Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Qupperneq 8
8 Fréttir 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Flestir vilja Þóru sem forseta
n Mælist með tæplega helming atkvæða
Þ
óra Arnórsdóttir mun fá af-
gerandi meirihluta atkvæða í
komandi forsetakosningum ef
marka má könnun Félagsvís-
indastofnunar Háskóla Íslands.
Könnunin leiðir í ljós að 49 pró-
sent svarenda ætla að kjósa Þóru en
Ólafur Ragnar Grímsson mælist með
um 35 prósenta fylgi. Ari Trausti Guð-
mundsson, sem tilkynnti framboð sitt
í síðustu viku, er með 11,5 prósenta
fylgi en aðrir frambjóðendur um 3
prósent.
Sami hópur var spurður um af-
stöðu sína til frambjóðenda þann 17.
apríl síðastliðinn, áður en Ari Trausti
Guðmundsson tilkynnti um framboð
sitt. Svo virðist sem hann sæki fylgi
sitt til þeirra sem voru óákveðnir í fyrri
könnuninni en 46 prósent þeirra sem
nú segjast ætla að kjósa hann svöruðu
áður að þeir myndu skila auðu, væru
óákveðnir eða vildu ekki svara. Þriðj-
ungur stuðningsmanna Ara Trausta
ætlaði að kjósa Þóru Arnórsdóttur í
fyrri könnun og 11 prósent þeirra ætl-
uðu að kjósa Ólaf Ragnar Grímsson.
Í könnuninni var einnig spurt út í
þá eiginleika frambjóðenda sem hafa
áhrif á ákvarðanatökuna. Almenn
framkoma er sá eiginleiki Þóru sem
vegur þungt hjá stuðningsmönn-
um hennar. Þekking og reynsla Ólafs
Ragnars Grímssonar og heiðarleiki
hjá Ara Trausta eru þeir eiginleikar
sem þeirra stuðningsmenn nefndu.
gunnhildur@dv.is
Æsispennandi Meistaradeild:
Missti stjórn
á sér yfir
leiknum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
þurfti að hafa afskipti af karlmanni
sem var fremur æstur vegna undan-
úrslitaleiks Meistaradeildar Evrópu
í knattspyrnu. Spænska liðið Real
Madrid tók á móti þýska liðinu FC
Bayern á miðvikudagskvöld þar
sem Þjóðverjarnir komust áfram
eftir æsispennandi vítaspyrnu.
Það var á níunda tímanum að
kvöldi miðvikudags sem lögreglu á
höfuðborgarsvæðinu barst kvörtun
vegna hávaða úr íbúð karlmanns-
ins.
„Húsbóndinn kom til dyra og
viðurkenndi strax að hann ætti sök
á þessum látum. Þvertók hins vegar
fyrir að hann væri að rífast við kon-
una eða börnin og þetta ætti sér
eðlilegar skýringar. Þær voru á þann
veginn að maðurinn var að horfa
á undanúrslitaleik í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu og var viður-
eignin æsispennandi enda komin
framlenging og kappið hefði borið
hann ofurliði. Þetta var tekið gott
og gilt en maðurinn engu að síður
beðinn um að reyna að róa sig og
taka þar með tillit til nágrannanna
í blokkinni. Engar frekari kvart-
anir bárust vegna mannsins og því
líklegt að honum hafi tekst að róa
taugarnar,“ segir í dagbók lögreglu
um málið.
V
ið látum bara breyta þessu,
breyta merkingunum,“ segir
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri rekstrarfélags
Hörpu, um bílastæði í bíla-
kjallara hússins sem hafa vakið mikla
umræðu. „Við munum ekki blanda
saman stæðum fyrir konur og fatlaða.“
Stæðin, sem eru merkt fötluðum og
konum, vöktu mikla umræðu eftir að
mynd af þeim birtist á netinu. Hösk-
uldur segir að óheppilegt hafi verið
að blanda merkjum fatlaðra og tákni
kvenna saman á stæðunum.
Fjölskyldustæði verða búin til
Tilkynnt hefur verið að gera eigi sér-
stök fjölskyldustæði í bílastæðakjallar-
anum undir húsinu og að stæðunum
sem núna eru merkt bæði fötluðum
og konum verði breytt í sérstök stæði
fyrir fatlaða. „Við eigum eftir að taka
ákvörðun um nákvæma útfærslu á
þessum fjölskyldustæðum fyrir barna-
fólk,“ segir Höskuldur. Í samtali við DV,
áður en tilkynnt var um að hætt hefði
verið við að hafa stæðin merkt bæði
fötluðum og konum, sagði Torfi Hjart-
arson, verkefnastjóri glerhjúps og bíla-
stæðahúss Hörpu, að upphaflega hafi
umdeildu stæðin átt að vera merkt
með barnavagni og vera ætluð fötluð-
um og barnafjölskyldum en í raun hafi
öllum verið frjálst að nota þau.
Torfi sagði einnig að umrædd bíla-
stæði hafi verið umframstæði og vís-
aði hann þar til þess að reglur um
fjölda bílastæða fyrir fatlaða hafi ver-
ið uppfylltar áður en umdeildu stæð-
in voru merkt. Samkvæmt því sem
Höskuldur segir mun þó bílastæðum
eingöngu ætluðum fötluðum fjölga
sem nemur stæðunum sem nú eru
merkt fyrir bæði konur og fatlaða.
Engin stæði sérstaklega
fyrir konur
Soffía Valtýsdóttir, einn af arkitekt-
um hússins, vísaði í evrópskar reglu-
gerðir í svari við fyrirspurn DV um
bílastæðin á fimmtudag. „Víða í Evr-
ópu eru reglugerðarákvæði sem taka
til fjölda bílastæða sérmerktum kon-
um sem og svokölluð fjölskyldustæði
þar sem það hefur sýnt sig að konur
eru oft óöruggar og líður illa í slíkum
húsum og þessum stæðum því gjarn-
an komið fyrir nálægt inngöngum,“
sagði hún. Reglurnar eru hins vegar
ekki í gildi og segir Höskuldur ekki
verði ráðist í gerð slíkra stæða að nýju
nema til komi íslenskar reglugerðir
þar að lútandi.
„Þarna er verið að blanda saman
merkingu stæða fyrir fatlaða og kven-
fólk. Við erum að hætta við það þann-
ig að við verðum bara með sérstök
stæði fyrir fatlaða en ef síðan kem-
ur reglugerð fyrir Ísland sem kveður
á um það þurfi að vera með sérstak-
an fjölda stæða fyrir kvenfólk þá bara
bregðumst við við því,“ útskýrir hann.
n Óheppilegt þótti að merkja stæðin bæði fötluðum og konum
Bakka með
kvennastæði
„Við erum að hætta
við það að vera að
blanda þessum merking-
um saman.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Netheimar loga Mikil umræða hefur verið um bílastæðin á Facebook. MyNd GuNNar GuNNarssoN
Málað upp á nýtt
Bílastæðin sem merkt
eru fyrir fatlaða og konur
verða merkt upp á nýtt.
MyNd siGtryGGur ari JóHaNNssoN
Norðmaður
vann 211
milljónir
Norðmaður datt í lukkupottinn á
miðvikudagskvöld þegar dregið var
í Víkingalottóinu. Norðmaðurinn
var með allar tölur réttar í útdrætt-
inum og fær í sinn hlut 211 millj-
ónir króna. Íslenski bónuspotturinn
gekk út og fékk stálheppinn Íslend-
ingur, sem var með miða í áskrift,
tæplega 2,9 milljónir króna í sinn
hlut. Þá var einn með fjórar tölur
réttar í Jókernum og fær hundrað
þúsund krónur. Jókermiðinn var
keyptur í Olís, Langatanga í Mos-
fellsbæ.
Könnun Félagsvísindastofnunar HÍ
Gefur til kynna að Þóra muni fá flest
atkvæði. MyNd: Eyþór ÁrNasoN