Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 37
Viðtal | 37Helgarblað 3.–5. júní 2011 Konur á sjó Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir var um 13 ár viðriðin sjóinn. Hún byrjaði á grásleppu á Vopnafirði um miðjan níunda áratuginn, fyrst út frá Vopna- firði, en fluttist svo til Ólafsvíkur með þáverandi sambýlismanni sínum þaðan sem þau gerðu út trillu í 11 ár. Dóróthea, eða Dóra eins og hún er kölluð, kunni að sögn ágætlega við sjóinn. „Ég réri alltaf á sumrin en beitti fyrir bátinn á veturna þegar hann réri. Ég beitti átta til tólf bjóð á dag og alla vega einu sinni beitti ég 15,“ segir hún en þeir sem unnið hafa við beitningu vita að átta balar eru ærið dagsverk. Hún segir að sér hafi alltaf líkað bet- ur við að vera á sjó en ekki hafi verið annað í boði en að beita á veturna. Misgóðar vertíðir Hún segir að þegar hún byrjaði á Vopnafirði hafi það ekki þekkst að kona stundaði róður eða beitti. Það hafi þær reyndar gert áður fyrr en ekki á þeim tíma. „Þetta þótti rosa- lega skrýtið en ég lét það ekkert á mig fá. Ef ég ákveð að gera hlutina þá geri ég þá,“ segir hún ákveðin. Hún segir að vertíðirnar hafi ver- ið misgóðar. Stundum hafi fiskast vel en stundum minna. „Þetta gekk upp og ofan. En það var mikið líf í Ólafs- vík á sínum tíma og oft skemmtilegt að vera í kringum þetta. Það var lát- laust verið að tala um aflann; hverj- ir voru að fiska vel og þess háttar. Ég bjó á þannig stað, niðri undir höfn, að það var oft þétt setinn bekkurinn í eldhúsinu,“ segir hún glaðleg. Er í framkvæmdum Þau hættu útgerð árið 1998. „Þá seldi hann bátinn og ákvað að hætta,“ seg- ir Dóra en þau hafa fyrir löngu slit- ið samvistir. Hún hefur undanfarin tíu ár átt og rekið verslunina Skri- ðuland í Saurbæ í Dalasýslu. Ferða- mannasumarið er framundan og Dóra er bjartsýn. Hún er að setja upp gistiheimili og hefur minnk- að verslunina. Hluti herbergjanna verður tilbúinn fyrir sumarið og þeg- ar er orðið fullbókað um verslunar- mannahelgina. Þá stendur mikið til. „Skjöldur [Eyfjörð], sonur minn er að fara að gifta sig, hérna í Staðarhóls- kirkju sem er rétt hjá,“ segir hún full tilhlökkunar. Hún segir að hann hafi stundum hjálpað sér í búðinni en hann búi núna með manni sínum í Noregi. Dóra segir aðspurð að hún geti vel hugsað sér að fara aftur á sjóinn. Hún myndi slá til ef góð staða byðist og vel stæði á. Hún segir þó ekki fýsi- legan kost að byrja frá grunni. Nýlið- un í greininni sé sáralítil vegna þess að kerfið sé erfitt. Hún hefur litla trú á strandveiðunum eins og þær eru núna. „Ég get ekki séð að þetta gangi upp hjá mönnum sem kaupa báta í dag. Ég myndi ekki vilja kaupa núna,“ segir hún. Myndi fara aftur á sjóinn Dóróthea G. Sigvaldadóttir var í útgerð í 13 ár: Lára Hrönn Pétursdóttir tók punga- próf 19 ára og fór í Stýrimannaskól- ann þegar hún hafði lokið stúd- entsprófi. Síðan hefur hún verið skipstjóri á sumrin hjá fjölskyldu- fyrirtækinu Sæferðum sem býður á sumrin meðal annars upp á útsýnis- siglingar um Breiðafjörðinn. Hún á tvö börn og hefur verið heima á vet- urna síðan þau fæddust auk þess að stunda fjarnám í sjávarsútvegsfræði. Þá hafði hún fyrir þann tíma unnið í afleysingum á annars konar skipum svo sem línubátum og netabátum sem stýrimaður, kokkur og háseti. „Breiðafjörður er svo sérstak- ur og umhverfið í kring. Það eru ákveðin forréttindi að fá að sigla á þessu svæði. Þetta er svo stór hluti af manni og hefur alltaf verið; það væri hálfasnalegt að sigla ekki. Þetta er svo mikið frelsi en um leið ögrun og mikilfengleiki. Það er sérstaklega skemmtilegt og hressandi þegar ég hef verið á fiskiskipum að öskra á móti hafinu í brælu. Þá hefur verið skemmtilegt að vera um borð í þess- um skipum ef allir eru vinnusamir og manni lyndir vel við áhöfnina. Þetta er erfitt en skemmtilegt.“ Þegar Lára Hrönn er spurð hvern- ig karlarnir um borð á þessum skip- um hafi tekið henni segir hún að svo lengi sem hún sé dugleg þá sé allt í góðu. Hvað með sjóinn? Hvað er hann í huga hennar? „Hann er hluti af upp- runanum; það sem hefur mótað mann í gegnum tíðina.“ MiKið frelsi Lára Hrönn Pétursdóttir skipstjóri: Jónína Hansen vélstjóri segir að sig hafi langað í Vélstjóraskóla Íslands þegar hún var unglingur. „Þá var erf- iðara að komast á sjó en á þessum tíma þurfti maður að hafa verið til sjós í tvö ár til að komast í skólann. Ég fór ekki í skólann fyrr en ég var orðin 35 ára.“ Hún segist í gegnum tíðina hafa sóst í karlastörf. Hún vann til dæm- is verktakavinnu um tíma svo sem í vegagerð. „Það kom ættingjum mín- um ekkert á óvart að ég skyldi verða vélstjóri. Það á til dæmis ekki við mig að sitja á skrifstofu; mér finnst það allt of rólegt. Svona vinna á virkilega vel við mig og mér finnst heillandi að vera í kringum mannskap sem þarf að erfiða. Ég veit að það er fullt af konum sem myndu vilja gera þetta en það hafa ekki allar burði í sér til þess. Þá þora margar ekki að fara þessa leið.“ Bitin af hlýra Túrarnir hafa oft verið langir – ein til tvær vikur – og stundum í mesta lagi 12 tíma stopp í landi. Jónína á fjöl- skyldu og segir að auðvitað sé alltaf erfitt að fara frá börnunum. „Þau eiga tvo foreldra og ef konan getur hugsað um þau þá getur karlinn það líka.“ Jónína hefur lítið verið til sjós í tvö ár eða síðan hún fékk mikla sýk- ingu í einum túrnum; hún segist hafa tekið túr og túr eftir slysið. „Við feng- um mokveiði af hlýra og var ég bitin í fingur þegar ég setti höndina ofan í kar. Ég var komin með mikla eitrun nokkrum klukkutímum síðar. Skip- stjórinn vildi fara í land en ég sagði að það væri óþarfi. Ég veiktist hins vegar mikið og var í kjölfarið lögð inn á sjúkrahús þar sem ég var komin með mikla eitrun í líkamann. Fingur- inn lamaðist og hef ég farið í nokkrar aðgerðir vegna þess.“ Andleg næring Þegar Jónína er spurð hvað henni finnist heillandi við sjómennskuna segist hún ekki vita um meiri slökun. „Þó það geti verið líkamlega erfitt að vera á sjónum þá er ég alltaf endur- nærð þegar ég kem í land. Sjórinn hefur ofboðslega góð og róandi áhrif á mig. Þetta er mikil andleg næring. Það gefur mér mikið að vera á sjón- um. Mér finnst ég áorka miklu hvað varðar vinnu. Það fylgir þessu frelsi. Ég elska sjóinn og ég veit fátt betra en sjóinn.“ Jónína segir að það sé allur gang- ur á því hvernig vinnufélagar henn- ar um borð hafi tekið sér. „Sumum finnst kannski í fyrstu að þeir þurfi að gera allt en þeir gleyma því að ég sé kerling þegar þeir kynnast mér. Þeir sjá að ég get þetta og að ég er ekkert síðri en þeir. Flestum finnst gott að kona sé um borð og finna mun á and- rúmsloftinu; strákarnir segja að and- rúmsloftið verði léttara, menn verða hreinlegri og hugsa betur um sig og vistarverur sínar. Húmorinn verður betri. Ég man eftir einum manni sem fannst það svolítið niðurlægjandi að ég skyldi vera um borð og hann hafði ýmislegt á hornum sér gagnvart mér en svo lagaðist það. Hann þurfti bara að kynnast mér.“ Jónína Hansen vélstjóri: endur- nærð eftir túrana „Ég man eftir ein- um manni sem fannst það svolítið niður- lægjandi að ég skyldi vera um borð og hann hafði ýmislegt á hornum sér. „Ég get ekki séð að þetta gangi upp hjá mönnum sem kaupa báta í dag. Mæðgin Skjöldur Eyfjörð ætlar að gifta sig í sumar og gestirnir verða í Skriðulandi, hjá Dóru. Jónína Hansen „Svona vinna á virkilega vel við mig og mér finnst heillandi að vera í kringum mannskap sem þarf að erfiða.“ Lára Hrönn Pétursdóttir „Þetta er svo mikið frelsi en um leið ögrun og mikilfengleiki.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.