Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Blaðsíða 20
20 | Viðtal 3.–5. júní 2011 Helgarblað „Ég er fínn í hvíld en ég get ekki gert neitt. Ég get til dæmis ekki farið út í fótbolta með drengjunum mínum,“ segir Björn Ófeigsson, 45 ára gamall maður sem íslenska ríkið var á dög­ unum dæmt til að borga 23 milljónir í skaðabætur. Björn er í dag metinn 75 prósent öryrki vegna líkamstjóns sem sem hann varð fyrir í kjölfar bráðakransæðastíflu sem starfs­ fólki Landspítalans hafði yfirsést að greina og veita meðferð við í tæka tíð. Sáttur við dóminn Kransæðastíflan leiddi til hjarta­ dreps og hefur hann í kjölfarið átt við erfið veikindi að stríða og verið með öllu óvinnufær. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Landspítalann skaðabótaskyldan árið 2007 og í kjöl­ farið voru dómkvaddir matsmenn fengnir til þess að meta það tjón sem Björn hlaut af völdum hjartaáfalls­ ins. Það var síðan á þriðjudaginn sem héraðsdómur dæmdi ríkið til þess að borga Birni 23 milljónir eins og fyrr segir. Björn segist sáttur við dóminn en hann hefur unnið hörð­ um höndum síðastliðin átta og hálft ár til að fá réttlætinu fullnægt. Hann gagnrýnir Landspítalann harðlega og segir lækna markvisst reynt að grafa undan trúverðugleika hans og pers­ ónu meðal annars með því að fara í sjúkraskrár að honum forspurðum. „Það hljómar kannski einkenni­ lega en sennilega hefur allur þessi bardagi og þessi ósanngirni og óheiðarleiki sem maður hefur upp­ lifað sennilega haldið mér gang­ andi. Maður hefur oft verið reiður og manni hefur oft sárnað. Það var sláandi þegar við fórum af stað með málið að sjá að þegar maður leggur til atlögu við þetta kerfi fer mikil mask­ ína af stað. Til dæmis þegar fyrstu greinargerðirnar komu frá landlækni þá fékk maður á tilfinninguna að alls staðar þar sem eru einhver vafaatriði sé tilhneiging til að túlka vafaatriðin lækninum sem gerði mistökin eða spítalanum í hag, en ekki þolandan­ um sem er minnimáttar,“ segir Björn. Mistök við greiningu Björn leitaði á bráðamóttökuna í Fossvogi í febrúar 2003 með verk fyrir brjósti. Hann hafði fundið fyrir slæmum verkjum fyrr um daginn og var orðinn illa haldinn þegar á spít­ alann var komið. Björn var einungis 37 ára þegar atvikið átti sér stað en hjartasjúkdómar voru þekktir í ætt hans og hann hafði reykt í tuttugu ár og því í áhættuhópi með tilliti til hjartaáfalls. „Í Fossvogi var ég stabilíseraður, gefið lyf og tekið var af mér hjartalínu­ rit sem reyndar týndist síðar og var því ekki hægt að nota sem sönnun­ argagn fyrir dómi. Ég var meðhöndl­ aður eins og um kransæðastíflu væri að ræða. Þegar ég var búinn að vera í Fossvogi í rúman klukkutíma var ég fluttur með sjúkrabíl á bráðamót­ tökuna við Hringbraut. Þar var tekið af mér hjartalínurit og yfirlæknirinn sem var á vakt breytti greiningunni eða fannst líklegra að ég væri með gollurhúsbólgu heldur en kransæða­ stíflu. Svo tók við meiri bið og stund­ um sinnti mér enginn svo tímunum skipti. Það er ekki fyrr en um hálfell­ efu sem tekið var hjartalínurit af mér sem sýndi að það var allt í klessu. Þá var ég drifinn í ómskoðun og þá kom í ljós að í framvegg í hjarta var lítill eða enginn samdráttur og það varð uppi fótur og fit.“ Hjartaómunin úti­ lokaði gollurhúsbólgu og um svipað leyti komu niðurstöður úr blóðpruf­ um sem bentu til hjartadreps. Björn var greindur með bráðakransæða­ stíflu og var í kjölfarið settur á sega­ leysandi lyf. Ekki var ræst út teymi til að framkvæma hjartaþræðingu og var hún því gerð daginn eftir. „Þá kom í ljós við þræðingu að æðin var ennþá hálflokuð. Hún var opnuð og sett í hana stoðnet. Æðin var löguð en skaðinn á hjartanu var orðinn mikill.“ Hefði átt að hringja bjöllum Björn telur að biðin frá því að hann kom fyrst á bráðamóttökuna í Foss­ vogi og þangað til hann fékk viðeig­ andi meðferð hafi verið of löng og það hafi orsakað hjartadrep. „Það kom í ljós við réttarhöldin að yfir­ læknirinn sem var á vakt á Hring­ braut hafði ekki skoðað fyrsta hjartalínuritið eða nein af þeim gögnum sem fylgdu með mér frá Fossvogi. Það liggur líka fyrir að hann sá ekki heldur hjartarit sem var tekið rétt fyrir sjö um kvöldið og sýndi breytingar sem hefðu átt að ýta við öllum og kveikja á einhverj­ um ljósum. Það var ekki fyrr en tek­ ið var rit um klukkan korter yfir tíu um kvöldið sem hann skoðaði það og þá var allt komið í steik.“ Björn lá í kjölfarið í tíu daga á Landspítalanum, þar af í þrjá daga alveg rúmfastur. „Ef þetta hefði verið greint strax hefði ég farið í hjartaþræðingu og þess vegna getað útskrifast daginn eftir. En í dag er ég með hjartabilun og mun aldrei ná fyrri heilsu. Ég er fær um að sinna athöfnum daglegs lífs eins og það er orðað en ég mæðist mjög fljótt við gang á jafnsléttu og þreytist fljótt. Ég fór í stóra hjarta­ skurðaðgerð rúmu ári eftir hjarta­ áfallið vegna þess að ég fékk gúlp við vinstri slegilinn og það þurfti að fjarlægja hann og endurmóta. Hjartað í mér er því aðeins minna en það ætti að vera.“ Farið í sjúkraskrá í óleyfi Björn og eiginkona hans pöntuðu fjölda bóka um hjartað á Amazon til þess að lesa sér til og geta skilið hvað fór úrskeiðis. „Við vildum skilja sjálf hvað gerðist, hvað hefði átt að gera og svo framvegis. Lögfræðingur­ inn sem var með okkur lagðist líka í lestur og þetta er búin að vera mikil vinna. Þegar við unnum í héraði 2007 og það var viðurkennt að það hefðu verið gerð mistök, þá héldum við í einfeldni okkar að við værum kom­ in langt með málið. En þá þurfti að meta tjónið á mér og til þess þurfti matsmenn og þá fór af stað langt og flókið ferli.“ Í þessu ferli voru fengnir tveir læknar til að gera matsgerð á ástandi Björns. „Þá var farið í sjúkraskrána mína að mér forspurðum og tínd til gögn sem sett voru í hendurnar á tveimur yfirlæknum á spítalanum og þeir fengu fyrirmæli um að skrifa greinargerð um þetta. Þetta voru gögn úr minni sjúkraskrá og að mínu mati höfðu þeir enga heimild til að gera það. Yfirlæknarnir komust að þeirri niðurstöðu að það væri senni­ lega ekkert að mér og ég væri senni­ lega bara að gera mér upp einkenni. Þeir sögðu að ég ætti að vera miklu hressari og að þessar rannsóknir all­ ar sem gerðar voru á mér hefðu all­ ar komið vel út.“ Yfirlæknarnir sem gerðu matið sögðu að engin óbil­ andi teikn um að hjartabilun væru til staðar.“ Trúverðugleiki lækna Björn segir læknana hreinlega óheiðarlega og það að þeir hafi far­ ið í sjúkraskrá hans án leyfis hafi ver­ ið gróft brot á persónuvernd. „Þeir sem fóru í sjúkraskrána voru starf­ andi framkvæmdastjóri lækninga og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra lækninga og þeir kvitta undir að hafa gert þetta. Ég og konan mín kærðum þetta til Persónuverndar en þeir hafa vísað málinu frá þrisvar vegna þess að réttarhöldunum var ekki lokið.“ Framkvæmdastjóri lækninga og að­ stoðarmaður hans verja gjörðir sínar í bréfi og þar stendur orðrétt: „Fram­ kvæmdastjóri lækninga taldi að lög­ mætir hagsmunir ábyrgðaraðila upplýsinganna vægju þyngra í þessu tilfelli heldur en friðhelgi einkalífs sjúklings.“ „Þetta finnst mér bera vott um alveg dæmalausan hroka. Þeir sendu bunka af gögnum sem þeir höfðu valið úr til matsmann­ anna og það eina sem þeir voru að hugsa um var að kasta rýrð á mína persónu og gera mig ótrúverðugan með einhverjum hætti. Með í þess­ um gögnum var dagnóta frá geð­ deild spítalans. Það gerðist nefnilega þegar ég fékk hjartaáfallið að það átti að útskrifa mig eftir tíu daga. Ég bjó einn á þessum tíma og allt í einu stóð ég þarna með fullt fangið af lyfseðl­ um.“ Björn kveið útskriftinni og var óviss um hvert framhaldið yrði. „Þá kom sálfræðingur og talaði við mig í tíu mínútur. Þeir settu inn þessa nótu sem sálfræðingurinn skrif­ aði og héldu því fram að þessi nóta varpaði ljósi á andlegt ástand mitt fyrir og eftir hjartaáfall. Það er alveg gjörsamlega út úr kú. Það er alveg dæmalaust hvernig spítalinn hefur komið fram í þessu máli og er ekki til eftirbreytni. Við svöruðum þessum tveimur læknum sem unnu mats­ gerðina byggða á þessum gögnum fullum hálsi með læknisfræðilegum gögnum og þeir höfðu nú manndóm í sér til að draga eiginlega allt til baka sem stóð í þessari greinargerð.“ Persónulegur sigur Björn segir að þrátt fyrir að dómurinn n Fékk 23 milljónir í skaðabætur frá íslenska ríkinu n Öryrki vegna læknamistaka n Greindu ekki hjartasjúkdóm rétt n Átta ára þrautaganga fyrir réttlæti loks á enda Óréttlætið hélt mér gangandi Löng barátta Birni Ófeigssyni voru dæmdar 23 milljónir í skaðabætur vegna líkamstjóns sem sem hann varð fyrir í kjölfar bráðakransæðastíflu sem starfs- fólki Landspítalans hafði yfirsést að greina og veita meðferð við í tæka tíð. Ósáttur „Stundum þegar maður las gögn frá læknunum og spítalanum og maður sá þann málflutning sem þar var hvarflaði að manni að gefast upp.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.