Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 15
Fréttir | 15Helgarblað 3.–5. júní 2011 Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? í Múrbúðinni Reykjavík Klettháls 7. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-16 Suðurnes Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18 Akureyri Furuvellir 15. Opið virka daga kl. 8-18, laugard. 10-14 Húsavík Garðarsbraut 50. Opið virka daga kl. 8-18 Vestmannaeyjar Flatir 29. Opið virka daga kl. 8-18 VEGLEG VERKFÆRI DURATOOL Rafhlöðuborvél 18V 2.990 kr. NOVA 18V Rafhlöðuborvél 2 hraðar 4.990 kr.Verkfærasett 33 hlutir 1.495 kr. NOVA TWISTER 4,8V Skrúfvél og skrúfbitar 1.790 kr. Verkfærasett 5 hlutir 395 kr. Flísasög 800w, sagar 52 cm 19.900kr. 1400W 360 min/lit/klst Þolir 50C heitt vatn 5 metra barki Sápubox Black&Decker háþrýstidæla 110 bar 13.900 kr. þess. Francois segir fyrrverandi eig- inkonu sína þó ekki hafa mætt í við- talið með stúlkuna en sýslumaður- inn hafi ekkert aðhafst. „Það er ljóst að sýslumaðurinn virti ekki þá kröfu innanríkisráðuneytisins að leyfa dóttur minni að koma sínum skoð- unum á framfæri. Innanríkisráðu- neytið lofaði mér svo því að ganga í málið fyrir lok marsmánaðar, en ekk- ert gerðist. Ég fór því til þeirra í apríl og aftur lofuðu þeir að gera eitthvað, en ekkert gerðist,“ segir Francois, sem er orðinn langþreyttur á sam- skiptum sínum við íslensk yfirvöld og þögn þeirra gagnvart honum. Ráðuneytið gleymdi málinu Í janúar byrjaði fyrrverandi eigin- kona Francois jafnframt aftur að brjóta á umgengnisrétti hans og kvartaði hann til ráðuneytisins vegna þess. Þar var honum hins veg- ar bent á að leita til sýslumanns sem vildi að hann færi aftur í gegnum það ferli að óska eftir dagsektum. Þá var Francois nóg boðið og vildi að þvingunaraðgerðum yrði beitt á nýjan leik. Ráðuneytið lofaði því að taka málið fyrir en þar gleymdu menn að óska eftir upplýsingum frá sýslumannsembættinu um mál- ið. Francois sýnir blaðamanni bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem beðist er afsökunar á þessu. „Ég spyr bara hvernig gátu þeir gleymt máli sem þessu, þar sem þeir fengu bréf frá lögmanninum mínum í nán- ast hverri viku,“ segir hann og réttir blaðamanni afrit af fjölda bréfa frá lögmanni sínum til innanríkisráðu- neytisins. „Ég kalla þetta mannrán“ Hann segir stöðuna á málinu líka sérstaklega alvarlega núna því sam- kvæmt úrskurði á hann rétt á að skipuleggja sumarfrí með dóttur sinni annað hvort ár og í ár er hans ár. Skilyrðið er að hann tilkynni móð- ur hennar um fyrirætlanir sínar fyr- ir 1. maí. Hann tilkynnti henni hins vegar í byrjun febrúar að hann væri búinn að skipuleggja sumarfrí með stúlkunni hérlendis frá 6. júní til 4. júlí. Hann segir fyrrverandi eigin- konu sína hafa neitað því, enda ætli hún að senda stúlkuna í sumarskóla til Frakklands í sjö vikur. „Þetta er ekki löglegt,“ segir Francois mjög ósáttur. „Ég kalla þetta mannrán. Þetta er mannrán sem yfirvöld leggja blessun sína yfir, nema þau geri eitt- hvað fyrir þann tíma.“ Hann tilkynnti innanríkisráðuneytinu um tilvon- andi umgengnisréttarbrot gegn sér en segir ekkert hafa verið aðhafst þrátt fyrir að bæði hann og lögmað- ur hans sendi ráðuneytinu ítrekað bréf varðandi það mál. Francois vill meina að með þessu sinnuleysi séu íslensk yfirvöld að brjóta sín eigin barnalög, sem séu þó mjög ósann- gjörn fyrir. Dóttirin sendi ráðherra bréf Francois segir að dóttir sín sé einn- ig komin með nóg af sinnuleysi yfir- valda og að hún hafi ritað Ögmundi Jónassyni innanríkisráðherra bréf fyrir hálfu ári síðan án sinnar vitn- eskju. „Hún hefur sagt að hún vilji vera hjá föður sínum, ekki móður sinni en ég reyni að róa hana nið- ur með það. Ég hef reynt að koma henni í skilning um það að ég vilji að minnsta kosti deila forræðinu yfir henni.“ Hann segir dóttur sína sí- fellt hafa verið að spyrja út í bréf sem hún átti von á og að lokum tjáði hún honum hvað hún hafði gert. Þegar Francois grennslaðist fyrir um bréf- ið í ráðuneytinu fékk hann staðfest að það hefði borist. Að sögn Franco- is var dóttur hans þó ekki svarað því starfsmenn ráðuneytisins vissu ekki hvað þeir áttu að segja við hana. Hann bendir á að samkvæmt alþjóð- lega barnasáttmálanum eigi börn rétt á að fá að tjá sig. „Dóttir mín hef- ur frá mörgu að segja en þeir gefa henni aldrei tækifæri til þess. Hún er því neydd til að hlýða öllu því sem móðir hennar ákveður án þess að fá að koma nokkrum athugasemdum á framfæri,“ segir Francois örlítið von- leysislega en er þó langt frá því að gefast upp. Hann segist ekki hafa það í sér að gefast upp. Hann og dóttir hans eigi rétt á því að vera í óþving- uðum samskiptum og þann rétt megi ekki brjóta. Skólavörðustígurinn skreyttur Hinn árlegi blómadagur Skóla- vörðustígsins verður haldinn á morgun laugardag en þetta er í átt- unda skipti sem dagurinn er hald- inn hátíðlegur. Í fréttatilkynningu segir að forsaga blómadagsins sé sú að árið 2003 hafi Skólavörðu- stígur verið útnefndur blómagata Reykjavíkur og í kjölfar þess tóku íbúar, rekstraraðilar við götuna og Reykjavíkurborg saman höndum um að fegra miðborg Reykjavíkur. Dagurinn er því haldinn há- tíðlegur í tilefni sumarkomu auk þess sem hann á að undirstrika sérstöðu fyrirtækjanna við Skóla- vörðustíginn, sem mörg hver byggja viðskipti sín á handverki, nytjalist og hvers konar hönnun og listaverkum. Meðal hátíðarhalda verður menningarganga Birnu Þórðar- dóttur en gangan sem er öllum ókeypis hefst við styttu Leifs Eiríks- sonar klukkan 14. Auk þess munu börn afhenda gestum og gangandi blóm og ávexti. Er það gert í sam- vinnu við íslenska blómabændur og Banana hf., dreifingaraðila á ávöxtum. Síðast en ekki síst verð- ur leikin tónlist og stiginn dans og mun því gatan iða af lífi og fjöri á laugardaginn. Í dag, föstudag, mun borgar- stjóri Reykjavíkur afhenda íbúum og rekstraraðilum blóm og verða húsin og gatan skreytt með þeim. Fer af- hendingin fram á horni Bergstaðar- strætis og Skólavörðustígs klukkan 9.30. Mörgum finnst Skólavörðustígurinn vera perla miðborgarinnar: Skólavörðustígurinn Íbúar og fyrir- tæki tóku saman þátt í því átaki að fegra miðbæ Reykjavíkur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.