Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Slasaðist í gangaslag
n Fær milljónir í bætur eftir hálsbrot í Menntaskólanum í Reykjavík
H
éraðsdómur Reykjavíkur hef-
ur dæmt íslenska ríkið til að
greiða fyrrverandi nemanda
Menntaskólans í Reykjavík
tæpar níu milljónir króna í skaða-,
miska- og þjáningarbætur. Ástæðan
er sú að nemandinn slasaðist illa í
svokölluðum gangaslag sem fram fór
í skólanum þann 21. apríl 2009.
Um var að ræða hefð innan skól-
ans sem snérist um að útskriftarár-
gangur reyndi að hringja bjöllu við
enda gangs á meðan ungmenni í
öðrum árgöngum reyndu að koma
í veg fyrir það. Myndaðist við þetta
mikil kös á afar litlu svæði við skóla-
bjölluna. Þegar slagurinn var nýhaf-
inn fékk umræddur nemandi, sem
var á síðasta ári, þungt högg á höfuð-
ið, sáran verk í háls og bak og hellu
fyrir eyrum. Hann komst út af eigin
rammleik og leitaði á slysadeild eftir
að leikfimikennari við skólann sá að
ekki var allt með felldu.
Eftir rannsóknir á spítalanum
kom í ljós að pilturinn var tvíbrot-
inn á fyrsta hálslið og liðband var rif-
ið. Hann var settur í stífan hálskraga
sem hann þurfti að nota í þrettán vik-
ur og þá var hann í fimm vikur til við-
bótar í mýkri kraga, samtals í rúma
fjóra mánuði. Í dómnum kemur fram
að pilturinn hafi verið óvinnufær allt
sumarið og orðið af um 1,8 milljón-
um króna sem hann hefði fengið í
laun.
Lögmaður nemandans bar
því við fyrir dómi að stjórn skól-
ans, rektor og kennarar hafi sýnt
af sér gáleysi í kringum atburðinn
og að á undanförnum áratugum
hafi gangaslagur í skólanum þró-
ast með þeim hætti að nemendum
hafi verið bráð hætta búin af þátt-
töku í athöfninni og tók dómari í
málinu undir þau rök. Gangaslag-
urinn hefur nú verið lagður af.
Áratugahefð Gangaslagurinn var lagður
af eftir slys árið 2009. Fyrrverandi nemandi
skólans fékk tæpar níu milljónir króna í
bætur eftir slysið.Mynd SigtRygguR ARi
n Niðurfærsla skulda upp á rúmar 600 milljónir
NefNdi ekki
huNdraða
milljóNa
afskriftir
J
akob Valgeir Flosason, út-
gerðarmaður í Bolungarvík og
einn af þátttakendunum í fjár-
festingarfélaginu Stími í árslok
2007, fékk rúmlega 620 millj-
óna króna skuldaafskrift af lánum
eins útgerðarfélags síns árið 2010.
Félagið heitið Halli Ís 197 ehf. og heit-
ir eftir línuveiðiskipinu Halla Eggerts
ÍS sem Jakob Valgeir og Hraðfrysti-
húsið Gunnvör keyptu af útgerð-
inni Kambi á Flateyri í maí árið 2007.
Halli Eggerts var beitningavélabátur
sem á var 740 þorskígildistonna kvóti
þegar viðskiptin áttu sér stað.
Í ársreikningi eignarhaldsfélags-
ins fyrir árið 2010 kemur fram að
skuldir félagsins hafi verið lækkað-
ar um 623 milljónir króna. Af þess-
um sökum skilaði félagið nærri 700
milljóna króna hagnaði árið 2010 og
skuldir félagsins lækkuðu úr nærri
tveimur milljörðum króna niður í
tæpan milljarð. Útgerðarfélagið er
skráð í Bolungarvík og heldur það
utan um aflaheimildirnar sem áður
voru á Halla Eggerts en skipið sjálft
var selt til Noregs í ársbyrjun 2008.
Skuldsetning eignarhaldsfélagsins er
tilkomin út af kaupum þess á Halla
Eggerts og veiðiheimildum hans sem
metnar voru á tæplega 960 milljónir
króna í lok árs 2010.
Ekki í samræmi við orð
Jakobs Valgeirs
Þessi niðurfærsla á skuldum eins af
útgerðarfélögum Jakobs Valgeirs er
ekki í samræmi við orð sem hann
lét sjálfur falla á fundi með forsvars-
mönnum ríkisstjórnarinnar á Ísa-
firði í síðustu viku og í DV á mið-
vikudaginn. Þá sagði Jakob Valgeir
að ekkert hefði verið afskrifað af
skuldum Bolvíkinga í sjávarútvegi.
„Það er ekki búið að afskrifa neitt af
lánum handa Bolvíkingum í sjávar-
útvegi.“ Skuldir félagsins voru við
Landsbankann.
Í viðtalinu við DV sagði Jak-
ob Valgeir það sama og áréttaði að
hann líti ekki á afskriftir á hluta-
bréfaskuldum sínum sem afskriftir á
útgerðarskuldum. DV rakti að eign-
arhaldsfélag í eigu Jakobs Valgeirs
hafi skuldað um 3,5 milljarða króna
en félagið fjárfesti meðal annars í
hlutabréfum í íslensku bönkunum
og fjárfestingarfélögum eins og FL
Group og einnig í sjávarútvegi. „Það
sem kemur til með að verða afskrif-
að eru eingöngu hlutabréfaskuld-
ir eða svoleiðis dótarí sem kemur
þessum sjávarútvegi ekkert við […]
Ég lít ekki á það ef þú kaupir hluta-
bréf og þau tapast að verið sé að af-
skrifa kvótaskuldir. Ég get bara ekki
verið sammála því. Þú kaupir hluta-
bréf með veði í hlutabréfunum og
svo fara fyrirtækin á hausinn sem
þú kaupir og það tapast og veðin þar
af leiðandi líka. Þá er bara verið að
afskrifa skuldir út af þessum hluta-
bréfaskuldum en ekki skuldir sem
tengjast sjávarútvegi.“
Fjárhagsleg endurskipulagning
Kastljósið fjallaði um málefni Halla
Ís ehf. í apríl og ýjaði að því að mikl-
ar líkur væru á því að félagið hefði
fengið afskrifaðar skuldir árið 2010.
Félagið hafði hins vegar ekki skilað
ársreikningi fyrir 2010 þegar umfjöll-
unin var birt þannig að ekki var hægt
að sannreyna afskriftirnar.
Í ársreikningi Halla fyrir 2010
kemur hins vegar fram að í árslok
2009 hafi gjaldfallnar skuldir félags-
ins numið tæplega 750 milljónum
króna en einungis rúmlega 50 millj-
ónum árið eftir. Þetta bendir til þess
að þessi upphæð, eða stór hluti
hennar, hafi verið afskrifuð. Þá kem-
ur fram að félagið hafi greitt lang-
tímaskuldir upp á tæplega 1.700
milljónir króna árið 2010 og stofnað
til nýrra langtímaskulda upp á tæp-
lega milljarð. Þetta bendir til að fé-
lagið hafi endurfjármagnað skuldir
sínar árið 2010. Þá kemur jafnframt
fram að hlutafé félagsins hafi verið
fært niður og svo hækkað aftur um
130 milljónir króna sem aftur er vís-
bending um að félagið hafi gengið í
gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu. Eitt af úrræðunum vegna
málefna yfirskuldsettra eignarhalds-
félaga sem gengið hafa í gegnum
fjárhagslega endurskipulagningu er
að afskrifa hjá þeim skuldir.
Ekki náðist í Jakob Valgeir á
fimmtudaginn.
„Það er ekki búið
að afskrifa neitt af
lánum handa Bolvíking-
um í sjávarútvegi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Hundraða milljóna afskriftir Yfirskuldsett útgerðarfélag í eigu Jakobs Valgeirs fékk
rúmlega 600 milljóna afskriftir hjá Landsbankanum árið 2010. Þetta stangast á við orð
Jakobs Valgeirs sjálfs.
dæmdur fyrir líkamsárás:
Afdrifaríkt
hnefahögg
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt karlmann í fimm mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir lík-
amsárás. Maðurinn var ákærður
fyrir að hafa þann 20. júlí í fyrra
slegið annan mann hnefahöggi í
andlitið með þeim afleiðingum
að fórnarlambið hlaut brot á nef-
beini, vanga- og kjálkabeinum og
augntóftargólfi.
Atvikið átti sér stað á filmuís-
etningarverkstæði að Eldshöfða í
Reykjavík og sagði fórnarlambið
við lögreglu að árásarmaðurinn
hafi beðið hann að gera eitthvað
fyrir sig sem hann vildi ekki. Þá
hafi hann verið sleginn fyrirvara-
laust í andlitið. Árásarmaður-
inn var farinn af vettvangi þegar
lögregla kom á staðinn en hann
var þó handtekinn nokkru síðar
og yfirheyrður af lögreglu. Hann
neitaði sök fyrir dómi og sagði að
fórnarlambið hefði dottið þegar
hann ýtti við honum. Dómari í
málinu féllst ekki á þau rök og var
manninum, sem er af erlendu
bergi brotinn, gert að sæta fimm
mánaða fangelsi. Dómurinn er
þó skilorðsbundinn til tveggja
ára. Þá var honum gert að greiða
fórnarlambinu 540 þúsund krónur
í bætur.
Tækjum stolið
úr sumarbústað
Öllum heimilistækjum og hrein-
lætistækjum var stolið úr sumar-
bústað við Fljótsbakka í Grímsnesi
að kvöldi þriðjudags. Eigandinn
hafði nýlega komið með tækin í
bústaðinn og voru þau öll ný og
í umbúðunum. Í tilkynningu frá
lögreglu kemur fram að stóran
flutningabíl hafi þurft til að flytja
öll tækin sem og verkfæri sem var
stolið. Útilokar lögregla ekki að
þjófnaðurinn hafi verið skipu-
lagður og þjófunum kunnugt um
að tækin væru í bústaðnum. Lög-
reglan á Selfossi biður alla þá sem
orðið hafa varir við flutningabíl á
þessu svæði á fyrrgreindu tíma-
bili eða búa yfir einhverjum upp-
lýsingum um þjófnaðinn að hafa
samband í síma lögreglunnar 480-
1010.