Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Síða 6
K
röfuhafar eignarhaldsfélags
ins Heiðarsólar, sem áður
hét Saxhóll ehf., hafa af
skrifað tæplega 12 milljarða
króna af skuldum eignar
haldsfélagsins. Heildarkröfur í búið
námu tæplega 15 milljörðum króna
og fengust tæplega 3 milljarðar upp í
kröfurnar. Skiptum á búinu lauk í lok
mars síðastliðins.
Saxhóll var fasteignafélag í eigu
Nóatúnssystkinanna svokölluðu, erf
ingja kjörbúðarinnar Nóatúns sem
stofnuð var af Jóni Júlíussyni árið
1960. Eigendur félagsins voru Jón
Þorsteinn Jónsson, Einar Örn Jóns
son, Júlíus Þór Jónsson og Rut Jóns
dóttir.
Tugmilljarða gjaldþrot
Félagið hélt meðal annars utan um
fasteignir sem hýstu verslanir Nóa
túns en rekstur þeirra var seldur
til Jóns Helga Guðmundssonar í
Kaupási árið 2003. Ein af lykileignum
félagsins var stórhýsið í Nóatúni sem
verslanirnar heita eftir.
Eigendur Saxhóls voru umsvifa
miklir í fjárfestingum á árunum fyr
ir hrunið og voru meðal annars með
stærstu hluthöfum Glitnis í gegnum
eignarhaldsfélagið Saxbygg, ásamt
verktakafyrirtækinu BYGG, áttu hlut
í Smáralindinni í gegnum Fasteigna
félag Íslands og voru meðal stærstu
hluthafa í sparisjóðnum Byr. Gjald
þrot félaga sem tengjast þeim nema
fleiru tugum milljarða króna.
Landsbankinn stærstur
Helgi Jóhannesson, lögmaður og
skiptastjóri Heiðarsólar, segir að
Landsbankinn hafi verið langstærsti
kröfuhafi félagsins með í kringum
80 prósent krafna. Þá lýstu Íslands
banki, Kaupþing og Arion banki
einnig kröfum í búið
Helgi segir að eignirnar sem ver
ið hafi í búinu hafi verið ýmsar fast
eignir, til dæmis á Köllunarklettsvegi,
Síðumúla 11 og Ármúla 26. Hann
segir engin málaferli hafa verið höfð
uð út af skiptunum á búinu. Í auglýs
ingu frá Helga í Lögbirtingablaðinu
segir að rúmlega 19 prósent hafi
fengist upp í lýstar kröfur: „Skiptum
á búinu lauk þann 29. mars sl. með
því að kr. 2.869.386.122 eða 19,36%
greiddust upp í samþykktar kröfur.
Þá greiddist kostnaðurinn við skiptin
að fullu. Engum forgangskröfum var
lýst í búið.“
Halda verðmætum eignum
DV greindi frá í lok október í fyrra að
fyrrverandi eigendur Saxhóls hefðu
gengið frá skuldauppgjöri við kröfu
hafa sína. Dótturfélag Landsbank
ans, Regin A3 ehf., hafði þá leyst
til sín eignir sem áður voru í þeirra
eigu og boðið þær til sölu. Meðal
annars var um að ræða fasteignir í
Lóuhólum, Hraunbæ og Grensás
vegi, auk áðurnefndra eigna sem
Helgi vísaði til hér að ofan. Lands
bankinn reyndi að selja þessar fast
eignir í lok árs 2010 en engin tilboð
bárust í þær.
Í frétt DV kom fram að Nóa
túnssystkinin héldu hins vegar eft
ir verðmætum eignum í Nóatúni,
stórhýsinu sem Nóatúnsverslan
irnar eru kenndar við, sem og versl
unarhúsnæði í Hamraborg í Kópa
vogi sem hýsir verslun Nóatúns í
dag. Fasteignirnar eru báðar í eigu
fasteignafélagsins Íshamra sem
er í eigu þeirra systkinanna. Fast
eignamatið á eigninni í Nóatúni 17,
sem er rúmlega 4.000 fermetrar að
stærð, er nærri 400 milljónir króna.
Eignirnar voru áður hluti af eigna
safni Saxhóls. Fyrrverandi hluthafar
Saxhóls halda því eftir verðmætum
eignum inni í öðru eignarhalds
félagi þrátt fyrir gjaldþrot félagsins.
6 Fréttir 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
„Hann verður í anda Geira“
n Nektarstaðurinn Goldfinger áfram í rekstri
G
oldfinger verður áfram starf
andi,“ segir Jaroslava Davíðs
son, ekkja Ásgeirs Þórs
Davíðs sonar, sem var betur
þekktur sem Geiri á Goldfinger. Ás
geir Þór varð bráðkvaddur á heimili
sínu föstudaginn 20. apríl, 62 ára að
aldri. Samkvæmt Jaroslövu verður
staðurinn rekinn áfram í sömu mynd
og verið hefur. „Hann verður í anda
Geira,“ segir Jaroslava, en hún hef
ur verið einn af eigendum Goldfin
ger ásamt Ásgeiri og tveimur sonum
hans undanfarin ár. Jaroslava segir
andlát Ásgeirs Þórs hafa verið mikið
áfall fyrir sig og fjölskylduna en Ás
geir lætur eftir sig sjö börn sem hann
átti með fjórum konum.
Ásgeir var lærður matreiðslu
maður og var meðal annars bryti
hjá Landhelgisgæslunni en átti síðar
staðina Skipperinn, Hafnarkrána og
nektarstaðinn Maxims.
Ásgeir Þór var löngum umdeild
ur maður en hann stofnaði nektar
staðinn Goldfinger árið 1999 og hef
ur verið ötull talsmaður lögleiðingar
vændis.
Ásgeir átti vini í öllum lögum þjóð
félagsins og má glöggt sjá það á Face
booksíðu hans þar sem fjölmargir
minnast hans. Þar á meðal eru Jón
stóri, Inga á Nasa, Kristmundur Axel,
Björgvin Páll Gústavsson, Ásdís Rán,
Sigga Lund, Sveinn Andri Sveinsson
og Jógvan Hansen.
Útför Ásgeirs fer fram frá Hall
grímskirkju í dag, föstudag 27.
apríl, og búast má við að margir
fylgi Ásgeiri til grafar en honum er
lýst sem vinmörgum manni með
stórt hjarta.
ATRIX
BAKPOKARYKSUGAN
ÖFLUG FYRIR SAMEIGNIR OG HÚSFÉLÖG
- Hepa pokar
- 4 þrepa filter
- Létt og þægileg
- Öflug, 1400 wött
Á TILBOÐI Í APRÍL:
58.990 kr
Fullt verð: 68.368 kr
Marpól ehf, Dalbrekku 24, 200 Kópavogur, sími: 544-5588, www.marpol.is
„Gjaldþrot félaga
sem tengjast þeim
nema fleiri tugum millj-
arða króna.
n Tæplega 15 milljarða kröfur n Halda verðmætum eignum
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Afskrifuðu
12 milljArðA
Halda flaggskipinu Fyrrverandi
eigendur Nóatúns halda eftir verðmætum
fasteignum þrátt fyrir að fasteignafélag
þeirra, Saxhóll ehf., sé orðið gjaldþrota.
Athafnamaður Ásgeir Þór Davíðsson,
eigandi Goldfinger, varð bráðkvaddur
föstudaginn 20. apríl.
Stakk mann
með steikar-
hníf
Hæstiréttur Íslands hefur stað
fest dóm héraðsdóms yfir konu
sem sakfelld var fyrir hníf
stungu. Konan réðst á fyrrver
andi sambýlismann sinn í des
ember 2010. Samkvæmt ákæru
sló hún hann í andlit og stakk
hann með steikarhníf í öxl með
þeim afleiðingum að hann
hlaut bólgu á kinnbeini og fjög
urra sentímetra skurð á vinstri
öxl. Konan bar því við að hníf
stungan hefði atvikast þannig
að maðurinn hefði dregið hana
á hárinu um íbúðina, en síðan
tekið hníf og spurt hana hvort
hún ætlaði ekki að stinga hann.
Lýsti hún því svo að hún hefði
slegið í hönd mannsins, sem
hélt um hnífinn, og við það
hefði hnífurinn stungist í öxl
ina á honum. Konan var dæmd
í tólf mánaða fangelsi, þar af
níu mánuði skilorðsbundna, í
héraðsdómi.
Össur Skarphéðinsson:
Aðild snýst
um langtíma
hagsmuni
Aðild Íslands að Evrópusam
bandinu snýst um langtímahags
muni Íslands, að mati Össurar
Skarphéðinssonar utanríkisráð
herra. Þetta kom fram í fram
söguræðu hans við upphaf um
ræðna um utanríksmál á Alþingi
á fimmtudag. Össur sagði að eitt
af meginmarkmiðum aðildar
væri að koma á efnahagslegum
stöðugleika, auka fjárfestingar og
skapa störf fyrir Íslendinga fram
tíðarinnar.
Hann sagði íslenskt efnahags
líf, með öll sín tækifæri, auðlindir
til lands og sjávar, vel menntað
og kraftmikið fólk og sterka stöðu
á norðurslóðum, enn glíma við
innbyggða kerfisgalla sem hefðu
um áratugaskeið valdið óstöðug
leika og átt sinn þátt í efnahags
hruninu haustið 2008. Nú vofði
yfir Íslandi snjóhengja í formi
ríflega þúsund milljarða króna.
Utanríkisráðherra sagði eitt mik
ilvægasta markmiðið vera að ná
samstarfi við Evrópu um afnám
gjaldeyrishaftanna og að bræða
snjóhengjuna án þess að hún
breyttist í efnahagslegt hamfara
hlaup.