Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Qupperneq 53

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Qupperneq 53
Fólk | 53Helgarblað 1.–3. apríl 2011 Fyrirsætan Jessica White, fyrr-verandi kærasta Hollywood-leikarans Seans Penn, segist vera á hápunkti lífs síns þó að hún hafi upplifað sársauka fyrr á lífsleið- inni. „Ég lifi í draumi allra stúlkna,“ sagði hún í samtali við bandaríska tímaritið People. Þessa dagana vinn- ur hún að heimildarþáttum fyrir Oxygen-sjónvarpsstöðina, sem er í eigu sjónvarpskonunnar Opruh Winfrey, auk þess sem hún vinnur að snyrtivörulínu og fyrir mannúð- arsamtökin Angel Foundation. Þó að hún sé sjálf viss um að hún sé á há- punkti lífsins er hún ekki alveg laus við vandamál. White fer fyrir dóm í New York í maí vegna líkamsárásar. „Ég hef aldrei neitað að hafa lent í átökum,“ segir hún. „En ég var lát- in líta út fyrir að vera vond, sem var 110 prósent falskt.“ White seg- ist hafa verið að verja sjálfa sig frá árás. „Ég var að reyna að ná í leigu- bíl og hún kom aftan að mér og ýtti mér,“ segir White um atvikið. Sak- sóknari á Manhattan sem fer með málið vildi ekki tjá sig við tímarit- ið um málið en fyrir liggur að Va- nessa Kian, sú sem kærði White, er ekki sammála henni og segir White hafa ráðist á sig með þeim afleiðing- um að hún hafi hlotið sár, bólgur og þjáðst af sársauka. White segir að til sé myndband sem sýni hið rétta í málinu og að það styðji frásögn hennar. „Ég gerði ekkert þangað til hún sló mig í and- litið. Ég missi mig ekki á saklaust fólk.“ Hún neitar líka orðrómi sem hefur verið uppi um að sambands- slit hennar við Sean Penn hafi eitt- hvað með átökin að gera. „Mér þyk- ir vænt um Sean og ég óska honum alls hins besta.“ SjálfSvörn en ekki líkamsárás Fyrirsætan Jessica White neitar ásökunum: Það var stór dagur í vikunni hjá aðdáendum Britney Spears þegar Femme Fatale, sjöunda hljómplata söngkonunnar, kom út á sama tíma og hún tilkynnti að hún ætlaði á tónleikaferðalag í sumar. Í tilkynningunni sagðist hún myndu spila víða ásamt söngvaranum Enrique Iglesias. Billboard.com hefur hins vegar sagt frá því að Iglesias hafi hætt við tónleikaferðalagið með Spears. Þetta hefur fjölmiðlafulltrúi söngvarans staðfest og segir að þrátt fyrir formlegar viðræður á milli umboðsmanna söngv- aranna tveggja hafi Iglesias ákveðið að fara einn síns liðs í tónleikaferðalag til að kynna plötuna sína Euphoria. „Enrique ber mikla virðingu fyrir Britney og hefur lengi verið aðdáandi tónlistar hennar,“ sagði talsmaður- inn um málið við bandaríska fjölmiðla. „Honum þykir það leitt að þetta hafi valdið einhverjum misskilningi.“ Tónleikaröð Spears mun hefjast 17. júní í Sacra- mento í Kaliforníu en tekur enda í Toronto í Kanada 13. ágúst. Ekki á tónleik- um með Spears Enrique Iglesias einn á tónleikaferðalagi: Syngur einn Fjöl- miðlafulltrúi Iglesias segir söngvarann verða einan á ferð í tónleikaferðalaginu. Fyrrverandi kærasta Penns Orðrómur hefur verið uppi um að átökin hafi tengst sam- bandsslitum fyrirsætunnar við leikarann Sean Penn. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. Endurnærir og hreinsar ristilinn allir dásama OXYTARM Í boði eru 60-150 töflu skammtar 30+ Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is OXYTARM Sól og heilsa ehf = Losnið við hættulega kviðfitu og komið maganum í lag með því að nota náttúrulyfin Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur days detox Bolt inn í be inni Hamraborg 11 w 200 Kópavogur w Sími: 554 2166 w www.catalina.is Leigjum út sal fyrir veisluhöld Um helgina spilar hljómsveitin sín Snyrtilegur klæðnaður áskilinn. n Réttur dagsins alla virka daga n Hamborgarar, steikar- samlokur og salöt n Hópamatseðlar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.