Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 62

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 62
„Það er dálítið erfitt að finna út hvort ég eigi afmæli 28. febrúar eða 1. mars. Það er oft þannig að ég fagna bara báða dagana og það er misjafnt hvenær ég held upp á afmælið,“ segir Katrín Lilja Krist- insdóttir, sem er 15 ára, aðspurð um hvernig það sé að eiga bara af- mælisdag á fjögurra ára fresti. Hún er fædd þann 29. febrúar á hlaup- ári, árið 1996. Eins og kunnugt er kemur 29. febrúar bara upp á fjög- urra ára fresti og þess vegna hefur Katrín einungis átt afmæli þrisvar á 15 ára tímabili. „Ég er í raun bara þriggja ára. Á næsta ári er hlaupár, þá verð ég fjögurra ára,“ segir Katr- ín hlæjandi og bætir við: „Ég verð sextán ára en samt bara fjögurra ára á næsta ári og ætla að reyna að hafa svolítið flott afmæli þá. Þá verð ég flutt í bæinn, ég ætla í skóla þar.“ Katrín fagnaði nýlega útskrift úr grunnskólanum Lísuhólsskóla á Snæfellsnesi. Hún útskrifast ári á undan jafnöldrum sínum. „Ég byrjaði í skólanum ári á undan því ég er í svo rosalega fámennum skóla. Ég fékk að fara ári á undan svo ég yrði ekki ein í bekk,“ seg- ir hún og er ákveðin hvað varðar framtíðina: „ Ég ætla að fara í FB og læra myndlist á listnámsbraut.“ viktoria@dv.is Tónelsk kærasta Sölva 62 | Fólk 3.–5. júní 2011 Helgarblað Katrín Lilja er 15 ára en hefur bara átt afmæli þrisvar: mörg ár að baki en „er í raun bara 3 ára“ n Sjónvarpsmaðurinn Sölvi og tónlistar- konan Védís eru nýtt par n Staðfesta sam- bandið n Védís ætlar sér að ná langt í tón- listinni n Sölvi finnur hamingjuna á ný eftir erfið sambandsslit Ástin blómstrar hjá turtildúfunum: V édís Vantíta Guðmunds- dóttir er ný kærasta sjón- varpsmannsins Sölva Tryggvasonar. Parið hefur sést saman víða undanfarið og vak- ið verðskuldaða athygli hvert sem þau koma. Védís er hæfileikaríkur tónlistarmaður og skipar dúett- inn Galaxies ásamt ungfrú Reykja- vík 2009, Magda lenu Dubik. Atriði þeirra á Ungfrú Ísland keppninni í ár vakti athygli margra. Þar komu þær fram leðurklæddar og frum- fluttu nýjan smell. Samstarf fyrir tilviljun Þær stöllur eru komnar með um- boðsmanninn Valla sport og ætla sér stóra hluti í tónlistinni samkvæmt Védísi.„Þetta er frekar nýtt af nálinni hjá okkur, við erum búnar að gefa út eitt lag og erum að keyra þetta í gang. Lagið var að koma í spilun um helgina og svo erum við að vinna í fleiri lögum og ætlum að sjá hvern- ig landinn tekur í þetta,“ segir Védís kát í bragði. Hún segir þær ekki koma nálægt skipulagningu heldur sendi umboðsmaðurinn, Valli sport, þær út um víðan völl í verkefni. „Þetta lítur vel út eins og er. Þetta er rosa- lega skemmtilegt samstarf. Við erum að vinna með góðu fólki og þetta er bara skemmtilegt.“ Hún segir sam- starfið hafa byrjað fyrir tilviljun: „Við vorum beðnar um að spila á opnun- inni á skemmtistaðnum Esju í haust og þá þekktumst við ekki neitt. Í kjöl- farið fórum við að gera eitthvað sam- an og athuga hvort við gætum ekki fundið eitthvað meira að gera. Þá bættum við söng inn í þetta hjá okk- ur,“ segir Védís. Hvorki Védís né Sölvi vildu þó tjá sig um sambandið í sam- tali við blaðamann en sögðu það þó ekki vera neitt leyndarmál. Þau hafi þekkst lengi en nýlega hafi vináttan þróast í ástarsamband. Að öðru leyti vildi hvorugt þeirra tala um einkalíf sitt né láta hafa nokkuð eftir sér um það. Hamingjusamur á ný Það er ekki langt síðan Sölvi sagði skilið við fyrrverandi kærustu sína Silviu Santönu Briem en hann lýsti skilnaðinum í opinskáu helgarvið- tali við DV í mars á þessu ári. Þar sagði hann meðal annars: „Hún mun alltaf eiga stað í hjarta mínu og ég er þakklátur fyrir þann góða tíma sem við áttum saman. Ég er svona smám saman að venjast því lífi sem ég lifi án hennar. Ég er löngu búinn að átta mig á því að ég get ekki hengt mig á aðra mann- eskju fyrir hamingjuna. Hamingj- an er alltaf á mínum forsendum.“ Nú hefur Sölvi hins vegar fundið hamingjuna á ný í örmum Védísar. Vala í vanda Vala Grand varð fyrir því óláni að veskinu hennar var stolið aðfaranótt fimmtudags. Eins og svo margir aðrir skellti Vala sér út á lífið en hún var á skemmtistaðnum Austur þegar veskið hvarf. Á Facebook-síðu sinni lýsir Vala eftir símanum sínum sem var í töskunni en hún fer þess á leit við þjófinn að hann skili honum, hann megi halda öllu hinu, því Vala þurfi að ná í manninn sinn. Vala nældi sér nefnilega nýlega í danskan kærasta og gæti verið að hún flytti út á næstunni til þess að vera með sínum heitt- elskaða. bogi eignast alnafna Sjónvarpsmaðurinn geðþekki Bogi Ágústs- son eignaðist á dögunum alnafna. Sonur hans Ágúst Bogason gaf syni sínum nafn um síðustu helgi og hlaut sá stutti nafn afa síns. Afinn er væntanlega kátur með það en það er aldrei að vita nema sá stutti feti í fótspor hans og gerist fréttamaður. Sonur hans hefur að vissu leyti fetað í fótspor hans en Ágúst starfar í Útvarpshúsinu líkt og faðir hans en þar sér hann um þættina Hið opinbera og Poppland. Barnung táningstúlka Katrín Lilja fagnar fjórða afmæli sínu á næsta ári.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.