Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 13
Fréttir | 13Helgarblað 3.–5. júní 2011
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
HAGBLIKK ehf.
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
ild
ar
1
4
6
0
.2
4
„Ég drep þig“
Í hljóðupptökum flóttamannsins
Mousa Sharif Al Jaradat, sem eru hjá
Útlendingastofnun, kemur fram að
maður sem kallar sig Doden hers-
höfðingja hafði í líflátshótunum
við þennan 25 ára Palestínumann.
Mousa sagði í viðtali sem birtist í DV
á miðvikudaginn að maðurinn hefði
verið í Mossad, leyniþjónustu Ísrael.
DV hefur ekki fengið staðfestingu
á því hver hinn umræddi Doden er,
en blaðið hefur sent fyrirspurn til
Útlendingastofnunar. Þar er meðal
annars spurt að því hvernig þau gögn
sem stofnuninni berast séu skoðuð
og hvernig sannleiksgildi þeirra sé
staðreynt. Á upptökunum segir mað-
urinn meðal annars: „Ég mun sjá til
þess að þú munir liggja í blóði þínu
þar sem ég finn þig.“
Gögn hjá Útlendingastofnun
Mousa reyndi fyrir rúmri viku að
taka eigið líf á herbergi sínu á Gisti-
heimilinu Fitjum í Njarðvík. Hann
sagðist í samtali við DV hafa flúið
Palestínu fyrir þremur árum í kjöl-
far líflátshótana sem honum bárust.
DV hefur hljóðupptökurnar undir
höndum og fékk Palestínumanninn
Qussay Odeh sem búsettur er hér á
landi til þess að þýða upptökurnar úr
hebresku og yfir á íslensku.
Eftir að Mousa varð ljóst að hon-
um yrði hafnað um hæli hér á landi
var honum ráðlagt að safna eins
miklum gögnum um mál sitt og
hann gæti. Hann hefur nú fært Út-
lendingastofnun ýmis skjöl á arab-
ísku og ensku máli sínu til stuðn-
ings. Þar á meðal pappíra sem votta
að hann hafi lent í sprengjuárás Ísra-
elshers. DV hefur ýmis skjöl undir
höndum, meðal annars frá palest-
ínska rauða krossinum, palestínska
heilbrigðis ráðuneytinu og lækni
á ísraelskum spítala þar sem fram
kemur að Mousa hafi misst augað í
árás Ísraelshers og að hann sé ofsótt-
ur og eltur af meðlimum hersins.
„Fokka þér upp“
Þá færði Mousa stofnuninni einn-
ig hljóðupptökur en hann hafði að
eigin sögn tekið upp brot af símtöl-
unum. Þrátt fyrir að Útlendingastofn-
un hafi fengið gögnin í hendurnar
var honum nýlega tjáð að það myndi
engu breyta um stöðu mála, umsókn
hans um hæli hafi verið hafnað. Um
er að ræða tvær hljóðupptökur en
Mousa segir þá fyrri vera frá því fyrir
þremur árum þegar hann var enn þá
í Palestínu. Á henni kynnir maður-
inn sig sem Doden hershöfðingja og
hefur í svæsnum hótunum við hann.
„Ég fékk símtal frá manni að nafni
Doden sem starfar hjá ísraelsku
leyniþjónustunni, Mossad. Hann
sagði mér að síðast hefðu þeir tekið
úr mér augað og ef ég hætti ekki að
skipta mér af pólitísku starfi myndi
hann sjá til þess að næst myndu
þeir taka líf mitt. Eftir þetta seldi ég
íbúðina mína og flúði til Sádi-Arab-
íu,“ sagði Mousa meðal annars í sam-
tali við DV.
Þýðing á upptökunum.
1. Palestína
Hershöfðingi (H): Hæ.
Mousa (M): Hæ.
H: Er ég að tala við Mousa Jaradat?
M: Já.
H: Doden hershöfðingi hérna.
M: Ókei, hershöfðingi.
H: Hversu oft hef ég sagt þér að yf-
irgefa Ísrael og koma aldrei aftur? Ég
skal segja þér svolítið, ef þú kemur
nálægt Ísrael þá mun ég gera þér lífið
leitt. Ég mun sjá til þess að þú munir
liggja í blóði þínu þar sem ég finn þig.
Þú skalt aldrei koma aftur og ég er að
segja þér þetta núna í góðu. En ef þú
hlustar ekki á Doden hershöfðingja,
þá mun Doden hershöfðingi fokka
þér upp. Ég er að segja þér passaðu
þig á mér. Passaðu þig á mér og ekki
koma til baka. Ókei? Homminn þinn.
2. Noregur
H: Hæ.
M: Hæ.
H: Er þetta Mousa Jaradat?
M: Já.
H: Heyrðu ég frétti að þú værir í
Noregi núna, þú skalt bara halda þig
þar því þú ert alltaf að valda okkur
vandræðum og koma okkur í skít. Ég
sagði þér að passa þig á mér og ef þú
verður með eitthvert vesen aftur þá
drep ég þig á staðnum.
M: Haltu kjafti homminn þinn.
n Palestínskum flóttamanni hótað lífláti n Segir símtölin
vera frá leyniþjónustu Ísrael n Fær ekki hæli hér á landi
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Upptökur af hótunum Mousa tók líflátshótanir upp á símann sinn, síðar meir kom hann
upptökunum til Útlendingastofnunar.