Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Page 40
40 | Lífsstíll 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
E
rfðir og útlitsbætandi aðgerðir hafa
auðvitað sín áhrif á það hvort fólk
eldist vel eða ekki. Þó er lítið mál að
fara offari í aðgerðum eða skemma
það sem guð gaf með lélegu mataræði og
óhóflegri áfengisneyslu svo eitthvað sé
nefnt.
Lífsstíllinn skiptir í raun mestu máli ef fólk
vill halda í æskuljómann og þá eru eftirfar-
andi atriði mikilvægust:
10. Hvíldu þig
Reyndu að forðast stress. Stress hefur mjög
neikvæð og niðurbrjótandi áhrif. Exem og
útbrot geta aukist á húðinni, þunglyndi,
önuglyndi og aðrir kvillar verða meira áber-
andi ef þú nærð ekki að hvíla þig annað
slagið. Prófaðu að fara út að ganga þó ekki
sé nema í fimmtán mínútur í senn. Sestu
niður með bók í tuttugu mínútur. Náðu
daglegri slökun en forðastu að nota áfengi
til þess því þar með býrðu til vítahring sem
hefur snjóboltaáhrif til verri vegar.
9. Þú ert það sem þú borðar
Borðaðu ferskan mat. Ávexti, grænmeti,
drekktu vatn og borðaðu ferskan fisk.
Omega 3 fitusýrur (t.d. í laxi) hafa frábær
áhrif á húðina og B- og C-vítamín gera húð,
hári og nöglum gott. Ef þú ætlar að eldast
fallega skaltu borða rétt. Leggðu svolítið á
þig til að skipuleggja máltíðir og hafðu gos-
drykki, sælgæti og brauðmeti í hófi.
8. Sláðu bjarma á brosið
Kaffidrykkja hefur þau áhrif að tennurnar
gulna eða dökkna. Fallegt hvítt bros gerir þig
unglegri og slíkt er hægt að öðlast nokkuð
fyrirhafnarlaust. Tannhvíttunarefni hafa
þróast mjög á liðnum árum sem gerir þau
auðveld og áhrifarík í notkun. Sláðu bjarma
á brosið með heimsókn í apótekið eða til
tannlæknis.
7. Stundaðu líkamsrækt
Þetta er auðvitað í efsta sæti á „to do“ list-
anum hjá mörgum en þó eru aðeins örfáir
sem raunverulega stunda líkamsrækt reglu-
lega. 30 mínútur á dag, þrisvar í viku, breyta
miklu fyrir heilsuna. Hvort sem þú ferð út að
hlaupa, ganga eða í líkamsrækt. Blóðflæðið
eykst og útlitið batnar.
6. Náðu góðum nætursvefni
Svefn er afar mikilvægur bæði útlitinu og
andlegri og líkamlegri heilsu. Ef þú vilt eld-
ast vel skaltu passa upp á að sofa vel. Farðu
snemma og í rúmið. Fyrr en þú ætlar þér.
5. Fjarlægðu líkamshár
Hár á ekkert með að vaxa á undarlegum
stöðum þó það sé byrjað að þynnast á koll-
inum. Fjarlægðu hár úr nefi, eyrum og á
milli augna ef það vex úfið þar. Konur ættu
að fara reglulega í plokkun eða vax hjá fag-
manneskju sem þær treysta.
4. Notaðu réttu kremin
Notaðu krem sem inniheldur góðan raka.
Þetta heldur húðinni teygjanlegri, fallegri og
unglegri. Karlmenn ættu að nota góðar rak-
vélar og raksápur og ef þeir nota ekki þegar
krem þá ættu þeir að byrja á því.
3. Klæddu þig eftir aldri
Fólk á fertugs- og fimmtugsaldri sem lít-
ur út fyrir að versla í Zara Kids eða Kiss í
Kringlunni er ekki smart þótt það haldi það.
Klæddu þig á þokkafullan hátt í takt við ald-
urinn. Veldu föt sem passa á þig og klæða
vöxtinn. Unglegt útlit felst ekki í unglings-
legum og glannalegum klæðaburði.
2. Ekki reykja
Fátt sem við gerum skaðar útlitið og heils-
una jafn mikið og reykingar. Ef þú ætlar að
halda í hvorutveggja skaltu drepa í. Núna.
Gular tennur, gulir fingur, hrukkur og and-
remma eru meðal þess sem reykingafólkið
uppsker.
1. Notaðu sólarvörn
Áratugalangar rannsóknir vísindamanna
hafa leitt í ljós að ekkert eldir húðina eins
hratt og of mikið sólarljós. Hrukkur, lita-
breytingar og húðkrabbi eru meðal þess
sem fólk uppsker af of miklum sólböðum.
Notaðu sólarvörn með SPF 15 á hverjum
degi en SPF 30 ef þú ætlar að vera mikið úti
yfir daginn og forðastu ljósabekki með öllu.
margret@dv.is
Flest viljum við eldast vel en fólk sem heldur í unglegt yfirbragð
um leið og það ber með sér tignar- og glæsileika er alltaf aðlað-
andi. Góð dæmi um þetta eru leikararnir Jane Fonda og Sean
Connery en hvort um sig er komið yfir sjötugsaldurinn.
Útlitsboðorðin 10
Jane Fonda
Sean Connery
Hefst
5. apríl
Frábært heilsunámskeið fyrir fólk á öllum aldri sem vill auka
lífsgæði sín í góðum félagsskap.
Styrkjum stoðkerfið60+
• 2 fastir tímar (þri/fim. kl. 13-14)
• 1-2 styrktartímar í tækjasal undir leiðsögn þjálfara
• Einstaklingsmiðaðar æfingar
• Mikill stuðningur og fræðsla
• Eftirfylgni og umhyggja
Skráning 444-5090