Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 8
8 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 St. 41-46 Grensásvegur 8 & Nýbýlavegur 12 Sími 517 2040 Opið mánud-föstud. 11-18 laugard. 11-16 SKÓMARKAÐUR St. 40-46 St. 41-50 St. 40-46 Góðir skór Gott verð St. 36-41 kr. 6.595 St. 36-41 kr. 5.895 St. 24-35 kr. .395 St. 41-46 kr. 6.795 „Við bara breytum nafninu í Apó- tekið Björk og sækjum um námslán til að læra apótekarann. Ég hlýt að fá einhverja sporslu frá fyrirtækinu til þess að læra þetta,“ segir Arnór Indr- iðason, starfsmaður í Tóbaksversl- uninni Björk. Þverpólitískt frumvarp þar sem meðal annars er lagt til að almenn sala á tóbaki verði bönnuð í skrefum og færð yfir í apótek liggur nú fyrir þinginu. Apótekari átti Björk Um er að ræða tíu ára rammaáætlun sem þingmennirnir vilja að velferð- arráðherra vinni að og miði að því að takmarka sölu tóbaks við apótek. Á meðal flutningsmanna eru Ólína Þorvarðardóttir, Árni John sen, Álf- heiður Ingadóttir, Siv Friðleifsdótt- ir og Þór Saari. Gangi málið í gegn segja Bjarkarmenn að fátt annað sé til ráða en að breyta þessari 84 ára gömlu tóbaksverslun í apótek. „Þetta er auðvitað sagt meira í gríni en alvöru en þessi verslun var auðvitað í eigu eins frægasta apó- tekara landsins í gamla daga þann- ig að það er nú ekki langt að sækja nafnið. Hann hefur kannski verið svona framsýnn að eiga bæði apó- tek og tóbaksverslun, hann hefur kannski vitað að þetta ætti svona vel saman,“ segir Arnór og hlær. Tóbaks- verslunin Bristol við Bankastræti tók til starfa árið 1927 en húsnæðið sem hýst hefur verslunina síðan þá var byggt árið 1875. Við eigendaskipti árið 1985 var nafni hennar breytt í Tóbaksverslunina Björk. Afgreiða tóbak í sloppum Ólína Þorvarðardóttir, þingkona Samfylkingarinnar og einn flutn- ingsmanna fumvarpsins, sagði í samtali við DV í vikunni að hún teldi það vera skyldu ríkisins „að taka þetta eitur úr almennri umgengni með tímanum.“ Illugi Gunnars- son, þingmaður Sjálfstæðisflokks- ins gagnrýndi tillöguna hins vegar og sagði hana dæmi um það þegar stjórnlyndið bæri fólkið ofurliði. Arnór Indriðason segir starfs- menn Bjarkar hafa rennt í gegn- um frumvarpið á þriðjudaginn og að þeir viti í rauninni ekki hvort þeir eigi að hlæja eða gráta. „Ef við neyðumst til að breyta þessu í apó- tek verður þetta mjög fínt hjá okk- ur, við verðum bara hérna í hvítu sloppunum að afgreiða lyfseðils- skyld lyf.“ Arnór segist líta á mál- ið sem eins konar brandara enda muni apótekarar að hans mati varla hafa áhuga á því að selja tób- ak í sínum verslunum. „Hvað þá að þurfa að sjá um einhverja lyfseðils- skylda tóbaksfíkla, nóg er nú búið að ræða undanfarið um alvarlegri og sterkari lyf sem dælt er út í sam- félagið.“ Einelti og ofbeldi Meðmælendur tillögunar benda meðal annars á að reykingar séu mikið heilsufarsvandamál og dýrar fyrir heilbrigðiskerfið. Þá hafa bæði Siv Friðleifsdóttir og Ólína Þorvarð- ardóttir sagt að frumvarpið sé lagt fram til þess að vernda börnin. Í til- lögunni er gert ráð fyrir að takmark- anir verði settar á neyslu tóbaks á lóðum opinberra bygginga, á gang- stéttum, í almenningsgörðum, á bað- ströndum, á svölum fjölbýlishúsa og opinberra bygginga. Arnór telur ólík- legt að lögreglan muni hafa tíma til þess að sinna útköllum þar sem ein- hver hefur gerst sekur um að reykja úti á svölum. „Þarna er bara verið að flækja lagaumhverfið óheyrilega mik- ið vegna hluta sem eru ekkert vanda- mál fyrir,“ segir hann. Hann segist varla trúa því að til- lagan nái fram að ganga þar sem hún sé of ofstækisfull. „Þetta virð- ist hreinlega vera ofbeldi, einhvers konar einelti gagnvart reykingar- mönnum. Það er eins og þeim finnist bara mjög ófínt að reykja og ætli þess vegna að gera allt sem þau geta til þess að drepa kúlt- úr reykingamanna.“ Hann segir forvarnarstarf hafa skilað sér vel hingað til og að það sé rétta leiðin þegar kemur að aðgerðum vegna skaðlegra efna eins og tóbaks. Þá segir hann nærtækara að herða á reglum varðandi þá sem selja ung- lingum tóbak eða þeim sem kaupa tóbak fyrir unglinga. „Breytum nafninu í Apótekið Björk“ „Ef við neyðumst til að breyta þessu í apótek verður þetta mjög fínt hjá okkur, við verðum bara hérna í hvítu sloppunum að afgreiða lyfseðilsskyld lyf. n Kemur til greina að breyta tóbaksversluninni í apótek og klæð- ast hvítum sloppum n Segir reykingafólk sæta einelti og ofbeldi Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Apótekið Björk Starfsmenn og eigendur tóbaksverslunarinnar Bjarkar íhuga að snúa vörn í sókn og breyta versluninni í apótek. „Trúði ekki að þeir væru að bíta mig“ Guðrún Guðmundsdóttir var bitin af 17 hundum: Guðrún Guðmundsdóttir var á gangi við gamla Rockville á Suðurnesjum á þriðjudaginn þegar hún varð fyr- ir árás sautján hunda sem flöðruðu upp um hana og bitu. Hún var bitin fjórum sinnum aftan á lærin og fékk þar að auki sex djúp bitsár. Guðrún segir að hún hafi verið við eggja- tínslu þegar hún sá konu með marga hunda sem allir gengu lausir. Einn hundanna hafi þó verið á reiki í kringum Guðrúnu og fylgt henni eftir. Hún hafi því ákveðið að labba í átt að konunni til þess að leiða hann aftur inn í hópinn. „Þegar ég er að ganga í áttina að henni sé ég að einn af hundunum verður var við mig og tekur á rás í áttina að mér og á eftir honum fylgir allur hópurinn“. Guðrún segist vera alvön hundum og hafi því bara staðið kyrr og hundarnir hópast í kringum hana. „Ég kalla í konuna og bið hana að kalla á hundana því mér fannst eins og það væri verið að bíta mig í fæt- urna, en ég hreinlega trúði því ekki“. „Það heyrðist eiginlega ekk- ert, þeir voru geltandi og ég kallaði á hana og hún kallaði á þá en það heyrðist eiginlega ekkert fyrir lát- um,“ segir hún. „Svo kom hún nær og tókst að draga eitthvað af hund- unum í burtu, en svo komu þeir aftur og þá fann ég að þeir voru greinilega að bíta mig. Ég sagði þá við konuna: Þeir eru að bíta mig viltu koma þeim í burtu, en hún horfði bara á mig eins og hún tryði mér ekki“. Konunni tókst að draga hundana í burtu en Guðrún stóð eftir stjörf af hræðslu. „Ég fann ekkert fyrir sárs- auka, ég var svo ofboðslega hrædd. Ég var bara dofin af hræðslu.“ Guð- rún segist hafa litið niður og þá horft beint í stórt bitsár. Guðrún vill vekja athygli á því að engar reglugerðir eru um það hversu marga hunda einstaklingur má halda. „Það er mín samfélags- lega skylda að kæra málið. Það hef- ur enginn neitt með sautján hunda að gera.“ Guðrún Guðmundsdóttir Varð fyrir árás sautján hunda sem allir gengu lausir á Rock- ville-svæðinu á Suðurnesjum. Þyrla sótti hjartveikan Landhelgisgæslunni barst rétt fyrir klukkan fimm á fimmtudag aðstoð- arbeiðni í gegnum Neyðarlínuna vegna manns með hjartatruflanir um borð í hvalaskoðunarskipinu Hafsúlunni sem var staðsett um 1,5 sjómílu norður af Gróttu.Þyrla Landhelgisgæslunnar var sam- stundis kölluð út auk bráðatækna frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem fóru á staðinn með Höllu Jóns, harðbotna björgunarbáti Slysa- varnarfélagsins Landsbjargar. Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í loftið kl. 17:09 og var komin að bátnum um svipað leyti og Halla Jóns. Sigu stýrimaður og læknir niður í Haf- súluna og undirbjuggu sjúklinginn fyrir flutning. Var síðan flogið beint á Landspítalann í Fossvogi þar sem var lent um kl. 17:30. Var viðbragð allra aðila sérstaklega gott í útkall- inu og liðu ekki nema 45 mínútur frá því að aðstoðarbeiðnin barst þar til sjúklingurinn var kominn á spítala. Einnig skipti miklu máli þrautþjálf- uð áhöfn Hafsúlunnar sem kunni vel til skyndihjálpar og undirbjó mann- inn fyrir komu björgunaraðila.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.