafði ekki
skarað fram úr ennþá. Eins og í lík-
amsræktinni en einnig ákvað hann
að fara í nám. „Ég hélt nú að það
myndi aldrei gerast en eftir mikla
hvatningu frá konunni minni ákvað
ég að fara í MBA-námið við Háskóla
Íslands og það hefur reynst mér
virkilega vel í því sem ég er að gera.“
„Ég borgaði held ég
sjö milljónir fyrir
einkavél sem flaug svo
tóm til Bandaríkjanna.
Einar Bárðarson
„Allt í einu er
maður kominn í
þær aðstæður að
eiga börn sem eru
farin að skynja
umhverfið og sjá
pabba í sjónvarp-
inu.“ mynd siGTRyGGuR aRi
nýr Einar Hefur meðal annars hjólað Reykjane
sbrautina og klifið Úlfarsfellið, tvisvar. mynd
siGTRyGGuR aRi